Þjóðviljinn - 11.03.1980, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 11. mars 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
8. mars baráttu-
dagur kvenna:
Ilúsfyilir var á 8rmars fundi
Ka uðsokkahrey fin ga rinna r í
Félagsstofnun stúdenta s.l.
laugardag, og þótti fundurinn
takast með ágætum.
Húsfyll
ir hjá
Rauð-
I anddyri Félagsstofnunar
hafði verið komiö upp nýstárlegri
sýningu á vinnu kvenna. Þar gat
að lita fagurlega pakkaðan fisk,
hálfprjónaðar peysur, nýþvegnar
bleyjur, stoppaða sokka og margt
fleira I þeim dúr. Ýmislegt var til
skemmtunar á fundinum, m.a.
kom hópur alþýðuleikara og flutti
þætti úr Heimilisdraugum
Böðvars Guðmundssonar, söng-
sveit Rauðsokka flutti nokkur
baráttulög og hjónin Katjana
Leifsdóttir og Þórarinn Hjartar-
son sungu.
Elisabet Bjarnadóttir flutti
frumort ljóö, sem vakti mikla
hrifningu, og hafði hún ort það til
Þorvaldar Garðars Kristjánsson-
ar i tilefni af fóstureyðingar-
frumvarpi hans. Einnig voru flutt
nokkur stutt ávörp um hinar
svonefndu barnaárskröfur ASI,
og Kristin Jónsdóttir flutti ræðu
um stefnu Rauðsokkahreyfingar-
innar i fjölskyldumálum.
1 fundarlok var „Nallinn”
sunginn af miklum krafti.
— ih
Margir hálku-
árekstrar
Mikil hálka var á höfuðborgar-
svæðinu i gær og urðu margir á-
rekstrar af hennar völdum. Frá
hádegi og fram að kvöldmat urðu
þannig 28 árekstrar i Reykjavik
einnöen ekki slys á mönnum svo
að teljandi væri. 1 Hvalfirði var
einnig fljúgandi hálka og runnu
þar einir 8 bilar út af, en ekki
hlutust stórvægileg slys af.
— GFr.
Leikarar úr Alþýðuleikhúsinu sýndu þætti úr Heimilisdraugum á 8.-mars fundi Rauðsokkahreyfingar-
innar. Ljósm. — eg.
Jón Oddur og Jón Bjarni gera víöreist:
Um öll Norðurlöndin,
Holland og Þýskaland
Önnur útgáfa bókarinnar komin út í Danmörku
Fyrsta bókin um Jón Odd
og Jón Bjarna hefur nú
veriö þýdd á öll Norður-
landamálin og líður ekki á
löngu þar til hún hefur ver-
ið útgefin á öllum Norður-
löndunum. önnur útgáfa
bókarinnar er nýútkomin í
Danmörku, en í gærmorg-
un undirritaði Guðrún
Helgadóttir rithöfundur
samning um útgáfu í Nor-
egi.
Frægðarför þeirra Jón Odds og
Jóns Bjarna er reyndar meiri.
Þessa dagana er bókin nefnilega
að koma út i hollenskri þýðingu
og ekki alls fyrir löngu var gerður
samningur um útgáfurétt fyrir
Guðrún Helgadóttir undirritaði
samning i gær um útgáfu I Nor-
egi.
Þýskaland, Sviss og Austurriki.
Jón Oddur og Jón Bjarni kom
fyrst út i Danmörku utan heima-
landsins. Fyrsta útgáfan er upp-
seld, en nýlega kom út önnur út-
gáfa bókarinnar i bókaklúbbnum
„Alle börn bogklub”. Klúbburinn
valdi tvær bækur tii útgáfu fyrir
hvern aldursflokk og var þetta
önnur þeirra bóka sem valin var
fyrir 7-9 ára börn.
Guðrún Helgadóttir sagöist
sannfærð um að Norræni þýð-
ingasjóðurinn ætti stóran hlut að
máli, hve bókin hefði borist greið-
lega til nágrannalandanna.
Þess má geta, aö likur eru á þvi
að „Búrið” eftir Olgu Guörúnu
Arnadóttur komi út i danskri þýð-
ingu, og er verið að kanna það um
þessar mundir, en ákvörðun hef-
ur ekki veriö tekin enn. — eös.
Loðnuveiðar stöðvaðar fyrir austan
Minna magn en áætlað var
Búið að veiða 50 þús. lestum meira en lagt var til
í gær gaf sjávarútvegsráðu-
neytið út reglugerö um stöðvun
ioðnuveiðanna austan við 20.
gráðu vesturiengdar, sem er rétt
austan við Vestmannaeyjar og
tók veiðibannið gildi kl. 20 i gæ-
kvöldi.
Þessi stöðvun fylgir i kjölfar
rannsóknaleiöangurs Sveins
Sveinbjörnssonar fiskifræðings
á Árna Friðrikssyni nú um helg-
ina, en niðurstöður leiðangursins
benda til þess að loönan fyrir
austan sé nú nær uppurin. Er á-
standið mun alvarlegra en menn
bjuggust viö, en nú er búið að
veiöa 50 þúsund lestir meira af
hrygningarstofninum en fiski-
fræðingar lögðu til.
1 fréttatilkynningu frá sjávar-
útvegsráðuneytinu segir að nauð-
synlegt þyki að hið litla magn
loönu, sem nú heldur sig við Ing-
ólfshöfða verði friöað og leyft að
hrygna ótruflað til þess að hrygn-
ing geti orðið sem dreiföust, en
aðeins óverulegt magn hefur
fundist þar.
Enn má veiða loðnu á Faxa-
flóasvæðinu en þar er nú nokkurt
magn loðnu suöur fyrir Reykja-
nes og austur fyrir Grindavik. Þó
er hún komin svo nærri hrygningu
að hún verður ekki veiðanleg
nema í nokkra daga úr þessu, að
sögn Þórðar Asgeirssonar i sjáv-
arútvegsráðuneytinu. Má þvi bú-
ast við að allra næstu dagar verði
hinir siðustu á þessari loðnuver-
tið. — S.dór.
Hjálmar Vilhjálmsson um ástand loðnustofnsins:
Kemur mér ekki á óvart
r
Ottast að verulegt magn af stofninum hrygni fyrir norðan eða austan
— t sjálfu sér koma niöurstöð-
urnar úr þessum leiðangri mér
ekki svo mjög á óvart, þótt ég hafi
kannski ekki átt von á þvi að
gangan fyrir austan væri uppur-
in, sagði Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur I samtali við Þjóð-
viljann I gær.
Hann sagði að eftir loönuleið-
angurinn i janúar sl. hefði verið
lagt til að ekki yröi leyft að veiða
nema 300 þúsund lestir og væri þá
miöað við að eftir væru i hrygn-
ingarstofninum 2/3 hlutar þess
magns sem hrygndi hér viö land i
fyrra. Nú væri hinsvegar búið að
veiöa 50 þúsund lestum meira en
fiskifræðingar lögðu til, án þess
að neitt það heföi komiö fram sem
benti til þess aö meira magn væri
af hrygningarloðnu en mælt var i
janúar.
Hjálmar var spuröur hvort
hann teldi að stööva hefði átt
veiðarnar fyrr og sagði hann svo
vera. Það heföi veriö og væri enn
sitt álit aö ekki hefi átt aö veiða
nema þessi 300 þúsund tonn sem
lagt var til i janúar.
Þá var hann spurður um hvort
hann teldi að austurgangan heföi
veriö veidd upp á dögunum. Hann
kvaöst ekki trúa þvi að svo hefði
verið heldur hegðaöi gangan sér
öðruvisi en vanalega og sagðist
hann óttast aö verulegt magn af
hrygningarstofninum myndi
hrygna fyrir norðan eöa austan
og þá væri mikil hætta á þvi að
klakið mistækist. En samkvæmt
þessum nýjustu niðurstööum
virtist ljóst að litið magn af loðnu
muni hrygna út af Suöurlandi i ár
og væri það alvarlegt mál.
— S.dór
Fjörugur
kvenna-
fundur
A laugardaginn héldu konur á
Egilsstöðum fund i tilefni af
alþjóðlegum baráttudegi verka-
kvenna, 8. mars, og var það i
fyrsta sinn sem sá dagur hefur
verið haldinn hátiölegur þar á
staðnum.
Aödragandinn að fundinum var
sá, að i febrúar tóku nokkrar kon-
ur sig saman og gáfu út dreifirit,
þar sem Egilsstaðabúum var
boðiö aö taka þátt i undirbúningi
fundarins. Sfðan vann stór hópur
fólks að undirbúningnum, með
þeim glæsilega árangri að upp-
undir 200 manns mætti á fundinn,
og var það fólk hvaðanæva að úr
nágrannabyggðunum, og sumt
langt að komið.
Þrjár konur fluttu ávörp á
fundinum, þær Guðrún Tryggva-
dóttir meinatæknir á Egilsstöö-
um, Elsa Árnadóttir bóndakona I
Húsey og Bryndis Þórhallsdóttir
frá Stöðvarfirði, sem talaði um
bónuskerfið margfræga. Konur
frá Hallormsstað komu á fundinn
og sögðu frá bókaklúbbi, sem þær
hafa sett á laggirnar. Ýmislegt
fleira var á dagskrá, kór Mennta-
skólans á Egilsstöðum söng og
sömuleiöis kvartettinn Andrésar-
systur, flutt var lesdagskrá i lett-
um dúro.fl.
Fundurinn var haldinn i salar-
kynnum menntaskólans, sem
skreytt höfðu verið með lista-
verkum og ýmiskonar handverki
eftir konur á Héraði. Fundinum
barst kveðja frá Alþýöubandalagi
Héraðsmanna. Var gerður mjög
góður rómur að öllum dagskrár-
liðum, og sagði heimildarmaður
Þjóðviljans á Egilsstöðum, Krist-
jana Bergsdóttir, að fundurinn
hefði tekist „ofsalega vel i alla
staði”. —ih.
Skodanakönnun í
Blaðaprenti:
Gudlaugur og
Vigdís jöfn
t gær fór fram skoðanakönnun
meðal starfsmanna Blaöaprents
um fylgi við þá forsetaframbjóö-
endur sem þegar eru komnir
fram á sjónarsviöiö.
Orslit urðu þau aö efst og jöfn
urðu þau Vigdis Finnbogadóttir
og Guðlaugur Þorvaldsson með 14
atkvæði hvort, Rögnvaldur Páls-
son kom næstur meö 6 atkvæði,
Albert Guðmundsson með 2 og
Pétur Thorsteinsson fékk ekkert
atkvæöi i þessari könnun meðal
helmings starfsmanna Blaða-
prents. — ekh.
Bergþóra Vilborg
4. fundur ABR
um kvenfrelsi og
sósialisma
Konur og
fjölskylda
t kvöld veröur fjóröi fund-
urinn i fundaröð Alþýöu-
bandalagsins í Reykjavik
um kvenfrelsi og sósfalisma
og er umræðuefnið aö þessu
sinni „Konur og fjölskylda”.
Fundurinn verður haldinn
i Sóknarsalnum á Freyju-
götu 27 og hefst kl. 20.30 með
framsöguræðum Bergþóru
Sigm undsdóttur fram-
kvæmdastjóra Jafnréttis-
ráðs og Vilborgar Haröar-
dóttur fréttastjóra, en siðan
verða almennar umræður.