Þjóðviljinn - 12.02.1980, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 12.02.1980, Blaðsíða 7
Jón Sigurðsson, hagrannsóknastjóri Þriöjudagur 12. febrúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7 Störf Þjóðhagsstofnunar Athugasemdir við ummæli Lúðvíks Jósepssonar um störf Þjóðhagsstofnunar Föstudaginn 8. febrúar 1980 birtist I Þjööviljanum grein eftir Lúövik Jósepsson fyrrv. alþingis- mann, undir fyrirsögninni: „Eru umsagnir Þjóöhagsstofnunar um efnahagstillögur flokkanna ekki marktækar?”. Efni greinarinnar er tviþætt. Annars vegar gagn- rýnir Lúövik harölega þaö, sem hann kallar „ósjálfstæöi og skoö- analeysi” sumra stjórnmála- manna, og hann telur meöal ann- ars birtast I þvi, aö leitaö sé eftir ábendingum og umsögnum frá sérfræöistofnun eins og Þjóö- hagsstofnun, þegar ræddar séu tillögur flokkanna i efnahagsmál- um og umsagnirnar siöan teknar sem „einhver stóri sannleikur’*. Hins vegar staöhæfir Lúövik, „aö forstööumaöur Þjóöhagsstofnun- ar (sé) farinn aö notfæra sér ó- sjálfstæöi og skoöanaleysi þess- ara stjórnmálamanna og (gefi) þvi umsagnir um málefni, sem (séu) Iangt frá sérfræöiþekkingu hans, og reyndar sýnist „sérfræö- in" æöi hæpin á stundum”. Þá heldur Lúövik þvi fram, aö um- sagnir Þjóöhagsstofnunar séu „illa unnar, ónákvæmar og bein- linis vilhallar”. Um fyrri þátt málsins 'ætla ég ekki aö fara mörgum oröum. Stóryröi Lúöviks um undirgefni stjórnmálamanna viö hiö imynd- aöa sérfræöingaveldi eru fjarri öllu lagi, og dæmin, sem hann tekur i þvi sambandi, marklltil. Síöari þátturinn i grein Lúö- viks, sá sem snýr aö störfum Þjóöhagsstofnunar og forstööu- manns hennar, felur i sér svo al- varlegar ásakanir, aö ekki veröur hjá komist aö gera viö þær at- hugasemdir. Fullyröingar sfnar um störf Þjóöhagsstofnunar reynir Lúövik aö styöja meö fimm dæmum úr umsögnum Þjóöhagsstofnunar um tillögur stjórnmálaflokkanna I efnahags- málum, sem fram hafi komiö I stjórnarmyndunarviöræöum á undanförnum vikum. Áöur en ég fer nokkrum oröum um dæmin fimm, er ekki úr vegi aö nefna, aö umsagnir þær, sem hér um ræöir, hafa allar veriö samdar beinlinis aö beiöni for- ystumanna stjórnmálaflokkanna, reyndar meö ákaflega litlum fyr- irvara og eingöngu til þess aö svara ákveönum spurningum. Umsagnir sem svo eru nefndar, ber þvi eingöngu aö skoöa sem vinnuskjöl — minnisatriöi og á- bendingar — sem styöjast mætti viö, þegar tillögurnar skyldu ræddar og metnar I viöara sam- hengi af viöræöuaöilum. 011 birt- ing og dreifing á þessum vinnu- skjölum á opinberum vettvangi er auövitaö á ábyrgö þeirra manna, sem óskuöu þeftir þeim. Efnissviö umsagnanna er vitan- lega háö hugmyndunum, sem um er fjallaö hverju sinni, en sumar þeirra voru alls ekki fullmótaöar tillögur og þvl fráleitt aö túlka mat á þeim eöa einstökum þátt- um .þeirra sem einhverja endan- lega niöurstööu. Umsagnirnar eru þannig efniviöur meö ööru viö stefnumótun, hvorki meira né minna. Þær voru allar samdar meö sama hugarfari, þe. aö meta sem réttast afleiöingar aö- geröanna, sem um er fjallaö, aö vekja athygli á tengdum atriöum, sem máli gætu skipt, og jafn- framt reyna aö benda á vand- kvæöi, sem kynnu aö vera sam- fara framkvæmd þeirra. Vitan- lega er hinum gamalreynda stjórnmálamanni, Lúövík Jósepssyni, þetta allt miklu ljós- ara en svo, aö um þaö þurfi aö fara oröum hans vegna. En flestir lesendur greina Lúöviks munu vera ófróöari en hann um gang mála á þessum vettvangi og eiga rétt á betri leiösögn en hann gefur I grein sinni. Ugglaust má I ýmsum greinum draga I efa gildi þeirra aöferöa, sem hagfræöingar Þjóöhags- stofnunar og aörir sérfræöingar nota viö vinnu sína, en ég visa á bug öllum aödróttunum Lúöviks Jósepssonar um þaö, aö umsagn- ir Þjóöhagsstofnunar séu visvit- andi vilhallir ákveönum flokkum eöa stjórnmálaskoöunum. Ég vlk nú stuttlega aö dæmun- um fimm. Sérfræði Seðlabankans og sérfræði Þjóðhagsstofn- unar. Lúövik segir, aö Seölabankinn hafi haldiö fram skoöunum gjöróllkum þeim, sem Þjóöhags- stofnun hafi sett fram, um tillög- ur, sem formaöur Sjálfstæöis- flokksins lagöi fram til umræöu og athugunar I ársbyrjun. Um þetta mál hefur reyndar þegar veriö nokkuö fjallaö i dagblööum. 1 Morgunblaöinu hinn 15. janúar s.l. segir höfundur oröanna, sem Lúövik vitnar til, Bjarni Bragi Jónsson hagfræöingur Seöla- bankans: „....sagt er, eöa látiö aö þvi liggja, aö hagfræöideild Seöla- bankans hafi gert sjálfstæöa út- reikninga á kjaraskeröingar- áhrifum hinna mismunandi til- löguhugmynda og fengiö niöur- stööur verulega frábrugönar þeim, sem Þjóöhagsstofnun lét frá sér fara. Þetta er misskilning- ur og missir marks um meginefni þess álits, sem hagfræöingur Seölabankans lét I té. Hagfræöi- deildin hefur enga slika útreikn- inga gert aö þessu sinni. Aö visu hefur deildin komiö sér upp reiknilíkani áþekkar geröar og Þjóöhagsstofnun notar, en þaö hefur sýnt mjög svipaöar niöur- stööur og þvl engin ástæöa þess aö ætla, aö þaö muni sýna aöra mynd aö gefnum sömu forsend- um og Þjóöhagsstofnun hefur fengiö upp I hendurnar.” Þá veröur ekki séö, hvernig þaö má vera Þjóöhagsstofnun til hnjóös, aö dæmi eöa hluti úr dæmi, sem hún hefur fengiö I hendur frá öörum, gefi þá niöur- stööu, ,,aö stefnt sé aö mun meiri kjaraskeröingu en raunverulegt efnahagslégt tilefni sé til.” Væri ekki nærtækara aö velta fyrir sér, hverju breyta þyrfti I tillögunum, sém um ræöir, svo niöurstaöan yröi önnur? Meint dæmi um hroð- virkni i vinnubrögðum Lúövik telur, aö Þjóöhagsstofn- un hafi ekki fjallaö nógu itarlega um tillögur Alþýöubandalagsins um lækkun vaxta um 10%-stig i tveimur áföngum. Út af fyrir sig má vel fallast á þaö, æskilegt heföi veriö aö fjalla rækilegar um vaxtatillögur Alþýöubandalags- ins en gert var. Til þess gafst þvi miöur ekki timi. Tilvitnun Lúö- vlks — fáein orö tekin úr sam- hengi — gefur hins vegar ranga mynd af þvi, sem sagt var um vaxtamál i umsögn Þjóöhags- stofnunar. Hann lætur I veöri vaka aö um „talnalega stærö” vaxtalækkunarinnar hafi alls ekki veriö fjallaö, sem reyndar er þó gert, aö þvl er sjávarútveginn varöar, I umsögn Þjó hagsstofnunar. Abendingar Þjóö- hagsstofnunar i þessu máli voru meöal annars um sérstööu vaxta sem kostnaöarþáttar á verö- bólgutlmum, þaö er aö háir vextir eöa verötrygging séu ekki bláber kostnaöur, þegar veröbólga geis- ar, þar sem á móti þeim standi veröhækkun eigna. Þá var I um- sögninni vísaö á álitsgeröir Seöla- banka íslands um vaxtamál i sambandi viö verölagsþróun, þar sem jafnan hefur veriö lögö áhersla á, aö áhrif vaxtanna á þróun peninga- og lánamála og á verögildi sparifjár almennings, séu afdrifarikari fyrir verölags- þróunina en kostnaöaráhrif þeirra I reikningum fyrirtækja. En vaxtamál eru einmitt á sér- sviöi Seölabankans. Kenningar um áhrif vaxtalækkunar á verö- bólgu eru ekki óumdeildar, en dæmiö, sem Lúövik tekur, sýnir ekkert annaö en viöhorf hans sjálfs á vaxtamálum, en þau eru reyndar löngu kunn. Meint andstaða við útflutningsbætur á landbúnaðarvörur Lúövik heldur því fram, aö um- sögn Þjóöhagsstofnunar beri vott um andstööu gegn „öllum tillög- um til aö leysa úr vandamálum bænda”. Þetta eru staölausir stafir. I umsögn Þjóöhagsstofn- unar var einungis bent á, aö eöli- legast virtist aö lita á tillögu Alþýöubandalagsins I þessu máli eins og hún var fram borin frem- ur sem tillögu um rikisframlag til landbúnaöarins en milligöngu um lánsfjárútvegun. Þessi túlkun væri eölileg, þvl ekki væri ráölegt aö reikna meö endurgreiöslum frá bændum á þessu fé. Þá var bent á, aö þessi tillaga væri um- fram lögskylt hámark útflutn- ingsbóta. Erfitt er aö skilja, hvernig þessar ábendingar — þaö er aö lita á úrlausn á vandamál- um bænda, hver sem hún yröi, fyrst og fremst sem fjárhags- vandamál rikisins — má túlka sem andstööu gegn hagsmunum bænda. Meint ósamræmi i samanburði á tillögum Lúövik telur, aö ósamræmi sé I samanburöi á tillögum flokkanna I umsögnum Þjóöhagsstofnunar. Hiö rétta er, aö Þjóöhagsstofnun hefur ekki aö eigin frumkvæöi gert neinn slikan samanburö. Þaö hafa hins vegar forystumenn flokkanna sjálfir gert, og þá væntanlega á þann hátt, sem þeir telja réttastan. Forystumenn Sjálfstæöisflokksins óskuöu reyndar eftir þvi, aö geröur yröi samanburöur á fimm dæmum um þróun kaupgjalds og verölags og lögöu til meginforsendur þessara dæma, sem sum voru byggö á til- lögum annarra flokka. Enginn samanburöur var I upphafi gerö- ur á kaupmáttarþróun 1981, þar sem stofnunin taldi ekki forsendur til aö gera hann þannig, aö gagn væri aö. Þess vegna var einmitt ekki sett upp samanburöartafla af þvi tagi sem Lúövlk heldur fram aö gert hafi veriö, um kaup- máttarbreytingar á árinu 1981. Þau dæmi, sem slöar voru sett fram um þetta efni, voru meö rækilegum fyrirvörum einmitt um þaö, aö ákvaröanir i kjara- og skattamálum fyrir áriö 1981 myndu einmitt snúast um þaö. hvaöa kaupmáttarstigi mætti ná og halda til samræmis viö raun verulegar aöstæöur I þjóöarbú- skapnum, þegar þar aö kæmi Lúövik heldur þvi fram, aö litií tillit hafi veriö tekiö til tillagna Sjálfstæöisflokksins um skatta lækkun, þegar kaupmáttaráhrii hafi veriö metin. Þetta er rangt, fullt tillit var til skattbreytingai tekiö. Ummæli Lúöviks gefa þvi ákaflega villandi hugmynd uir umsögn Þjóöhagsstofnunar og notar hann reyndar I þessu sam bandi tilvitnun úr skrifum um önnur efni. Rikisfjármáladæmið 1 grein sinni lætur Lúövik I þaö sklna, aö Þjóöhagsstofnun hafi tekiö sér fyrir hendur — aö því er helst má skilja óumbeöin — aö láta I ljós álit sitt á öllum hliöum efnahagstillagna stjórnmála- flokkanna samtlmis og gert á þeim samanburö liö fyrir liö á sama tíma. Þetta er fjarri sanni, eins og þegar hefur veriö vikiö aö. Þjóöhagsstofnun hefur ekki gert neinn slíkan heildarsamanburö og hefur til aö mynda ekki samiö almenna umsögn um tillögur Alþýöuflokksins I efnahagsmál- um. Stofnunin hefur hins vegár, eins og henni er skylt lögum samkvæmt, reynt aö veita alþing- ismönnum umbeönar upplýsing- ar og álit á tilteknum viöfangs- efnum, sem oft hafa veriö sett fram meö litlum fyrirvara. Um- beönar umsagnir stofnunarinnar um efnahagstillögur, sem Sjálf- stæöisflokkur og Alþýöubandalag lögöu fram mótuöust vitaskuld af þvi, hversu mikilvægar aögeröir á sviöi rlkisfjármála voru I þess- um tillögum. Þess vegna var mikiö um þær fjallaö og reynt aö draga upp sem réttasta mynd af þeim rikisfjármálahorfum, sem þeim fylgdu. Dæmiö, sem Lúövik rekur um rikisfjármál 1 tillögum Alþýöubandalagsins, er sett upp af Þjóöhagsstofnun á grundvelli tillagna og forsenda Alþýöu- bandalagsins og sýnir 8 1/2 mill- jaröi króna lakari stööu rikissjóös I árslok 1980 en aö er stefnt I fjárlagafrumvarpi. En bæöi vegna þess, aö sýnt þykir, aö heildarendurmat á rikisfjárhagn- um á grundvelli nýrrar vitneskju um rikisfjármálin 1979 gefi lakari niöurstööu en i fjárlagafrum- varpi, og ekki sföur vegna hins, aö reynslan af framkvæmd til- lagna af þessu tagi bendir til þess, aö útgjöld falli til fyrr og tekjur seinna en ætlaö er, er sú skoöun sett fram, aö afkoman gæti reynst allt aö 12-14 milljöröum króna lakari en aö er stefnt I fjárlaga- frumvarpi. Siöan er sagt berum oröum, aö þetta sé óviss áætlun. Þetta eru hófleg varnaöarorö en ekki áfellisdómur. Hvaö þaö snertir, aö rikisfjár- málin hafi veriö tekin mildari tökum þegar fjallaö var um til- lögur Framsóknarflokks, nægir aö vitna til umsagnar Þjóöhags- stofnunar um meginatriöi I tillög- um Framsóknarflokksins i efna- hagsmálum i desember 1979, en þar sagöi: „Ekki er sett fram ákveöin hugmynd um rlkisútgjöld aö ööru leyti. Til þess aö hafa ákveöna viömiöun i þessu efni veröur gengiö útfrá þvi, aö rikisfjármál- in veröi i aöalatriöum i þeim skoröum, sem fram komu I fjár- lagafrumvarpi i október s.l.” Og ennfremur: „t tillögunum er nefnt, aö áformaöur sé sparnaöur og samdráttur á ákveönum sviö- um rikisútgjalda til þess aö skapa svigrúm til félagslegra umbóta og kjarajöfnunar, t.d. aö þvl er varöar húshitunarkostnaö. Nánari grein er þó ekki fyrir þessu gerö.” Af þessu má vera ljóst hvernig litiö var á rikisfjármálin i tillög- um Framsóknarflokksins. Frekari upplýsingar um aögeröir i rikisfjármálum heföu vitaskuld kallaö á endurskoöun, og er þarf- laust aö fara um þetta fleiri orö- um. A hinn bóginn var I tillögum þeim, sem forystumenn Alþýðu- bandalags og Sjálfstæöisflokks lögöu fram i stjórnarmyndunar- viöræöum, eins og áöur sagöi, beinllnis um aö ræöa meiriháttar ráöstafanir á sviöi rikisfjármála sem uppistööu i efnahagsaögerö- um og þvi beindist athyglin sér- staklega aö þeim. Þessi athugun á dæmunum fimm, sem Luövlk tilfærir úr umsögnum Þjóöhagsstofnunar um efnahagstillögur flokkanna, sýnir svo ekki veröur um villst, aö ummæli Lúövlks um vinnubrögö m % * i Þjóöhagsstofnunar eru ekki á rökum reist. Lúövik iökar gamalkunna þrætubókarlist. Hann tínir upp einstök atriöi, setningar og setn- ingarhluta úr ýmsum áttum, stundum óskyldum, allt slitiö úr samhengi. A þessu er greinin byggð. Hann lætur I veöri vaka, aö Þjóöhagsstofnun setji sig I dómarasæti gagnvart efna- hagsmálatillögum flokkanna. Ekkert gæti veriö fjær sanni. Eins og fram hefur komiö I fréttum, hafa stjórnarmyndunar- aöilar leitaö umsagnar Þjóöhags- stofnunar um hugsanlegar ráö- stafanir I efnahagsmálum. Þjóö- hagsstofnun hefur aö sjálfsögöu freistaö þess aö leggja sem rétt- ast mat á liklegar afleiðingar til- tekinna dæma um efnahagsaö- geröir. Þetta mat er oft óvisst og ófullkomiö, en felur ekki i sér neina dóma um þaö, hvort niöur- stöðurnar séu æskilegar eöa ekki. Athugasemdir Þjóöhagsstofnun- ar eru eingöngu ætlaöar sem efni- viöur I stefnumótum I vlöara sam- hengi á vettvangi stjórnmálanna, enda mörg þeirra dæmi um efna- hagsaögeröir, sem komiö hafa viö sögu aö undanförnu, ekki fullmót- um og sum hver eingöngu hugsuð sem umræöuefni en ekki tillögur aöila. Grein Lúöviks viröist i heild byggö á mistúlkun á þessum til- gangi umsagnanna. Þaö liggur i hlutarins eöli, aö margt af þvi, sem hagfræðingar hafa til mála aö leggja, ber nokkurn svip af búsáhyggjum, einfaldlega vegna þess, aö þeim ber aö fjalla um þær fjárhagslegu takmarkanir, sem þjóöarbúskapnum eru settar hverju sinni. Auövitaö er skiljan- legt, aö stórhuga umbótamönnum þyki þvilikt fjas til trafala, þegar þeir vilja koma góöum málum fram, en viö þvi er ekkert aö gera. Þaö er vissulega þörf ábendirg hjá Lúðvik Jósepssyni, aö all.r menn — stjórnmálamenn sem aörir — ættu jafnan aö taka ábendingum og niöurstöðum svo- kallaöra sérfræöinga meö gagn- rýni og freista þess aö mynda sér skoöun útfrá brjóstviti slnu. Grein Lúövlks ber þvl miöur ekki vitni um þau vönduöu vinnu- brögö, vakandi gagnrýni og viö- sýni, sem hann brýnir svo mjög fyrir öörum. ® ÚTBOÐÍ Tilboö óskast I jarövinnu vegna 2. áfanga bækistöðvar Rafmagnsveitu Heykjavlkur viö Suðurlandsbraut 34 Reykjavik. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3, Reykjavik, gegn 20.000. kr. skilatryggingu. Tilboöin veröa opnuö á sama staö miövikudaginn 5. mars 1980 kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800 Jte Tilkynning ™ til launaskattgreiðenda Athygli launaskattgreiðenda skal vakin á þvi, að 25% dráttarvextir falla á launaskatt fyrir 4. ársfjórðung 1979 sé hann ekki greiddur i siðasta lagi 15. febrúar. Fjármálaráðuneytið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.