Þjóðviljinn - 11.10.1978, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 11.10.1978, Blaðsíða 1
Alþýöubandalagiö i Reykjavík. UOWIUINN Miðvikudagur 11. október 1978 — 222. tbl. 43. árg. Frá setningu Alþingis i gær. A litlu myndinni er forseti tslands herra Kristján Eldjárn i ræðustól. A efri myndinni eru ráöherrarnir, (f.v. Tómas Arnason, fjármálaráöherra, Steingrfmur Hermannsson dóms- málaráðherra, Kjartan Jóhannsson, sjávarútvegsráöherra, Svavar Gestsson, viöskiptaráöherra og Hjörleifur Guttormsson, iönaöarráöherra. A neöri myndinni eru f.v. Magnús Magnússon heilbrigöis- ráöherra, Ragnar Arnalds menntamálaráöherra, Benedikt Gröndal utanrikisráðherra og ólafur Jó- hannesson, forsætisráöherra. (Ljósm. —eik—) Alþingi sett í gær Alþingi íslendinga, 100. löggjafarþing, var sett í gær. Athöfnin hófst með guðsorðatali kl. T3.30 í Dómkirkjunni, en síðan gengu ráðherrar og þing- menn, ásamt forseta (slands herra Kristjáni Eldjárn til Alþingis- hússins, þar sem forset- inn setti þingið. Aö lokinni þingsetningarræöu forseta Islands tók Oddur Olafs- son, aldursforseti alþingis- manna fundarstjórn. Hann kvaddi þá Jón Helgason og Lárus Jónsson til sem skrifara. Þvi næst voru kjörbréf þing- manna athuguö og samþykkt samhljóöa og þar á eftir undir- rituöu þeir þingmenn, sem ekki hafa setiö á alþingi fyrr eiöstaf- inn um að halda stjórnarskrána Eftir þaö var fundi frestaö þar til i dag. —S.dór (Ljósm. —eik—) Mikil lodnuveidi Aflinn oröinn jafn mikill og á allri sumar- og haustvertíöinni í fyrra Mjög góð loðnuveiði hef- ur verið undanfarið og fengu margir bátar góðan afla um síðustu helgi. Loðnan veiðist um það bil 130 til 140 mílur norð- ur af Horni og því löng sigling á miðin. Heildarafli á þessari sumar og haustloönuvertið er orðinn 260 þúsund lestir, en það er jafn mikiö og veiddist áallrivertlöinni 1 fyrra. Mest hafa verið 53 bátar að loðnuveiöum i sumar, en nú eru þeir á milli 40 og 50, aö sögn Andrésar Finnbogasonar hjá loðnunefnd. I gær var bræla á miðunum og þvi enginn bátur við veiðar og nokkrir bátar voru aö koma til hafnar með farm eftir langa sigl- ingu af miðunum. Sigurður RE er enn aflahæstur meö rúmlega 10 þús. lestii'. —S.dór Félagsfundur um borgarmál Borgarfulltrúarnir fimm hafa stuttar framsögurœöur 1 kvöld kl. 20.30 hefst félags- fundur Alþýöubandalagsins i Reykjavik á Hótel Esju. A fundin- um veröur rætt um borgarmál og starf félagsins aö þeim. Borgar- fulltrúar Alþýöubandalagsins, Sigurjón Pétursson, Adda Bára Sigfúsdóttir, Þór Vigfússon, Guörún Helgadóttir og Guömund- ur Þ. Jónsson, munu hafa stutta framsögu á fundinum en siöan sitja fyrir svörum. Einar Karl Haraldsson ritstjóri stýrir fundinum. Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta og skrá sig til þátttöku i starfshópum um borgarmálin. Stjórnin Þingflokkur Al- þýðubandalagsins: Lúðvík formaður A fundi þingfiokks Alþýöubanda- lagsins I gær var Lúövik Jóseps- son kjörinn formaöur hans. Lúö- vik er einnig formaöur Alþýöu- bandalagsins. Kjartan Ólafsson var kjörinn varaformaöur þing- flokksins og Helgi Seljan ritari. Halldór E. formaður þingflokks Framsóknar- flokksins A þingflokksfundi Fram- sóknarflokksins I gærdag var Halldór E. Sigurösson kosinn for- maöur þingflokksins en þeir Ing- var Gislason og Jón Helgason meöstjórendur. A þingflokksfundi Sjálfstæðisflokksins f gær var hins vegar ekki tekiö fyrir for- mannskjör. —GFr Jóhannes Siggeirsson hag- fræöingur ASt Ráðinn hagfræð- ingur hjá ASÍ A fundi miðstjórnar Alþýðusambands lslands 28. sept. sl. var samþykkt aö ráöa Jóhannes Siggeirsson I starf hagfræöings hjá ASl frá 1. október sl. Jóhannes er fæddur 1947. Hann lauk stúdentsprófi frá Kennaraskóla Islands árið 1969 og prófi frá viðskipta- deild Háskóla Islands vorið 1973. Hann stundaði fram- haldsnám i hagfræði vetur- inn 1973 — 74 viö Háskólann i Uppsölum. Jóhannes hefur áður starfað hjá Þjóðhags- stofnun, Kjararannsókna- nefnd og sl. 2 ár verið starfs- maður Alþýðubankans. Hann hefur þegar hafið störf hjá ASt, en mun fyrst um sinneinnigsinna störfum hjá Alþýðubankanum. Asmund- ur Stefánsson hagfræðingur mun áfram veita hagfræöi- deild ASt forstöðu. —ekh. Stimpilklukka sett upp í skólanum á Hellu • Einsdæmi i skólum hér á landi Skólastjóri grunnskólans á Hellu hefur látiö setja upp stimpilklukku I skólanum. Mun þaö vera einsdæmi f skólum hér á landi og þótt vfðar væri leitað. Sjö kennurum skólans og tveim ræstingakonum er gert aö stímpla sig inn, þegar mætt er til vinnu. Stimpilklukkan var tekin i notkun I fyrradag, en flestir kennararnir, a.m.k. þeir eldri, neituðu aö stimpla sig inn, þar sem þeir telja þessa ráðstöfun skólastjórans fráleita og jafn- gilda vantrausti á kennara og starfsfólk skólans. Sigurður Helgason deildarstjóri grunnskóladeildar menntamála- ráðuneytisins sagðist hafa frétt af þessu tiltæki. Hann sagðist ekki vita um neinn annan skóla, þar sem stimpilklukka væri notuð. Jón R. Hjálmarsson fræðslu- stjóriSuðurlands sagöisömuleiðis isamtali við blaðið, að hann vissi ekki til að þetta hefði verið gert annars staðar á landinu. Jón var spurður að þvi, hvaöa ástæöur væru fyrir þvi að þessi stimpil- klukka hefði verið sett upp. „Mér skildist helst, að eitthvað hefði boriö á óstundvisi þarna,” sagði hann. „Kennarar hefðu á hinn bóginn haldið þvi fram, aö aldrei hefði veriðfundiðað þvi og ekkert væri þvi til sönnunar.” Liggur þvi beint við að álykta, að skólastjór- inn vilji hafa „sönnunargögn” i höndunum, ef menn væru að Framhald á bls. 14. Töfin á framlagningu jjárlagafrumvarpsins: Ekki átök, heldur vinna Sjá viötal viö Geir Gunnarsson á bls. 6.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.