Þjóðviljinn - 02.04.1980, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 02.04.1980, Qupperneq 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2. april 1980 Fyrsta byggö viö fjöröinn reis á undirlendinu viö strandkantinn en óx siöan upp aö Hamrinum og umhverfis hann. SKIPULAGSMÁL í HAFNARFIRÐI A síðastliðnu ári samþykkti Bæjarstjórn Hafnarf jarðar skipulags- tillögu af s.k. Hvamma- hverfi þar f bæ, að undan- skildum þeim hluta hennar er varðaði skipulagningu fjölbýlishúsa á tveimur reitum innan hverfisins. Hverfi þetta liggur með Reykjanesvegi, sunnan við klaustrið. Þótti mörgum timi til kominn að skipulag yrði samþykkt fyrir þetta hverfi, þvi þá voru liðin rúm 6 ár siðan hafist var handa við skipulagningu þess. Bæjarstjórinn efndi siöar til samkeppni um skipulagningu og útfærslu á Ibúðarhúsum á þessum fjölbýlishúsareitum. Var aöeins 5 arkitektastofum boöin þátttaka. Fjórar tillögur bárust og voru þær til sýnis almenningi um miðjan nóvember á siöastliönu ári i húsi Bjarna Riddara. Ég, eins og eflaust margir aör- ir, lagöi leiö mina á þessa sýn- ingu. Eftir aö hafa gaumgæfilega skoðað þessar tillögur og skipulag hverfisins I heild, fann ég hjá mér þörf til að koma á framfæri athugasemdum viö bæöi skipu- lagiö og tillögurnar og eru þaö til- drög þessara skrifa. Samtimis vil ég i fáum oröum reyna aö varpa ljósi á þróun skipulagsmála í Firðinum. Vöxtur Hafnarf jarðar- bæjar Saga Hafnarfjarðarbæjar er ekki löng, frekar en annarra bæja á landinu. Þaö var ekki fyrr en um aldamót meö tilkomu aukinn- ar útgeröarog verslunar, aö þéttbýli byrjaði aö myndast viö fjöröinn. Fjölgun bæjarbúa frá aldamótum og fram aö heimskreppu var mjög mikil, eöa úr 600 I 3000 Ibúa. Kreppuárin 1930—40 settu sinn svip á þróunarsögu bæjarins, en þá stóö ibúafjöldi svo að segja I staö. Strax upp úr 1940 byrjaði bæjarbúum að fjölga mjög hratt á ný og náði fjölgun þeirra hámarki á sjöunda áratugnum. Á timabil- inu 1940—76 fjölgaði bæjarbúum úr ca. 3500 I tæp 12000. Byggðin við fjörðinn fram undir stríð Fyrsta byggð viö fjörðinn reis á undirlendinu viö strandkantinn, en óx siðan upp aö Hamrinum og umhverfis hann. Þessi fyrsta byggö einkenndist af þvi að húsin stóöu þétt saman og mynduöu rúm fyrir athafnir sem geröu bæ að veruleika. Skipulag bæjarins á þessum timum miöaöist ekki aö þvi aö fullnægja tilbúnum þröfum hins akandi vegfaranda, heldur þröfum fólks til aö vernda sig fyrir ágangi veöra og vinda, til aö hafa mannleg samskiþti og búa I sambýli. Landiö var vel nýtt og byggöin vel löguö aö náttúru og umhverfi. Húsin í bænum Þau hús sem prýddu þennan bæ fyrstu áratugina voru mörg dönsk og norsk timburhús, sem komu tilhoggin til landsins. Onnur voru hús sem smiðuð voru meö hin inn- fluttu sem fyrirmynd. Vegna efna og aöstæöna margra hús- byggjenda á þessum timum uröu mörg húsin ekki eins rismikil og iburðarmikil og þau innfluttu. Húsagerö þessi var mjög þróuö, enda þróunarsaga þeirra löng. Þau hentuðu okkur íslendingum að mörgu leyti vel bæöi hvaö varöar notagildi og aðlögun að náttúru. Um 1930 ryður steinsteypan sér til rúms hérlendis. Trú manna á þetta byggingarefni var mikil, enda leiö ekki á löngu þar til svo að segja hvert nýbyggt hús i land- inu var steinsteypt. Fyrstu húsin sem reist voru úr steinsteypu voru aö stórum hluta til af sömu gerö og gömlu timburhúsin. Sömu hlutföll, sama byggingarlag, ein- ungis annaö byggingarefni i veggjum og gólfi. Siöar þegar menn læröu aö þekkja efniö betur og geröu sér betur grein fyrir þvi hvaöa aukna möguleika þaö gaf viö byggingu, komu nýjar húsgeröir fram á sjónarsviöiö. En þessara áhrifa I byggingu húsa byrjaöi ekki aö gæta fyrr en um og eftir strlö. Þróun byggðar við f jörðinn frá 1940—60 I byrjun strlðs var i landinu skortur á húsnæöi og þaö sem var til staðar var aö stórum hluta ákaflega bágboriö, sé miðaö við þær kröfur sem geröar eru i dag. Húsnæöisskorturinn og hin mikla búseturöskun I landinu haföi i för meö sér mikla aukningu á hús- byggingum og þá sérstaklega i bæjum eins og Hafnarfiröi þar sem uppgangur var mikill. Ariö 1975 voru hvorki meira né minna en rúmlega 3/4 hlutar af heildar- rúmmáli ibúðarhúsnæðis bæjar- ins I húsum sem byggö voru eftir 1940. Bæjarmyndin breytist mikiö á þessum árum, enda vex bærinn mikið. Ahrifa frá bilum byrjar að gæta all - verulega i skipulagi bæjarins og tilkoma steinsteyp- unnar sem byggingarefnis setur einnig sinn svip á umhverfið. Húsin veröa umfangsmeiri en gömul timburhús voru og fá ann- að form. Stór og djúp tvi- og þri- býlishús veröa t.d. mjög algeng. Byggðin er enn á þessum timum nokkuö þétt og land sæmilega vel nýtt. Nýjar skipulagshugmyndir sjöunda áratugsins (1960—70) Þær skipulagshugmyndir sem byrja aö ryöja sér til rúms hérlendis I byrjun sjöunda áratugsins og legið hafa til grund- vallar öllu skipulagi bæja fram til dagsins I dag eru hinar sömu og komu fram I nágrannalöndum okkar um svipað leyti. Þar leiddu þessar hugmyndir til þess aö viöa voru unnin mikil spjöll á eldri hverfum borga og bæja og mörg mistök gerö viö byggingu nýrra. Þar urðu þessar hugmyndir þó aldrei langlifar þvi menn geröu sér fljótt grein fyrir þvl hversu meingallaöar þær voru og köst- uöu þeim fyrir róöa. Þegar ég skoöaöi skipulag Hvammahverfisins nú fyrir stuttu, varö mér ljóst, aö enn þann dag i dag, tiu árum eftir að þessar skipulagshugmyndir hafa fengiö sinn dauöadóm viöast hvar á Noröurlöndum, er verið aö byggja skipulag bæjar hérlendis á þessum hugmyndum. Þaö þykir mér bagalegt þvi til þessara skipulagshugmynda má rekja mestu mistök sem gerö hafa verið á skipulagningu islenskra bæja siöan saga þeirra hófst og er Hafnarfjörður engin undantekn- ing. Þessar nýju skipulagshug- myndir einkenndust af þvi aö menn lögðu reglustrikuna yfir fortiöina og byrjuöu aö skipu- leggja bæi eftir hugmyndum sem þeir geröu sér upp um framtiöar- þjóöfélagið. Hagvöxturinn var guðinn og átti aö gera kleift aö umbylta þjóöfélagi fortiöarinnar i framtiöarþjóöfélag — þjóöfélag hraöans. Billinn átti aö brúa allar vegalengdir, þvi varö aö tryggja honum greiðfærar leiöir i framtlöinni. Iönaöurinn skyldi aöskilinn Ibúöarhverfum. Eldri byggö I hjarta hvers bæjar skyldi hverfa sjónum og I hennar stað risa nýtisku miöbær. Þangaö átti framtiöarfólkið siöan aö bruna á bilum sinum á hraöbrautum, þar sem biöi þess öll sú þjónusta og lifsþægindi sem hugast gat. Meö tæknivæöingu og hagræöingu og byggingariönaöi skyldi framleiönin í húsnæöi aukast gifurlega og þar meö öllum gert kleift aö búa viö velsæld I nýtisku húsum. Allsstaöar áttu að vera fyrir hendi mikil græn svæði þar sem ungir sem aldnir áttu aö njóta náttúrunnar I rikum mæli. Hús framtiöarinnar' áttu ekki siöur aö vera bylting. Meö til- komu steinsteypunnar töldu menn sig hafa náö valdi á efni sem gæfi þeim ekki einungis möguleika á að byggja hús eftir þörfum fólks, heldur einnig frelsi til gullvægrar formtjáningar, sem gera myndi alla sæla. Arkitektúr sjöunda áratugsins Þau hús sem eru einkennandi fyrir þetta timabil eru annars vegar einbýlishús á einni hæð, umfangsmikil meö stóra glugga og litinn þakhalla. Þessi hús hafa Nýting byggingarlands annars vegar á árunum eftir striö, 1940—50, og hins vegar á útþenslutfmabilinu. 1960—70. Miövikudagur 2. aprfl 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 önnur hús á þeim tíma voru smlðuö með þau innfluttu sem fyrirmynd. Vegna efna og ástæðna uröu þau þó oftast ekki eins rismikil. Valdimar Harðarson arkitekt skrifar Fyrstu áratugina prýddu bæinn hús sem smiðuð voru að norskri eða danskri fyrirmynd. Form húsa breyttist mjög mikiö þcgar menn höfðu náð aö þekkja eiginleika steinsteypunnar. Rúmgóð tvi- og þribýlishús verða t.d. mjög algeng. náö mikilli útbreiöslu hérlendis og sætir þaö furöu þar sem þau henta okkur Islendingum mun verr en t.d. tvilyft einbýlishús eöa hús á einni hæö meö Ibúöarhæfu risi. Undir þau þarf t.d. meira land, þau eru hlutfallslega orku- frekari, þau henta illa meö tilliti til þess veöurfars sem hér rikir, þaö er erfiöara aö aölaga þau breyttum þörfum fólks á lifs- leiöinni t.d. meö þvi aö breyta þeim i tvær ibúðir, þau eru óheppilegri til byggingar með til- liti til lánakjara húsbyggjenda hérlendis. Til undantekningar heyrir ef þessi hús voru ekki byggö úr steinsteypu. Trú manna á eigin- leika steinsteypunnar til aö standast álag islenskrar veöráttu var mikil og lýsir þaö sér vel i notkun hennar. Nú hefur sýnt sig aö steinsteypan er ekki þaö undraefni, sem menn héldu. Viöhald hefur veriö mikið á þess- um húsum og kostnaðarsamt. Fjöldi húseigenda hefur gefist upp á aö viöhalda steinsteypu- yfirboröinu og klætt hús sin að utan meö slitsterkara og viöhaldsminna efni. Ekki viröast þó húsbyggjendur né sérfræðingar i landinu hafa dregiö mikinn lærdóm af þessu, þvi ef hægt er aö tala um aö einhverjar breytingar hafi átt sér stað á einbýlishúsabyggingum hin siðustu ár þá hafa þær mest veriö i þá átt aö hlaöa ýmsu skrauti og útflúri úr steinsteypu utaná húsin. Kveöur svo rammt aö þessu aö engu er likara en menn haldi aö þeir séu aö byggja á suðrænum ströndum þar sem aldrei fellur snjór á jörðu. Þetta tiltæki á eftir aö veröa mörgum húsbygg jandanum dýrkeypt, og eflaust ekki mörg ár þar til maður fer aö sjá steinöxina á lofti viö mörg þessarra húsa og skrautbitana mölvaöa af ef veöur- guöinn veröur ekki þegar búinn að sjá fyrir þvi. Hina miklu út- breiöslu þessarrar húsgeröar má aö stórum hluta rekja til þess hversu slælega hefur verið staöiö aö stefnumörkun i húsnæðismál- um af hálfu hin opinbera og hefur I þvi sambandi Húsnæöismála- stofnun rikisins brugðist hlut- verki sinu. Hinsvegar eru þaö fjölbýlis- húsin eöa háhýsin, sem eru einkennandi fyrir arkitektúr þessa timabils, þessi afkvæmi byggöaröskunar og hagkvæmnis- draumóra. Háhýsin uröu ekki til hérlendis á þeirri forsendu að þetta ibúöarform heföi veriö taliö geta uppfyllt þarfir fólks i sinu umhverfi eða félagslega, heldur fyrst og framst vegna þeirrar trúar ráöamanna og ýmissa sér- fræöinga aö leysa mætti þáverandi húsnæöisvanda á hag- kvæman hátt meö byggingu þeirra. Hér voru það hagkvæmnis- sjónarmibin sem rébu. Þessi hús eru að mínum dómi gott dæmi um það hvernig húsnæöi fólks, umhverfi og athafnir geta breyst til hins verra, sé virt að vettugi þekking og reynsla manna af að búa og byggja bæi. Nýja línan í Firðinum Ahrifa frá hinum nýju skipu- lagshugmyndum byrjaöi fljótt aö gæta i Firðinum. Skipulags- meistararnir drógu strikin yfir gamla miðbæinn, og teiknuöu þar nýtisku miöbæ sem liktist meira geimstöö en mannabyggð. Forráöamenn bæjarins hrópuöu húrra fyrir framtiöinni og veittu listamanninum verölaun og svo var byrjað að rifa. Tæknimennt- uöu sérfræðingarnir, veifandi trúarriti sinu, erlendum stöölum, lögöu mælistiku sina á gömlu hverfin. Samkvæmt trúarritinu voru vegir þessarra hverfa of mjóir. Hús voru rifin, skoriö af bygg- ingarlóðum og gangstéttum fórn- að til aö breikka vegina og tryggja umferbaröryggi eins og það nú var kallað. En umferöar- öryggi hverra? Jú,meira öryggi fyrir akandi vegfarendur til aö aka hratt, en samtimis minnk- andi umferðaröryggi fyrir aðra vegfarendur. Einbýlishúsahverfi eftir nýjustu tisku voru skipulögð og voru vegir aö þeim og innan þeirra ekki minni á breiddina en þjóövegir landsins Einbýlishúsa- lóðir sem úthlutað var voru heldur ekkert smáar i sniðum, flestar tvisvar til þrisvar sinnum stærri en þær lóðir voru aö jafnaöi sem menn höföu látiö sér nægja I Firðinum á fyrstu uppbyggingar- árum hans. Húsin sem menn voru hvattir til aö byggja á þessum lóðum urðu nú flest engin smásmiði, og mörg þeirra meö sin flötu þök og stóru glugga hafa hvorki haldið vatni né vindi. Samtimis þvi sem skipu- lögð voru þessi Iburöarmiklu einbýlishúsahverfi i Firðinum, þar sem landi var beinlinis sóaö og ýtt var undir óhóf i húsbygg- ingum, voru skipulögö annars- konar Ibúðarhverfi fyrir annars- konar fólk — fjölbýlishúsahverfi fyrir láglaunafólk. Viö skipulagningu þeirra hverfa var nokkuð annaö upp á teningnum hjá bæjarstjórn. Þar skyldi landið nýtt vel og ibúar þessarra hverfa skyldu stilla húsnæöiskröfum sinum i hóf. Byggja skyldi ódýrar Ibúöir i fjölbýlishúsum fyrir láglauna- fólk. Hagkvæmnissjónarmiöin voru látin ráöa mestu um skipu- lag hverfanna og byggingu húsanna og einblint var á efnis- legar þarfir fólks varöandi húsnæöi, en engu skeytt um þær félaglegu afleiðingar sem bygg- ing þessa húsnæöis kynni aö hafa i för meö sér. Afraksturinn Þessir skipulagshættir leiddu til þess aö nýting byggingalands varö mun minna en t.d. I eldri hverum bæjarins. Þessi þróun hefur haft hinar ; ýmsu afleiöingar. Meðal annars leitt til mikillar útþenslu bæjarins. Við þaö hafa vegalengdir innan hans lengst mikiö. Þaö hefur haft þau áhrif aö fólk hefur oröiö háöara bilnum til aö komast leiöar sinnar og þar af leiðandi bilaumferö aukist til muna. Heildarmynd bæjarins hefur breyst. Hann er ekki lengur einn kjarni, heldur sundurliöaöur I afmörkuð svæði meö afmarkaöar athafnir. Aögreining Ibúöarsvæöa og vinnusvæöa, samhliöa mikilli útþenslu, hefur einnig breytt bæjarlifinu mikiö. Mun erfiöara og timafrekara er nú fyrir marga aö komast úr og i vinnu og margir neyöast af þeim sökum til aö vera frá heimilum sinum frá morgni til kvölds. Fátiðara er nú aö börn hitti foreldra sina, til dæmis i hádeginu eöa geti leitaö til þeirra á vinnustaöi ef þörf krefur. Börn- in hafa sökum þessara skipu- lagshátta rofnað meira úr tengsl- um viö foreldra sina og atvinnu- lifiö og Ibúöarhverfin oröið liflaus svefnhverfi- Kostnaðurinn viö t.d. landa- kaup, lagningu vega og skólps og fl. var hlutfallslega mikill i þess- um nýju hverfum, bænum og hús- byggjendum til fjárhagslegrar iþyngingar. Þaö mætti nú i sjálfu sér horfa fram hjá þvief þaö heföi sýnt sig aö þessi hverfi heföu eitthvað til að bera fram yfir eldri hverfi bæjarins, þar sem nýting lands er mun betri. En þvi er ekki fyrir aö fara, enda kannski ekki viö ööru aö búast, þvi viö skipulagningu þessara hverfa virðist ekki hafa veriö tekiö tillit til annarra þarfa ibúa en að bruna á bilum úr og i hverfin, og meira miöaö aö þvi aö einangra fólk hvert frá ööru en aö ýta undir samskipti. Meö skipu- lagningu annars vegar einbýlis- húsahverfa fyrir þá sem meira máttu sin og hins vegar fjölbýlis- húsahverfa fyrir láglaunafólk, var markvisst veriö aö skipta fólki i hverfi eftir tekjum. Látið var i veöri vaka aö bygg- ing fjölbýlishúsanna væri i þágu hinna lægstlaunuöu og bent á að meö tilkomu þeirra myndi húsa- kostur þessa fólks batna til muna frá þvi sem áöur var. Þaö var vissulega rétt, og margir létu blekkjast af þessari fullyröingu og áttuöu sig ekki á þvi aö sam- timis þvi sem húsakostur þessa fólks batnaöi þá batnaði húsa- kostur þeirra sem meira máttu sin mun meira. Ctkoman var sú að þaö misrétti sem hinir lægst- launuðu höfðu búið viö varöandi húsnæöi varö jafn mikiö ef ekki meira eftir byggingu fjölbýlis- húsanna sem áður. Með þessu var veriö aö ala á misrétti og á þann hátt skapa félagsleg vandamál — vandamál sem erfitt er aö leysa þegar til eru oröin.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.