Þjóðviljinn - 27.05.1978, Qupperneq 13

Þjóðviljinn - 27.05.1978, Qupperneq 13
Laugardagur 27. mal 1978. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13 xG Kópavogur xG Baráttufundur Alþýdubandalagsins Komið stundvís- Þó að oft hafi Alþýðubandalag- ið i Kópavogi haldið fjölmenna baráttu- og kosningafundi, mun enginn hafa jafnast á við fund félagsins á miðvikudaginn. Þá troðfyUtist Kópavogsbló út úr dyrum ogurðu mennað standa og sitja i hverju skoti. Bióið rúmar um 270 manns i sæti,en á fundinn komu á fjórða hundrað manns. Auk þess urðu margir seni ekki treystu sér til að standa frá að hverfa, þannig að óhætt mun að fullyrða að ekki færri en 350 mannshafikomið til fundarins. Þorsteinn Valdimarsson — skáld og baráttumaður Fyrri hluti fundarins var helg- aður minningu skáldsins og tónlistarmannsins Þorsteins Valdimarssonar, sem alla tið var eldheitur baráttumaður fyrir sósialisma. Björn Þorsteinsson, prófessor minntist Þorsteins i stuttu erindi, en þeir voru miklir vinir. Þá söng Guðrírn Tómas- dóttir lög við ljóð Þorsteins, en sum lögin hafði Þorsteinn samið sjálfur. Hamrahliðarkórinn flutti lika lög og ljóð eftir Þorstein, og lesin voru nokkur ljóða hans. Stöðugt bætast við sjálfboða- liðar sem vilja vinna fyrir félag- ið á kjördag. Kosningastjórinn Tryggvi Felixson sagði að sim- inn hefði varla þagnað siðustu dagana; fólk væri alltaf að bjóða fram aðstoð sina. Vildi hann beina þvi til manna að koma stundvislega til starfa á morgun, þvi að ekki veitti af að nota timann vel. Vönduð og vel unnin dagskrá Flutning önnuðust Hjálmar Ölafsson og Gunnar Valdimars- son, bróðir skáldsins. 2000 fatlaðir i Kópavogi Eftir hlé ávarpaði Magnús Kjartanssonfundinn og ræddi um utangarðshópana i þjóðfélaginu. Hann sagði að einn mesti smánarblettur á Islensku þjóðfélagi bæði fyrr og siðar væri meðferðin og viðhorfin til fatl- aðra; þeim væri aðeins ætlað að vera áhorfendur að lifinu en ekki þátttakendur i þvi. Sagði hann að engar upplýsingar væru til um fjölda fatlaðra á fslandi en samkv. erlendum rannsóknum væru þeir um 15%. Þvi mæætti ætla að fatlaðir i Kópavogi væru nálægt 2000 manns. Taldi Magnús það verðugt verkefni fyrir vinstri menn i Kópavogi að berjast fyrir bættum hag þessa fólks m.a. með þvi að breyta byggingasamþykkt kaup- staðarins á þannveg að skylt væri að hanna öll hús þannig að fatlað- ir gætukomist um þau i hjóla^tól. Siðan var flutt samfelld dagskrá um baráttu alþýðu fyrir bættum kjörum frá upphafi byggðar á fslandi. Flutning önn- uðust félagar i Alþýðubandalag- inu og sömdu þeir einnig efnið. Inn i lesturinn var fléttað söng, sem sönghópur Rauðsokka sá um og einnig las Jón úr Vör tvö ljóð sin. í lok fundarins söng götuhóp- ur Alþýðubandalagsins tvö lög og fundi sleit Ragna Freyja Karls- dóttir, en hún skipar 4. sætið á G-listanum, baráttusætið. Vinniðvel Hvattihúnmenntilaðvinna vel að glæsilegum sigri Alþýðu- bandalagsins i Kópavogi á morgun — Það væri einasta vonin til þessaðskipt yrði um stjórnar- stefnu i Kópavogi. Hún minnti menn á það, að hvert einasta atkvæði, sem fellur til Framsóknarmanna er beinn Siminn á skrifstofunni á Hamraborg 11 er 41746. Tryggvi Felixson kosningastjóri. stuðningur við ihaldið i bænum — og við f jandsamlegt ríkisvald. Fundarstjóri var Hallfriður Ingimundardóttir, sem skipar 6. sætiðá lista Alþýðubandalagsins i Kópavogi. Kópavogsbíó trodfylltist

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.