Þjóðviljinn - 22.09.1978, Blaðsíða 6
« SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. september 1978
SviAsmynd úr Kátu ekkjunni.
m m njv wmmi IBn »ji'i
Wr- • IHBHHPB
Á sunnudagskvöldiö hefjast aO
nýju sýningar i Þjóöleikhúsinu á
Kátu ekkjunni, sem sýnd var 34
sinnum á siöasta leikári viö fá-
dæma vinsældir. Ekki veröur
unnt aö hafa nema fáa sýningar.
Aöalhlutverkin eru sem kunn-
ugt er i höndum Sieglinde Kahm-
ann og Sigurðar Björnssonár,
Guömundar Jónssonar, Ölafar
Harðardóttur og Magnúsar Jóns-
sonar. Allur Þjóöleikhúskórinn
kemur fram i sýningunni auk Is-
lenska dansflokksins. Hljóðfæra-
leikarar úr Sinfóniuhljómsveit Is-
lands leika undir stjórn Páls P.
Pálssonar.
Leikmyndin við sýninguna,
sem vakti sérstaka athygli er
gerð af Alistair Powell en leik-,
stjóri Kátu ekkjunnar er Benedikt
Arnason.
Sem fyrr segir verður fyrsta
sýningin nú á sunnudagskvöldið
og næstu sýningar á fimmtudag
og laugardag.
Stangar-
veiðimenn
mótmæla
ásókn |
auðmanna
í laxár
A fundi framkvæmdanefndar
Norræna Stangarveiöisambands-
ins (Nordisk Sportfisker Union),
scm haldinn var I Osló dagana 4.
og 5. sept. s.l. var rætt um um-
hverfis-og stangarveiöimál. For-
maöur NSU, liákon Jóhannsson,
gaf skýrslu um starfið á þessu ári
og ræddi framtlöarhorfur.
Þar kom m.a. fram að samstarf
við alþjóðleg samtök og stofnanir
á sviði stangarveiði hefði verið
aukið, og að verið væri að athuga
möguleika á að halda veiðimála-
ráðstefnu á næsta ári, sem fjalla
mundi um umhverfismál
Nordkalottsvæðisins svonefnda,
sem liggur að mestu leyti norðan
heimskautsbaugs, innan landa-
mæra Finnlands, Noregs og Svi-
þjóðar.
önnur mál fundarins voru:
sótthreinsun veiðitækja og bún-
aðar, ásókn auðmanna og fyrir-
tækja i að bjóða i laxveiðiár og
önnur stangarveiðiréttindi á
Norðurlöndum, og upplýsinga-
þjónusta um stangarveiði.
t ályktun fundarins um sótt-
hreinsunarmál segir m.a. að
framkvæmdanefnd NSU hafi sin-
ar efasemdir um framkvæmd á
gildandi reglum um sótthreinsun
veiðarfæra, og þörf sé á auknum
rannsóknum, heppilegri sótt-
hreinsunaraðferðum, leið-
beiningum og eftirliti.
Miklar umræður urðu á fund-
inum um ásókn auðmanna og
fyrirtækja i laxveiðiár. Var m.a.
samþykkt ályktun þar sem segir,
aö NSU áliti rétt vera að veiðar i
laxveiðiám og öðrum vötnum séu
ekki látnar af hendi við fáa aðila,
með þvi að leigja þær auö-
mönnum eöa fyrirtækjum. Sala
veiðileyfa á sanngjörnu verði
hljóti aö vera það sem réttilega sé
að stefnt þegar um er að ræða aö
nýta veiðiréttinn. Þá fari NSU
fram á það við meölimasamtök
sin að þau stuðli að þvi að
stangarveiöimenn á Norður-
löndum taki ekki á leigu stangar-
veiðiréttindi i nágrannalöndum
sinum.
Formaður NSU er Hákon
Jóhannsson, Reykjavik en ritari
er Friörik Sigfilsson, Keflavik.
Helga Einarsdóttir og Adda Bára Sigfúsdóttir viö afhendingu gjafar-
innar.
STÓRGIÖF
til Borgarspítalans
Nýlega komu i heimsókn i
Borgarspitalann góöir gestir frá
Kvennadeild Keykjavikurdeildar
Kauöa Kross islands. Færöu þær
lyflækningadeild aö gjöf hljóö-
bylgjutæki „Echoview 80 c”.
Notkun hljóöbylgjutækni viö
greiningu hjartasjúkdóma hefur
fleygt mjög fram á sföustu árum.
Meö sliku tæki er unnt aö fá vit-
neskju um stærö og starfsemi ein-
stakra hluta hjartans, einkum
hjartaioka og hjartahólfa.
Bergmáistækni er sérstaklega
gagnleg viö greiningu lokusjúk-
dóma, sjúkdóma i hjartavöðva og
gollurshúsi og æxla i hjarta. Tæk-
iö verkar á þann hátt aö hátiðni-
hljóð eru send með sérstökum
hljóðnema gegnum brjóstvegginn
á sjúklingi og siöan inn i hjartaö
en þar endurkastast bylgjurnar
af hverju þvi yfirborði sem fyrir
verður og má þannig greina fjar-
lægð einstakra hluta hjartans frá
hljóönemanum.
Tækni þessi er sársaukalaus og
hættulaus.
Verðmæti gjafarinnar mun
vera ca. 9 millj. króna, en að-
flutningsgjöld fengust eftirgefin.
Af hálfu kvennadeildarinnar af-
henti tækið Helga Einarsdóttir,
en gjöf þessi er i tilefni af 10 ára
afmæli Borgarspitalans.
Fyfir hönd stjórnar sjúkra-
stofnana Reykjavikurborgar
veitti Adda Bára Sigfúsdóttir
gjöfinni viðtöku og þakkaði deild-
inni fyrir ánægjulega og höfðing-
lega gjöf.
Frá sjúkrasamlagi
Hafnarfjarðar
Þar sem Eirikur Bjömsson læknirhefur
hætt störfum þurfa þeir sem höfðu hann að
heimilislækni að koma með skirteini sin i
skrifstofu samlagsins og velja sér annan
lækni.
Sjúkrasamlag Hafnafjarðar
Myndlistarsýningar
Alþýðulýðveldið Norður-Kórea
Galleri SÚM
A morgun lýkur i Galleri
SÚM sýningu þeirra Arna
Ingólfssonar, Ivars Valgarðs-
sonar og Hannesar Lárusson-
ar. A sýningunni eru milli 15
og 20 verk, unnin i margvisleg
efni. Sýningin er opin i dag kl.
16-20, og á morgun frá kl. 14 til
20.
Septem-78
Sýningunni „Septem-78”
lýkur i Norræna húsinu kl. 19 á
sunnudaginn. Það eru þvi sið-
ustuforvöðum þessa helgi að
sjá þessa sýningu, en á henni
eru verk sjö islenskra lista-
manna, þeirra Guðmundu,
Andrésdóttur, Jóhannesar Jó-
hannessonar, Karls Kvaran,
Kristjáns Daviðssonar, Sigur-
jóns Ólafssonar, Valtýs Pét-
urssonar og Þorvalds Skúla-
sonar, auk danska listmálar-
ans Ejler Bille. Sýningin er
opin frá kl. 14 til 19.
Suðurgata 7
I Galleri Suðurgötu 7 stend-
ur nú yfir sýning breska lista-
mannsins Michael Gibbs.
Gibbs hefur aðallega fengist
við ýmsar tegundir ljóðlistar
og gert tilraunir með hlut-
kennda ljóölist (concrete
poetry). Sýningin er eitt sam-
hangandi verk i fjórum hlut-
um. Hún er opin i dag kl. 4-10,
en kl. 2-10 laugardag og
sunnudag.
Kjarvalsstaðir
Um þessa helgi eru einnig
siðustu forvöð að sjá hina um-
töluðu sýningu örlygs Sig-
urðssonar aö Kjarvalsstöðum.
Hún er opin i dag kl. 16-22 og
um helgina kl. 14-22.
A göngum Kjarvalsstaða er
uppi sýning á nytjalist frá
Úkrainu, og Kjarvalssýning er
i Kjarvalssal.
FÍM-salurinn
Haustsýningu Félags Isl.
myndlistarmanna lýkur á
sunnudaginn. Hún er haldin i
FIM-salnum að Laugarnes-
vegi 112 og er opin i dag kl.
15-19, en á morgun og sunnu-
dag kl . 15-22. Þar eru sýnd
verk eftir 25 FIM-félaga.
Verkin eru yfirleitt fremur
smá að vöxtum og tiltölulega
viðráðanleg hvað verð snertir,
og er hér um nýjung að ræða
hjá þeim FIM-urum.
Þrjátíu ára
Ilinn 9. september voru þrjátiu
ár liðin siðan alþýöuveldi var
stofnaö í Noröur-Kóreu. Fyrstu ár ■
þess voru mjög erfiö þvi aö
skömmu eftir aö alþýöulýöveldiö
var stofnaö hófst Kóreustyrjöldin
og stóö yfir i þrjú ár.
Bandariski herinn óð yfir landið
og haft var eftir Banda-
rikjamönnum aö það myndi taka
meira en 100 ár aö byggja upp aft-
ur það sem eyðilagst hefði i
styrjöldinni. En á einum fjórtán
árum tókst Norður-Kóreumönn-
um aö byggja landið upp á ný og
leggja drög að iðnvæðingu þess.
Geröar voru ýmsar áætlanir sem
miðuðu að þvi að framkvæma
umbætur á afmörkuðum sviðum:
áætlun um grundvöll iðnvæðingar
og áætlun um framkvæmd tækni-
byltingar. Einnig hefur verið lögö
mikil áhersla á uppbyggingu
menntakerfis, og var nýju kerfi
komið á frá 1972 til 1976. Sam-
kvæmt þvi er skólaskyldan nú ell-
efu ár.