Þjóðviljinn - 01.12.1978, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 1. desember 1978
Föstudagur 1. desember 1978 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 11
Þegar ísland varð fullvalda
í dag eru liðin 60 ár frá
því að ísland varð sjálf-
stæff og fullvalda ríki.
Þegar íslenski ríkisfán-
inn var í fyrsta sinn dreg-
inn að hún á stjórnarráðs-
húsinu við Lækjartorg í há-
deginu 1. desember 1918
voru aðeins 19 dagar liðnir
frá lokum einhvers mesta
hildarleiks í sögu mann-
kynsins, heimsstyrjöldinni
fyrri. öll Evrópa var flak-
andi sár.
Þó að stríðið bærist ekki
beinlínis til fslands urðum
við þó að gjalda þess á
margvislegan hátt. AAikill
vöruskortur varð ríkjandi
hér, einkum þegar leið á
stríðið, og tekin upp
skömmtun á ýmsum nauð-
synjavörum. Verðlag
hækkaði upp úr öllu valdi
en verkalýðshreyfingin
varekkiorðin þaðöflug að
hún gæti fylgt eftir með
hækkað kaupgjald, nema í
litlum mæli. Ýmsir kaup-
sýslu- og útgerðarmenn
græddu hins vegar á tá og
fingri og vafasamt að
nokkurn tíma á þessari öld
hafi bilið milli ríkra og
fátækra verið breiðara.
Veturinn 1917 — 1918 er
mestur fimbulvetur á öld-
inni og kom hann í kjölfar
þeirra báginda sem af
stríðinu leiddi. Miklir
fólksflutningar áttu sér
stað til Reykjavíkur og
annarra kaupstaða á þess-
um árum, svo að fólk bjó
þröngt. Algengt var að
fjölmennar fjölskyldur
hírðust í einu herbergi
með aðgangi að eldhúsi.
Sumarið 1918 varð kalt.
Það var því engin furða
þótt viðnám íslendinga við
inflúnesu þeirri sem barst
til landsins haustið 1918
væri lítið. Hún var kölluð
spænska veikin og varð
drepsótt. Aðeins í Reykja-
vík dóu á þriðja hundrað
manns úr veikinni.
í skugga þessara at-
burða varð Island full-
valda ríki l.desember 1918,
og þegar blöðum er flett
frá úthallandi ári 1918 bera
þau öll þess merki.
—GFr
Samninganefndtslendinga og Dana ásamt riturum hennar f júll 1918. Fv. Magnús Jónsson ritari, Bjarni
frá Vogi alþingismaöur (1863—1926), Cristopher Hage viðskiptaráöherra (1848—1930), Fr. H.J. Borg-
bjerg þingmaður (1866—1936), Jóhannes Jóhannesson forseti sameinaðs alþingis (1866—1950), J.C.
Christensen fyrrv. forsætisráðherra (1856—1930), Einar Arnórsson prófessor (1880—1955), Eric Arup
sagnfræðiprófessor (1876—1951), Gfsli tsleifsson ritari, Þorsteinn M. Jónsson kaupféiagsstjóri
(1885—1976), Þorsteinn Þorsteinsson ritari og Funder ritari.
Það væri ofbeldi
Ég skal aðeins bæta þvi við að
aldrei gæti það orðið smáþjóð til
hagsmuna að reyna að kúga aöra
enn minni. Vér verðum ákveðið
aö halda fram rétti sérhverrar
þjóðar til þess að lifa sjálfstæðu
og óháöu lifi. Og þegar nú
Islendingar állta að þeir, bæði
fyrir sök fjölgunar þjóðarinnar,
fjárhagsástæðna, stjórnmála- og
menningarþroska, séu þess
megnugir að lifa sem þjóð út af
fyrir sig, þá er það aðeins þeirra,
en ekki vort aö dæma um hvort
þeir hafi rétt fyrir sér eöa ekki.
Þaö væri ofbeldi ef aö vér i skjóli
hins sögulega sambands Islands
og Danmerkur, sem lengi hefir
veriö óljóst, ætluðum aö neyða
upp á Islendinga rikisréttarlegu
forræöi sem þeir álita sig ekki
þurfa meö.
(Cr ræðu Zahles forsætis-
ráðherra Dana I Fólksþing-
inu 22. nóv. — Lögrétta 27.
nóvember 1918).
Katla hætt að gjósa
Katla er nú hætt að gjósa. Má
telja aö hún hafi hætt hinn fjórða
dag þessa mánaðar. Missagnir
nokkrar hafa sagt hana gjósa sið-
an, en svo mun eigi hafa veriö. Er
það gleöilegt, aö hún skuli hætt að
vera aö búa oss böl — nóg haföi
hún að gert, og nóg hrjáir oss þótt
hún hætti.
(Fréttir 26. nóvember).
Jarðarfarir svo tugum
skiptir daglega
Jarðarfarir fara fram daglega,
svo tugum skiptir. Stundum verð-
ur ein likfylgdin aö biða svo og
svo lengi fyrir utan kirkjuna,
meðan verið er aö ljúka þeirri
næstu á undan.
(tsafoid, 30. nóv.).
Vellingur borinn út um
bæinn
Matgjafirnar. tJr eldhúsi Thor
Jensen fengu 966 manns mat i
gær. 294 fengu þar fisk og kartöfl-
ur (flest börn) en vellingur var
borinn út um bæinn til 672. Eru
um 16 manns við eldamennskuna
og framleiðsluna. Framreiöslu-
Fullveldi tslands fagnað 1. des.1918. Eftirtaldir menn þekkjast á myndinni: Gfsli J. Johnsen, Jón
Gunnarsson, Kristján Jónsson, Ólafur Björnsson, Eric Cable, Lorck skipherra, Asgeir Sigurðsson,
Sigurður Jónsson ráðherra, Kristbjörg Marteinsdóttir, Sigurður Eggerz ráðherra, Jón Jakobsson,
Þorsteinn Gislason, Jóhannes Jóhannesson forseti sam. alþingis, Aiexander Jóhannesson, Asta
Hermannsson, Jón Hermannsson, Kiemens Jónsson, Paul Smith, Jón Helgason og Gfsli J. ólafsson
fólkið er allt sjálfboðaiið, náms-
stúlkur o.fl., en stúlkurnar verða
nú sumar aö hætta og vantar þá
aðrar i þeirra stað.
(Visir, 27. nóvember 1918).
Sala landsins
Sala. Vér höfum heyrt þess
getið að enn muni vera hálfur
annar foss óseldur á Hornströnd-
um og mór á lækjarbakka norður
á Tjörnesi. Væri eigi rétt aö ljúka
sölunni fyrir fullveldishátiöina?
(Fréttir 30. nóvember)
Kuldinn sækir i fingur-
gómana
Ég sem rita þessar linur byrja
fimmtugasta áriö i dag. Kuldinn
sækir I fingurgómana og fer um
mig allan i þokkabót. Er ég að
verða gamall? Eöa á tiöarfarið
sök á þessu? Vera má að kuldann
leggi úr tveimur áttum og er þaö
liklegast. Engum blööum er um
það að fletta aö kuldaandremi
leggur af vitum náttúrunnar. —
Fyrstu nóttina sem ég var heima
s.l. vor (28. júni ef ég man rétt)
var svo hart frost hér I sýslu, aö
polla lagöi. Og þá kól flæöiengja-
gras það sem nýkomið var upp úr
stifluvatni -eða nýfjaraö var af
stifluvatn. Þau strá eru viðkvæm
sem keppa upp i andrúmsloftiö úr
af djúpu vatni. Og þessi grös báru
visinn brodd til haustdægra. Þó
voru þessi engi góð hjá hálfdeigj-
um og harðvelli.
(Guðmundur Friöjónsson I
Timanum 30. nóvember
1918).
Sóleyjar springa út
öndvegistið er um land allt og
hefir verið siöustu dagana, eins
og indælis vortiö. Frá Hnausum i
Húnavatnssýslu var sagt frá þvi
nýlega i simtali, að þar væru sól-
eyjar aðspringa út þessa dagana.
Væri mikil bót aö þvi ef slik tiö
héldist meðan inflúensan er að
ljúka sér af.
(Visir, 27. nóvember 1918)
„Ég vil elska mitt land”
Þegar mest var neyðin um dag-
inn — þegar bifreiöar þutu um
göturnar allan sólarhringinn með
lækna Isjúkravitjun, ogmenn dóu
svo tugum skipti — þá bar svo við
eina nóttina, að sjúklingar I hús-
um á Laugaveginum heyrðu há-
vaða mikinn. Voru þar islenskir
borgarar á ferð og sungu við
raust: „Ég vil elska mitt land”
(Fréttir 25. nóvember).
Brauð gegn seðlum
Tiikynning frá Alþýðubrauð-
Rikisfáni tslands hylltur i fyrsta sinn á hádegi 1. desember 1918. Fyrir framan stjórnarráðshúsið hafa sjóðliðar af Islands Faik raðað sér upp
með byssur og stingi. 1 horninu uppi til vinstri sér yfir höfnina og ber þar mest á Islands Falk en til hægri eru fslenskir fyrirmenn og yfirmenn
danska herskipsins á stjórnarráðströppunum. Ljósm.: Magnús ólafsson.
Rikisskjaldarmerki Isiands 1918—1944
geröinni. Nú fást brauö aftur I
öllum útsölustöðum Alþýðu-
brauðgerðarinnar.
Þeir, sem fengiö hafa brauð
seðlalaust núna I veikindunum
hjá aöalbúöinni á Laugaveg 61,
eru vinsamlegast beðnir að skila
seðlunum þangað við fyrstu
hentugleika. Jafnframt eru hátt-
virtir viðskiptavinir beönir aö
athuga að framvegis veröa brauö
aðeins seld gegn seðlum, sbr.
auglýsingu frá Landsversluninni
hér I blaðinu.
Kaupið brauðvörur frá Alþýðu-
brauðgerðinni. Búnar til úr besta
fáanlega efni. ódýrari en annars
staðar.
(Augiýsing IDagsbrún 27.
nóvember 1918).
Trésmiðafélag Reykja-
vikur hefir ákveðiö...
Trésmiðafélag Reykjavikur
hefir með samkomulagi viö
vinnuveitendur ákveöiö að lág-
mark á timakaupi meðlima
félagsins skuli vera frá 26. þ.m.
þannig: Fyrir fasta innivinnu á
vinnustofum kr. 1.00 fyrir kiukku-
stund. Fyrir skipasmiði, húsa-
smiði og aðra útivinnu kr. 1.10
fyrir klukkustund.
Reykjavlk, 26. nóv. 1918.
Félagsstjórnin.
(Visir, 27. nóvember 1918).
Myrkrið á götunum
Myrkrið á götunum er hið
herfilegasta. Má svo heita, aö
menn geti eigi þverfóta farið eftir
aö dimma tekur án þess að reka
sig á menn eöa ljósakerastaura.
Minna hinir siðarnefndu fólk á
þaö, að þeir séu þá til, þó að engin
séu ljósin. — Lögreglunni, sem
ætti að minsta kosti aö vera helm-
ingi fjölmennari en hún er, mun
eigi vera neinn hægöarauki að
þessuljósleysi. Er um hægist, má
ekki láta það dragast, að taka á
ný að tendra götuljósin, er dimma
tekur.
(Fréttir 29. nóvember 1918).
Fljótfærni á Bráðræðis-
holti
Af Bráðræðisholti hafa fjórir
húseigendur sótt um vatnsæð.
Sökum þess að vatnspipur vant-
ar, hefir ekki veriö hægt að sinna
beiðninni.
(Dagsbrún 27. nóvember 1918).
Fjórða sjálfstæöa rikið á
Norðurlöndum
Minningardisk, „Platte”, hefir
Jóhannes Kjarval málari látiö
gera til minningar um sambands- ■
lögin sem nú ganga i gildi. Hugs-
unin sem listamaöurinn leitast
við aö sýna er sú að þennan dag,
1. desember 1918, bætist I hópinn
fjóröa sjálfstæöa rikið á Norður-
löndum. Er á diskinum tré með
fjórum greinum og er þaö Askur
Yggdrasils. Tákna greinarnar
Noröurlandarikin, Island, Dan-
mörk, Noreg og Sviþjóö og eru
nöfnin við, en yfir trénu er dag-
setningin: 1. desember. En yfir
þessu friðarboginn.
(Tfminn, 30. nóvember 1918).
Á landsjóðs kostnað
Sótthreinsun á aö fara fram á
kvikmyndahúsunum áöur en þau
verða opnuð aftur. Ennfremur
verða sótthreinsuö hibýlimanna,
þar sem einhver hefir dáið úr in-
flúensunni og lik staðið lengi uppi.
Sótthreinsunin fer fram á land-
sjóös kostnaö.
(Vfsir, 26. nóvember 1918).
Framhald á næstu siöu '
Flett nokkrum íslenskum blöðum á úthallandi ári 1918