Þjóðviljinn - 08.06.1978, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. júnl 1978
A skrifstofunni. Vi6 skrifboröiö er Jón Proppé en þau Þórarinn Sigurbergsson, Anna t Austurstræti voru nokkrir ungir menn aö selja merki og stefnuskrá Samtaka herstööva-
Sigurbergsdóttir, Höröur Geirsson voru nýkomin inn eftir aö hafa dreift auglýsinga- andstæöinga og skrá fólk I Keflavíkurgönguna.
spjöldum (Myndir: Leifur)
KEFLAVÍKURGANGAN Á LAUGARDAG:
Fólk láti skrá sig strax
r
til aö auövelda skipulagningu. A sjötta hundraö höföu tilkynnt sig i gœr
Þegar blaðamann og
Ijósmyndara bar að garði í
höfuðstöðvum Samtaka
herstöðvaandstæðinga í
Tryggvagötu 10 i gær stóð
þar undirbúningur í fullum
gangi. Fólk var að koma
inn frá því að dreifa
%
plakötum, selja merki og
stefnuskrá.og við svífum á
Jón Proppé sem situr þar
ábúðarmikill við stórt
Drepur hugmyndina um
opinn framboðsfund
A fundi útvarpsráös s.l. þriöju-
dag var aö frumkvæöi Friöriks
Sófussonar breytt fyrri ákvöröun
ráösins umfyrirkomulag fram-
boösfundar sunnudaginn 18. júni.
Samkomulag haföi veriö gert viö
stjórnmáiafiokkana sem bjóöa
fram i öllum kjördæmum aö hafa
opinn framboösfund meö fimm
umferöum og fengju 20
áheyrendur frá hverjum flokki aö
sitja i fundarsalnum. Var hér um
að ræöa tilraun tii aö endurvekja
gömiu framboðsfundastemning-
una og færa hana inn I sjónvarpið.
Hjnir „ungu fulltrúar” Sjálf-
stæðismanna i útvarpsráði, þeir
Friðrik Sófusson og Ellert
Schram, beittu sér nú fyrir þvi að
hindra þessa nýbreytni. Þeirra
vilji var að loka framboðsfundin-
um, þannig að fulltrúar flokkanna
gætu flutt af blöðum heimaskrif-
uðu ræðurnar sinar við rautt ljós
og myrkur beint framan i mynda-
tökuvélarnar. Lokun fundarins
var samþykkt með meirihluta-
valdi i ráðinu, en fulltrúar
Alþýðuflokksins og Alþýðubanda-
lagsins greiddu atkvæði gegn lok-
un.
Ljóst er að frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins eru orðnir
hræddir við fólkið i landinu. Helst
kysu þeir að lögbann V-listans c/o
Sigurður Helgason næði fram að
ganga, svo sjónvarpsumræður
frambjóðenda skyggðu ekki á
áróður Morgunblaðsins. Meiri-
hlutinn i útvarpsráði hikar ekki
við að brjóta samkomulagiö við
fulltrúa allra flokka til þess að
hinir óttaslegnu frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik
þ.á m. Friðrik og Ellert þurfi ekki
að mæta andstæðingum sinum
fyrirframanfólkið i landinu. Þeir
þora ekki að koma út úr myrkr-
inu.
Kjarabarátta dag hvern
Þjóðviljinn berst einn íslenskra
dagblaða við hlið verkalýðshreyfing-
arinnar. Þjóðviljinn mætti vera betri
og stærri og útbreiddari en hann er. En
þvi aðeins verður Þjóðviljinn betri,
stærri og útbreiddari að hver stéttvís
launamaður geri sér Ijóst að Þjóðvilj-
inn er eina dagblaðið og þar með eina
vopnið sem launamenn geta treyst
gegn sameinuðum blaðakosti kaup-
ránsflokkanna. Fyrir hvert eitt eintak
af Þjóðviljanum gefa kaupránsflokk-
arnir út 10 eintök.
Sá verkamaður sem vill treysta hag
. verkalýðshreyf ingarinnar og þar með
eigin hag kaupir Þjóðviljann og vinnur
að útbreiðslu hans.
Þjóðviljinn og verkalýðshreyf ingin
eiga samleið. Verkalýðshreyfing sem
ekki á aðgang að traustu dagblaði gæti
lent undir í áróðursstríði auðstéttar-
innar.
Fram til sigurs í kjarabaráttunni!
Fram til sigurs í stjórnmálabarátt-
unni!
Gerstu
áskrifandi
í dag!
Nafn:
Heimili:
DJODVIIIINN
SfÐUMÚLA 6 REYKJAVfK SÍMI 81333
skrifborð.
Fólk er mjög jákvætt fyrir
Keflavikurgöngu á laugardaginn,
sagði Jón, en það væri mjög æski-
legt að það léti skrá sig sem fyrst
til að auðvelda alla skipulagningu
t.d. i sambandi við rútuferðir og
þess háttar. Yfirleitt hefur það
ekki sýnt frumkvæði að þessu
sinni en um leið og við höfum
samband er það óðfúst að taka
þátt i göngunni. Nú hafa á sjötta
hundrað manns látið skrá sig.en
betur má ef duga skal.
Nú koma inn á skrifstofuna þau
Kolbeinn Bjarnason og Anna
Sigurbergsdóttir. Þetta var sögu-
leg reynsla og mjög gaman, segja
þau og hlæja hressilega. Þau
voru að'fá kaupmenn við Lauga-
veg, Hverfisgötu og Austurstræti
til að hengja upp auglýsinga-
spjöld um gönguna. Þetta gekk
furðuvel þó að mikill skelfingar-
svipur kæmi á suma, segja þau.
Hörður Geirsson og Þórarinn
Sigurbergsson koma nú lika og
voru sömu erindagjörða i Hafnar-
firði. Þeir eru jafnhressir og
segja að spjöld séu komin á annað
hvert hús i Firðinum.
Hér er greinilega bjartsýni
rikjandi og við göngum út eftir að
. hafa látið skrá okkur og beinum
þvi til annarra herstööva-
andstæðinga að þeir geri slíkt
hið sama.
t Austurstræti rekumst við á
nokkra unga menn sem eru að
selja merki og stefnuskrá og taka
á móti skráningu og er ekki annað
að sjá en vegfarendur taki erindi
þeirra vel. Hversvepjia ættu þeir
lika ekki að gera það?
—GFr
Jón Proppé: Góð stemmning
er fyrir göngunni
Allir takast
í hendur
á Flateyri
— Hér hefur náöst samstaöa
meö öllum þeim aöilum, sem
stóöu að framboöi viö sveitar-
stjórnarkosningarnar, sagöi
Guövaröur Kjartansson á Flat-
eyri við blaðið i gær.
Samkvæmt þvi samkomulagi,
sem gert hefur verið, munu menn
af öllum flokkum gegna oddvita-
störfum á kjörtimabilinu, sýna 16
mánuðina hver. Guðvarður
Kjartansson byrjar, siðan kemur
sjálfstæðismaður og loks maður
af lista Framsóknar- og Alþýðu-
flokksins.
tbúar Flateyrarhrepps munu
ánægðir með þetta samkomulag,
sem greiðlega gekk að ná, sagði
Guðvarður Kjartansson. Menn
eru sammála um að nauðsyn sé á
sem mestum vinnufriöi og sem
viðtækastri samstöðu til þess að
bæta um það, sem úrskeiðis hefur
gengið á siöasta kjörtimabili.
Sé vikið að kosningaúrslitunum
hér og annarsstaðar á Vestfjörð-
um, þá hefur Alþýðubandalagið
ærna ástæðu til að v.era ánægt
með þau og getur, i ljósi þeirra,
litið björtum augum til alþingis-
kosninganna hér I kjördæminu,
sagði Guðvarður að lokum.
gk/mhg
HELLISSANDUR:
Skúli Alexandersson
var kjörinn oddviti
með atkvæðum allra hreppsnefndarmanna
A Hcllissandi hefur Alþýðu-
bandalagið stööugt bætt viö sig
fylgi i undanförnum hrepps-
nefndarkosningum og núna 28.
mai fékk þaö tvo menn kjörna af
fimm og vann mann af Sjálf-
stæöisflokknum sem fékk aðeins
einn mann kjörinn.
Siðasta kjörtijnabil var Alþýðu-
bandalagið i stjórnarandstöðu, en
nú hefur orðið allsherjarsam-
komulag um að kjósa Skúla
Alexandersson af lista Alþýðu-
bandalagsins oddvita hrépps-
nefndar, en Gunnar Má
Kristófersson af lista Framfara-
sinnaöra borgara varaoddvita. I
samtali við Þjóöviljann sagði
Skúli að þetta væri i 5ta sinn sem
hann settist i sæti oddvita á
Hellissandi og brýnustu fram-
kvæmdir væru nú skólabygging
og gatnagerð. Þá gat hann þess
að það væri ánægjulegt að kona,
Elin Jóhannsdóttir.ætti nú i fyrsta
sinn sæti i hreppsnefnd. Þess skal
að lokum getið að 1970 fékk
Alþýðubandalagiö fimmtung at-
kvæða á Hellissandi, árið 1975
fjórðung og i kosningunum um
daginn þriðjung.
— GFr.