Þjóðviljinn - 29.12.1979, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 29.12.1979, Blaðsíða 15
Laugardagur 29. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15 Hver er réttur almennra borgara? 6882-9623 hringdi og sagöi sinar farir ekki sléttar. — Þannig var, aö laugardag- inn fyrir Þorláksmessu fór son- ur minn meö vinum sinum i bæ- inn aö versla eins og gengur. Á heimleiöinni komu þeir viö I Sigtúni og voru þar nokkra stund. Svo þegar þeir ætluöu heim fann sonur minn ekki fata- geymslunúmeriö sitt. Honum var neitaö um yfirhöfnina og kom fyrir ekki þótt hann segbist kunna nafnnúmeriö sitt, en nafnskirteinið væri i vasanum á yfirhöfninni og þvi hægðarleik- ur aö athuga þaö. Varö hann aö gjöra svo vel aö fara út i kuldann á skyrtunni. A Þorláksmessu gerðist þaö svo, aö syni minum bauðst skipsrúm og vildi hann feginn þiggja þaö aö fara einn túr meö skipinu i jólafriinu. Skipiö átti að fara út á aðfangadag. En nú kom babb i bátinn: hann vant- aöi persónuskilrikin sin, til aö láta skrá sig á skipiö. Ég reyndi aö hringja i Sigtún, en þar var aldrei neinn viö, svo að á endan- um hringdi ég i lögregluna og bar upp viö hana þessi vand- ræði okkar. Lögreglumaöurinn sem var á vakt tók mér ljúf- mannlega og sagði að þaö eina sem ég gæti gert væri að hringja heim til mannsins sem rekur veitingastaðinn Sigtún og athuga hvort hann gæti ekki afhent okkur yfirhöfnina meö skirteininu. Ég geröi það. Þaö var komiö undir kvöldmat, og ég byrjaði samtalið á afsökunarbeiðni og útskýrði máliö fyrir manninum. Við værum i algjörum vand- ræðum og þaö væri þessvegna sem ég hringdi til hans á þess- um tima, enda hefði mér verið ráölagt þaö hjá lögreglunni. Maöurinn brást hinn reiðasti viö og tók að ausa yfir mig skömmum fyrir þennan dóna- skap, að hringja heim til sin. Hann sagöi aö þaö þýddi ekkert aö tala viö sig fyrren eftir kl. tiu á annan i jólum. Ég hef satt aö segja aldrei kynnst svona viðbrögðum hjá nokkrum manni, og skil hreint ekki hvaðan honum kom réttur til ab kalla mig dóna. Og ég vildi gjarnan fá að vita hver sé réttur almennra borgara gagnvart svona mönnum. A endanum gátum viö bjarg- aö málinu þannig að sonur minn • komst á sjóinn, þótt ekki væri það forstjóra Sigtúns aö þakka. Viö fundum gamla sjóferöabók-, sonur minn haföi verið áöur á sjó, og þaö var hægt að fá hann skráðan á skipið. Svo mörg voru þau orð 6882- 9623. En viö hér á Þjóðviljanum getum bætt þvi viö, ,aö þetta er ekki I fyrsta skiptið sem viö heyrum slikar sögur úr Sigtúni. Vissulega getur það komiö fyrir hvern sem er aö týna fata- geymslunúmeri, og þetta er hlutur sem alltaf er að koma fyrir. A flestum skemmtistöö- um er fólki sagt aö biöa þar til aðrir gestir eru farnir. En i Sigtúni er fólki miskunnarlaust visaö út i kuldann án nokkurs tillits til aðstæðna. Þaö er ekki furöa þótt menn spyrji: geta þessir menn leyft sér allt? Ber þeim engin skylda til að sýna viðskiptavinum sinum kurteisi og tillitssemi? Kvikmyndir Agúst Guömundsson kvik- myndastjóri stjórnar útvarps- þætti um kvikmyndir I kvöld. Þátturinn veröur eiginlega þriskiptur aö sögn Agústs. Rætt veröur viö Þorgeir Þorgeirsson, Þorstein Jónsson og Lárus Ými Óskarsson um stööu islenskrar kvikmynda- gerðar og framtiöarhorfur. 1 þvi sambandi ber t.d. sam- vinna viö sjónvarpiö allmikiö á góma. Þá verður rætt viö Hrafn Gunnlaugsson og Gisla Gestsson um kvikmyndirnar sem gerðar voru hér á landi á s.l. sumri, en sem kunnugt er hljóp alltieinu mikill vöxtur i islenska kvikmyndagerö i kjölfar laganna um kvik- myndasjóð og fyrstu úthlutun- ar úr sjóönum. Loks veröur fjallaö um kvikmyndahúsin, biósýningar og tilhögun þeirra (popp eöa ekki popp, hlé eða ekki hlé, o.s.frv.), gagnrýni og sitthvaö fleira. 1 beirri umræöu taka Agúst Guömundsson: þáttur um islenska kvikmyndagerö. SJónvarp kl. 20.30 þátt Grétar Hjartarson for- stjóri Laugarásbiós og gagn- rýnendurnir Ingibjörg Haraldlsidóttir og Arni Þórarinsson. Hringiö í síma 8 13 33 kl 9-5 alla virka daga eða skrifið Þjóðviljanum Síðumúla 6, 105 Reykjavík Mynd um Víetnam- stríðið t kvöld verður sýnd i sjón- varpinu bandariska sjón- varpskvikmyndin Vinarskot, sem gerö var á þessu ári eftir skáldsögu C.D.B.Bryans. Mynd þessi fjallar um ung- an mann sem sendur er til Vietnam aö berjast. Þetta er bóndasonur frá Ohio, elsti son- ur Mullen-hjónanna. Lýst er viöbrögðum hans og fjölskyld- unnar við herkvaöningunni og siöan sagt frá lýsingum hans á þvi sem fyrir augu ber I strlö- inu. Ekki hefur pilturinn verið lengi ab heiman þegar presturinn kemur á bóndabæ foreldra hans i fylgd með liös- foringja og hefur þær fréttir að færa aö sonurinn hafi verib drepinn. Ekki þó af völdum óvinarins, heldur á æfingu stórskotaliðsins sem hann var sjálfur með i. Móöir piltsins sættir sig ekki viö þær skýringar sem henni lesendum Nú byrjum viö á nýjan leik meö stutta syrpu af gömlum manna- myndum. Þeir lesendur sem eiga 1 albúmum sinum skemmtilegar myndir af fólki sem margir þekkja, eru eindregið hvattir til að lána okkur þær, gegn loforði um góða meðferð og örugg skil. En hver er maöurinn i dag? Svarið birtist hér á síðunni I fyrsta blaöi á nýja árinu. Hvaö leggjum viö af mörkum til aóstoðar vio taiæaar þjóöir heims? Viö og barnaárid Jakob S. Jónsson sér um þáttinn „Viö og barnaáriö” i útvarpinu i dag. Þetta er siðasti barnaárstíminn, enda barnaáriö á enda. — Hingaö til hefur mest veriö fjallað um börn hér á landi og hugöarefni þeirra, — sagöi Jakob, — þótt stundum höfum viö aö visu farið út fyrir landsteinana. En i þættinum i dag verður mest fjallaö um aðstoð Islendinga við þróunar- löndin. Nú eru jól og velferöar- þjóöfélagiö er aö sýna á sér fáránlegu hliöina. Af því tilefni viljum viö beina athyglinni að þvi aö misskipt er mannanna gæöum. I upphafi þáttarins veröur lesið úr bókinni hennar AÖálheiðar Bjarnfreösdóttur, Myndir úr raunveruleikanum. Svo eru nokkur viötöl viö krakka, sem Útvarp kl. 11.20 voru ab kaupa jólagjafir núna rétt fyrir jólin. Viö fórum i Jólamagasinið og Glæsibæ með hljóönemann og spuröum nokkra krakka hvaö þeir væru að kaupa, hversu miklu þeir eyddu i jólagjafir, hvað þeir vildu sjálfir helst fá i jólagjöf osfrv. En meginuppistaðan i þætt- inum verður viðtal viö Björn Þorsteinsson, starfsmann Abstoöar tslands við þróunar- löndin. Björn segir frá þvi hvað við leggjum af mörkum og hvernig aðstoöinni er yfir- leitt hagaö. Ýmislegt umhugs- unarvert kemur fram I þvi viðtali, en um þaö er best að hafa sem fæst orö, — sagöi Jakob aö lokum. — ih Sjónvarp kl. 21.40 eru gefnar á láii hans. Hún hefur upp baráttu, sem verður æ umfangsmeiri og hlýtur stuöning margra foreldra sem eiga syni i Vietnam. Hún verö- ur áberandi i fjölmiölum og kemst m.a. i sjónvarpið. Aðalhlutverkið, móöurina leikur Carol Burnett, en aörir leikendureru m.a. Ned Beatty og Sam Waterston. Kristmann Eiösson þýddi. — ih Má ég snúa, pabbi? Carol Burnett I hlutverki móöurinnar i Vinarskoti. Hver er maðurinn?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.