Þjóðviljinn - 13.05.1979, Page 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. mai 1979
Adda Bára Sigfúsdóttir skrifar um nýja borgarstjómarmeirihlutann STJÓRNMÁL Á SUNNUDEGI
||K JaFj'
FYRSTA ÁRIÐ
I þessum mánuði er ár
siðan íhaldið féll hér í
borg, og því tímabært að
lita yfir farinn veg og rif ja
nokkur tíðindi upp. Á
sunnudegi féll það, og á
fimmtudegi í sömu viku
höfðu fyrrverandi minni-
hlutaflokkar komið sér
saman um að bera ábyrgð
á stjórn borgarinnar næstu
4 ár. Á þeim degi voru í
borgarstjórn kosnir for-
setar borgarstjórnar og
borgarráð. Það kom því
hvorki til vandræða né
glundroða af nokkru tagi
við þessi óvæntu stjórn-
endaskipti í borginni. Það
tók heldur ekki langan
tíma að fá mjög hæfan
mann til þess að taka að
sér starf borgarstjóra. Á
næsta borgarstjórnarfundi
15. júní kynnti hinn nýi
meirihluti samstarfsyfir-
lýsingu og kaus í nefndir
og ráð eins og bar að gera.
Fyrir þann fund höföu verið
geröar ráöstafanir til þess aö
framkvæma þaö fyrirheit, sem
fólst i kjöroröunum „Samningana
i gildi”. begar nýr meirihluti
taldi i kassanum blasti þaö viö, aö
hann yröi aö sætta sig viö aö efna
fyrirheitin i nokkrum áföngum,
og þvi varö aö ráöi aö byrja á þvi
að greiöa fullar vfsitölubætur á
lægri iaunin og fikra sig siöan upp
á viö, þannig aö allir yröu búnir
aö fá fullar visitölugreiöslur um
áramót. Aöur en máliö var
afgreitt i borgarstjórn sátum viö
einn eftirmiödag i veisluhúsi
borgarinnar aö Höföa og ræddum
viö formenn þeirra launþegasam-
taka, sem hlut áttu aö máli,og
kváöust þeir allir vel geta unaö
slikum málalokum. Ihaldsmenn i
kosningaham töluöu hins vegar
hátt um hrikaleg svik.
Óskert fé
til dagheimila
A miöju sumri kom aö þvi, aö
ekki var tii fé til allra þeirra
framkvæmda, sem fjárhags-
áætlun á kosningaári haföi gert
ráö fyrir. Slikt hefur oft áöur
gerst i verðbólgu árferöi og ekki
einu sinni þurft kosningar til.
Alþýöubandalagiö hefur lengi
barist fyrir fjölgun dagheimila i
borginni, og þvi ákváöum viö, aö
þrátt fyrir allar þrengingar
skyldi fé til nýrra dagheimila
ekki skert. Niöurskuröurinn
bitnaði þvi fyrst og fremst á
gatnagerö og viöhaldi húsa, sem
engan veginn var gott aö þurfa aö
vanrækja. Þegar þessi niöur-
skuröur kom til afgreiðslu I
borgarstjórn, sagöi Birgir
tsleifur, aöhér væri um hreinasta
kák aö ræöa. >aö þyrfti aö skera
miklu meira niöur. Hann var
sinum hnútum kunnugastur og
heföi, ef marka má reynslu fyrri
ára, ekki hikaö viö aö skera niður
byggingafé dagheimilanna. I
áróöri gegn okkur var þvi hins
vegar beitt eftir mætti aö áætlaö
fé stóö ekki undir áætluöum
byggingahraöa, fyrir þvi sá verö-
bólgan.
Jafnrétti fatlaðra
Minnisstæöasti atburöur
haustsins er dagurinn sem fatl-
aöir sóttu okkur heim aö Kjar-
valsstööum. í ræöu sinni viö þaö
tækifæri baö Magnús Kjartansson
okkur borgarfulltrúa aö sanna aö
viö gætum ekki aöeins deilt um
mikilvæg atriöi heldur einnig
unniö saman aö stórmálum.
Gangan og orö Magnúsar höföu
þau áhrif, aö umsvifalaust var
skipuö nefnd undir forsæti
borgarstjóra til þess aö vinna aö
jafnréttismálum fatlaðra. Auk
borgarstjóra er i nefndinni einn
fulltrúi frá hverjum flokki og
tveir fulltrúar fatlaöra. Aþreifan-
legur árangur af störfum
nefndarinnar er sá, aö strætis-
vagnarnir hafa frá áramótum
haft bil i förum fyrir fatlaö fólk og
veriö er aö útvega aukinn farkost
sem hentar fötluöum. 1 sumar
veröur unniö aö nokkrum lag-
færingum á gangstéttum og veriö
er aö athuga ýmsar byggingar
meö hliösjón af þvi hvaö hægt sé
aö gera til þess aö þær veröi
greiöfærari fötluöu fólki. Þvi
miður entist samstaöan þó ekki til
þess aö samþykkt yröi tillaga frá
Guörúnu Helgadóttur um aö geta
réttarstööu endurhæföra i aug-
lýsingum um lausar stööur hjá
Reykjavikurborg.
Fjárhagsáætlun
Gerö fjárhagsáætlunar reynd-
ist erfitt og óskemmtilegt verk-
efni. Veröbólgan sér fyrir þvi aö
aöaltekjustofninn,ll% af tekjum
manna i fyrra, hrekkur skammt
nota I ár. Staögreiöslukerfi á út-
svörum mundi hér géfbreyta
stööunni fyrir borgarsjóö. Röskur
milljaröur varö aö fara I af-
borgun lána og fleira af sliku tagi
þrengdi svigrúm til framkvæmda
og rekstrar gagnlegra stofnana
meira en gott var að þurfa aö una.
Þó eigum viö inni á fjárhags-
áætlun 353 miljónir i byggingu
dagheimila og leikskóla. Þaö er
auövitað of litiö. Ég ætla ekki aö
leiöa getum aö þvi hvaöa tala
heföi staöiö þarna heföi Ihaldiö
veriö áfram ráöandi, en leyfi mér
aöeins aö fullyröa aö hún heföi
ekki veriö mjög stór. Inni eru
einnig 770 miljónir fyrir
byggingar I þágu aldraöra og 300
milj. til framkvæmda viö Borgar-
spitalann.
Þessi fjárhagsáætlunargerö
reyndi mjög á þolrif hins nýja
meirihluta og ýms mistök uröu
hjá okkur, en okkur tókst aö
standa saman og erum reynsl-
unni rikari um hvaö varast ber I
vinnubrögöum næst.
Atvinnu-
uppbygging
í samstarfsyfirlýsingu flokk-
anna þriggja stendur aö þeir
muni sameiginlega vinna aö þvi
aö treysta undirstööuatvinnuvegi
i borginni. Þarna er tveggja
merkra áfanga aö geta. Búiö er
aö semja um kaup á tveimur tog-
urum og þar meö liðin sú tiö aö
BOR sé hrörnandi fyrirtæki og
Reykjavlk á niðurleiö sem
útgeröarbær. Skipaviögeröir og
skyld þjónusta hafa einnig verið á
undanhaldi I Reykjavik, og allt
frá árinu 1967 hafa Alþýöubanda-
lagsmenn I borgarstjórn flutt til-
lögur um aögeröir til þess aö hér
gæti byggst upp nútímaleg
aöstaöa fyrir skipaviögeröir.
Engin hreyfing var þó á málinu
fyrr en þáttaskilin uröu i fyrra-
vor. Nú hefur þaö hins vegar
gerst aö hafnarstjórn og borgar-
stjórn hafa tekið ákvöröun um
framtiöar uppbyggingasvæöi
fyrir skipaverkstöð i Kleppsvik.
Þar hefur Landssmiöjunni þegar
veriö gefiö fyrirheit um lóö og
unniö veröur aö þvi aö á þessu
svæöi taki riki, borg og fyrirtæki
saman höndum um uppbyggingu.
Samstarfið
En samstarfið sjálft, spyrja
menn gjarnan, hvernig gengur
þaö og á þaö framtiö fyrir sér?
Viö göngum aö sjálfsögöu ekki
gruflandi aö þvi, aö þarna er um
þrjá stjórnmálaflokka aö ræöa
meö ólik viöhorf til margra mála.
Þetta hefur auövitaö oft sagt til
sin viö úrlausn einstakra mála.
Þaö hefur þó oftast tekist aö ná
nauösynlegri samstööu og alltaf I
þeim málum sem sköpum skipta
fyrir samstarfiö sjálft. Þeir ein-
staklingar sem skipa meirihlut-
ann eiga einnig sin persónu-
bundnu viöhorf og vinnubrögð og
okkur hefur aldrei dottið i hug aö
viö rynnum saman i einlita hjörö
jábræöra og systra. Viö náöum
saman eftir snerpudeilur um
stjórn Kjarvalsstaöa. Viö deilum
um sitthvaö I meöferö æskulýös-
mála og hvort rétt sé aö leyfa
veitingamönnum aö selja brenni-
vln til kl. 3 allar nætur og viö
höfum deilt um sorphiröu. Um
hitt deilum viö ekki aö viö ætium
aö standa saman um þá sam-
starfsyfirlýsingu sem viö gáfum
15. júni I fyrra. Viö höfum enn
ekki náö langt en viö ætlum aö
„treysta undirstööuatvinnuvegi i
borginni, bæta félagslega þjón-
ustu og gæta þess aö skipulagsaö-
geröir veröi ekki til aö spilla svip-
móti borgarinnar”. Viö ætlum
einnig aö ná tökum á þvi verkefni
„aö borgaryfirvöld hafi samráö
og samvinnu viö borgarbúa”. Viö
höfum verk aö vinna.
Adda Bára Sigfúsdóttir
Munið kappreiðar Fáks í dag
sunnudag kl. 14.30