Þjóðviljinn - 01.12.1978, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 01.12.1978, Blaðsíða 5
Föstudagur 1. desember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Markaður Þjóðviljans í fullum gangi Markaður Þjóðviljans að Skólavörðustlg 19 er nú opinn allan daginn og kennir þar margra grasa. Fólk er hvatt til að llta þar inn nú þegar fara að nálgast jólin og þeir sem hafa eitthvab á boðstóium t.d. ýmiss konar handiðnaöarvörur eru hvattir til aO koma þeim i um- boðssölu á markaðinn. Meöal þess sem er á boðstólum á markaöi Þjóðviljans eru lista- verk eftir nokkra fremstu lista- menn okkar. Nægir þar að nefna 5 verk eft- ir Einar Hákonarson, 2 eftir Guörúnu Svövu Svavarsdóttur, 6eftir Hring Jóhannesson, 4 eft- ir Kjartan Guðjónsson og enn- fremur leirplatta eftir Jónínu Guðnadóttur. Þá eru á boðstól- um keramikmunir eftir Stein- unni Marteinsdóttur en þeir fást hvergi annars staðar nema á heimili hennar i Hulduhólum I Mosfellssveit. Einnig er úrval leirmuna eftir þær Jónu Guö- varöardóttur og Sigriöi Agústs- dóttur i Hafnarfiröi. Af annarri vöru má nefna margs konar handiðnaðarvörur, hljómplötur og nýjar og gamlar bækur. Vin- veittir aðilar hafa lagt til nýút- komnar bækur og eru þær held- ur ódýrari en I bókaverslunum. En sjón er sögu rikari! Komið og verslið á markaði Þjóðvilj- ans i glæsilegu húsnæöi að Skólavöröustig 19. Úrval leirmuna eftir Jónu Guðvarðardóttur og Sigrlði Agústsdóttur f Hafnarfirði Frá markaði Þjóðviijans. A veggjum sjást m.a. myndir eftir Hring Jóhannesson, Einar Hákonarson Kjartan Guðjónsson (Ljósm.:Leifur) Keramik eftir Steinunni Marteinsdóttur f Hulduhóium STORMARKAÐURINN W SKEMMUVEGI 4A KOPAVOGI 2200 fermetra ný og glæsileg verslun með alla matvöru (kjöt, mjólk, brauð, pakkavöru og niðursuðu- vörur)-pappírsvörur, kerti -leikföng og gjafavörur. Staðin* hagstæðm stórínnkaupa Ótrúlega lágt verð Greið aðkeyrsla Góð bílastæði

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.