Þjóðviljinn - 26.09.1980, Page 10
;.lkbyggiretohus
U að vera emhvers-
;taðar heldur td að
v nft sér um^ver^1
skapa sei u
þar sem Þaö
ætlar aö búa
i síðasta mánuði voru
veitt verðlaun i samkeppni
um íbúðabyggðog skipulag
Ástúnslands i Kópavogi,
sem bæjarstjórn Kópavogs
efndi til fyrr á þessu ári.
Fyrstu verðlaun hlaut
tillaga arkitektanna Árna
Fr iðrikssonar, Knúts
Jeppesen og Páls Gunn-
laugssonar. Samstarfs-
maður þeirra við tillögu-
gerðina var Stanislas Bo-
hic og aðstoðarmaður
Valdemar Harðarson.
Þeir Árni og Páll starfa
á arkitektastofu Knúts að
Bergstaðastræti 44 og
þangaö fór blaðamaður
Þjóðviljans fyrir skömmu
til að hitta þremenningana
að máli. Fyrst voru þeir
beðnir að lýsa verðlauna-
tillögunni.
Arkitektarnir á vinnustofunni viö Bergstaöastræti. F.v. Páll Gunnlaugsson, Árni Friöriksson og Knútur Jeppesen. — Mynd: — gel.
Á þessari loftmynd sést vel yfir Ástúnslandiö sem samkeppnin stóö um. Bærinn Ástún ofarlega til hægri
á myndinni umvafinn trjágróöri. — Mynd: — gel.
„Setjum manneskjulegt umhverfi í öndvegi”
„Viö leggjum til aö á þessu
svæöi veröi byggö svokölluö par-
hús, þ.e. tvö sambyggö „enda-
hús”, einnig nokkur einbýlis- og
þríbýlishús. 011 húsin eru meö
risi, portbyggö. Byggingarlandiö
er mjög bratt og þvl leggjum viö
til aö byggöinni veröi skipt I tvö
aöalstvæöi, Efra-tún meö um 30
Ibúöum og Neðra-tún meö um 40
Ibúöum, en svæöiö þar á milli þar
sem brattast er veröi opiö úti-
vistarsvæöi.
Viö stillum húsunum talsvert
þétt, sem getur skapaö fjöl-
breytta og góða rýmismyndun
þegar best til tekst. Reynslan hef-
ur kennt okkur aö þétt byggö
stakstæðra húsa er skjólmynd-
andi, en aftur á móti hafa sam-
felldar húsalengjur oft valdiö erf-
iöum vindgangi. Einnig gefa
stakstæö hús talsverða möguleika
á útsýni milli húsa. Þar sem land-
hallinn er mjög mikill á bygg-
ingarsvæðinu viöa yfir 1:0 leggj-
um viö til að húsin séu reist á til-
búnum stöllum. Þaö bæöi dregur
úr skuggamyndun I noröurbrekku
og eins geta jarövegsstallar og
garöar gefiö byggðinni skemmti-
legt einkenni.
Ganagandi
vegfarendur
hafaforgang
Umferöarkerfi hverfisins er
skipulagt þannig, aö gangandi
vegfarendur hafa. forgang. Létt
bflskyli standa þétt aö hellulögö-
um húsagöröum, en eitt bilskýli
er fyrir hverja Ibúö. Húsagöturn-
ar eru lokaöar svo aö ekki er
mögulegur gegnumakstur og
hindrunum er komiö fyrir sem
halda niöri ökuhraöa.
Aöalgangstlgar liggja þvert yf-
ir húsagöturnar og njóta for-
gangs, en á húsagötunum er
blönduð umferö gangandi og ak-
andi. Hver húsagata er um 100 m.
aö lengd.
Aðalleiksvæöi er eins og áöur
sagöi á milli Efra- og Neðra-túns,
en auk þess veröa minni leiksvæði
á lokuöum svæöum milli
húsaþyrpinga og tengjast þau
saman meö göngustigum innan
hverfanna.
Bærinn Astún sem stendur
sunnan megin viö byggingar-
svæöiö sem viö hann er kennt, á
samkvæmt eldra skipulagi aö
hverfa. Viö leggjum til I tillögu
okkar aö hann fái aö standa
áfram sem óumdeilanlegt verö-
mæti, og tengist hann þessu nýja
hverfi meö þvl aö loka fyrir gegn-
um akstur á akbraut (Astún) sem
liggur i gegnum bæjarhlaöiö.
Þessi akbraut er tenging Ný-
býlavegar , /iö hiö nýja hverfi og
nieö þvi aö hindra gegnum akstur
opnast einnig greiö gönguleiö fyr-
ir ibúa væntanlegra fjölbýlishúsa
niöur I Fossvögsdalinn.
Mikill og fallegur gróöur er I
bæjartúninu og viö látum okkur
detta I hug aö býlið sjálft veröi
nýtt annaöhvort sem æskulýös-
heimili og eöa þá dagvistunar-
heimili barna.
Einfalt húsaform
sem gefur mikla
möguleika
Veröur þetta dýrt hverfi, þ.e.
dýrt aö byggja þar miöaö viö
tillögur ykkar aö húsagerö á
svæöinu?
„Alls ekki, húsaformiö er mjög
einfalt, hæö og ris, lltill grunnflöt-
ur, með möguleikum á útbygg-
ingum t.d. gróöurskála, inngang,
útigeymslu o.s.frv.
Samkvæmt okkar tillögum er
enginn hvöð hvaöa byggingarefni
nota skal. Viö stingum uppá
byggö þar sem steinsteypa og
timbur er notaö saman og mynda
skemmtilega og lifandi heild.
Nú er þetta ekki ýkja stórt
svæði sem samkeppnin stóö um.
Er þetta þaö sem koma skai, aö
skipuleggja i fleiri og smærri ein-
ingum?
„Viö álltum þetta alveg hæfi-
lega stórt skipulagssvæöi. A síö-
ustu árum er fariö aö deiliskipu-
leggja minni svæöi heldur en
áöur og er þaö rétt stefna. Viö
þykjumstoft sjá eftir á, aö mistök
hafi átt sér staö viö skipulagningu
Ibúöarhverfa. Hitt og þetta hefði
mátt gera betur og ööruvísi, en
allt er þetta liöur I örri þróun I
áttina aö betri lausnum þar sem
samspil mannlegra og efnahags-
legra sjónarmiöa móta heilbrigða
heild.”
Eigiö þiö von á aö ykkar tiliaga
veröi útfærö á þessu byggingar-
svæöi?
„Þaö er lltill tilgangur meö þvi
aö hida samkeppnir ef ekki er
unniö eftir þvl sem út úr þeim
fæst og.viöurkennt er. Samkeppn-
ir eru til þess haldnar aö fá fram
nýjar og oft djarfar lausnir. Fólk
finnur út nýja möguleika þegar
þaö hefur tiltölulega frjálsar
hendur viö lausn verkefna. Þaö er
alveg nauösynlegur hluti af fram-
þróun I skiðulagsmálum aö sam-
keppnir séu haldnar.
Þær eru öllum til góös, þvi
sveitarfélögin fá tillögur og hug-
myndir sem eru hvetjandi og
nauösynlegur hluti til endur-
menntunar allra er hlut eiga aö
máli. Einnig fá nýjir kraftar
tækifæri til þess aö reyna sig til
jafns á viö aöra.
Þaö hefur varla veriö nóg hald-
iö af sllkum samkeppnum, en þaö
hefur samt veriö aö aukast á síö-
ustu árum. Aö taka þátt I sllkri
samkeppni kostar mikla vinnu og
aldrei veit maöur fyrirfram hver
árangurinn verður og er metinn.
Er almenningur aö vakna til
meiri vitundar um skipulagsmál,
hafiö þiö t.d. orðiö varir viö ein-
hverjar breytingar I þessa átt?
„Flestir hugsa furðulega mikiö
um bilskúrana, miöaö viö aöra
þýöingarmikla eöa þýöingar-
meiri þætti, s.s. aökomu, rýmiö
milli húsanna, stæröarhlutföll,
leiksvæði birtugæöi o.s.frv.
Þaö má þó segja að örli á vissri
meövitund hjá sumu fólki. Það
gerír sér betur grein fyrir þvi, aö
þaö er að byggja I borg. Ekki ein-
ungis aö byggja hús til aö vera
einhversstaöar heldur til aö
skapa sér umhverfi þar sem þaö
ætlar aö lifa og búa.
Látum ekki
reglustrikuna ráöa
Þiö eruö ekki hræddir um aö
þetta nýja hverfi veröi aö svefn-
bæ samkvæmt ykkar tillögum?
„Þetta er frekar spurning um
aöalskipulag en deiliskipulag.
Svefnhverfi veröa til þegar at-
vinnutækifæri og búseta eru f jarri
hvort öðru. Báöir foreldrar vinna
e.t.v. utan heimilisins og börnin
oft á dagvistunarstofnun I öörum
bæjarhluta. — Þáveröa Ibúöar-
hverfin aö svefnhverfum.
1 tillögu okkar leggjum viö mik-
iö upp úr möguleikum til úti-
vistar, gróöri og aö umhverfið
bjóöi uppá llf milli húsanna. Meö
þessu, svo ekki sé nú talaö um aö
færa inn I hverfiö minni háttar at-
vinnutækifæri, má gera umhverf-
iö liflegra skemmtilegra.
Ibúöardreifingin I hverfinu er
þannig aö minnst er af stærstu og
minnsstu Ibúöunum eöa 10 og 20%
en 70% ibúðanna eru 4—5 her-
bergja, 120—150 fermetrar.
Þá gerum við llka ráö fyrir þvi
aö fatlaö fólk geti komist um á
auöveldan hátt bæöi innandyra á
neöri hæöum húsanna og um allt
hverfiö. Engar tröppur eöa
stallar eru á aöalstlgum og gesta-
salerni íbúðanna er þannig, aö
auövelt er aö útbúa þau fyrir
hjólastól.
Við erum meö þessum tillögum,
aö reyna aö setja manneskjulegt
umhverfi I öndvegi og látum ekki
reglustrikuna eöa stlfar skipu-
lagskenningar ráöa feröinni.’2_ jg
/ /
AsS’T U M
Rætt viö arkitektana Árna Friðriksson, Knút Jeppesen og Pál Gunnlaugsson sem hlutu
r •
1. verðlaun fyrir tillögu að íbúðabyggð og skipulagi Aslands í Kópavogi
Sérþekking
okkar er
lítið notuð
varöandi val á gluggatjöldum,
áklæöum og gólfteppum
Það þótti vel við hæfi að hafa hér i húsablaði við-
tal við textilhönnuð, þar sem þeir færast nú mjög i
aukana, s.s. Galleri Langbrók og hið ört vaxandi
Textilfélag.
Blaðið hafði samband við formann félagsins, Ás-
rúnu Kristjánsdóttir, hún er kennari við mynd- og
handmenntadeild Fjölbrautaskólann i Breiðholti,
og var einn af stofnendum Galleri Sólon íslandus og
Galleri Langbrók.
Ásrún hefur meðal annars gert gluggatjöld fyrir
Liknarhúsið svonefnda i Arbæjarsafni, sem nú er
skrifstofa safnsins!
Ég spurði Ásrúnu hvernig þvi verki hafi verið
háttað.
„Nanna Hermannsdóttir sá
eftir mig þrykkt efni I Galleri
Langbrók og vildi fá mig til aö
þrykkja gluggatjöld fyrir húsiö.
Ég fór og skoðaöi húsið sem var
sérlega skemmtilega uppgert og
mjög til alls vandaö. Ég byrjaöi á
þvl aö mæla upp alla glugga sem
voru af ýmsum gerðum og skrifa
niöur hjá mér litasamsetningu i
hverju herbergi fyrir sig. Ég
valdi tvö hliöstæö munstur og
haföi annaö á neöri hæöinni og
hitt á efri hæöinni. Síöan þrykkti
ég gluggatjöldin i litum sem áttu
viö hvert herbergi fyrir sig. Þetta
var mjög skemmtilegt verkefni
fyrir textilhönnuö.
En umfang svona verks er þó
svo mikiö, aö aðstaöa min i dag er
ekki nógu góö til aö ég treysti mér
til að taka mikiö af svona verk-
efnum aö mér. Viö sem erum i
Gallerl Langbrók höfum allar
skapaö okkur sæmilega aöstööu
hver I sinu lagi en draumurinn er
þó að koma upp stóru sameigin-
legu tauþrykkverkstæöi, þar sem
allir sem fást viö þrykk gætu haft
aögang aö.
Þá gætum viö sameiginlega
keypt okkur þau ýmsu tæki sem
til þarf. Fullkomiö verkstæöi gæti
annað stórum verkefnum og ein-
faldaö alla vinnuframkvæmd og
jafnvel lækkaö kostnaö.
Við textllhönnuöir höfum fullan
hug á og höfum gert tilraun til aö
kynna innanhúsarkitektum okkar
verksviö i von um að þeir not-
færöu sér okkar sérþekkingu. Þvi
miöur hefur ennþá litiö veriö um
slika samvinnu aö ræöa. Þaö ætti
aö hafa okkur með i ráöum t.d.
þegar velja á giuggatjöld, áklæöi
og gólfteppi I ýmiss konar opin-
berar byggingar.
Textilhönnuöir hafa sérþekk-
ingu á efni og eiga þannig auövelt
meö aö finna út hvaöa tegund
textils hæfir hverju sinni. Textil-
menntun er mjög yfirgripsmikil
s.s. listvefnaður, almennur vefn-
aöur, hand og verksmiðjuunnið
þrykk, fatahönnun, prjón, hekl og
saumur og er mismunandi hvað
hver og einn hefur valiö sér sem
aöalgrein.
1 öllu þvi flóöi teppa, áklæöa og
gluggatjalda sem streymir inn I
landiö er mikilvægt aö hafa sér-
þekkingu viö val á sliku. Þá má
vekja athygli á þeirri gömlu
minnimáttarkennd Islendinga aö
halda aö allt sé betra sem kemur
frá útlöndum, þegar eitthvert
besta efni sem völ er á fyrir
textfliönað er Islenska ullin.
Rætt viö Ásrúnu
Kristjánsdóttur
textílhönnuö
Allar þær tilraunir sem geröar
hafa verið til þess að vinna ullina
á þann hátt aö gera hana sam-
keppnisfæra hafa koðnaö niöur
vegna þess aö stjórnvöld hafa
ekki stutt þær nógu markvisst.
Þvi vissulega þurfum viö vélar til
þess að ná út úr ullinni öllum
þeim eiginleikum sem hún býr
yfir.
Ég tel ástæöuna fyrir þvi, aö
fólk er svo fálmandi þegar þaö
stendur frammi fyrir vali á ein-
hverri vöru þá.að þarna er gat i
skólakerfinu, verkmenntun hefur
veriö forsmáö á tslandi frá þvi aö
baöstofulifiö leið undir lok.
Mér er óskiljanlegt hvernig
hægt er aö sleppa svo veigamiklu
atriöi — sem þekking á sinu nán-
asta umhverfi er.
Þaö er ekki fyrr en verkmennt-
un er oröin stór þáttur I námi
allra unglinga I landinu, sem von
er til þess aö þau kunni aö meta
góöa hönnun og rækta og taka
þátt I aö móta umhverfi sitt.
S.J.