Þjóðviljinn - 09.10.1980, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. október 1980
Fimmtudagur 9. oktdber 1980 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
ÖRTÖLVU-
BYLTINGIN
3hefti m m
"" Rccur
ÖRTÖLUU
BVLTinein
Réttur jjallar um
afleiðingar hennar
og viðfangsefni
verkalýðshreyfing-
arinnar á næstu
20 árum
Þættir úr sögu rafeindatækn-
innar . Lampar og viðnám voru
mikiivægustu hlutar rafeinda-
tækja fram til 1960. Laust fyrir
1960 fóru smárarnir að leysa
lampana af hólmi. 1963 komu
fyrstu samrásirnar á markaðinn.
Samrásirnar frá 1980 leysa verk-
efni, þar sem áður heföi þurft
þúsundir, jafnvel tugþúsundir,
lampa og viðnáma.
Timaritið „Réttur” fjallar i ný-
útkomnu hefti (3. 1980) um ör-
tölvubyltinguna, undir yfirskrift-
inni Gullöld fristunda eða óöld at-
vinnuleysis?
1 heftinu er framar venju
fjallaö um framtiðarviðhorf og
viðfangsefni verkalýðshreyf-
ingarinnar á næstu 20 árum, —
um „Þriðju iðnbyltinguna”, sem
þegar er kölluð svo — um ger-
breytingu þá sem örtölvan mun
valda i þjóðlifinu. Birtist i Rétti
bæði visindaleg skýring á fyrir-
brigði þessu og umfjöllun um
þjóðféiagslegar afleiðingar þess.
Páll Theódórsson eðlis-
fræðingur skrifar i Rétt itarlega
grein um örtölvutæknina, þróun
hennar, verksviö og möguleika.
Þar segir i upphafi að örtölvan sé
rafeindarás i örlitilli kisilsneið,
sem er á stærð við stórt O. Hún
getur leyst svo flókin og marg-
breytileg verkefni að þvi er spáð
að hún muni valda byltingar-
kenndum breytingum hjá tækni-
væddum þjóðum. t inngangi lýsir
Páll nokkuð þróun i gerö sam-
rása, en að öðru leyti gefa kafla-
heiti nokkra hugmynd um við-
fangsefni þessarar merku
greinar: Vélbyltingin og örtölv-
urnar, örtölvan og fylgirásir
hennar, örtölvukerfi, örtöivu-
tæknin I fslensku þjóðlifi og ör-
tölvan og einstaklingurinn.
„Gullöld fristundanna” er yfir-
skrift bókarkafla eftir André
Gorz, sem birtur er i Rétti. André
Gorz er kunnur rithöfundur um
þjóðfélagsmál, austurriskur að
ætterni en nú franskur rikis-
borgari. Hann hefur ritað bók
sem út kom hjá franska útgáfu-
félaginu Editions galiée á þessu
ári. Fjallar hún um „Þriöju iðn-
byltinguna”, gerbreytingu þá er
örtölvan veldur á atvinnu- og
þjóðlifi og nefnist bókin á frönsk-
unni „Adieu au proletariat”
(öreigalýðurinn kvaddur).
André Gorz lýsir afleiðingum
þessarar „þriðju iðnbyltingar”
(gufuaflið gerði þá fyrstu, raf-
magnið næstu). Að mati Gorz
krefst sú umbylting þjóðfélags-
ins, sem af örtölvutækninni leiðir,
nýsköpunar pólitisks hugmynda-
heims, máske djúptækari og rótt-
ækari en flestir vinstrimenn hafa
hugsað sér. Gorz lýsir framtiðar-
viðhorfum sliks róttæks endur-
mats í þjóðfélagsmálum.
Sá kafli bókar hans, sem sér-
staklega fjallar um afleiöingar
„þriðju iðnbyltingarinnar” birtist
i Rétti nokkuð styttur i þýðingu
Hauks Helgasonar hagfræðings
ogber heitiö „Gullöld fritimans”.
„Það er rétt að undirstrika” —
segir i inngangi aö bókarkafl-
anum frá ritstjóra' Réttar —
„ekki síst meö tilliti til þess aö i
helstu iönvæddu auðvalds-
löndunum eru nú meir en 17 milj-
ónir manna atvinnulausar, að nú
er aðeins um tvo kosti að velja:
Ef auðvaldiö fær áfram að ráða
skapar örtölvubyltingin þvi til
handa „gullöld atvinnuleysisins”.
Ef vinnandi stéttir handa og heila
hins vegar skilja sinn vitjunar-
tima og taka til sin völdin i þjóð-
félaginu, leggja þær meö örtölvu-
byltingunni grundvöll að „gullöld
fristunda og frelsis af þræidómi”.
1 Rétti eru einnig greinar
tengdar meginefninu um
nýsköpun islensks þjóðfélags á
næstu 20 árum á grundvelli ör-
tölvubyltingarinnar, og draum-
sjón Karls Marx.
Meðal annars efnis i Rétti er
kvæði eftir Vitu Anderson i þýð-
ingu Ninu Bjarkar Arnadóttur,
tvö ljóð eftir Eyvind Eiriksson,
ljóö af Norðurhara, umfjöllun um
forsetakosningarnar, innlend og
erlend viðsjá o.fl.
Ritsjóri Réttar er Einar
Olgeirsson. —ekh
Lystræning j ar
róa á lostamið
liystræninginn/ bók-
menntarit og djassrit með
meiru, hefur nú komið út í
méira en fjögur ár. Sext-
ánda hefti hans flytur
meðal annars viðtal við
danska kontrabassa-
snillinginn Niels-Henning,
sögur eftir Aðalstein Ás-
berg Sigurðsson, Þorstein
Antonsson og Allan Sillitoe
ogi grein eftir Sigurgeir
Þorgrímsson um kenn-
ingar Einars Pálssonar.
Auk þess Ijóð eftir mörg
urjg skáld, jjekkt, pínulítið
þekkt og áður óþekkt.
Lystræningjar hafa staðið I
bókaútgáfu og nú hafa þeir byrjaö
aðgefa út flokk ritlinga sem heita
„Lostafulli ræninginn” sem á að
flytja kynlifsbókmenntir. Gunnar
Gunnarsson skrifar um fyrstu
kynlifsreynsluna og Henry Miller
sömuleiðis. Lostasögur eru birtar,
nokkuö hlálegar sumar úr Þús-
und og einni nótt, sem er I reynd
hvergi nærri eins saklaust rit og
flestir halda. Sigurður Jóhanns-
scp skrifar í ritiö reynslusögu.
Einnig er birt unaöarsaga eftir
Anais Nin, sem fræg er fyrir dag-
bafekur sinar.
Á frum-
sýriingu í
Hólabrekku
skóla
Það er ekki á hverjum
degi sem skólabörnin fá
aðhorfaá lifandi leikhús,
enda fylgdust sum með
af alvöruþunga.
bak við og i textanum er farið
með visur.
Það er ekki i verkahring blaða-
manns að fella dóma, en undir-
rituð skemmti sér hiö besta.
Þetta framtak Leikfélagsins
nýtur styrks frá Reykjavikurborg
og auðvitað er verið að hugsa um
það að skemmta börnunum og að
ala upp nýja kynslóð leikhúsunn-
enda.
— ká
Krakkarnir fylgdust spennt með rás viöburða og létu ýmsar athugasemdir fjúka.
Skinnasalinn vondi og Hlynur hittast I skóginum.
Yngstu krakkarnir í
Hólabrekkuskóla voru í
gær viðstödd frumsýningu
á barnaleikritinu „Hlynur
og svanurinn á Heljar-
fljóti" eftir Christina
Andersson sem Leikfélag
Reykjavíkur ætlar að sýna
i grunnskólum borgarinnar
á næstunni. Þarna er um
nýjung að ræða í starfsemi
Leikfélagsins og það er
ekki á hverjum degi sem
skólabörnum borgarinnar
býðst að horfa á ævintýri
frá fjarlægum slóðum.
Salurinn i skólanum var fullur
af börnum sem tóku virkan þátt i
sýningunni með þvi að benda per-
sónunum á að láta nú ekki plata
sig og þau sögðu þeim óspart
hvert aðrar persónur hefðu farið.
Leikurinn fjallar um strák sem
lendir i klónum á vondum karli
sem vill hann feigan og leggur
fyrir hann mikla þraut, að ná i
fjöður af svaninum á Heljarfljóti.
Þó að mennirnir séu vondir á
stundum, þá reynast dýrin vel og
þau koma stráknum óspart til
hjálpar. Mikla kátinu vakti viður-
eign Hlyns við risa nokkurn, en
það má auðvitað alls ekki segja
hvernig Hlyni tókst að sleppa frá
honum.
Það varð ekki annað séð en að
krakkarnir skemmtu sér hiö
besta, aö visu rak forvitnin þau
oft á fætur til að sjá betur og einn
litiil strákur sem sat framan við
blaðamann sagði i kvörtunartón:
„þessir litlu krakkar skilja ekki
neitt. Þetta er sko ævintýri”.
I sýnmgunni er ljósum beitt á
skemmtilegan hátt og þau varpa
ævintýrablæ á sviöið, allt eftir þvi
hvort við sjáum djúpt inn i skóg-
inn, eöa stöndum á bökkum
Heljarfljóts. Tónlist hljómar á
á dagskrá
Vilji Alþingi reka slyðruorðið af
r
Islendingum er ekki seinna vœnna
að auka fjárframlög til
þróunaraðstoðar
Björn Þorsteinsson,
skólafulltrúi:
Enn um
Sfðasti áratugur hefur í æ rfkari
mæli en timabilin á undan ein-
kennst af harðnandi deilum á
alþjóðavettvangi milli iönrikja
vesturlanda og þróunarlanna —
þriöja heimsins.
Þessar deilur hafa m.a. snúist
um þá kröfu þróunarlandanna aö
fá meiri hlutdeild eða stærri hluta
af heimskökunni ef svo má aö orði
komast. Það hefur eflaust ekki
farið fram hjá neinum sem á
annað borð fylgist eitthvaö meö
að minni hluti ibúa heimsins,
ibúar vesturlanda, hafa lifað I vel-
lystingum praktuglega miðað við
meiri hluta heimsins, ibúa
þróunarlandanna.
Það þarf vart að tiunda það hér
aö ibúar þróunarlandanna, 70%
mannkynsins, lifir við bág kjörað
ekki sé meira sagt. Ótaldar
miljónir þjást af hungri og van-
næringu, miljónir manna ganga
atvinnulausar, aðrar miljónir eru
ólæsar og alls kyns sjúkdómar
hrjá miljónir. En þrátt fyrir þess-
ar óhugnanlegu tölur virðist litið
hafa þokast á betri veg. Og það
sem verra er, við Ibúar Vestur-
landa viröumst vera orðnir
ónæmir fyrir þessum staðreynd-
um. Alla vega virðist bilið milli
hins rika minni hluta og hins
fátæka meiri hluta fremur
breikka heldur en hitt.
Ein af kröfum þróunarland-
anna hefur verið aukin þróunar-
aðstoð frá iðnrikjunum til að
byggja upp og auka möguleika
ibúa þróunarlandanna til að geta
séö sér og sinum farborða sóma-
samlega.
Siendurteknar samþykktir S.Þ.
erlendar
bækur
Conrad Ferdinand
Meyer:
SUmtloche Werke.
Band 1-11. Deutscher Taschen-
buch Verlag 1976.
dtv hefur gefið út I dtv
bibliothek talsvert af verkum
sigildra þýskra höfunda, þ.e.
höfunda sem teljast til þýsks
menningarsvæðis. Meöal þeirra
eru verk Conrads Ferdinands
Meyers, bæöi i lausu og bundnu
máli. Meyer var meðal fyrstu
þýsku skáldsagna sem notaði sér
tækni symbolistanna, sbr. kvæði
hans, sem hér birtast. Hann er
einnig kunnur fyrir bailöður
sinar, en efniö sótti hann gjarnan
til atburða iiðinna alda. Sögur
hans eru margar sögulegar
skáldsögur, efniö einkum sótt I
atburöi endurreisnartimabilsins.
Margar sögur hans viröast vera
raunsæjar, en oft er inntak þeirra
háspekilegt.
Þessi útgáfa verka Meyers er
endurprentun Winklers-útgáf-
unnar, smekkleg og vönduð.
Erwin Laaths skrifar eftirmdla.
The Portable
Oscar Wilde.
Selected and Edited by Richard
Aldington. Penguin Bokks 1979.
þróunaraðstoð
aö iðnrikin láti ákveðna prósentu
af þjóöartekjum sinum (nú 0.7%)
renna til þróunaraðstoöar viröast
litt hafa stoðað. Þó hafa nokkur
riki hlýtt þessu kalli og eru
Noröurlöndin, aðallega Sviþjóð,
Noregur og Danmörk,þar fremst i
flokki, en aðstoö þessara landa
hefur undanfarið numið frá
0.7%—1.0% af þjóðartekjunum.
Islendingar sem teljast til hins
rika minni hluta hafa aftur á móti
ekki staðið sig jafn vel. Þróunar-
aðstoð okkar hefur undanfariö
numið um 0.05—0.06% af þjóð-
artekjunum. Viö eigum þvi langt i
land i þessum efnum.
Island hefur eins og mörg önnur
riki komið á fót stofnun með lög-
um sem er ætlað aö sjá um og
skipuleggja þróunaraöstoð.
Lögin um Aðstoð Islands við
þróunarlöndin voru sett vorið 1971
og er stofnunin þvi rúmlega 9 ára.
Það hefur veriö tiundað áður aö
þessi stofnun hefur þrátt fyrir stoö
ilögum átt ærið erfitt uppdráttar.
Fjárframlög hafa alla tið verið af
skornum skammti og þvi ekki aö
vænta að hún gæti sinnt hlutverki
sinu eins og til hefur verið ætlast.
Nú þegar Alþingi Islendinga
kemur saman verður aö vona að
lögð verði fyrir það breyting á
lögum um Aöstoö tslands við
þróunarlöndin, sem stjórn stofn-
unarinnar gerði tillögur um til
utanrikisráðuneytisins fyrir sið-
asta þing.
Með þessum breytingum á lög-
um um Aðstoðina er ætlunin að
gera hana betur i stakk búna til
að sinna þeim verkefnum sem
lögin ætlast til. Aftur á móti verö-
ur aö segja hverja sögu eins og
hún er. Ef áhugi háttvirtra
alþingismanna á málefnum
þróunarlandanna er sá sami nú
og verið hefur undanfarin ár er
ekki aö vænta skjótrar afgreiðslu
á þessu máli. Þvi miður er það
svo að sum mál sem fyrir alþingi
koma daga þar uppi og/eða eru
aö velkjast i þinginu ár eftir ár.
Fari svo að ekki verði gerð breyt-
ing á lögunum um Aðstoö tslands
við þróunarlöndin á þinginu sem
nú er að hef jast er full ástæða til
að ihuga hvort ekki eigi að leggja
stofnunina niöur. Það hlýtur öll-
um að vera ljóst að enginn til-
gangur er i aö setja lög sem
hvorki er hægt aö framfylgja né
vilji er fyrir að framfylgja. Slik
lagasetning á i rauninni engan
rétt á sér.
Annað atriöi hefur lika staöið
Aöstoð Islands við þróunarlöndin
fyrir þrifum, en það eru fjármál-
in. Alþingi veitir stofnuninni fé á
fjárlögum hvert ár. Ennþá hefur
það fjárframlag ekki verið meira
en svo að rétt hefur nægt til aö
standa viö þær skuldbindinar,
sem tsland hefur gefiö um þróun-
araðstoö annars vegar i Austur-
Afriku og hins vegar á Cap-Verde
eyjum.
Vilji Alþingi reka slyðruorðið af
Islendingum er ekki seinna
vænna að auka fjárframlög til
þróunaraðstoðar það myndarlega
að öllum sé ljóst aö vilji sé fyrir
hendi til að nálgast það mark,
sem Sameinuöu þjóðirnar hafa
samþykkt að hinar rikari þjóðir
láti af hendi til þróunaraöstoðar.
Björn Þorsteinsson
Oscar Wilde
Endurprentun úr Viking Porta-
ble Library. Otgefandinn var
kunnur sem skáld fyrir og eftir
fyrri heimsstyrjöldina sem fram-
úrstefnumaður meöal skáida.
Hann hefur skrifað nokkrar ævi-
sögur,sem hafa verið umdeildar,
m.a. „Wellington...” og
„Lawrence of Arabia”.
Oscar Wilde er sá enskra
höfunda, sem allir kannast við,
ekki sist vegna örlaga hans. Fáir
hafa oröiö að kenna jafn
grimmdariega á enskum smá-
borgarahætti og hræsni og þessi
snilldarpenni. Leikrit hans eru
leikin og þótt öld sé liöin þá eiga
þau fullt erindi til nútima manna.
Þessar Viking útgáfur frá
Penguin eru það viöamiklar aö
verk höfundanna, sem þar eru
birt, eru mun meira en úrdráttur
úr verkum þeirra, flestra.
Alfred Kubin
Zeichner, Schriftsteller und
Philosoph. Hans Bisanz. Mit 64
Tafeln und 20 Abbildungen in
Text. Deutscher Taschenbuch
Verlag 1980.
dtv er nú að gefa út ýmsar þær
bækur sem Kubin hefur mynd-
skreytt og þvi er þessi stúdia um
Kubin og verk hans gefin út.
Höfundurinn, sem starfar 1
Vinarborg sem safnvörður
skrifar hér um ævi Kubins og
fjallar jafnframt um verk hans,
gott safn mynda er prentað sér og
einnig i texta.
Kubin sá umhverfið á sinn sér-
staka hátt og tjáði það öðruvisi en
aðrir; hann er mjög sérstæöur
sem myndlistarmaður og still
hans i myndskreytingu ýmissa
bókmenntaverka á sér engar
hliðstæðurhvað varðar frumleika
ogsanna tjáningu efnisins. Kubin
fæddist 1877 og lést 1959. Hann
stundaöi nám I listum i Salzburg
og Múnchen. Feröaðist um Sviss,
Frakkland og ttaliu og bjó lengst
af á landsetrinu Zwickledt. Verk
hans eru lifandi af fantasiu-, oft er
heimsmynd hans fremur dökk, en
þaö er þó fjarri þvi aö vera ein-
kenni listar hans, aö dómi
höfundar. tmyndunarafl hansvar
með eindæmum frjótt og innlifun
hans i þau verk sem hann mynd-
skreytti er slik, að manni finnst
eitthvaö vanta ef þau fylgja ekki
textanum.
Þessi galdramaður snjallrar
myndskreytingar skrifaði einnig
symbólska skáldsögu „Die
andere Seite” sem kom fyrst út
1909; eftir hann liggja einnig
önnur rit. Hugrenningar hans um
manninn og tilveruna eru frum-
legar eins og öll verk hans. Nýrri
rit myndskreytt af Kubin I flokki
rita dtv útgáfunnar bibliothek
Kubin eru: Hans Christian
Andersen: Drei MUrchen. Die
Nachtigali — Die kleine
Meerjungfrau— Der Wander-
gefahrte. Mit 32 Zeichnungen von
Alfred Kubin. Gérard de Nerval:
Aurelia oder Der Traum und das
Leben. Mit 57 Zeichnungen von
Alfred Kubin. Báðar þessar
bækur komu út i október 1979.