Þjóðviljinn - 11.03.1980, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 11. mars 1980
f.
Sovétmaðurinn Viktor
Kupreichik hélt sínu
striki í síðustu umferðum
Reykjavíkurskákmótsins.
Sá eini, sem ógnað
gat sigri hans var Banda-
rikjamaðurinn Walter
Browne, en hann hefði
orðið jafn Kupreichik
með sigri í siðustu um-
ferð, en þá tefldu þeir
saman. Kupreichik hafði
hvitt og tefldi trausta
uppbyggingu gegn Sikil-
eyjarvörn Brownes. Eftir
aðeins 14 leiki var samið
jafntefli, og var þvi aug-
Ijóst að Browne sætti sig
við orðinn hlut.
Kupreichik hlaut þvi 8.5
vinninga og stór-
meistaratitil. Browne var
með 7.5 vinninga. Þriðja
til f jórða sæti deildu með
Kupreichik sigradi
Jafntefliskóngurinn Schifssler
komst ekki f gegnum mótið á
fullu húsi, þvi Haukur vann
hann. — Mynd: —eik.
sér þeir Miles, Englandi,
og Sosonko, Hollandi. Um
neðri sæti visast til töflu.
A föstudagskvöld uröu úrslit i
11. umferð þannig: Jón L. vann
Helga, Vasjúkov vann Browne,
Miles vann Sosonko. Jafntefli
gerðu þeir Margeir og
Guðmundur, Haukur og Byrne,
Torre og Kupreichik.
1 tólfu umferð, sem tefld var á
laugardag, fóru leikar þannig:
Browne vann Torre I mikilli
þæfingsskák, Haukur vann
SchUssler og batt þannig endi á
jafntef lisgöngu Svians,
Guðmundur vann Helga. Jafn-
tefli gerðu þeir Byrne og
Vasjúkov, Sosonko og
Kupreichik, Miles og Margeir.
Siðast nefnda viöureignin varð
sú lengsta i mótinu, eða 120 leik-
ir.
Þrettánda og siðasta umferð
var tefld á sunnudag. Fyrirfram
var búist við hörkuskák milli
efstu manna, þeirra Browne og
Kupreichik, en sú varö þó ekki
raunin á, og endaði viðureignin l
stuttu jafntefli eins og áður seg-
ir. Óheilladfsirnar héldu áfram
að hrella Helga ólafsson og tap-
aði hann fyrir Miles. Haukur
vann Jón L., Vasjúkov og
Schussler gerðu jafntefli, og
sömu úrslit urðu hjá Torre og
Byrne, Margeiri og Sosonko.
Um frammistööu íslensku
keppendanna eru nokkuð skipt-
ar skoðanir. Viröist svo sem
margir geri nokkuð óhóflegar
kröfur til okkar ungu meistara,
en við slíkar aöstæður er alltaf
erfitt aö tefla á heimavelli.
Margeir Pétursson náði bestum
árangri fslensku keppendanna.
Hann hefur i þessu móti sýnt
mikla seiglu gegn erlendu
meisturunum. Aöeins Torre
náði heilum vinningi af honum.
Haukur Angantýsson byrjaði
vel, en sfðan kom slæmur kafli
þar sem hann tapaöi sex skák-
um i röð. Þrir vinningar i
siðustu fjórum umferöum
löguðu stöðuna. Guömundur
Sigurjónsson virðist vera i
Helgi Olafsson
Einar Karlsson
heilum
vinningi
á undan
nœsta
manni
skáklægð um þessar mundir. Af
stórmeisturunum er hann
neðstur i töflunni. Jón L. Árna-
son er með nokkuð sérstæöa
útkomu. Hann gerir jafntefli við
útlenda, en tapar fyrir þeim
Margeiri, Hauki og Guðmundi,
og vinnur Helga.
Eins og á siöasta Reykja-
vikurmóti var Jón ekki ánægður
meö timamörkin og lýsti þvl
yfir, að þetta væri siðasta mótið
sem hann tefldi með þessu
fyrirkomulagi.
Helgi ólafsson náöi sér aldrei
á strik eftir hið mikla áfall sem
hann varö fyrir I annarri um-
ferð, gegn Sosonko. Þá lék hann
niöur gjörunninni stöðu i
timahraki. 1 bók sinni
„Afbrigðið mitt” segir sovéski
stórmeistarinn Polugajevski á
einum stað: „Hvaö svo sem
kann að gerast i unninni skák,
hvaða fingurbrjótur sem
skákmanninum verður á, þá
verður hann að gleyma honum,
gleyma mistökunum þar til eftir
siðustu umferð. Hann verður.
Að öðrum kosti ríöa tilfinn-
ingarnar honum að fullu og
hann getur ekki einbeitt sér i
baráttunni”.
Þetta tókst Helga ekki.
— O —
Skákskýrandi fellur oft i eina
gryfju. Hann dæmir i einu og
öllu eftir úrslitum skákarinnar.
Sá sem vinnur fær öll
upphrópunarmerkin en sá er
tapar hinsvegar talsverðan
slatta af heilræðum og
tviræðum athugasemdum. Skák
þeirra Vasjúkovs og Browne á
Reykjavikurmótinu er gott
dæmi um þetta atriði.
Spámennirnir I skáksalnum
áttu ekki orð til aö lýsa hrifn-
ingu sinni yfir taflmennsku
Sovétmannsins, en þegar svo öll
kurl koma til grafar þá átti
Browne allra þokkalegustu
stöðu mestallan timann. Það
var aðeins undir þaö siðasta, að
úrslitamistökin komu. Skákin
fer hér á eftir:
hinn bóginn gæti hann framið
mörg myrkraverk á kóngs-
vængnum.)
16. ...-Bd7
17. Rg3-g6
18. Hgl-e5
(Eftir 28. -Db7. má svartur vel
við una. Skákin á e7 hefur engan
tilgang og svartur hótar bæði
hróknum og c2-peðinu.
Framhaldið gæti orðið 29. Hf2
Hxc2 30. Dxc2 Hxc2 31. Hxc2
með flókinni og óljósri stöðu.)
29. Re7+!-Kf8?
(Eins og vikið verður að siðar
var 29. -Kh8 betri leikur.)
30. Rxc8-fxg2 31. Re7
(Timahrakinu var lokið og
Browne gat farið að naga á sér
handabökin fyrjr að staðsetja
kónginn vitlaust. Stæði hann á
h8 væri 31. -Dg4 öflugt svar við
þessum leik. Þá væri alls óljóst
um úrslit.)
31. ...-Hb6 33. Dgl!
32. Dxg2-De8
Hvltt: Evgeni Vasjúkov
Svart: Walter Browne
Sikileyjarvörn
1. e4-c5 3. d4-cxd4
2. Rf3-d6 4. Dxd4.
(Góöur leikur gegn Browne sem
kann alltof mikið I Najdorf-af-
brigðinu)
4. ...-Rc6 5. Bb5-Bd7
(Annar leikur er 5. -Dd7, af-
sprengi þess mikla hugsuðar
Lajos Portisch.)
6. Bxc6-Bxc6
7. Rc3-Rf6
8. Bg5-e6
9. 0-0-0-Be7
10. Hhel-0-0
11. Kbl-Dc7
12. Dd2-Hfd8
13. Rd4-Hac8
14. f3-a6
15. g4-b5
16. Rce2.
(Gáfuð hugmynd. Riddarinn
þvælist einungis fyrir á c3. A
19. Rdf5!-Bxf5
(En ekki 19. -gxf5 20. gxf5 Kh8
21. Bxf6 Bxf6 22. Rh5 Be7 23.
Dh6! Ðxc2+ 24. Kal Hg8 25.
Rf6. og svartur verður mát. Þaö
sem skiptir sköpum i þessu
afbrigði er að drottningin
valdar cl-reitinn.)
20. exf5-d5 23. Bxf6-Bxf6
21. h4-Hd6 24. g5-Be7
22. Hg2-Hc6 25. f6-Bd6
(Varkárari sálir hefðu ugglaust
leikið 25.-Bf8, en þessi leikur,
sem leikin var meö miklum
bægslagangi I geöveiku tíma-
hraki, en skarpari og samræm-
ist meira skákstil Browne sem
aldrei vill vikja.)
26. Rfl-e4!
(En ekki 26. -d4? 27. Rg3 og
riddarinn hreiðrar um sig á e4.)
27. Re3-exf3 28. Rxd5-Dd7??
(Hljóðlátur leikur sem gerir út
um taflið. Spekingarnir bentu á
eftirfarandi atburðarás: 33. -
Db8 34. Rc8. Hc6 35. Rxd6 Hxd6
' 36. Dc5. Má það til sanns vegar
færa.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 VINN
1 W. Browne m m 1 1/2 1/2 1/2 1 1/2 1 1/2 0 1 1/2 1/2 rÆ
2 R. Byrne 0 m 1/2 1 1/2 0 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2 0 1
3 H. Schussler 1/2 1/2 P ■////. 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2 0 1/2 1/2 1/2 1/2 S/z
4 Jón L. Arnason 1/2 0 1/2 Æ m 1/2 1/2 0 1 0 1/2 1/2 1/2 1/2 5
5 Guömundur Sig. 1/2 1/2 1/2 1/2 m 1/2 1/2 1 0 1/2 1/2 0 0 &
6 A. Miles 0 1 1/2 1/2 1/2 1/2 1 1/2 1 1/2 0 1 7
7 Margeir Pétursson 1/2 1/2 1/2 1 1/2 1/2 777% W' 0 1 1/2 0 1/2 1/2 6
8 Helgi Ólafsson 0 1/2 1/2 0 0 0 i W, 1 1/2 1/2 0 0 y
9 Knut Helmers 'ffl/
10 Haukur Angantýsson 1/2 1/2 1 1 1 1/2 0 0 0 0 0 0
11 E. Vasjukov 1 1/2 1/2 1/2 1/2 0 1/2 1/2 1 1 1/2 0 <o‘/z
12 E. Torre 0 1/2 1/2 1/2 1/2 1/2 1 1/2 1 0 W’< 1/2 1/2 6
13 V. Kupreichik 1/2 1 1/2 1/2 1 1 1/2 1 1 1/2 1/2 ?/%, m 1/2 e/z
14 G. Sosonko 1/2 0 1/2 1/2 1 0 1/2 1 1 1 1/2 1/2 m 7
J