Þjóðviljinn - 11.10.1978, Síða 16
WÐVIUINN
Miðvikudagur 11. október 1978
Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-21 mánudaga til föstu-
daga, kl. 9-12 á laugardögum og sunnudögum. Utan þessa
tima er hægt að ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðs-
ins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285,
útbreiðsla 81482 og Blaðaprent 81348.
Skipholti 19, R. 1 BUÐlKf
simi 2980«, (5 linur)^—^
Verslið í sérverslun
með litasjónvörp
og hljómtæki
r
■
l
■
I
i
■
i
i
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
■
I
Ekki
eins
háll
og
hinir
Sem kunnugt er varð að smiða
níunda ráðherrastólinn fyrir
Alþingi, þegar ráðherrum fjölg-
aði úr 8 i 9 og hefur smiði stóls-
ins staðið yfir undanfarnar vikur
Hann er alveg eins að útliti og
þeir fjórir ráðherrastólar sem
fyrir voru til vinstri handar við
forseta Alþingis, þeir sem eru
barna eru þrir nýir ráðherrar, f.v. Steingrimur Hermannsson, dómsmálaráðherra, Kjartan Jóhanns-
son sjávarútvegsráðherra i nýja ráðherrastólnum, sem hann sagði ekki vera eins hálan og hina.og loks
Svavar Gestsson viðskiptaráðherra. (Ljósm.—eik—)
hægra megin við hann lita öðru-
visi út.
Að einu leyti er 9. stólinn þó
frábrugðinn þeim sem fyrir
voru, hann er dekkri að lit.
Kjartan Jóhannsson, sjávarút-
vegsráðherra fékk þennan nýja
stól og sagði hann brosandi eftir
að hafa sest i stólinn að hann
væri ekki eins háll og hinir en
ljóst væri að hann væri svarti
ráðherrastólinn.
Eftir að 9. stóllinn bætist við,
er orðið mjög þröngt um ráð-
herrana og mátti þó vart á
þrengslin bæta; flestum þótti
þau vera næg fyrir.
—S.dór
■
i
■
i
■
i
■
i
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
!
Ashkenazy fluttur til Sviss
☆ Tónlistarsamstarfi hans
við íslendinga lokið?
☆ Æ tlaði að stjórna mikið
hérlendis i vetur
en hætti við
Vladimir Ashkenazy
hefur nú flust búferlum til
Sviss/ til að geta verið nær
börnunum sínum, að því er
Morgunblaðið hefur eftir
Þórunni Jóhannsdóttur í
gær. En þær eru heldur
kaldar kveðjurnar/ sem
þessi heimsfrægi tónlistar-
maður sendir Sinfóníu-
hljómsveit islands.
1 viðtali sem birtist i ágústhefti
timaritsins Gramophone segir
hann að „stundum er leikur
þeirra áhugaverður, en tæknilega
séð eru þeir ekki mjög góðir.
Maður verður aö umgangast þá
einsog börn, og gæta þess að ósið-
ir verði ekki aö ávana”.
1 viðtali við Morgunblaðið i gær
segist Ashkenazy ekki segja þetta
,,af neikvæðum hvötum”. Þetta
sé bara raunsætt mat.
Einsog nærri má geta þykir
meðlimum Sinfóniuhljómsveitar-
innar illt að vera kallaðir „hálf-
gerðir áhugamenn” og börn. Sig-
urður Ingvi Snorrason, formað-
ur verkefnavalsnefndar Sinfónlu-
hljómsveitar Islands, sagði i við-
tali viö Þjóðviljann að sér fyndist
Ashkenazy láta alla sina óánægju
með Island og íslendinga bitna á
Sinfóniuhljómsveitinni. Honum
hefði aldrei dottið I hug að gagn-
rýna neitt opinberlega nema
hljómsveitina, en svo virtist sem
hann væri alls ekki ánægður með
viðskipti sin við Islendinga.
Sigurður Ingvi sagði einnig, að
Ashkenazy hefði ætlað að stjórna
Ashkenazy nennir ekki að stjórna
barnahljómsveit
mikið hér i vetur. Sinfóniuhljóm-
sveitin hefði aldrei séð ástæðu til
að hafna honum sem stjórnanda,
og þvi hefði þetta verið ákveðið.
En svo fækkaði hann smám
saman fyrirhuguðum tónleikum
þartil svo var komið að hann ætl-
aði alls ekkert að gera. Sagðist
Sigurður Ingvi ekkert hafa vitað
um þessa breytingu fyrren seint i
sumar. Þó sagðist hann halda að
þetta mál befði fyrst borið á
góma i sambandi við Listahátið I
sumar.
Þjóðviljinn reyndi að fá álit
Hrafns Gunnlaugssonar á þvi,
hvort þetta ástand myndi hafa
einhver áhrif á framkvæmd
Listabátiöar i framtiðinni, en
Hrafn vildi ekkert um það segja
og kvaðst ekki ætla að taka að sér
framkvæmdastjórn Listahátiöar
oftar. Eftir stendur spurningin;
kemur brottför Ashkenazys niður
á Listahátiö? Sem kunnugt er var
Ashkenazy einn af upphafsmönn-
um Listahátiðar og hefur allar
götur siðan verið einskonar list-
rænn ráðunautur fulltrúáráðs og
framkvæmdastjórnar Listahá-
tiðar. Hann hefur fengið marga
heimsþekkta listamenn til að
koma hingað. Spurningin er þvi,
hvort Listahátið sé komin það vel
á legg að hún geti án hans verið.
—ih
Alþjóöaár
barnsins 1979
Ráðstefna
á Hótel
Loftleiðum
í dag
A allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna 21. des. 1976 var
samþykt að helga árið 1979 mál-
efnum barnanna i tilefni þess, að
þá eru liðin tuttugu ár frá þvi að
S.Þ. staðfestu yfirlýsingu um
réttindi barnsins. t dag verður
haldin ráðstefna að Hótel Loft-
leiðum, þar sem fjallaö verður
um framkvæmdir á islandi I til-
efni alþjóðaárs barnsins 1979.
Ragnar Arnalds menntamála-
ráðherra setur ráðstefnuna kl. 10.
f.h. Þá ræðir Armann Snævarr
forseti hæstaréttar um réttar-
stöðu barna, Guðný Guðbjörns-
dóttir sálfræöingur um börnin og
umhverfið, Björn Björnsson
prófessor um barnið og fjölskyld-
una og Gunnvör Braga dagskrár-
fulltrúi um börn og fjölmiðla.
Eftir hádegi ræðir Svandis
Skúladóttir fulltrúi i mennta-
málaráðuneytinu um undirbún-
ing alþjóðaárs barnsins og starfs-
svið og starfshætti fram-
kvæmdarinnar. Siðan verður
unnið I fjórum starfshópum. Aö
lokum verða umræður og kosnir
tveir fulltrúar i framkvæmda-
nefnd barnaársins.
—eös
Ráðið í aLlar
kennarastöður
Nú mun vera búið að ráða i all-
ar kennarastöður i grunnskólum
landsins, enda skólar teknir til
starfa um allt land.
Samkvæmt upplýsingum
Siguröar Helgasonar, deildar-
stjóra I menntamálaráðuneytinu,
1 var ekki búið að ráða I tvær eöa
i þrjár stöður um siðustu helgi, en
væntanlega væri nú búiö aö ganga
frá ráöningu i gær.
Jafnan reynist erfiðast að fá
kennara I lausar stööur á Norö-
austurland? og Vestfjörðum og
var svo einnig nú I haust.
— eös
Mnréttið í reynd á Alþingi
Þyí miður, emm
bara þrjár áfram
Sagði Svava Ipkobsdóttir alþingismaður
Á siðasta Alþingi sátu aðeins 3
konur af 60 þingmönnum. Við
siðustu kosningar féli ein
þeirra, Sigurlaug Bjarnadóttir,
en Jóhanna Sigurðardóttir náði
aftur á móti kjöri og eru þvi á-
fram 3 konur á Alþingi:
„Þvi miður vil ég segja, erum
viö bara þrjár áfram og mér
finnst þaö leitt”, sagöi Svava
Jakobsdóttir alþingismaður, er
við hittum hana að máli niður i
Alþingishúsi i gær.
Svava sagði að hún óttaðist að
sú alda jafnréttis sem reis á
kvennaárinu 1975 ^æri aö hniga.
„Eg veit ekki af hverju, alla
vega er þaö ekki vegna áhuga-
leysis kvenna, svo mikið er vist.
Littu bara á prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins sl. vor; þar voru
margar konur, sem buðu sig
fram, en aðeins ein náöi öruggu
sæti. Mér finnst nefnilega að
konurnjóti ekki fyrirfram sama
trausts og karlar, þegar til kast-
anna kemur”, sagði Svava.
„Nei, konur eru ekki aö missa
móöinn, þetta tekur sinn tima
aö koma fullkomnu jafnrétti á
og viö munum halda áfram aö
reyna aö brjótast i gegnum
karlamúrinn.”
— Veröurðu vör viö mismun-
un innan veggja Alþingis?
„Nei, það get ég ekki sagt.
Það er þá helst I þvi aö kjósa
okkur konurnar i nefndir þar
sem fjallaö er um „kvenleg”
Þær eru bara þrjár, konurnar á alþingi. „Þvf miður”, sagði Svava Jakobsdóttir. F.v. Jóhanna Sigurðar-
dóttir Alþýðufl,Svava Jakobsdóttir Alþýðubl. og Ragnhildur Helgadóttir Sj.fl. (Ljósm.—cik-^-)
verkefni, þaö er þaö eina sem ég
hef orðiö vör viö. Ég hef þá trú
aö konum eigi eftir aö fjölga
mikið á þingi og ég sakna þess
mjög að við skulum ekki vera
nema þrjár á þessu þingi”,
sagði Svava Jakobsdóttir að
lokum.
—S.dór