Þjóðviljinn - 01.11.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 01.11.1979, Blaðsíða 1
MOWIUINN Fimmtudagur l. nóvember 1979. 237. tbl. 44. árg. ! Útvarpsskákinni lokic^ Færeyskur sigur L.. Útvarpsskák þeirra Hanus Joensen, Færeyjum, og Guömund- ar Ágústssonar, tslandi, lauk i gær, er Guðmundur gafst upp i 25. leik. Helgi Ólafsson fjallar um viöureign þeirra félaga i skák- þætti þjv. á bls. 12 i dag. 1 viöhorf_______________ Mistök Geirs Ýmsir af helstu máttarstólp- um Sjálfstæöisflokksins til margra ára hafa nú af þvi vax- andi áhyggjur að stjórnmála- sagan muni dæma ákvöröun Geirs Hallgrimssonar um að styöja minnihlutastjórn Alþýöuflokksins sem alvar- legustu mistök flokksins til þessa. Forystumenn Sjálfstæöis- flokksins hafa jafnan haldiö þvi á lofti aö flokkurinn sé fyrst og fremst ábyrgur flokkur og hugsi um þjóðarhag, en ódýr at- kvæöasjónarmið eöa pólitisk ævintýramennska komi ekki nálægt ákvaröanatöku hans. Þeir feðgar Vilmundur Gylfa- son og Gylfi Þ. Gislason báru þau skilaboö frá Geir Hall- grimssyni inn á flokksstjdrnar- fund Alþýöuflokksins, er vinstri stjórnin var I fæöingu fyrir rúmu ári, aö hann væri tilbúinn til að berjast fyrir þvi aö Sjálf- stæðisflokkurinn veitti minni- hlutastjórn Alþýöuflokksins hlutleysi. Tilboöiö kom of seint. En Vilmundarliðiö vissi aö þaö gat gengiö aö þessu tilboöi visu og sprengdi rikisstjórnina I haust. Geir Hallgrimsson stóö viö orö sin og baröist fyrir þvi I þingflokki Sjálfstæöisflokksins aö mynduö yröi dúkkustjórn meö stuöningi hans. Fylgistölur i skoöanakönnunum siödegis- blaöanna, þar sem Sjálfstæöis- flokknum var spáö meirihluta- fylgi, höföu ruglaö dómgreind hans og annarra forystumanna Sjálfstæðisflokksins. Þar meö geröi hann sin afdrifarikustu pólitisku mistök. Meöal kjósenda var þreyta og mikil óánægjameöósamlyndiö I stjórninni sem kratar sprengdu. Fólk leit til Sjálfstæöisflokksins i von um svar, en ekki vegna frammistööu hans I stjórnar- andstööueöasérstakrar trúar á forystuhans. Þegar stjórnin var fallin var óánægjuefniö úr sög- unni, enda komin dúkkustjórn Sjálfstæöisflokksins og ný við- reisn Alþýöuflokks og Sjálf- stæöisflokks I sjónmáli eftir kosningar. Þaö veröur þvi kosið gegn dúkkustjórn ihaldsins, og gegn nýrri viðreisn i komandi kosningum, en ekki stjórn sem var úr sögunni þegar I haust. Ef Sjálfstæöisflokkurinn heföi veriö ábyrgur og axlaö sjálfur stjórnartaumana heföi hann unnið þaö tvennt aö vera stefnu sinni trúr og boöiö þjóöinni upp á valkost, einn flokk, gegn frá- farandi stjórnarflokkunum þremur. Atkvæöagræögi, rangt pólitiskt stööumat, ævintýra- pólitik i staö ábyrgrar af stööu — meö þessu þrennu eyöilagöi Geir Hallgrimsson áróöursstööu Sjálfstæöisflokksins i einu vet- fangi. _ekh Forsmekkurinn af desemberkosningunum? T alningin tefst í þrjá heila daga Kratar á Vestfjörðum fá að kenna á ófœrð og illvirðum Sighvatur Björgvinsson: Taldi erfiöar vetrarsamgöngur enga röksemd gegn kosningum, en hvaö segir hann nú? Kratar fá þessa dagana for- smekkimi af þvl sem gerst getur i vetrarhörkum á islandi en undanfarna daga hefur veriö af- takaveöur á Vestfjöröum og eng- in leiö aö hefja talningu i próf- kjöri þeirra þar. Siöast fréttist tii formanns kjördæmaráös Alþýöu- flokksins um borö I Coaster Emmy á leiö frá Dýrafiröi til isa- fjaröar en hann tagöi af staö sjó- leiöina frá Patreksfiröi snemma á þriöjudag. Þetta ætti aö vera þeim holl áminning, sem á þingrofsdaginn dásömuöu nútima tækni og sam- göngur hvaö mest, — sögöu það ekki skipta máli hvernig viðraöi á landinu, kjördagarnir yröu bara tveir eöa fleiri. Talning þeirra hefur nú dregist i 3 daga fyrir vestan og talningin noröanlands dróst einnig vegna veðurs. 1 gærkvöld var veörið að ganga niöur á Vestfjöröum og hjá Vega- eftirlitinu fékk Þjóöviljinn þær upplýsingar aö ætlunin væri aö reyna aö ryöja fjallvegi fyrir helgina, en nánari timasetning hafði ekki verið ákveðin. Sem dæmi um samgöngurnar nefndi vegaeftirlitsmaður aö i gær var ófært milli Isafjaröar og Hnifs- dals og ekki unnt aö moka vegna veöursins. Ekkert var flogiö á Vestfiröi i gær og eitt flug var til Bildudals á þriöjudag. A Noröurlandi var viöa hálka á vegum I gær, en þeip þó greiö- færir, nema Ólafsfjaröarmúli, sem var ófær.og leiöin til Siglu- fjaröar um Mánárskriöur var þungfær. Guömundur Hafsteins- son veröurfræöingur tjáöi Þjóö- viljanum i gær aö I dag ætti aö vera komiö skaplegt veröur um allt land, en langtimaspár bentu til þess aö um helgina snerist aftur til noröanáttar. -AI Miljón í vinnu utan heimalandsins Forsætisráðherrar Norðurlanda ræddu ma. endur- skoðun samkomulagsins um norræna vinnu- markaðinn á f undi sínum í gær, en samkvæmt skil- málum hans hafa um miljón Norðurlandabúa stundað vinnu utan sins heimalands á sl. 25 árum. Þeir ræddu einnig um Nordsat og sumartíma. — Sjá 3. síðu. Jón Helgason formaður Einingar á Akureyri Guömundur Agústsson Jón Helgason: Ég vildi halda lifi i rikisst jórninni, „Ætli ég falli inn í myndina” ,,Ég er ekki frá þvl aö staöa Alþýöuflokksins sé önnur og verri nú þar sem enginn fulltrúi frá launþegasamtökunum er I efstu sætunum”, sagöi Jón Helgason formaöur Verkaiýösfélagsins Einingar á Akureyri I gær, en hann tapaöi i prófkjöri krata á Noröurlandi eystra fyrir Jóni Armanni Héöinssyni útgeröar- manni úr Hafnarfiröi. ,,Ég fór fyrst og fremst i þetta vegna þess aö ég taldi mig þar meö vera að styrkja stöðu flokks- ins sem hagsmunaaöili fyrir launþega I landinu”, sagöi Jón. ,,Ég var einn af þeim sem vildi halda lifi I rikisstjórninni og taldi aö verkalýösflokkarnir svonefndu heföu brugöist skyldu sinni I þvi efni. Þaö er einnig ástæöan fyrir þvi að ég fór I þetta — ég taldi mig þurfa styrkari stööu til aö hafa áhrif á gang mála.” Jón vildi ekki úttala sig um þann sem hann tapaði fyrir, en sagöist vera sáttur við tilveruna og sætta sig viö aö veröa undir i þessum slag. „Ég hef ekki haft tima til aö kanna þátttökuna I prófkjörinu”, sagöi hann. „Maður fer i þetta meö stuttum fyrirvara og er önnum kafinn all- an timann þannig aö ég sinnti prófkjörinu litiö nema rétt kjör- dagana. Hins vegar geri ég mér grein fyrir þvi aö lagt hefur veriö mikiö kapp á aö fella mig úr þessu sæti, kannski vegna þess aö ég hef ekki fallið inn I myndina hjá sumum.” -AI S 1 Hjálmar svarar „Þaö er annarra en okkar aö dæma um þaö hvort viö á Haf- rannsóknarstofnuninni erum verki okkar vaxnir”, segir Hjálmar Vilhjálmsson fiski- fræöingur i samtali viö blaöiö, „enégleyfimér aö draga I efa aö stjórn Síldarverksmiöja rikisins sé rétti aöilinn til þess”. 950 þúsund 1 dag veröur tilkynnt hvenær loönuveiöar veröa stöövaöar. Þegar þær veröa stöövaöar veröa eftir 150 til 200 þúsund tonn af loönu til hrognatöku á vetrarvertiö. Niöurstaöa ioönurannsókna er sú aö óhætt sé aö hækka veiöikvótann úr 600 I 650 þúsund lestir. Peningar og radarstöðvar Bandariskir herfræöingar töldu þaö hlægilegt fyrir tveim árum aö sjá I peninga fyrir flugstöö i Keflavik— af þvi aö þeir þyrftu aö fá samþykki fyrir fleiri radarstöövum á tslandi. Nú eru peningarnir i flugstööina komnir. Hvaö s vo? Hverfa islenskar bamabækur? Árrnann Kr. Einarsson, sem samiö hefur 30 barnabækur, telur liklegt aö útgáfa frum- saminna barnabóka hætti eftir nokkur ár ef ekkert veröur aö gert. Kúgun og ofbeldi Sá grunntónn sem dreginn er fram úr verki Nlnu Bjarkar i þessari sýningu er kúgun, — þaö ofbeldi sem hinir sterku beita hina veikari. Þær myndir sem þessi kúgun tekur á sig i sýningunni eru afar sterkar og áhrifamikla r, skrifar Sverrir Hólmarsson um Englana. Sjá baksiðu. Sjá baksiðu. Leiðari. Sjá 9. siðu. Sjá 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.