Þjóðviljinn - 27.05.1978, Qupperneq 17

Þjóðviljinn - 27.05.1978, Qupperneq 17
Laugardagur 27. maí 1978.ÞJÖÐVILJINN — StÐA 17 Aukinn straumur til vinstri Rabbaö við Kristinu A. Ólafsdóttur sem skipar þriöja sœti á lista Alþýðu- bandalagsins á Akureyri Kosningarnar leggjast nokkuð vel i mig. Eftir þvi sem maður heyrir frá fólki Uti á götu virðist vera straumur til vinstriog ég tel alls ekki vonlitið að koma Helga Guðmundssyni trésmið inn f bæjarstjórn þó að vanti nú um 300 atkvæði miðað við fylgið siðast. Þessi orð sagði Kristin A. ólafsdóttir þegar Þjóðviljinn hringdi norður til að forvitnast um bæjarstjórnarkosningarnar á . Akureyri. Kristln skipar þriðja sæti á framboðslista Alþýðu- bandalagsins i þessum kosningum. — Við leggjum mikla áherslu á að koma Helga inn, sagði Kristln, þvi að með þvi tengdist verka- lýðshreyfingin beint viö bæjar- stjórnina. Hann er formaður Tré- smiðafélagsins hér og auk þess stjórnarmaður i MFA sem vonir eru bundnar við að geti komið mörgugóðu til leiðar i fræðslu- og félagsmálum. — Um hvað eru meginátökin i þessum kosningum? — Þau snúast um það hvort sá vinstri meirihluti sem verið hefur hér siðasta kjörtimabil haldist eða hvort ihaldið sem er með 5 fulltrúa nær meirihluta með þvi að bæta við sig manni. Að visu hefur Alþýðuflokkurinn lýst þvi yfir að hann gangi óbundinn til kosninga svo að það er hugsan- legt að hann gangi i sæng með ihaldinu eftir þær. Alþýðubanda- lagið hefur eitt flokka lýst þvi afdráttarlaust yfir að það vilji halda áfram vinstra samstarfinu ef úrslit kosninganna ráðast á þann veg. — Hver eru helstu stefnumál ykkar? — Við höfum lagt áherslu á atvinnumálin og viljum að uppbygging atvinnuveganna verði i félagslegu formi eins og verið hefur stefna meirihlutans og gefið hefur góða raun hér á Hússtjórnarskóli Suðurlands Kristin A. ólafsdóttir Akureyri t.d. i útgerðinni, rekstri sambandsverksmiðjanna og Slippstöðinni. Þá leggjum við mikla áherslu á að dagvistarmál hafi forgang á næsta kjörtimabili. A Akureyri eru rúmlega 1000 börn á aldrinum 2-5 ára en aðeins pláss fyrir 180 á dag vistarstofnunum. — Borgarstjórinn i Reykjavik gagnrýndi ykkur fyrir slælega frammistöðu i dagvistarmálum i sjónvarpi um daginn. — Eins og Soffia Guð- mundsdóttir hefur bent á voru þessi mál I miklum ólestri þeg- ar kjörtimabilið hófst, og ofan á það bættist að núverandi rikis- stjórn kippti til baka stuðningi við byggingu dagvistarstofnana árið 1975. Nú á að fara að reisa nýjan leikskólameð plássi fyrir 80 börn og á fjárhagsáætlun bæjarins er hönnunarframlag til dagheimilis i Glerárþorpi. Þá tók til starfa á þessu kjörtfmabili skóladag- heimili og varkeypthúsnæði fyrir það I fyrra. Þar voru um 25 börn i vetur. Einu má bæta við ennþá. Það var ákveðið að á leikskólum gætu verið þroskaheft börn og fjölgað starfsliði i þeim tilgangi. Þetta tiðkast hvergi annars staðar á landinu svo að ég viti til. Það er þvi alls ekki rétt aö ekkert hafi verið gert i dagvistarmálum hér á Akureyri undanfarin 4 ár. 1 framhaldi af þessu vil ég lika nefna að Soffia Guðmundsdóttir hefur verið formaður félagsmála- ráðs og félagsumbætur hafa aukist að mun undir hennar for- mennsku. Vil ég þar sérstaklega nefna aukna heimilisaðstoð fyrir gamalt fólk og sjúklinga. —GFr Nafntausi sönghópurinn. r I félagsstofnuninni i dag Listin i þágu alþýðunnar 1 dag kl. 15.00 verða haldnir tónleikar i Félagsstofnun stúd- enta við Hringbraut undir kjör- orðunum LISTIN 1 ÞAGU AL- ÞÝÐUNNAR. Þar koma fram m.a. Kór Al- þýðumenningar, Nafnlausi söng- hópurinn, sem er nýstofnaður hópur söngvara og hljóðfæraleik- ara og flytur hann baráttulög, hljómsveitin Melchior, Þorvaldur Árnason og Auður Haraldsdóttir, Hjördis Bergsdóttir, 2 gestir frá Danmörku og fleiri. Þá verður stjórnað fjöldasöng. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Breyttir starfshættir Með samþykki menntamála- ráðherra og skólanefndar Hús- stjórnarskóla Suðurlands, hefur verið ákveðin breyting á starf- semi skólans, nú þegar á næsta hausti. Stjórnskipuð nefnd, sem veitir þessi deild góðan undirbún- ing til framhaldsnáms I Hótel- og veitingaskóla Isiands og fleiri skólum. Akveðið hefur verið að meta til styttingar nám þeirra umsækj- Húistjórnarskóll Suðurlands á Laugarvatnl. fjallaði um starfsemi skólanna að Laugarvatni, lagði til að stofnuð yrði við skólann ný tveggja ára hússtjórnarbraut, eða réttara sagt hússtjórnardeild, f samræmi við lög nr. 53/1975 um hússtjórn- arskóla. Aætlað er að veita nem- endum menntun til að annast for- stöðu smærri mötuneyta og vist- stofnana og til að vera aðstoðar- ráðsmenn i stórum mötuneytum, að viðbættri starfsþjáifun svo og ræstingarstjórar á sjúkrahúsum og stærri stofnunum. Einnig enda, sem lokið hafa námi frá einhverjum hússtjórnarskóla, svo að þeir geti lokið umræddu tveggja ára námi I hússtjórnar- fræðum á styttri tima en ella. Bóklega námið i framhaldsdeild- inni verður samræmt og tengt við aðrar nýjar framhaldsbrautir sem ákveðið er að stofna við hina skólana að Laugarvatni. Þá verða, auk þess sem áður er getið, haldin styttri námskeið i al- mennum heimilisfræðum við skólann. 1) A timabilinu 1.-14. október verður haldið námskeið, sér- staklega ætlað ungu fólki sem hyggst stofna heimili og verður trúlofuðu fólki og hjónum gef- inn kostur á að búa saman i herbergi. Á námskeiðinu verður lögð sérstök áhersla á fræðslu fyrir byrjendur i heimilishaldi. Fengnir verða sérfræðingar til fyrirlestra um hjúskaparmál og barnauppeldi o.fl. 2) Tveggja mánaða námskeið verður haldið i heimilisfræöum og handmennt á timabilinu frá 18. okt. til 16. desember. Kenndar verða manneldis-, heilsu- og uppeldisfræðigrein- ar. Jafnhliða almennri mat- reiðslu verða einnig kennd hauststörf á þjóðlega visu, svo sem sláturstörf, niöursuöa og hraðfrysting matvæla. Sérstök áhersla verður lögð á jólaund- irbúning á þessu námskeiði. 3) Frá 8. janúar til mailoka verð- ur haldið námskeið i almennum hússtjórnargreinum og hand- mennt. Verða einnig kenndar bóklegar greinar, svo sem nær- ingar-, heilsu- og uppeldis- fræðigreinar o.fl. Þessu námskeiði lýkur með prófi og getur það próf stytt nemendum leiðina á tveggja ára brautinni, þ.e. hússtjórnar- brautinni. Allar deildir Hússtjórnarskóla Suðurlands eru jafnt opnar fyrir pilta sem stúlkur. AUGLYSING Greiðsla oliustyrks i Reykjavik fyrir timabilið jan. — mars 1978 er hafin. Oliustyrkurinn er greiddur hjá borgar- gjaldkera, Austurstræti 16. Afgreiðslu- timmí er frá kl. 9.00 — 15.00 virka daga. Styrkurinn greiðist framteljendum og ber að framvisa persónuskilrikjum við mót- töku. Skrifstofa borgarstjóra. Framhaldsskólanám að loknum grunnskóla Athygli er vakin á að umsóknarfresti um inngöngu á ýmsar námsbrautir á framhaldsskólastigi lýkur 10. júni, og nemendur sem siðar sækja geta ekki vænst skólavistar. Tilskilin umsóknareyðublöð fást i þeim grunnskólum, sem brautskrá nemendur úr 9. bekk, og I viðkomandi fram- haldsskólum. Leiðbeiningar um hvert senda skuli um- sóknir eru á umsóknareyðublöðun im. Menntamálaráðuneytið, 25. mai 1978 Afgreiðsla Þjóðviljans er opin sem hér segir: A mánudögum frá kl. 9 — 17. Þriðjudögum — föstudags kl. 8 — 17. Laugardögum frá kl. 8 —12 og kl. 17 —19. Lokað á sunnudögum. Simi 8-13-33. Þjóðviljinn

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.