Þjóðviljinn - 01.12.1978, Side 7

Þjóðviljinn - 01.12.1978, Side 7
Föstudagur 1. desember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Tiltekid eignarréttarskipulag getur aldrei verið markmið i sjálfu sér heldur aðeins tæki til framkvæmdar ákveðnum hugmyndum um réttlátt þjóðfélag Olafur Björnsson prófessor Hvað er sósíalismi? Nokkrar athugasemdir I til- efni af grein Arna Bergmanns I Þjóðviljanum 19. nóv. sl. t sunnudagsblaði Þjóðviljans þ. 19. nóv. birtist grein eftir Arna Bergmann ritstjóra undir fyrirsögninni: frelsið, kapital- isminn, sósialisminn, en þar eru gagnrýndar ýmsar þær kenn- ingar, sem fram er haldið i bók minni Frjálshyggja og alræðis- hyggja. Þó að ég hafi hingað til ekki tekið þátt iþeim umræöum, sem um bókina hafa oröiö og telji slikt varla viðeigandi, þá get ég ekki annaðennotað mér þá vin- semd, er Arni hefir sýnt mér með þvi að ljá þessu greinar- komi rilm i' blaði sinu, þvi aö ella hygg ég, aö þeir mörgu les- endur Þjóöviljans, sem lesið hafa grein Arna, en ekki bók mina, myndu draga þá ályktun, að heldur ófræðimannlega væri á ýmsu tekiö i bókinni. Nú fæ ég ekki dregiö aöra ályktun af grein Arna en þá, að afstaða okkar til frjálshyggju og alræðishyggju sé svipuð. Það sem á milli ber er ólikur skiln- ingur okkar á þvi hvað felist i orðinu sósialismi. Eg skilgreini sósialisma sem þjóðnýtingar- stefnu, en meö þjóðnýtingu á ég einkum við þá framkvæmd hennar sem ruddi sér til rúms eftir valdatöku Stalins i Sovét- rikjunum og var svo eftir siðari heimsstyrjöld tekin upp i öömm sósfaliskum rikjum á áhrifa- svæði Sovétrikjanna. Júgó- slavia myndi hinsvegar eidii geta talist sósialiskt riki I þessari merkingu orðisns. Arni sættir sig ekki við það að sett sé þannig þvi næst iafiiaðarmerki milli sósialisma og Stalinisma. Er hann þar vissulega i sinum fulla rétti, þvi að það er nú einu sinni ekki til neinn páfi, sem bær sé um að skera úr þvi hver sé hin réttaog sanna merking oröa. Sú skil- greining sem ég nota á merkingu oröanna kapltalismi og sósialismi er mér og siöur en svo nein heilög kýr. Ég tek lika fram i þeim stutta kafla, er um þetta fjallar, að þetta sé sú venjulega skilgeining, ekki endilegasúrétta eðasjálfsagða. lrauninni — ogþaðhetöi mátt koma skýrar fram I bók minni — erukapitalismi og sósfalismi vegna tviræðrar merkingar orð- anna oröin vandræðaorö, sem sennilega væri best að vera not- uð sem minnst i málefnalegum umræðum um efnahagsmál og þjóömál. Meðan þeir, sem köll- uðu sig vinstri sósialista, töldu Sovétrikin fyrirmyndar þjóð- félag, var þó allviðtækt sam- komulag um þá skilgreiningu á sósialisma, sem ég hefi notað. En eftir það að Stalin og öllu hans athæfi var afneitaö, þannig að merking orösins sósialismi verður mun óákveðnari en áður. Ef nota á bókstaflega þýðingu orðsins sósialismi, verður sennilega ekki komist nær henni en meö orðinu félags- hyggja. 1 fróðlegri grein, sem birtist I Timanum i haust eftir Helga Skúla Kjartansson, upplýsir hann að dr. Jón Dúason hafi fyrir u.þ.b. 60 árum þýtt sósiaiisma með orðinu félags- hyggja. Var mér þetta ókunn- ugt áöur en ég las grein Helga. En félagshyggja er æði óákveð- iö hugtak, þótt ekki skuli það nánar rætt hér. Ýmsar fleiri merkingar hafa verið lagðar I orði sósialismi. Éghefi það t.d. á tilfinningunni, að margir þeirra, sem kalia sig sósialista, eigi með þvl blátt áfram viö þjóðfélag, þar sem réttlæti rikir I samskiptum manna, hvað sem i sliku kann að felast að öðru leyti. Merking orðisns kapitalismi er raunar einnig mjög tviræð. Það er t.d. mikill munur á hug- myndum þeirra Karls Marx og Galbraiths annarsvegar og Adams Smith hinsvegar um eöli kapitalismans. Hinir fyrrnefndu hafa þar i huga nær skefjalaust vald auðhringa, hinn siðar- nefndi frjálsa samkeppni, þar sem hinn einstaki kapitalisti er raunar valdalaus en veröur aö þjóna markaðsþörfum neyt- andans, sem hann getur ekki haft nein áhrif á. Ef kapítalismi og sóslalismi eru skoðaðir sem stjórnmála- stefnur, má segja að sú skil- greining, að skilgreina slikar stefnur sem mismunandi eignarréttarskipuiag, hafi þann galla, aö stefnurnar séu þá skil- greindar sem leiðir að tak- marki, ekki sem markmiö. Tiltekið eignarréttarskipulag, hvort heldur er sameignar-eða séreignarskipulag, getur aldrei frá sjónarmiöi skyn- samra manna verið markmið I sjálfu sér, heldur aðeins tæki til framkvæmdar ákveðnum hug- myndum um réttlátt og gott þjóðfélag. Eignarréttarskipu- lagið á að vera þjónn en ekki herra. Hitt ersvo annað mál, aö ef samkomulag er um það — og það gerir Arni sér ljóst — aö valddreifingsé skilyrði þess, aö lýðræði og mannréttindi séu annað en nafniö tómt, þá hlýtur eignarréttarskipulagið að koma inn í myndina. Karl Marx taldi aö þjóikiýting væri spor i þá átt að dreifa hinu efnahagslega valdi. Reynslan I Sovétrlkj- unum og þeim lixidum er við svipað hagkerfi búa hefur orðið hin gagnstæöa. I bókminni er það viðurkennt að það sé fræðilegur möguleiki að samrýma viðtæka þjóö- nýtingu og dreifingu hins efna- hagslega valds og ákvöröunar- töku. En enn sem komið er, þá er þetta aðeins fræðikenning, sem hvergi hefir tekist að fram- kvæma i reynd. Er hugsanlegt að slikt veröi nokkurntima? Þetta er mikilvæg spurning, sem nauösynlegt er fyrir alla þá, er telja sig aðhyllast „mannlegan” sósialisma, þar sem lýðræði og mannréttindi eru virt, aö leita svars við. Aö lokum vil ég til þess að fyrirbyggja misskilning láta þaö koma fram, að tilvitnanir þær I meir a en 30 ára gömul um- mæli þáverandi forystumanna Verkamannaflokksins breska, sem Árni getur um I grein sinni, hefi ég aldrei túlkað ööruvlsi en sem persónulegar skoðanir þeirra, ekki sem stefnu breska Verkamannaflokksins þá né siðar. Þaö fellur utan þess stakks, sem bókinni er sniöinn, að kryfja til mergjar hug- myndafræöi einstakra stjórn- málahreyfinga, innlendra sem erlendra. Ólafur Björnsson Karlakórinn þresti r I Hafnarfirói Stfóntandi: 4rni Sigtryggsson Karlakórinn Þrestir Gjöf til Viðeyjarkirkju Fyrir nokkru afhenti örlygur Hálfdanarson bókaútgefandi Þjóðminjasafni tslands spari- sjóðsbók með einnar miljónar króna innistæðu, sem er áheit til Viðeyjarkirkju, en Þjóðminja- safn er eigandi hennar. Óskaði örlygur þess, að fjárhæðinni yrði varið til viðgerðar kirkjunnar eða standsetningar hennar á annan hátt. Viðeyjarkirkja var fullbyggð árið 1774 og haföi þá veriö all- mörg ár í smiðum. Hún er meðal fyrstu steinhúsa á íslandi, reist að tilhlutan Skúla landfógeta Magnússonar, heimiliskirkja, vönduö að allri gerð. Kirkjunni hefur tiltölulega lltið verið breytt frá öndverðu og hún var langt I frá svo illa farin sem Viðeyjar- stofa, en þó þarfnast hún allmik- illa viðgerða á komandi árum til að geta talist i viöunandi lagi. Aformaö er að leggja þaksldfu á kirkjuna, ens og búið er aö leggja á stofuna, og gera ýmsar aörar endurbætur, jafnframt þvi sem kirkjugarðurinn þarfnast mikilla lagfæringa. Viögerö Viðeyjarstofu miöar hægt en örugglega áfram. Er nú Viðeyjarkirkja búið að gera við útveggi hússins ogþak, endurnýja glugga og fariö að leggja gólfin að nýju. Ekki er unnt að segja, hvenær viögerð húsanna og snyrtingu staðarins lýkur, en að þvi loknu mun Við- eyjarstofa og Viðeyjarkirkja sóma sér glæsilega eins og I upp- hafi og setja svip sinn á Sundin, en Viöey má hiklaust telja eina af perlum iandsins og öllum mikils virði,einkum þó Reykvikingum, að vita þessa ósnortnu vin, rétt við bæjardyr sinar. gefur út hljómplötu 1 tilefni af 65 ára afmæli karla- kórsins ÞRESTIR i Hafnarfirði, er komin út á vegum kórsins hljómplata meö söng hans, undir stjórn Eiriks Arna Sigtryggs- sonar. A plötunni eru tíu lög. Einsöng með kórnum syngja þau Inga Maria Eyjólfsdóttir og Haukur Þórðarson. Undirleikari er Agnes Löve. Hljóöritun fór fram I Hljóörita I heimabæ karla- kórsins. Karlakórinn ÞRESTIR er elsti karlakór landsins, stofnaður 1912. Stofnandi og stjórnandi fyrstu tólf árin var hinn merki tónlistar- maður I Hafnarfirði, Friðrik Bjarnason. Siðan hafa margir landsþekktir stjórnendur verið meðkórinn. Má þar nefna Sigurð Þórðarson, Jón ísleifsson, sr. Garðar Þorsteinsson, Pál Kr. Pálsson og Herbert H. Ágústsson. Núverandi formaöur kórsins er Halldór Einarsson. Kórinn fór fyrst til útlanda sumarið 1973, þá til Færeyja. Var söng hans þar forkunnar vel tekið hvar sem hann kom. Dreifingu hljómplötu kórsins annast hljómplötu verslunin SKIFAN, Laugavegi 33 og Strandgötu 37 I Hafnarfirði. ISLENSKAR GATUR, SKEMMT- ANIR, VIKIVAKAR OG ÞULUR \ær oprjotanai heimildir um tomstunaagaman og skemmtun íslendinga á liðnum öldum. Fjögur Ijósprentuð bindi frá . siðustu aldainótum i samantekt | Pöntunarseöill ’óns Arnasonar og Ólafs m Ég óska inngöngu f Hið Daviössonar. Alls um 1400 blað- | islenska bókmenntafélag. slður. Bók sem engir uppal- £ Sendið mér ..t s lens ka r^[ endur mega án vera, s.s. I átul „kemmtanir. foreldrar, kennarar, fóstur o.fl. • vikivaka l>g þulur Verð i bandi til félagsmanna l2.000.-kr. + sölusk. £ postkröfu^^^ \erð i bandi til utanfélags- manna 15.000,- kr. + sölusk. '_ tiið íslenska bókmenntafélag

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.