Þjóðviljinn - 05.03.1980, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.03.1980, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 5. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Styrjöldin sem Ilandinu hefur geisað skilur eftir sig djúp sár — ogm.a. neyð og næringarskort víða. Það sem beir helst óttuðust: Stórsigur Mugabe Þegar þetta er skrifað hafa þær fréttir borist frá Zimbabwe (Ródesíu) að sigurvegari i fyrstu kosningun- um sem þar fara fram og allir landsmenn viðurkenna hafi verið Robert Mugabe, leiðtogi ZANU, þess flokks sem hefur verið hinn róttækari armur þeirrar Föður- landsfylkingar sem um allmörg ár hafði haldið uppi skæruhernaði gegn valdhöfum í höfuðborginni, Salis- bury. Mugabe hafði tryggt sér um 60 þingsæti af hundr- að. Foringi hins armsins, SAPU, Nkomo, mun fá um tuttugu sæti, og haf ði Mugabe þegar boðist til að mynda með honum samsteypustjórn, enda þótt hann hefði þing- styrk til að stjórna einn. Soames, bráðabirgðalands- stjóri Breta, mun ekki annað fært en aö fela Mugabe stjórnarmynd- un, en það hefur hvað eftir annað komið fram, að það er Mugabe sem bæði hviti minnihlutinn i Ródesiu, breska ihaldsstjórnin og svo stjórn Suður-Afriku óttast mest. Ýmislegt var reynt til að tor- velda kosningabaráttu flokks hans, t.d. fékk hann ekki aðgang að flutningatækjum eða fjármun- um til kosningabaráttu i sama mæli og aðrir. En allt slikt þóf hefur komið fyrir ekki. Og þeir eftirlitsmenn frá Samveldislönd- um,sem hafa fylgst með kosning- unum, hafa lýst þvi yfir, að þær hafi, i stórum dráttum, farið heiö- arlega fram. Það er þvi ekki hægt að draga umboð Mugabe aftur, nema stórslysamenn úr hópi hvita minnihlutans efni til nýrrar borgarastyrjaldar — sem þeir væru reyndar vissir um að tapa, jafnvel þótt stjórnvöld i suður- Afriku legöu út i það ævintýri að styöja viö bakið á þeim. Sá sem mestu tapar er Muzorewa biskup, forsætisráð- herra skamma stund af náð hvita minnihlutans — sú náð hefur orð- ið honum háskaleg og mikill f jár- austur i flokk hans frá Suður- Afriku hefur ekki dugað honum til að hressa upp á orðstírinn, nema siöur væri. Duga okkar mælikvarðar? Erlendir fréttaskýrendur hafa tilhneigingu til að skoða átökin i Leiðrétting I fyrri hluta greinar Arnórs Þorkelssonar um Varmaorkumál Akraness og Borgarness, sem birtist i Þjóðviljanum i gær.varð meinleg prentvilla, I siðustu málsgreininni. Þar átti að standa: „Þaö er sannarlega kominn timi til þess að visinda- menn okkar og sérfræðingar fái að vinna á vitrænan hátt, enda þótt þeir séu kannski ekki alvitrir.” Villan var að i stað fái stóð fari og veldur það miklum merkingarmun setningarinnar. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirð- ingar á þessum mistökum. Mugabe á fjöldafundi j honum haföi ekki veriö spáö hreinum meirihluta FRÉTTA- SKÝRING Ródesiu f ljósi evrópskrar hug- myndafræði. Þeir hafa gjarnan sagt sem svo, að Muzorewa væri talsmaður hægrisinnaðrar kapitaliskrar stefnu, Joshua Nkomo hefði upp á eins konar sósialdemókratisma að bjóða, en Robert Mugabe væri hreinrækt- aður sósialisti. Hætt er þó við þvi, að pólitiskur veruleiki i landi eins og Ródesiu trufli verulega þessa mynd. Hér koma t.a.m. inn i dæmið þjóðernisleg vandamál, en flokkur Mugabe á sér rætur i langsamlega stærstu afrisku þjóðinni af þeim sem landið byggja. Auk þess vilja menn minna á, að Mugabe hefur ekki notið hylli Sovétmanna eða þegið af þeim vopn. Hann er sagður hafa jafnt taugar til Kina Maós formanns og siðan hefur hann haft mjög mikið samband við ráðamenn 1 Mózambique, fyrrum nýlendu Portúgala, sem hafa veitt honum drjúgan stuðning. Lærdómar úr grannríkjunum Erfiöleikar þeir sem fyrstu stjórnir sjálfstæðra rikja i Angólu og Mózambique lentu i, þegar hinn fámenni hópur hvitra manna sem hafði stjórnað efnahagslifinu yfirgaf löndin i fússi eftir að hafa gert þá bölvun sem þeir gátu, munu væntanlega verða Mugabe ástæða til að fara varlega aö hin- um herskáa hvita minnihluta Ródesiu, sem svo lengi hefur þverskallast við að viðurkenna sjálf grundvallaratriði meiri- hlutastjórnar. Þessi minnihluti getur ekki sigrað, hvorki i virku ná heldur óvirku andófi gegn stjórn róttækra afla i Zimbabwe, en hann gæti skilið eftir sviðna jörð i ýmsum skilningi, og yrði dýrt og erfitt úr að bæta. -AB Lausar stöður Lausar eru til umsóknar stöður tveggja nefndarmanna i rikisskattanefnd, er skulu hafa nefndarstörfin að aðalstarfi. Er ann- ars vegar um að ræða stöðu formanns nefndarinnar, en formaður skal fullnægja skilyrðum til að vera skipaður héraðs- dómari, og hins vegar stöðu nefndar- manns er skal hafa lokið prófi i lögfræði, hagfræði eða viðskiptafræði, vera löggild- ur endurskoðandi eða hafa aflað sér sér- menntunar i skattarétti eða skattamálum. Nánari upplýsingar um störf þessi gefur fjármálaráðuneytið en um starfssvið, hlutverk og skipulag rikisskattanefndar visast að öðru leyti til 1. nr. 40/1978 sbr. 1. nr. 7/1980. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist fjármála- ráðuneytinu fyrir 31. mars n.k. Fjármálaráðuneytið, 28. febrúar 1980. Útboð HITAVEITA SUÐURNESIA óskar eftir tilboðum i loftræsikerfi fyrir stöðvarhús II varmaorkuverinu i Svarts- engi. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustig 36 Y-Njarðvik, og verkfræðistofunni Fjar- hitun, Alftamýri 9, Rvk, gegn 30 þús. kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu Fjar- hitunar Álftamýri 9 Rvk þriðjudaginn 18. mars 1980 kl. 11. Hitaveiia Sauðárkróks óskar eftir að ráða starfsmann sem hafi umsjón með rekstri Hitaveitunnar. Umsóknarfrestur er til 15. mars 1980. Upplýsingar um starfið, svo og launakjör, gefur bæjarstjóri i sima 95-5133. BÆJARSTJÓRINN A SAUÐÁRKRÓKI mmmmi HÁRSNYRTISTOFAN HÖFUM OPNAD HÁRSNYRTISTOFUNA PAPILLU !^_ Á stofunni er alhliða þjónusta fyrir dömur og herra. Einnig eru á boðstólum hártoppar fyrir herra og þjónusta í sambandi við þá, svo sem litun og liðun. Starfsföfk okkar er Heiðdís Þorbjamardóttir hárgreiðslusveinn Ragnar Harðarson hárgreiðslu- og hárskerasveinn Dorothea Magnúsdóttir hárskera- og hárgreiðslumeistari Torfi Geirmundsson hárskerameistari. Lmugavgi24, II. SM17144.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.