Þjóðviljinn - 11.03.1980, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 11. mars 1980
UOBVIUINN
Málgagn sósialisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóöfrelsis
L tgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir
Umsjónarmaöur Sunnudagsblaös: Ingólfur Margeirsson.
Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón Friöriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson.
Þingfréttir: Þorsteinn Magnússon.
iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Gunnar Elfsson
útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigrlöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir.
Afgreiösla: Kristín Pétursdóttir. Bára Halldórsdóttir. Bára Siguröar-
dóttir.
Símavarsla: ölöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Slöumúla 6, Reykjavík.slmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Húsnœðis- og jjöl-
skyldupólitík
• Eitt af mikilvægustu verkefnum núverandi ríkis-
stjórnar er að setja og hrinda í f ramkvæmd nýrri löggjöf
um húsnæðismál. Eftir fimm ára undirbúning var í
haust lagt fram frumvarp um nýskipan þessara mála á
Alþingi. Þar er um nokkur nýmæli að ræða og sett f ram
það markmið að hækka öll lán til nýrra íbúða í 80% af
byggingarkostnaði á næsta áratug. Augljóst er þó að
verði frumvarpið samþykkt óbreytt leysir það ekki
vanda láglaunafólks á næstu árum og ekki vanda þeirra
þjóðfélagsþegna sem verst eru settir. Frumvarpið full-
nægir heldur ekki þeim kröfum sem verkalýðshreyfing-
in hefur sett fram og barist fyrir í áratugi um félagslegt
átak til lausnar húsnæðismálum þeirra sem lægst eru
launaðir og erfiðasta aðstöðu hafa í þjóðfélaginu.
• Um 80% f jölskyldna á fslandi búa nú í eigin húsnæði,
flestu vel búnu og tiltölulega nýlegu.
• fbúðakaup eða íbúðarbygging hefur verið leið ís-
lendingsins til þess að tryggja öryggi sitt og afkomu í
verðbólguþjóðfélaginu. Vissulega hefur orðið bylting í
húsnæðismálum þjóðarinnar á örfáum áratugum,en hún
hefur kostað fórnir. Vinnuþrælkun, vixlaáhyggjur, rót-
laust f jölskyldulíf og sálardrepandi kvíði vegna þess að
menn eru sífellt að reisa sér hurðarás um öxl eru meðal
fylgifiska þeirra sem hafa brotist í að koma sér upp
húsi. Dæmalaus neysludýrkun og f lottræf ilsháttur
blandast einnig inn í húsnæðismál Islendinga, en flestir
sogast nauðugir viljugir inn í hringiðuna til þess að
tryggja sér og sínum húsaskjól.
• Eins og Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri Alþýðu-
bandalagsins benti á í ræðu á flokksráðsfundi fyrir
skömmu þá er allstór hópur fólks í verulegum vanda
með að leysa sín húsnæðismál vegna þess hve lítið er um
leiguíbúðir. Ung hjón sem orðið hafa þeirrar hamingju
aðnjótandi að eignast 3 til 4 börn áður en þau komust í
eigið húsnæði eru t.a.m. nánast útlagar í Reykjavík.
Vonlítiðer að fá leiguhúsnæði og laun eins manns gefa
enga möguleika á því að byggja eða kaupa íbúð við þær
aðstæður. Fjölmargt ungt fólk neitar sér um þá lífsfyll-
ingu á besta aldursskeiði að eignast börn,en snýr sér al-
farið að því að byggja sér íbúð og fylla hana húsgögnum.
Og jafnvel þeir sem aðeins nota leigihúsnæði um til-
tölulega stuttan tíma búa við ótrúlega mikið óöryggi og
skortá húsnæði. Auk þess er eins og Ölafur benti á allfjöl-
mennur hópur fólks sem af félagslegum og heilsufars-
legum ástæðum hef ur enga möguleika á því að eignast í-
búð á þeim kjörum sem hér er völ á. Þetta fólk myndar
ekki harða þrýstihópa, en kemur fram á sjónarsviðið
þegar íbúðum er úthlutað í verkamannabústöðum eða í-
búð auglýst til leigu.
• Stjórnvöld hafa oft verið minnt á þennan vanda, t.d.
í samningum verkalýðshreyfingarinnar. Þau hafa jafn-
oft gefið fögur fyrirheit um úrbætur í húsnæðismálum
láglaunafólks. Lög hafa verið sett um byggingar leiguí-
búða um land allt, en framkvæmdir hafa orðið hörmu-
lega litlar. Nú þegar sjö ár eru liðin frá því að sett voru
lög um byggingu 1000 leiguíbúða á 5 árum eru aðeins
402 þeirra fullbyggðar. Með slíkum vinnubrögðum verð-
ur vandinn aldrei leystur.
• Á f lokksráðsfundi Alþýðubandalagsins í sl. mánuði
var nauðsyn framfarabaráttu í húsnæðismálum enn í-
trekuð. Þar segir að þó mikill meirihluti Islendinga búi
við góðan húsakost, þá búi f jölmennur hópur við mjög
erfiðar aðstæður og algjört öryggisleysi á því sviði.
Tryggja verði fullkomið húsnæðisöryggi án tillits til
þess, hvort menn vilja leigja, kaupa eða byggja og á
þann hátt að tiltekið lágt hlutfall af dagvinnurekjum
nægi til að standa straum af húsnæðiskostnaði á löngum
tíma. Þaðgeti aldrei verið meginkappsmál að hver mað-
ur eignist íbúð eða hús yfir ævina og verði því að leggja
sérstaka áherslu á byggingu leiguhúsnæðis með sameig-
inlegu átaki á vegum Húsnæðismálastofnunar og sveit-
arfélaganna.
• Um leið og þess er fastlega vænst að átak sé nú
'framundan í húsnæðismálum okkar skal á það minnt að
ekki er síður nauðsyn að móta stefnu í f jölskyldumálum.
Fjölskyldupólitík nær yfir vítt svið,en það er verkefni
stjórnmálaflokka og stjórnvalda að móta um það stefnu
hvaða umgjörð þeir vilja setja f jölskyldulíf i á næstu ár-
um. Það er því ekki nóg að ákveða lánakjör og bygginga-
magn ísambandi við húsnæðismálin, heldur þarf einnig
að ræða hvernig umhverf i, hvernig íbúðir og hver önnur
ytri skilyrði ætlunin er að búa íslenskum f jölskyldum í
nánustu framtíð. —e^h.
klippt
I
VtSIK _______
Hef ekki áhuga á aö vera formaöur
|\ ef ég nýt ekki trausts til þess”
Geir Hallgrimsaon formaöur Sjálfatseöiaflokkains i helgarviótali
Mixir mtvtfihiura I
Geir HallgTÍnLSHon i viðtali við VLsi:
„Hef ekki áhuga á að vera
formaður, ef ég nýt ekki
trausts flokksmanna til þess”1
Nýtt
samhengi
Slðdegisblööin halda jafnan
uppinokkru karpi um þaö, hvort
þeirra sé óháöara og sjálf-
stæöara og skapast af þvi ööru
hvoru ýmislegir skemmtileeir
stormsveipir i vatnsglösum.
Vísir hefur pundaö hart og títt
á Dagblaöiö fyrir aö vera svo
hrifiö af Gunnari Thoroddsen og
stjórn hans, aö Jónas ritstjóri
hafi meira aö segja fórnaö sinu
hjartans máli, niöurskuröi á
bændum fyrir hrifningu þessa.
Dagblaöiö fær svo nokkuð
púöur I hendurnar nú um helg-
ina og á vafalaust eftir aö nota
þaö til aö plaffa á VIsi. Visir
birtir mikiö viötal viö Geir
Hallgrimsson um flokkinn og
manninn og Gunnar og forystu-
vandamálin — og seinna sama
dag kemur Morgunblaöiö út
meö aöalatriöi viötalsins á bak-
siöu. Hér eru bersýnilega aö efl-
ast ýmsar tengingar milli Visis
og svonefnds flokkseigenda-
félags — enda er Ellert Schram
aö taka viö blaöinu eins og
kunnugt er.
Ný hlið á
Gunnarsmálum
Viö höfum nokkrum sinnum
undanfarna daga gert aö um-
talsefni þær miklu geöshræring-
ar sem Morgunblaöiö hefur látið
uppi út af prófessorsembætti I
sögu viö Háskólann og óánægju
eins nemanda meö kennsluskip-
an og einkunnagjöf I dönsku.
Gauragangurinn er svo mikill,
aö þaö má alveg ljóst vera, að
djúpir undirstraumar bylta sér
undir yfirboröi þessara tveggja
mála.
Fróöir menn hafa bent okkur
á, aö hér sé einmitt á feröinni
einn angi af striöinu viö Gunnar
Thoroddsen, sem háö er á slðum
Morgunblaösins. Meö
jeremíasarsöng slnum um
Háskólann vill blaöiö gefa til
kynna aö undir stjórn Gunnars
vaöi helvlskir kommar uppi um
allt menntakerfiö og ráöi hverju
sem þeir vilja og þá lika
Framsóknarmanni I embætti
menntamáláráöherra. Og láti
Gunnar allt saman afskipta-
laust eins og hver annar nyt-
LlHIIHIIHiaiHIHll
samur sakleysingi, sem á aö
heita á meövitundarlausu skriöi
niöur hina pólitisku brekku og
inn I kommúnismann.
Þetta er nokkuö merk kenn-
ing, viö skulum aö minnsta kosti
fylgjast vel meö hverju nýju
skrefi sem Morgunblaöið stigur
I túlkun þessa máls og gefur
kost á aö prófa hana.
Okkar
tíkarsonur
Viö gátum ekki alls fyrir
löngu hér f blaöinu um greinar-
korn eftir bandaríska dáikahöf-
undinn Jack Anderson. Ander-
son haföi áhyggjur af þvl sem
hann kallaöi „óbifandi aðdáun
okkar á einræöisherrum” og
átti viö þaö, aö margur alþjóö-
legur vandi sem Bandarlkin
rata I er tengdur þvl, aö þau
hafa stutt viö bakiö á haröhent-
um einræðisherrum, og horft i
aöra átt meöan þeir frömdu ill-
virki bara ef þeir voru réttum
megin I hinu alþjóölega tafli.
Anderson vitnaöi I þvi sambandi
I bandarlskan diplómat I Zaire
sem sagöi um Mobutu, forseta
þar: „Mobutu er aö sönnu mesti
tikarsonur, en hann er okkar
tikarsonur”.
Dæmalaus
einurð
Þessi ummæli rifjast upp
þegar skoöuö er grein eftir
Áslaugu Ragnars, blaðamann á
Morgunblaöinu, sem nýlega
heimsótti Irak. Irak er eitt
þeirra rikja, sem hefur fengiö
heldur niörandi umtal I
Morgunblaöinu, ekki vegna
þess, aö þar hafa hinir ýmsu
forsetar gengiö fram af mikilli
hörku heldur vegna þess aö þeir'
hafa veriö I allnánum tengslum
viö Sovétrikin og þegiö þaöan
vopn. En nú er svo komið aö
Saddam Hussein núverandi for-
seti íraks, hefur látiö sambúö
sina viö Sovétmenn kólna nokk-
uö og heldur eflt tengslin
vestur á bóginn — og þar meö
er hann oröinn tiltölulega
jákvæö flgúra i augum blaöa-
manns frá Morgunblaöinu.
Aslaug Ragnars segir m.a..:
„Areiöanlega er Saddam
Hussein áhrifamesti „fjöl-
miðill” landsins, þvi aö hann
lætur sér fátt óviökomandi og
gefur persónulegar yfirlýsingar
i I sjónvarp um allt þaö, sem
stjórnin telur miklu varöa.
Dýrkun á persónu hans er mikil,
mynd hans hangir hvar sem lit-
iö er, og þótt hann sé einræðis-
herra, sem ekki hikar viö aö af-
greiöa andstæöinga sína I eitt
skipti fyrir öll veröur ekki ann-
aö séö en aö margt verra heföi
getaö hent þessa þjóö en aö fá
yfir sig þennan „menntaöa ein-
vald” sem fylgir stefnumálum
sinum eftir af dæmalausri
einurö og þrótti.”
Minn eða þinn
sjóhattur
Saddam þessi Hussein er aö
sögn Aslaugar Ragnars, aö
beriast viö ólæsi meöal þjóöar-
innar og er ekkert til sparað og
ef menn mæta ekki I lestrar-
námskeiöiö veröa þeir látnir
sæta kárlnum. Hún tekur og
meö nokkurri viöurkenningu
undir þá stefnu Saddam Huss-
eins, aö breyta „úreltum
lifnaðarháttum” fjölskyldunn-
ar, „svo aö foreldrar meö úrelt-
ar skoöanir og siövenjur haldi
ekki áfram aö ráöskast meö
stórt og smátt innan heimilis-
ins”.
Þaö spaugilega er, aö þetta
hljómar ósköp svipaö og viö-
leitni kommúnistastjórnar i
Kabiil, I Afganistan til aö út-
rýma ólæsi og breyta t.d.
stöðu konunnar i fjölskyld-
unni. Munurinn er bara sá, aö
þar eru kommar aö verki
og þvi veröur einnig ákveö-
in umbótaviöleitni túlkuö
tilræöi viö fjölskylduna og
trúna. En þaö sem „okkar
tíkarsonur” (eöa einræöis-
herra) gerir, þaö veröur bara
tiltölulega gott — samkvæmt
skilgreiningu. Þaö lögmál hefur
fest sig i sessi rækilega, og getur
gilt jafnt fyrir Morgunblaöiö oe
Prövdu — aö breyttu breytanda. I
-áb I
«g sMorlð