Þjóðviljinn - 12.02.1980, Blaðsíða 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 12. febrúar 1980
ÞriOjudagur 12. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
RÆTT VIÐ BIRNU BJARNADÖTTUR SKÓLASTJÓRA BRÉFASKÓLANS UM FRÆÐSLU FULLORÐINNA
Frumvarpið einfalt í sniðum og
reglugerðum má breyta í samræmi
Birna Bjarnadóttir skóla-
stjóri Bréfaskólans sat
ráðstefnuna um fræðslu
fullorðinna, _en hún átti sæti i
nefndinni sem samdi laga-
frumvarpið um fullorðins-
fræðslu. Þjóðviljinn ræddi við
hana og spurði fyrst, hver væru
helstu atriði frumvarpsins.
Rammalöggjöf
— Frumvarpið er byggt upp
sem rammalöggjöf. Það er nokk-
uð einfalt i sniðum, en meira og
minna miðað við ákvæði i reglu-
gerðum. Með fræðslu fullorðinna
er i frumvarpinu átt viö almennt
nám og starfsnám, bæði
endurmenntun og viðbótar-
menntun i starfi, og einnig félags-
lega menntun, og þetta áhuga-
nám eða frjálsa nám eins og það
er oft kallað, þ.e. tómstundanám-
iö.
- Inn i frumvarpið eru lika tekn-
ir möguleikar á notkun útvarps-
ins, hljóðvarps og sjónvarps.
I sambandi við námsaðstöðu
og námsgögn, er ætlast til þess
aö sú aðstaöa sem fyrir ér í skól-
um og annars staðar, svo og
bókasöfn, sé nýtt, en ekki lagt út i
byggingar á öðrum mannvirkj-
um eins og t.d. var lagt til i fyrra
frumvarpinu.
Fulloröinsfræðsluráö
Stjórn fulloröinsfræöslunnar
verður i höndum menntamála-
ráðuneytisins, enda finnst mönn-
við reynsluna
Birna Bjar nadóttir: Enginr
leiðbeinandi I fulloröinsfræðslu á
islandi hefur sérstaka menntur
til þess starfa.
um eðlilegt að þessi fræðslumál
séu undir stjórn þess ráðuneytis
sem önnur. Þó er lagt til að sett
verði á laggirnar fullorðins-
fræðsluráð, sem verður skipað
fulltrúum þeirra aöila sem sjá
að mestu leyti um þessa fræöslu
úti um allt land. Fulltrúum i
ráðinu er ætlað að eiga náið sam-
starf við þann aðila i ráðuneytinu
sem hefur með þessi mál að
gera.
Framkvæmdaaðilar verða i
fyrsta lagi riki og sveitarfélög og
svo ýmsir aðilar sem veita
þessa fræðslu, félagasamtök
o.fl.
Siðasti veigamikli kaflinn i
frumvarpinu fjallar um fjármál-
in. Þar er gert ráð fyrir að fyrir
það nám sem lýkur með prófum
sé greitt á sama hátt og fyrir
annað nám i hinu almenna skóla-
kerfi. Rikissjóður greiðir
kennslukostnað að öðru leyti,
þ.e.a.s. laun og launatengd gjöld.
Námsframboð
— Er vitað hve námsframboð
i fullor ðinsfr æðslu er mikið núna
og hve margir stunda slikt nám?
— Já, viðfengum það að miklu
leyti fram á þessari ráðstefnu og
við erum að vinna að þvi að taka
það saman núna. 45 af þeim 55,
sem boðaðir voru á ráðstefnuna,
mættu og við höfum fengið nokk-
uð gott úrtak. af þeim fjölda sem
að þessu starfar, en við eigum
eftir aö fá skriflegar upplýsing-
ar frá fleiri stöðum. Einkum
vantar glöggar upplýsingar um
verkmenntun og iðnfræðslu.
Nefnd sem skipuð var á ráð-
stefnunni vinnur að þvi að taka
þetta saman og ætlar siðan að
gefa niðurstöðurnar út.
— Andri tsaksson flutti erindi
á ráðstefnunni og i sambandi við
það komu fram hugmyndir um
uámskeiðahald i samvinnu við
félags vis indadeild Háskólans.
Geturðu sagt mér nánar frá
þessum hugmyndum?
— Já, þetta er eitt af stærstu
verkefnunum sem við höfum
verið að velta fyrir okkur. Allir
leiðbeinendur og kennarar i
fullorðinsfræðslu á tsiandi hafa
enga sérstaka menntun til þess
að veita þessa fræðslu og það
hefur oft verið alvarlegasti þátt-
urinn I fráhvarfi nemenda.
Svona námskeiðahald hefur
verið rætt á vegum Norður-
landaráðs, en þaö er ekki fyrir-
sjáanlegt að það geti orðiö hér á
tsiandi alveg á næstunni, þó að
undirbúningur sé farinn af stað i
Noregi, Danmörku og Sviþjóð.
Námskeið fyrir kennara
Við erum að velta fyrir okkur
að reyna að fá námskeið sem
byggt yrði upp svipað og gert er
við Oslóarháskóla. Námskeiðiö
yrði þá opið öllum sem starfa við
þetta og hafa ákveðna reynslu.
Visir að sliku námskeiðahaldi
hefur þegar verið. Andri tsaks-
son hélt námskeið fyrir lektora i
Háskólanum, sem hafa ekki sér-
staka menntun til kennslu, en
kenna samt og eru reyndar
hæstlaunuöu kennarar á landinu.
— Hvaða athugasemdir
komu helst fram við frumvarpið
á þessari ráðstefnu?
— Það voru e'ingöngu athuga-
semdir varöandi orðalag. Talað
er um ákveðna fullorðins-
fræðsludeild i ráðuneytinu. Menn
telja það eðlilegt að ákveðinn
fulltrúi hafi þetta mál með hönd-
um i stað þess að hafa þetta i
öðrum rassvasanum eins og má
segja að nú sé. T.d'. koma ótal
upplýsingar um fullorðins-
fræðslu hér innanlands og einnig
erlendis frá, sem þyrfti að halda
saman, en fólk veit ekki hvar
þetta liggur og hvar er hægt að
nálgast þessar upplýsingar,
vegna þess aö enginn hefur
umsjón með þessu.
Frumvarpið er kornið i prent-
un og fyrrverandi menntamála-
ráðherra áformaði að leggja það
fram til kynningar. I þvi
sambandi finnst mér æskilegt að
reglugerðir væru sámdar nú
þegar, þannig að þær yrðu
tilbúnar ef umræður veröa um
málið, þvi lögin eru raunveru-
lega aðeins rammi.
Þegar við sem'sömdum drög
að þessu frumvarpi vorum sett i
það verkefni af Vilhjálmi
Hjálmarssyni, vorum við beðin
aö hafa þau stutt og einföld. Það
er að sjálfsögðu betra að hafa
lögin sem einföldust, en reglu-
Ahugas amir nemendur i Félagsniálas kóla alþyðu i ölfusborgum.
gerðum má aftur á móti breyta
eftir þöffum og reynslu.
Bréfaskólinn
— Svo ég viki að Bréfaskólan-
um. Hvernig er þátttakan þar
núna?
— bátttakan hefur verið mjög
jöfn undanfarin þrjú ár. Um 1000
nýir nemendur hafa verið innrit-
aðir á ári siðustu þrjú ár.
— Hafa öldungadeildirnar
dregið eitthvað úr aðsókninni i
Bréfaskólann?
— Nei, mér virðist þaö ekki.
Það er einkum stór-Reykja-
vikursvæðið sem nýtur öldunga-
deildanna þó nokkur reynsla sé
lika komin á þær á Akureyri,
Akr anes i og Suður nes jum. En ég
held að tilkoma þeirra hafi ekki
haft áhrif á aösóknina að Bréfa-
skólanum, heidur hafa þær frekar
orðiö til þess að fólk sæki Bréfa-
skólann til undirbúnings eða
aðstoðar við nám i öldungadeild-
um f r a m ha ld s s k óla nna .
Reyndar eru 24% af okkar
nemendum við nám i öðrum skól-
um.
Sauðf járrækt
og heyverkun
— Eruð þið með einhverjar
nýjar námsgreinar i
Bréfas kólanum?
— Það nýjasta sem við erum
með núna er i sambandi við land-
búnaöinn og það námsefni erum
við með i samvinnu við Bænda-
skólann á Hvanneyri. Þetta er
sauðfjárrækt og heyverkun,
námsefni sem virðist vera
vinsælt og nýtt af landbúnaðar-
verkafólki. u
— En i hvaða greinar gr
aðsóknin inest?
— Það er i tungumálin og
verslunargreinar, bókfærslu og
vélritun.
— Notar skólinn ekki útvarpit
núna sem kennslutæki?
— Nei, þvi var hætt 1976, eftir
25 ára starf.
— Hvernig stóð á þvi?
— Það var vegna þess að ekki
var framkvæmd sú endurnýjun
sem æskileg hefði verið, vegna
fjárskorts. Það hefði þurft að
taka útvarpsverkefnin til endur-
skoðunar og vinna þau betur. En
ég held að það verði að kanna það
nánar að reyna að nýta útvarp og
sjónvarp i tengslum viö skólann.
Ráðstefna um fræðslu fullorðinna:
Landssamtök
og kennara-
námskeiö
Ráðstefna um fræðslu f ullorð-
inna var haldin að Hamragörö-
um I Reykjavik dagana 26. og
27. janúar sl. að tilhlutan
menntamálaráðuneytisins og
nokkurra aðila sem aö sllkri
fræðslu vinna.
Kynnt var frumvarp til laga
um fræðslu fulloröinna sem
unniö var á siðastliönum vetri,
svo og skipan og störf nefndar
um starfsmenntunfulloröinna.
Ráðstefnunasátuum 45 aðilar
og kom fram aiiitarlegt og gott
yfirlit um þá fullorðinsfræðslu
sem i boði er, til dæmis við öld-
ungadeildir mennta- og fram-
haldsskólanna, i námsflokkum,
á vegum.félags- og fræöslusam-
taka, i sérskólum og i Bréfa-
skólanum.
A ráðstefnunni var tilnefnd
þriggja manna nefnd til aö taka
samanyfirlit um námsframboð
og fjölda þátttakenda i fuliorö-
insfræðslu, auk þess sem nefnd-
inni var falið að vinna aðstofnun
landssamtaka um fulloröins-
fræðsiu og að undirbúa og halda
námskeiö fyrir kennara, leið-
beinendur og stjórnendur fuil-
oröinsfræðslu.
Andri Isaksson, prófessor viö
Háskóla lslands, flutti erindi
um kennslu- og félagsfræði i
fræðslu fullorðinna, sem gaf
hugmyndir um helstu atriði
þessara þátta og komu fram
hugmyndir um námskeiðahald i
samvinnu við félagsvisinda-
deild Háskólans. Reynir Karls-
son, fulltrúi i menntamálaráöu-
neytinu, og Maj Britt Imnander,
rektor Norrænu lýðfræöslu-
stofnunarinnar.’kynntu þá stofn-
un, þau námskeið ogí
ráðstefnur sem haldnar verða á
þessu ári um fulloröinsfræðslu
og aöra þá möguleika á þátttöku
Islendinga og aukinni samvinnu
við þá stofnun.
A ráðstefnunni lá frammi
nokkuð gottúrtak bóka og upp-
lýsingarita um fullorðins-
fræðslu, og áformað er aö gefa
út skrár yfir slik gögn i sam-
vinnu við bókasafn Norræna
HUssins.
1 hópumræöum var aðallega
rætt um samræmingu þeirrar
fræðslu sem aöilar ráðstefnunn-
ar voru fulltrúar fyrir, með
tilliti til þess frumvarps sem
kynnt var, svo og um stjórnun
og framkvæmdaraðila.
Nokkrar athugasemdir komu
fram um frumvarpiö og ljóst er
að æskilegt væri að kalla saman
viðtækari hóp þessara aðila
tilað fjalla nánar um
frumvarpið i heild.
Mun unnið að þvi á næstu vik-
um.
Þótt slagurinn tapist
skal stríðið vinnast!
A mánudagskvöldið
hélt farandverkafólk
fund um kjör sin og að-
búnað i Festi i Grinda-
vik eins og komið hefur
fram i fréttum. Þetta
var fjöimennur fundur
og fjörugur enda allir
mættir til leiks, farand-
verkamenn, forustu-
menn i verkalýðshreyf-
ingunni og atvinnurek-
endur.
Það var Báráttuhópur farand-
verkafólks á Faxaflóasvæöinu
sem boðaöi til fundarins og fyrsti
ræðumaður, Þórður Hjartarson,
talaði fyrir hans hönd. Hann sagði
fyrst aö farandverkafólk væri
ekkert nýtt I sögunni, allir aðalat-
Vinnuvegir okkar hefðu haft og
hefðu enn brýna þörf fyrir fólk
sem vill flytja sig stað úr staö eft-
ir þvl hvar atvinnu er að fá. At-
vinnurekendur þurfa á þessu
vinnuafli aö halda en þeir meta
það ekki allir jafn mikils.
„Nokkrir atvinnurekendur sjá
sóma sinn I þvl aö búa vel aö slnu
fólki og-viö heyjum ekki strið viö
þá” sagði Þórður. „Hinir eru
fleiri sem bjóöa slnu fólki upp á
dýrt og lélegt fæöi og húsnæði
sem er óhæft fyrir skepnur hvaö
þá fólk — þeim segjum við strlð á
hendur.” Hann rakti st.uttlega
gang mála slðan uppreisnin var
gerö I Eyjum siðastliðiö sumar,
hvernig loforö hefðu verið svikin
Silja Aðal-
steinsdóttir segir
frá fundi
farandverka-
fólks í
Grindavik
og reynt aö svæfa málið. Þessi
fyrsti slagur tapaöist, sagði Þórð-
ur en striðiö er ekki tapaö!
Leiðinlegt til lengdar!
Seinni framsögumennirnir
tveir eru báðir farandverkamenn
I Grindavik, ungir báöir og litt
reyndir i ræöustól en töluöu samt
eins og þeir hefðu aldrei gert ann-
að.
Jakob Jónsson lýsti verbúðinni
sinni á kaldhæöinn hátt eins og
landanum er lagið og vakti hlátur
viðstaddra. „Það er liklega óhætt
aö segja aö hreinlætisaöstaðan sé
fremur léleg þarna, til dæmis er
gat milli sturtuklefans og borð-
stofunnar og lekur á milli þegar
við förum i baö. En bót er I máli
aö það kemur bara heitt vatn úr
sturtunni svo við förum helst ekki
I bað! Það eru bæði vaskar og
speglar okkur til afnota á baðinu
en engar hillur til aö leggja frá
sér handklæði og föt, og það verö-
ur að segjast að þetta verður hálf-
subbulegt þegar maður setur þaö
á gólfið. Við höfum enga þvotta-
vél en þarna er þó þvottabali.
Hann er aö vlsu lekur svo það er
ekki hægt að leggja i bleyti f hann
yfir nótt, en við kunnum ráö við
þvi: Viö setjum fötin okkar I
bleyti og troðum svo á þeim i
balanum meðan við þvoum okkur
undir sturtunni, við þetta þvost
fötin ágætlega. En þetta er leiðin-
legt til lengdar.”
Sheila Hardaker er frá Nýja
Sjálandi og hún sá fjarska litið
hlægilegt viö sitt verbúöalif. Þær
eru niu saman stöllur úr löndum
andfætlinga okkar og komu hing-
aö til að vinna baki brotnu fyrir
fari heim aftur eftir þvæling um
veröldina. En þær hafa ekki feng-
iðað vinna mikiö siðan þær komu,
og það sem þeim þótti verra var,
aö oft hafa karlarnir I verbúöinni
veriö kallaöir til vinnu meðan þær
sitja heima. Hún átti bágt meö aö
sætta sig viö aö vera varavinnuafl
eins og konur á Islandi þurfa þó
löngum að þola, kannski tiðkast
ekki slikt á þennar heimaslóðum?
Þeim var ekki boðin kauptrygg-
ing þegar þær áttu rétt á henni
eftir fjórar vikur, núna fyrst, eftir
þriggja mánaða dvöl I landinu,
höfðu þær frétt af því aö slikt væri
til og beöiö um hana.
Sheila kvartaði mikið undan
skorti á upplýsingum, þær fengju
helst ekkert að vita um bónus-
kerfið, skattheimtuna og verka-
lýðsmál, og það sem þær hefði
komist að hefðu þær fengið að
vita eftir mikið spurningaflóð. Úr
þessu á þó eftir að rætast eins og
kemur að hér á eftir.
„Karfi, ufsi, þorskur,
ýsa...”
Þaö var gerður góður rómur aö
máli framsögumanna og mönn-
um var fariö að hitna i hamsi.
Bubbi Morthens gerði lika sitt til
að halda kolunum heitum með
verbúðaljóöum áður en oröiö var
gefið laust: „Hrognin eru að
koma, gerið kerin klár... ef þið
vinniö nógu mikið, peninga mun-
uð þig sjá.” Þvl lofar atvinnurek-
andinn, en sjónarhóll verka-
mannsins er annar: „Þúsund
þroskar á færibandinu þokast
nær...”
Fyrsti maöur á mælendaskrá
var Karl Steinar Guðnason al-
þingismaður og er óhætt að
segja aö hann hafi oröið maöur
kvöldsins I Grindavlk. Hann
minnti á frumvarpiö um
hollustuhætti á vinnustöðum
sem nú liggur fyrir Alþingi
og sagði aö I sambandi við
þaö væri veriö að semja reglu-
gerð um aðbúnað farandverka-
fólks sem yrði alger bylting i
þeim efnum. Svo tilkynnti hann
að þennan sama dag hefði hann
lagt fram á Alþingi tillögu til
þingsályktunar um málefni far-
andverkafólks, nánar tiltekið um
erlenda farandverkamenn hér á
landi. Meginatriöi tillögunnar var
„Þúsund þorskar á færibandinu þokast nær...” Bubbi Morthens syngur verbúðaljóð.
(Myndir: Baráttuhópur verkafólks /E. St.)
eins og svar við máli Sheilu næst
á undan, nefnilega að það skyldi I
lög leitt aö þeir atvinnurekendur
sem ráða erlent fólk i vinnu skuli
sjá um að gefa þvi allar nauösyn-
legar upplýsingar um launakjör,
vinnutima, aöbúnaö skatta og
skyldur áöur en það ræður sig
hingaö.
Að lestrinum ioknum sagði
Karl Steinar að barátta farand-
verkafólks hefði ýtt við fólki og
fengiö það til aö hugsa um og
koma fram við farandverkamenn
eins og manneskjur, annað hefði
viljaö brenna við hér áður. Hon-
um var vel fagnað þegar hann
gekk til sætis síns.
,,Ég trúi á þessi sam-
tök”
Margir tóku þátt i þeim frjálsu
umræðum sem hófust með Karli
Steinari, og lagði hver sitt til mál-
anna. En raunar voru menn furðu
einhuga hvaðan sem þeir komu.
Jón Arnason tók undir með
framsögumönnum og sagði að að-
staða væri mjög lélg þar sem
hann ynni. Hann heföi undrast
það þegar hann kom i verbúðina
fyrst aö þaö hefði plastpoki lafað
út um hvern einasta glugga, en
skýringin hefði ekki látið á sér
standa: Fæðið var svo lélegt aö
menn voru að koma sér upp
einkaisskápum fyrir utan glugg-
ana sina til að geyma matar-
birgðir i! En þetta væri aö skána,
þaö væri komin ný ráðskona — og
Jón lauk máli slnu á ýfirlýsingu:
„Ég trúi á þessi samtök.”
Gunnar Tómasson forsvars-
maður fyrirtækja i Grindavik,
sagðist vera kominn til að hlusta
og segja frá þessum fundi, því sig
tæki sárt að geta ékki búiö betur
að farandverkafólki. Jón G.
Björnsson, formaður verkalýös-
félagsins i Grindavik, var llka
mjög hress meö að fundur þessi
skyldi haldinn I hans uradæmi.
Hvað er hægt að gera
strax?
Það má þó enginn skilja þessa
Karl Steinar Guðnason: Maður
kvöldsins I Grindavlk.
frásögn svo aö þetta hafi veriö
eintóma fagnaöarsamkoma þótt
menn hafi verið sammála um alia
teoriuna. Þorlákur Kristinsson
minnti á þaö aftur i stuttu inn-
leggi aö það er ekki sama aö
segja og að framkvæma. „Þaö er
indælt að fá loforð og heillaóska-
skeyti en það er ekki nóg, það
verður eitthvaö að gerast. Við
fögnum þingsályktunartillögum
og reglugerðum, en það var hægt
að fara hraðar af staö, það var
svo margt sem hægt var aö gera
undir eins og baráttan var hafin.
Heilbrigðisnefndir gátu tekiö við
sér á hverjum staö, athugað ver-
búðir á sinu svæöi og krafist lag-
færingar á helstu vanköntum.
Þaö var hægt að kjósa strax
trúnaðarmann á hverri verbúð og
mynda þannig þrýstihóp á heil-
brigöisnefndir og atvinnurekend-
ur”.
Þorlákur hvatti verkalýös-
hreyfinguna til að senda baráttu-
hópnum frjáls fjárframlög til að
létta af þeim skuldaböggunum.
Hópurinn hefur fengið inni hjá
Dagsbrún að Lindargötu 9. þar
sem hann hefur opna skrifstofu
milli 4 og 7 síðdegis þótt fjárhags-
grundvöllurinn sé enginn.
„Verkalýöshreyfingin tekur við
gjöldum frá farandverkafólki án
þess að þaö njóti réttinda I stað-
inn, okkur finnst aö félögin gætu
látiö hluta af þessu fé renna til
baráttuhópsins I frjálsum fram-
lögum, Við erum að vinna starf
sem verkalýðshreyfingin á að
vinna.”
Ýmis viðbrögö urðu viö máli
Þorláks. Þaö kom fram aö eftirlit
virðist vera mjög misjafnt með
verbúðum i , Grindavlk, sumir
höfðu litiö oröið varir við heil-
brigöisnefndina, aðrir fengiö
heimsóknir oft á ári. Fulltrúi at-
vinnurekenda, Páli Pálsson
sagðist fagna þvl ef trúnaðar-
menn yröu kosnir á verbúðum,
þeim væri velkomið að þinga 1
sinu húsnæði.
Karl Steinari fannst Þorlákur
neikvæöur og spuröi hvort mönn-
um dytti i hug að hann legði fram
tillögur á þingi til að ekkert yrði
svo gert meö þær? Farandverka-
fólk á að njóta sama réttar og
annað fólk, sagði hann, og það á
að leita hans. Hann hvatti farand-
verkamenn til að hafa samband
viö verkalýðsfélögin þar sem þeir
væru I vinnu og trúnaöarmennina
lika, þaö mætti vel hafa áhrif á
þessa aöila: „Verkalýðsfélögin
eiga aö vera bandamenn — ekki
andstæðingar.”
Umhverfi skapar um-
gengni
Þorlákur spurðist fyrir um þaö
hvort rétt væri hermt að maöur
hefði veriö rekinn af verbúð fyrir
kvartanir út af aöbúnaði þarna
syðra. Páll Pálsson ansaði þvi og
sagði aö maðurinn heföi verið
rekinn af verbúö af þvi aö þar
hefði hann ekki átt heima, hann
hefði valdiö fólki miklu ónæði
með hávaða og ólátum. „Þetta er
léleg verbúö hjá okkur I VIsi,”
sagöi Páll, ,,en viö veröum aö
gera hvað við getum til að fólki
liði sæmilega.”
Meðan Páll var i pontu notuðu
farandverkamenn af staðnum
tækifærið og spurðu hann hvort
rétt væri sem þeir heföu heyrt, aö
atvinnurekendur hefðu bundist
samtökum um að endurgreiða
fólki fæöi i vertiðarlok en ákveðið
svo fyrir þrem árum aö hætta
þessu. Páll svaraði því til að ein
stöð I Grindavik hefði endurgreitt
fólki fæði ef það heföi reynst vel
alla vertiðina, sú stöð starfar ekki
lengur. Sjálfur sagðist hann hygla
góöu fólki llka með ókeypis fæði
og taldi að menn heföu leyfi til að
gera vel við fólk sem reynist
þeim vel. Núna sagði hann að at-
vinnurekendur hefðu með sér
samtök um verðlag á fæði á
Suðurnesjum.
Þorlákur sagði að það væri gott
að fá svona hreinskilin svör, en
minnti Pál á það i sambandi við
manninn sem rekinn var, að um-
hverfi skapar umgengni, fólk
gengur verr um óþrifalegt hús-
næöi en fallegt og þægilegt, og lé-
legar verbúðir brjóti niður móral-
inn. Svo spuröi Þorlákur hvort at-
vinnrekendur gætu ekki bundist
samtökum um annað en fæði:
„Geta atvinnurekendur ekki
bundist samtökum um að refsa
þeim úr sinni stétt sem eru henni
til skammar?”
I Grindavik eru margar
verbúöir sem saman gefa góðan
þverskurð af aðbúnaöi farand-
verkamanna um allt land, ein-
staka alveg til fyrirmyndar,
nokkur ekki fólki bjóöandi og af-
gangurinn einhvers staöar mitt á
milli. Nú er veriöaö gera athugun
á verbúöum á Suðurnesjum og
þaö eru ibúarnir sjálfir — farand-
verkafólkið, — sem gera hana,
þeir vita best hvaö aö er. I álykt-
un sem fundarmennn samþykktu
einróma I fundarlok var farand-
verkafólk um allt land hvatt til
þess að taka til sinna ráða ef að-
búnaði er ábótavant þar sem þaö
býr og bent á aö hafa samband
viö baráttuhópinn á Faxaflóa-
svæöinu (simi 17996) ef það vant-
ar upplýsingar og eyðublöð. 1
ályktuninni voru þeim lika sendar
baráttukveðjur!
SA