Þjóðviljinn - 09.10.1980, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 09.10.1980, Blaðsíða 10
10 SIDA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. október 1980 Keflavík — skrifstofustarf Laust er starf ritara i hálfu starfi frá og með 20. október n.k. (afleysingarstarf, en hugsanlegt að um framtiðastarf verði að ræða). Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf óskast sendar undirrituðum fyrir 15. október n.k.. Bæjarfógetinn i Keflavik, Njarðvik og Grindavik. Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu, Vatnsnesvegi 33, Keflavik. Starfsfólk banka og sparisjóða Allsherjaratkvæðagreiðsla vegna ný- gerðra kjarasamninga fer fram á vinnu- stöðum dagana 14. og 15. okt. n.k.. Fundir til kynningar á samningunum verða sem hér segir: Fimmtudagur 9. október: Hótel Stykkishólmur kl. 20.00 fyrir Snæ- fellsnes og Búðardal. Fimmtudagur 9. október: 1 sal Landsbanka íslands á Selfossi kl. 20.00 fyrir Suðurland. Föstudagur 10. október: 1 Sjómannastofunni á ísafirði kl. 18.00 fyr- ir Vestfirði Laugardagur 11. október: 1 sal Landsbanka íslands á Akureyri kl. 14.00 fyrir Norðurland. Laugardagur 11. október: í sal verkalýðsfélaganna að Hafnargötu 80 , Keflavik kl. 14.00 fyrir Suðurnes. Sunnudagur 12. október: 1 Valaskjálf á Egilsstöðum kl. 15.00 fyrir Austurland Sunnudagur 12. október: í sal Landsbankans á Akranesi kl. 14.30 fyrir Akranes og Borgarnes. Félagar f jölmennið á fundina og takið þátt í atkvæðagreiðslunni. Samband íslenskra bankamanna. Geðhjálp Aðalfundur Geðhjálpar verður haldinn i kvöld 9. okt. kl. 20.30 i nýju geðdeildinni á Landspítalalóðinni. Hjartans þakkir færum viö öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og samúö viö andlát og útför elskulegs eigin- manns, fööur, tengdafööur og afa, Magnúsar Jónssonar fyrrverandi tollvaröar Stórholti 14. Eva Svanlaugsdóttir Svanlaugur Magnússon Ragnheiöur Magnúsdóttir Friögeir Hallgrlmsson Eva Friögeirsdóttir Hailgrlmur Friögeirsson Sesselja Friögeirsdóttir Marteinn M. Skaftfells Er þetta hægt? Þannig er oft spurt, þegar eitthvað er gert, sem ekki er unnt að finna neina afsökun eöa rök. Eitthvaö mjög fráleitt. Þessi spurning á vel við alla af- stöðu, baráttu og banntilraunir lyfjavaldsins gegn innflutningi og sölu vitamina, utan apoteka. Þaö nálgast nú 30 ár, slöan apotekarar geröu fyrstu tilraun- ina til að banna vitamin — nema — i apótekum. Þeir vildu helga sér einokunarrétt á sölu þeirra. Og rökin voru þau, að efni þeirra væru á lyfjaskrá. En meö þeim rökum gátu þeir alveg eins heimtaö einkasölu á t.d. kjöti og fiski. Og gulls ígildi hefði þaö veriö að helga sér vatnið þar sem það er á lyfjaskrá. En ekki mun þetta hafa vakaö fyrir Hippo- kratesi, fööur læknisfræðinnar, er hann sagði, aö lyfin ættu aö vera okkar fæöa, og fæöan okkur lyf, heldur það, að fæöan ætti að innihalda nauösynleg næringar- efni til heilbrigði. Hann skildi, fyrir um 2400 árum siðan, þaö sem þeir, er skipu- leggja nám lækna, — væntanlega leiöandi læknar — skilja ekki enn i dag. Ella væri næringarfræöin meöal höfuögreina læknis- fræöinnar, en ekki hornreka. Og ekki skipar hún hærri sess I námi lyfjafræðinga. Afskipti leiöandi manna, beggja þessara stétta, af vitaminum og steinefnum, lífs- nauðsynlegum næringarþáttum, eru þvi næsta furöuleg. Þekking eda blekking? Blygöunarlaust hefur þvi verið haldiö fram, að þessi næringar- efni séu lyf, sem eigi ekki heima utan apoteka. Og tilraun eftir til- raun veriö gerö til aö banna þau utan aþoteka. 1 apotekið átti húsmóðirnin aö sækja þessa lifs- nauösynlegu næringarþætti, handa fjölskyldunni, — eöa vera án þeirra. Og af þvi heföi leitt, fleiri erindi i apotekiö eftír lyfj- um. I staö spurningar um þekkingu eöa blekkingu, mátti eins segja: „Blásið á staöreyndir”, þvi aö bannstefnumönnum er vel kunnugt, aö lyf eru efni, sem ÆTLUÐ eru til lækninga, osfrv. En þau vitamin, sem þeir kappkosta að BANNA, eru framleidd og se!d sem fæöubóta- efni, til aö mæta þeirri staöreynd, að þau vantar að meira eða minna leyti i dagiega fæðu. Og af þeirri vöntun leiöir, að áöur en við vitum af, eru mörg okkar kominn inn i vitahring vanheilsu — og lyfja sem oftar en ekki auka kvillasemina, i stað þess að lækna. Visindi eda skottuvisindi? (Sbr. skottulækningar) Er nyju lyfjalögin tóku gildi, 1. jan. 1979, var fjöldi fæðubótaefna GERÐUR aö lyfjum, og færöur apotekurum aö gjöf. En þeir þáöu ekki gjöfina. Enda aldrei haft áhuga fyrir náttúrlegum efnum, — n e m a til aö BANNA þau. — Ekki þó allir. Innflutningur á miklum fjölda teg. var bannaöur, en leyft, utan apoteka, það sem var innan svo- kallaðra dagskammta-marka. Lögin veittu, I rikum mæli, geöþóttavald til að banna. Og listinn yfir banntegundirnar tek- ur af allan vafa um, hvernig þvi valdi hefur veriö beitt. Aö bannlistanum standa æðstu menn lyfjamáia. — Hann ætti þvi að hafa vísindalegt yfirbragð. En hann vitnar um svo óvisinda- leg og handahófsleg vinnubrögð, aö halda mætti, að skopisti eins og Flosi ólafsson heföi tekiö hann saman til að henda gaman aö mótsagnakenndri baráttu lvfjavaldsins gegn náttúrlegum vitaminum. Og raunar ste/nefn- um lika, sem, eins og vitaminin, eru hverju mannsbar/ii nauðsyn- leg. I lögunum er ekki minnst á steinefni. En samt bönnuöu þeir nýlega bæöi „Minalka” og „Scanalka”, vegna þess, aö i þeim er „kóbolt”, snefilefni, sem bannendur viðurkenna, aö sé öll- um nauðsyn. Svo og, aö þaö sé innan hættumarka. Hvemig vilt þú svo, lesandi góöur, ráöa þessa banngátu? Báöar teg. bannaöar, vegna þess aö i þeim er hollefnið „kóbolt”. Ég þykist vita, að þú strandir. Entaktu þaö ekki nærri þér. Eng- um hefur tekist að ráöa gátuna. Enda veröur hún ekki ráöin með beitingu skynsemi. Ráðningin er nefnilega óralangt utan marka skynsemi. — Mér var sögö lausn- in: Kóbolt er reseptskylt. Á svona einfaldan hátt geta þeir, sem fara meö lyfjavaldiö, beitt reseptinu bæöi til aö ávisa lyfjum, og til að BANNFÆRA hollefni. A þennan snotra hátt var „CardaetUr” og „Gerogin” o.fl. bannað. „Cardartár” og „Gerogin” Báðar teg. höfðu veriö fluttar inn I mörg ár, en eru nú bannaðar vegna vissra B-vitamina, inositol og niasin, sem gerö hafa verið reseptskyld. I blaði Heiisuhringsins: „Hollefni og heilsurækt”, 2 tbl. 1979, segir Ingibjörg Danieisd. frá reynslu af „CardartSr”. Hún sagöi: „Ég hafði veriö meö þrautir I öxl vegna bólgu I liðpoka ogslits i liðnum. Og haföi gengið I sprautur og gert æfingar... En samt leiö mér óþægilega i öxl- inni... Ég þekkti tvo menn, sem þjáðust af kölkun i mjöðmum, og áttu erfitt með svefn, vegna þrauta, þrátt fyrir stöðuga notkun „Indocid”. Einhver benti þeim á „CardartSr”, sem stórbætti liðan þeirra... Ég reyndi töflurnar. Og eftir 3—4 vikur var heilsan oröin önnur og betri. Fann sjaldan til i öxlinni. Tök þó aðeins 6 töflur á dag, I stað 9 sem ráölagt er i leiöarvisi.” En nú er henni, þeim og öðrum, bannaðaðlina þjáningar og bæta heilsu sina, meö Cardartár. Hér er um alvarlega misbeitingu valds og brot á mannréttindum aö ræöa. Og dæmin eru mörg. I,,Cardartar”eru80mg niasin, og lOmginositol. „GEROGIN” er vaxiö upp úr rannsóknum viö sænska háskóla á öldrun. Og frumkvæöið átti framleiðandi beggja þessara teg. Ahugamaöur um heilsurækt, eftir náttúrlegum leiðum, I samvinnu viö visinda- menn. Athyglisvert er að bæði inositol og niasin eru notuö og ráðlögð I hunuraða mg skömmtum, af læknum og visindamönnum, en hér gerð reseptskyld, „óháð magni”. Hér er ekki rúm dæma, þvi aö greinin y röi þá of löng. En ég mun i annarri grein geta dæma og heimilda. En hvaö i ósköpunum veldur þvi, aöhér eru þessi vitamin gerð reseptskyld, „ÓHÁÐ MAGNI”? Sem sagt i hversu litlu magni sem er. En það bendir til, aö þau hljóti að vera stórhættuleg. En hver er hættan? Og hvers vegna er hún ekki skýrð og fólk varað við henni? Séu þessi efni numin úr töflun- um, þá má flytja þær inn og selja. Telja bannfærendur þessara efna það æskilegt? Hvers vegna leyfir sænska heilbrigðisvaldið þessa „skað- legu” framleiöslu, og aðrar þjóöir innflutning þeirra og sölu? Stafar það af fávisi eða hirðuleysi, eða hvoru tveggja? Er sú ástæðan, að það vekur undrun erlendis, þegar spurt er, hvort ofangreind efni séu resept- skyld, og tegundirnar bannaöar? Eða þegar spurt er, hvort vitaminpappira þurfi að stimpla i lyfjaeftirliti til að fá þá afgreidda i tolli? Þaö er horft á mann spyrjandi augum, þvi aö menn eiga erfiti með aö trúa, aö i alvöru sé spurt. Þaö er þvi miöur margföld ástæöa til að spyrja, hvort bann- stefnan hvili á visindum — eða skottuvisindum? Marteinn M. Skaftfells Félag starfs- fólks í veit- ingahúsum 5 OOO &> W hefur ákveðið að viðhafa allsherjar- atkvæðagreiðslu við kjör fulltrúa á 34. þing Alþýðusambandsins. Kjósa skal 6 fulltrúa og 6 til vara. Tillögum skal skila á skrifstofu félagsins Hverfisgötu 42 fyrir kl. 12 laugardaginn 11. október ásamt 65 meðmælendum. Stjórnin Deildarstjóri óskast nú þegar Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri i sima 95-5270. Sjúkrahús Skagfirðinga Sauðárkróki

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.