Þjóðviljinn - 27.05.1978, Blaðsíða 22

Þjóðviljinn - 27.05.1978, Blaðsíða 22
-22 SÍÖÁ.r- ÞtfóÐVILJINN Laugardagur 27. mal 1978. 15% hækkun á bótum ahnannatryggínganna 1 samræmi við lög nr. 3 frá 17. febrúar 1978 um ráðstafanir i efnahagsmálum og með visan til bráðabirgðalaga frá 21. mai um breytingar á þeim lögum munu allar bætur almannatrygginga hækka um 15% frá 1. júni 1978 að telja. Upphæðir bótaflokka verða eft- ir hækkun sem hér segir: . EUilifeyrir tekinn frá 67 ára aldri frá 68ára aldri frá 69 ára aldri frá 70 ára aldri frá 71 árs aldri frá 72ára aldri Kr. á mán. 44.400,- 48.172,- 53.748.- 59.287,- 66.590,- 74.176.- Hjónalifeyrir 67/67 77.620,- (hjón fá 90% lifeyris tveggja einstaklinga) Tekjutr. einstaklinga 39.706.- ásamt 67 ára lifeyri 84.106.- Tekjutr. hjóna 67.122,- ásamt 67/67 ára lifeyri 144.742,- Barnalifeyrir 22.719,- Heimilisuppbót 13.800.- Vasapeningar (50. gr.) 10.350,- Mæðralaun 1 barn 3.895,- Mæðralaun 2börn 21.143,- Mæðralaun 3börn 42.282.- Ekkjulifeyrir 60—66 44.400,- Ekkjubætur 6 mán. 55.632,- Ekkjubætur 12mán. 41.716,- Fæðingarstyrkur 51.721,- Fæðingarkostnaður 22.648.- Sjúkradagpeningar Kr. á dag heima f. 17 ára og eldri 1.894,- með hverju barni 515.- á sjúkrahúsi f. fyrirvinnu heimilis 1.263,- f. aðra 17 ára og eldri 631,- með hverju barni 407.- Dagpeningar slysatrygginga fyrir einstaklinga . eldri en 17 ára 2.397,- með hverju barni 515,- Kostnaður viö þessa hækkun er áætlaöur 750 — 800 miljónir á yfirstandandi ári. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytiö 26. mai 1978. ASI Framhald af bls. 10. tekjur fyrir yfirvinnu skertu rétt til verðbóta og átu að jafn- aði þennan viðauka alveg upp. Þetta gerist ekki nú, þvi að verbótaviðaukinn kemur alltaf á dagvinnuna, en hins vegar raskast öll launahlutföll varðandi yfirvinnu á mjög svi- virðilegan hátt hjá þvi fólki sem mesta yfirvinnu vinnur og helst þarf á þeim tekjuauka að halda sem yfirvinnan gefur. Vitnað var til þess að forsætis ráðherra hafði talað á fundi Vinnuveitendasambandsins um það, hve launaútreikningar væru orðnir flóknir, kjarasamn- ingana þyrfti að einfalda. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkamanna- sambandsins benti á, að ekki batnað nú ástandið að þessu leyti þegar stjórnvöld væru búin að fara höndum um samninga. Þá fyrst yrðu kjaraákvæðin alveg óskiljanleg fyrir flesta múgamenn i landinu. Nú þyrfti aðstoð háskólamenntaðra manna i sérgreinum til að túlka einföldustu kjaraákvæöi 2. grein kjaraskerðingar- laganna frá febrúar um verð- bótaviöauka var framkvæmd á mismunandi hátt, enda margir sem ekki voru inni i fræðigrein- inni, bæði kaupgreiðendur og launþegar. Nú er viðurkennt að ákvæðin hafi ekki reynst nógu vel, og kynni að koma að þvi að hin nýju ákvæði bráðabirgða- laganna mundu ekki standast timans tönn heldur. Röskun eðlilegs jafnvægis Guðjón Jónsson formaður Málm- og skipasmiðasambands ins kvaöst siður en svo vilja draga úr þvi, hvað áframhald- andi kaupskerðing er alvarlegt mál.En hitt væri ekki siður mjög alvarlegt, hvernig lögin röskuðu allri uppbyggingu kjarasamninganna, hlutföllum milli mismunandi vinnu og starfsgreina sem orðið hefðu til á löngum tima i atvinnulifinu og við frjálsa samninga aðila. Dregið væri úr gildi erfiðis- álaga, óþrifaálaga, vaktaálaga oþh. Bónus i frystihúsum þyrfti 1. júni að hækka um 11,4% til að halda sama hlutfalli gagnvart dagvinnu og hann hefur hingað til haft. Vaktaálag hjá sóknarstúlkum verður 29,6% i stað hins samn- ingsbundna sem er 33%. útflutningsbannið skapar gífurlega spennu Sumir fréttamannanna á fundi ASt-forustunnar i gær vildu efast um áhrifamátt út- flutningsbannsins. Guðmundur J. tók þá i kennslustund og kvaðst geta fullyrt að atvinnu- rekendur, útflytjendur, litu öðru visi á málin. Hvar vetna væru fullar frystigeymslur og önnur birgðasöfnun alveg t hámarkl All-mikill kostnaöur er við umhiröu og varöveislu þessara ’birgða, en þó væri það barna- leikur hjá allri vaxtabyrðinni sem leiddi af óseldum birgðum. Hins vegar hefur enginn verka- maður né verkakona tapaö dagsstund i vinnu vegna útflutn- ingsbannsins.Talsvert er um undanþágur.en þó ekki nema lit- ið miðað við beiðnir. Yfirvinnubann kemur til greina Forystumenn ASl og sérsambandanna vörðust allra frétta af þvi, með hvaða hætti verkalýðshreyfingin hyggst sækja rétt sinn i greipar at- vinnurekenda og rikisvalds. Verkamannasambandsmenn kváðust ekki geta bundið hendur þeirrar ráðstefnu sem þeir halda með sinu fólki á þriðjudaginn, en hún hefur ákvörðunarvaldið. Hitt er ljóst að allar fyrri aðgerðir standa áfram og framkvæmdastjórn Verkamnasambandsins hefur þvi aðeins samþykkt harðorð mótmæli við lögunum að ætlun- in er að knýja fram lausn sem hægt er að una við. Spurt var hvort yfirvinnubann kæmi til greina: Vissulega kemur það til greina. _h. Magnús Framhald af 14 siðu Kópavogs og þá fengi sú „kynslóö sem aflar tekna” minna i sinn hlut. En fatlaðir geta einnig aflað tekna ef þeir fá leyfi til þess að vinna. I Sviþjóð er jafnrétti fatlaðra til starfa tryggtj hafi fatlaðir menn ekki fulla vinnu- getu eru metin jöfnuð með fram- lagi úr opinberum sjóðum. í minum huga er þetta þó ekki aðferð til þess aö afla þjóðfélag- inu tekna, heldur úrræði til þess að tryggja fötluöum sem eðli- legasta þátttöku i iðandi mannlifi. I þessum viðhorfum felasf meginandstæður Öðaverðbólgan á Islandi hefur gert það að verkum að hérlendis er naumast nefndur annar mæli- kvarði en peningar. 1 eyrum okkar glymja f sifellu orð eins og framleiðni, arðsemi, hagkvæmni og fjölmörg önnur orö af hlið- stæöu tagi. Það er meira að segja fariö aö tala um heilbrigðismál með kalda peningahyggju að mælikvarða. Ég er þeirrar skoð- unar aö heilbrigðisþjónusta sé arðbærasta framkvæmd á Islandi og nota þá sem mæiikvarða heilsu og llfshamingju. Þeir sem nota grófa peningahyggju sem mæli- kvarða segja hins vegar að heil- brigðisþjónustan sé baggi á þjóö- inni, og meira að segja Matthias Bjarnason heilbrigðisráðherra hefur tekið undir þaö kaldrifjaða sjónarmið, að enginn skuli fá að dveljast á heilbrigðisstofnun nema hann geti borgað matinn sinn, þar megi aðeins dveljast „kynslóðin sem aflar tekna”; við hinir getum lifað og dáið sem úti- gangshrossin foröum. 1 þessum viðhorfum felast þær meginand- stæður sem við megum aldrei gleyma. Ekki skal ég gera litið úr hagræöingu og þeim aðferðum öllum, en ég vil minna á að þetta eru aöeins aðferðir og mega aldrei veröa aö sjálfstæöum markmiðum. Markmiðið er eitt og aðeins eitt: maðurinn sjálfur, örugg afkoma hans, frelsi og jafnrétti. Og þetta verða að vera markmið sem ná til allra, ekki aðeins þeirrar „kynslóöar sem Vegna utankjörfund- aratkvæðagreiðslu til alþingiskosninga 25. júni n.k. verður skrifstofan að Vatnsnesvegi 33, Keflavik, opin utan venjulegs skrifstofutima sem hér segir: Frá 28. mai — 18. júni alla virka daga kl. 17-20. Laugardaga og sunnudaga kl. 14—19. Frá 19. júni — 23. júni kl. 17—22. Laugardaginn 24. júni kl. 10—22 og sunnu- daginn 25. júni kl. 10—14. Skrifstofan að Vikurbraut 42, Grindavik, verður opin sem hér segir: Frá 28. mái —18. júni, kl. 16—19 alla virka daga. Laugardaga og sunnudaga, kl. 13—17. Frá 19. júni f- 23. júni kl. 13—20. Laugardaginn 24. júni kl. 13—22 og sunnu- daginn 25. júni kl. 10—14. Þá er hægt að kjósa utan kjörfundar hjá hreppstjórum i umdæminu. Bæjarfógetinn i Keflavik, Njarðvik og Grindavík. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu. aflar tekna” eins og Svarthöföi komst að orði. Maðurinn er gullið þrátt fyrir allt, veröur ævinlega að vera kjarninn i allri stefnu og öllum störfum okkar sósialista. Fréttarabb Framhald af 7. siðu. litiö um hlutina og varast alla spádóma. Þó má renna i grun hverjir munu vinna á. Ungt fólk virðist aöhyllast vinstri stefnuna og eygja hlutina i raunsæju ljósi, sér að lifið er ekkert æfintýr um pönnukökuhús með syrkuðum gluggum, enda ekki nema von þvilikur óskapningur sem þessi rikisstjórn er. Tvihöfðaður þurs efnishyggju arðráns og svika við láglaunafólk og öryrkja svo ekki sé minnst á skattafrumvarpið sæla, sem hespaö var af á einum eða tveimur dögum og verður mest hinni vinnandi stétt, verka- fólki og sjómönnum i óhag. Auka- biti I kjaft heildsalanna og brask- aranna. Meðal Alþýðubandalagsmanna er mikill einhugur og fólkið allt ein fjölskylda, duglegt og áhuga- samt við undirbúning væntan- legra átaka á sunnudaginn, enda mikið i húfi. Vonandi rætist draumur okkar um tvo menn kjörna. Vonandi á Alþýðubanda- lagið eftir að vinna alls staöar á i landinu i báðum kosningunum og þá er vel. Vonandi á ihaldið og fylgifiskur þess Framsóknarauð- valdið með Samband islenskra samvinnufélaga, oliu og trygg-' ingarauðhringa eftir að lenda i skammarkróknum, enda Fram- sóknarflokkurinn hér i Vest- mannaeyjum það vesældarlegur aðhann minnir á gamla kerlingu. thaldið er borubrattara með framboð unglinganna, sem ætla að skapa hér paradis á jörð eftir þvi sem þeir segja og nota til þess hugsjónarán frá öðrum eins og um bætta aðstöðufyriröryrkja og aldraða. En hugmynd þessi er komin frá mér. Hún er min eign og um leið eign Alþýðubandalags- ins hér I Vestmannaeyjum. Tölu- verður hópur gamalla ihalds- skarfa veifa vængjunum ekkisem hrifnastir, með þessa ungskyrf- inga, en kannske tekst guðföðurn- um Guðlaugi garminum að stöðva þetta óánægju vængja- blak, þó einnig sé gamall og ól- seigur skarfúr. Þó er aldrei að vita. Gamlir skarfar þola sjaldn- ast breytingar, vilja sitja viö sinn gamla kopp eiliflega og ungskyrf- ingarnir eru vist engin átrúnaðargoð i þeirra augum, enda lái ég þeim það ekki. Magnús Jóhannsson frá Hafnarnesi. Sáttasemjari Framhald af 12. siðu stöðu innan flokksins ef allir I- haldsandstæðingar hafa gefist upp við að starfa innan flokksins. Verði Magnús Bjarnfreðsson kosinn i bæjarstjórn i þessum kosningum, mun hann halda á- fram þvi starfi sem hann hefur haft siðasta kjörtimabil, aö halda saman hagsmunaklikum innan Sjálfstæðisflokksins svo að þær reynist samstarfshæf ar við myndun meirihluta i bæjarstjórn. Takist Magnúsi Bjarnfreðssyni það sáttasemjarastarf sem hann sækist nú eftir, verður hann og Richard Björgvinsson aðal-ráða- menn bæjarstjórnar næsta kjör- tima bil. Þeir virðast eiga mesta mál- efnalega samstöðu I bæjarráöi. Þeir stóðu saman að þvi að segja upp öliu ræstingafólki við skólana og ætluðu aö bjóða störfin út til verktaka. Þeir stóðu fast saman aðrefsiaðgerðum gegn þeim bæj- arstarfsmönnum sem stóðu með sinum stéttarfélögum aö mót- mælaaðgeröum 1. og 2. mars. Ekki er þvi liklegt að launafólk i Kópavogi telji sér það hagstætt að kjósá B-listann i kosningunum á morgun. 50 miljónir Framhald af 12 siðu staða bæjarsjóös er eins og hjá gjaldþrota braskara sem veltir rekstri sinum áfram með okur- lánum. Lausafjárstaða bæjar- sjóðs versnaði enn á siöasta ári um 87 miljónir króna. Frambjóöendur Sjálfstæðis- flokksins og framsóknar hafa reynt að mótmæla þessum stað- ÞJÓÐLEIKHÚSIfl KATA EKKJAN i kvöld kl. 20 Uppselt sunnudag kl. 20 fimmtudag kl. 20 Litla sviðið: MÆÐUR OG SYNIR sunnudag kl. 20.30 Fáar sýningar eftir FRÖKEN MARGRÉT Aukasýningar þriðjudag og miðvikudag kl. 20.30 Siðustu sýningar. Miðasala 13.15-20. Simi 1-1200 VALMUINN SPRINGUR CT ANÓTTUNNI 5. sýning I kvöld — Uppselt gul kort gilda 6. sýning þriðjudag kl. 20.30 græn kort gilda 7. sýning fimmtudag kl. 20.30 hvit kort gilda SKALD-RÓSA miðvikudag kl. 20.30 föstudag kl. 20.30 Miðasala I Iðnó kl. 14-20.30, simi 16620 BLESSAÐ BARNALAN Miönætursýning I Austur- bæjarbió I kvöld kl. 23.30 Næst-siðasta sinn. Miðasala i Austurbæjarbiói kl. 16-23.30 simi 11384. reyndum en setið fastir i feninu og á bæjarráösfundi 9. mai s.l. var samþykkt að taka 50 miljón króna vaxtaaukalán i Búnaðar- banka íslands til þess að unnt væri að greiða starfsmönnum bæjarins laun að minnsta kosti fram yfir kosningar. Ekki var hægt að viðurkenna á skýrari hátt aðallt það sem frambjóðend- ur Alþýðubandalagsins hafa sagt um fjárhagsstöðuna er satt og rétt. Ekki verður hjá þvi komist hver sem tekur við stjórnbæjarins eftir kosningar að fresta ýmsum framkvæmdum á vegum bæjar- ins til þess að bæta greiöslustöð- una og koma rekstri bæjarins á réttan kjöl. Þá verður jafnframt að endur- skipuleggja stjórnkerfi bæjarins og draga þar verulega úr rekstrarkostnaði. Núll ofaní núll Framhald af bls. 15 sama fyrirbrigði, þessu máli til enn frekarisönnunar. Og þar sem allir vita aö nú á timum trúir eng- inn þvi að til sé nokkuð sem heitir sál, — og allra slst sálfræðingarnir sjálfir, stóðu þeir afskaplega höll- um fæti i þessu máli. Það var þvi flestum alveg óskiljanlegt, að i næstu könnun Gallúps á pólitisk- um skoöunum fólks kom i ljós, aö fulltrúar guðs I Noregi, Kristelig folkeparti, höföu misst talsvert fylgi eftir þetta púka- ævintýri. Flokksforystunni leist ekki meira en svo á blikuna og tók að hugleiða verulega eftirgjöf á afstöðu sinni til guölegra mála, ef það mætti verða til þess aö bæta fylgið á ný. Hugmynd Kannski reviusmiðir þessa lands geti sótt hugmynd sina fyr- ir næstu Montreux hátiö i þessa kómediu i lifsins leikhúsi — og slegiö 1 gegn. Hver veit. En það vitum við þó , að reviusmiöir breska sjónvarpsins, BBC,fengu silfurrósina fyrir prógram sitt „Dave Allen at Large” þar sem þeir gerðu stólpa grin að geistleg- um yfirvöldum kaþólsku kirkj- unnar. Það hefur reyndar flogið fyrir, að þáttur þessi þyki að mati kristilega þenkjandi fólks inni- halda svo mikil óguðlegheit.að út- varpsráð samþykki aldrei sýningu hans I Norsk Rikskring- kastning. En kannski Kristilegir demökratar lini svo á stefnu sinni að fulltrúar þeirra i útvarpsráö- inu skoði haná með blinda auganu þegar þar að kemur. Það er þó fyrir mestu að halda styrk sinum á þinginu sérstaklega þeg- ar baráttan gegn sósialismanum i landinu er höfð I huga. Osló 21. mai, Þorgrímur Gestsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.