Þjóðviljinn - 29.12.1979, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 29.12.1979, Blaðsíða 2
2 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 29. desember 1979 AF ANNALI 1979 í HNOÐUÐUM LEIR Ef að betur að er gáð, ætla ég megi sannast, að vísindin efla enga dáð, ættu því að bannast. Á árinu var tekið mun harðar á nauðgunum en nokkru sinni fyrr og stráklingur leiddur fyrir rétt af því að hann hafði sofið í sama svefnpoka og jafnaldra hans á Þingvöllum í þrjár nætur í röð og nauðgaði henni á hverri nóttu. Þetta hafði hann sér til málsbóta: Til iðrunar ég ekki finn, undarlegt hvernig er látið. Þeir stinga mér inn ef ég sting honum inn, ég stenst bara ekki mátið. Annars lét lögreglan mjög til sfn taka á árinu, og var mönnum óspart stungið í „gæslu" ef þeir voru tregir að játa. M.ö.o: Oddný Guðmundsdóttir skrifaði ágætt og tímabært greinarkorn i Þjóðviljann rétt fyrir jófin undir fyrirsögninni „Dagblað pantar leirburð" og vekur þar athygli á nokkru sem raunar hafði farið f ramhjá mér, en það var að Þjóðviljinn hafði 7. nóvember beðið um vísur ' til birtingar. Bendir Oddný réttilega á það að nóg séaf leirburðinum í blaðinu fyrir, og leyfi ég mér að taka undir það í hjartans einlægni. Þó finnst mér að Oddný hefði að ósekju mátt minnast lítillega á ágætan vísnaþátt, sem birt- ist vikulega í blaðinu í umsjá Adolfs Peder- sens og er nefndur „Vísnamál". Afturámóti bendir Oddný á það að undirrit- aður sé ábyrgur fyrir miklu magni af vondum kveðskap og eru það sannarlega orð í tíma töl- uð. Hún bendir í greininni á nokkuð sem raun- ar er löngu vitað, en það er að guð hafi ekki gefið mér „Ijóðeyra". Oddný mín hefði betur vitað þétta fyrr. Það vill nefnilega þannig til að um það leyti sem Adolf Hitler var að berja á andskotum sínum í öndverðri síðari heimsstyrjöldinni var Oddný farkennari uppi í Borgarfirði og tók sér þar m.a. fyrir hendur annað óhæfuverk, en það var að berja undir- stöðuatriði islenskrar Ijóðagerðar inní hausinn á mér, og hefur hún þar ef til vill vakið upp þann draug sem ekki verður auðveldlega niður kveðinn. Til marks um það að guð haf i ekki gef ið mér „Ijóðeyra" birtir hún síðan í qreinarkorni sinu þessi Ijóðperlu, sem hann ranglega heldur að sé eftir mig, en mér persónulega f innst að ég gæti verið fullsæmdur af: „Simmi rimmi rimmi bræsling ísunnanblænum og sólin á krypplingana skín me — me Að fá sér skrekkling á stúlkum vænum og gloggli er konan mín me-me." Sannleikurinn er sá að ég hef orðið tyrir umtalsverðum áhrifum af kveðskap Æra- (Æru-)Tobba, og bera mörg af bestu Ijóðum mínum því glöggan vott; kannske kem ég að því siðar. En af því að nú eru áramót, langar mig að rif ja upp nokkuð af því merkasta sem fyrir bar á árinu, sem er að kveðja, og læt fylgja með svolítið af hnoðuðum leir, sem hefði sjálfsagt betur verið brenndur. Árið byrjaði með bravúr á því að áhuga- söngfólk um óperuflutning færði upp sorgar- söngleikinn I Pagliacci eftir Leoncavallo, og í viðtali við óperustjórann, um það hvernig hægt væri að þekkja góða söngkonu frá vondri, svaraði hann: Það sést á góðri söngkonu, ef svellur hennar barmur er hún að springa af einhverju sem á að vera harmur. Þetta var eins og allir vita í upphafi barna- árs og varla um annað talað en hve slælega væri staðið að kynfræðslu í barnaskólum. Þá var gefinn út litill bæklingur handa heldri- mannabörnum um það hvernig ætti að gera „hitt" án þess að úr yrði barn. Formálinn hijóðaði svona: Viljirðu ekki eiga börn öruggt ráð ég þekki Góð er talin getnaðarvörn að gera það bara ekki. Um þessar mundir birti einn af rómuðustu vísindamönnum þjóðarinnar þá hávísindalegu niðurstöðu í Þjóðviljanum að dauðsföll væru helmingi algengari hjá reykingamönnum en þeim sem ekki reyktu. Einhverjum datt þá eftirfarandi í hug: Þó hulið sé margt í heimi hér, held ég megi segja: Fullvíst talið ennþá er, að eitt sinn skal hver deyja. Og einhverjum sem blöskraði hundaló- gikkin í vísindunum, þótti þessi staka viðeig- andi: Ef magnast glæpagrunurinn, gerast löggur kátar. Þær setja bara einhvern inn sem endanlega játar. Þegar svo komið var framá sumar vakti Kirkjuritið athygli á þeirri alkunnu staðreynd að Þjóðviljinn væri eina dagblaðið sem gerði kristni og kirkju í landinu verðug skil. Morgunblaðsmenn urðu æfir, sérstaklega eft- ir að þessi vísa hafði verið f lutt í stólræðu eins af höfuðklerkum þjóðarinnar: A Mogganum er mesta puð, menn þar trúa ekki á guð. En eitt er víst og það er það, að Þjóðviljinn er kristið blað. Og þá er aftur komið að Þjóðviljanum og leirhnoðinu, sem þar hefur eftir mig birsf. Það hef ur sannarlega aldrei f lökrað að mér að ég ætti frátekið sæti á skáldabekk íslensku þjóðarinnar og get víst tæplega talist hagyrð- ingur vegna þess hve ósýnt mér er um það að ríma og setja stuðla og höf-uðstaf i í áhersluat- kvæðum. Sannleikurinn er bara sá að ég hef óskaplega gaman að svonefndri hvínandi dellu og þess vegna hefur legið svona vel á mér á árinu 1979, því ekki hef ur dellan látið á sér standa. Og ef ég get gert mér nokkra von um að mér takist að framleiða marktæka (eða ómarktæka) hvínandi dellu, þá áskil ég mér rétt til að taka mér eins mikið af skáldaleyfum og þurfa þykir. Og að endingu vil ég svoóska Oddnýju minni (sem ég hef alltaf elskað og virt, frá því hún kenndi mér að yrkja) alls velfarnaðar um alla framtíð og sendi henni litla hortittavísu með skáldaleyf um: Oddný, þú er orðin full- illa skiljandi. Alltaf þegar ég yrki bull er það viljandi. Gleðilegtár! Flosi. Áramótahugleiðing um jólahugleiðingu Hjalta Sem súsialisti utan Alþýftu- bandalagsins yildi ég gera at- hugasemdviö hugleiöingu Hjalta Kristgeirssonar I bjóöviljanum i gær. Hjalti varar eindregiö viö þvi, aö Alþýöubandalagiö taki tilboöi Sjáifstæöisflokksins um skyndi- brullaup. Þaö erútaf fyrir sig gott og blessaö. En þvi þyrfti viö aö bæta, aö jafnfráleitt eöa enn frá- leitara er aö ganga i sæng meö Alþýöuflokknum, jafnvel þótt bit- ur brandur Framsóknar liggi á milli. Af slikum mökum saurgast mennmeir en skiptum viö hrein- skilinn andstæöing. Þaö heföi t.d. veriö illskárra aö fallast á tima- bundiö óbreytt ástand I hernáms- málunum I samningi viö i'haldiö en Framsókn og krata. Þaö heföi fólk skiliö. Þaö er meö hættulegri blekk- ingum aö kalla kratana verka- lýösflokk i'málgögnum sósialista. Þótt þeir eigi eitthvert fyigi I launamannasamtökunum, á ihaldiö þaö ekki sföur. Af tvennu illu væri skárra aö hafa samvinnu viö Ihaldiö en krata. Þaö fengist Árni Björnsson: Látum ekki svo sem kratar séu skárri en fhaldiö. sjálfsagt lélegri og óloönari mál- efnasamningur á pappirnum. En þaö væri þó von til, aö viö hiö iitla væri staöiö. thaldiö getur leyft sjálfu sér aö vera flott. Þaö má hins vegar aldrei treysta þvi, aö kratar standi viö neitt, nema Ihaldiö leyfi. Og þaö gerir fhaldiö ekki utan stjórnar. Best er aö vera laus viö hvort tveggja. En fyrir alla muni látum ekki svo sem kratar séu skárri en ihaldiö. Arni Björnsson Símahappdrœttið Leiðrétting Ein prentvilla var i vinnings- númerum í simahappdrætti Styrktarfélags lamaöra og fatl- aöra i blaöinu I gær. 92-01054 fékk ekki vinning, heldur númer 91- 01154. Þetta leiöréttist hér meö.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.