Þjóðviljinn - 23.12.1980, Page 4
4 SIPA — Jélablað Þjóftviljans
Hallmundur Kristinsson:
Einn lítill
* .
(Má syngja viö eitt ágætt lag, alþekkt á meöal hernámsand-
stæöinga, ef Böðvar lcyfir).
Illt er i heiminum ástand um jólin.
Já, allir i frii og lokaður skóiinn.
Þótt uppi á himninum hækki þá sólin
og hempuklædd mannvera stigi i stólinn.
Helgast allt heims um bólin.
Við prédikun sina er presturinn natinn,
Og prangarinn iðinn að seljá okkur matinn.
En verkalýðsbaráttuverðbólguhvatinn
i vestræna hagkerfið alltaf mun ratá inn.
Hverfur efnahagsbatinn.
í búðunum okkar er vandi að velja
úr vamingi þeim sem oss þörf er að selja.
Við kassana langdvölum kúnnamir dvelja
og kaupmannagreyjunum aurana telja.
Þvilikt ótrúleg elja.
Og úti i heimi þeir enn enfað striða.
Þar enn þurfa f jölmargir brauðskort að liða.
Við ótta og þjáning og angist og kviða
og ömurleg lifskjör menn búa svo viða.
Hægan bana svo biða.
Það segja svo margir að frelsarans fæðing
hún friðinn oss gefi og sáranna græðing.
Ó, helgaðu drottinn vorn hátiðarsnæðing
með hernaðarbúnað og vigvélavæðing,
nýjan stjórnmálafræðing.
Við hengjum i stofurnar grænustu greinar.
Það grenja yfir krökkunum rauðklæddir
sveinar.
En veit nokkur lengur hvað maðurinn rpeinar
sem mæddur á krossinum hangir og veinar?
Trú, von, stokkar og steinar.
Gleðileg j ól
Páll horfir á 23ja desember
brenna upp á jtíladagatals-
kertinu. Hann situr i stól meö
kisu slna i fanginu. Hann strýkur
Mjásu og talar viö hana i hálfum
hljóöum: „Sjáöu, Mjása min,
dagurinn i dag, þorláksmessu-
dagur er aö veröa búinn og á
morgun kveikjum viö i siðasta
sinn á þessu kerti, þvi þá er
aöfangadagur jóla”.
Mjása malar ánægjulega i
fanginu á Páli. HUn veit ekkert
um hvaöhann er aö tala, enhenni
llöur vel þvl Páli liöur vel. Veik
flöktandi birtan frá kertinu er hlý
og notaleg. Úti er snjókoma en
logn. Fannhvit l'ogndrifan situr á
trjánum og gluggarúöunum.
Mamma tekur undir jölalögin,
sem hljóma Ur útvarpinu. Hún er
aö ljUka viö jólabaksturinn og
smákökuilmurinn leikur um allt.
Pabbi er ókominn heim, en von
er á honum úr vinnunni á hverri
stundu.
Páll er einkabarn og nýorðinn
10 ára. Honum finnst þessi stund
vera hámark ánægjunnar fyrir
jólin. Bráðum kemur pabbi og
þeir fara saman að kaupa jólatré.
Þannig hefur það veriö frá þvi
hann man eftir sér og þá finnst
honum jólin vera byrjuð- Allt er
svo friðsælt, hlýtt og ilmandi á
heimilinu og um Pál liður
hamingjukennd öryggis og friðar.
Hann strýkur Mjásu, en talar
ekki lengur við hana. Orð eru
óþörf, en augu Páls glampa af
hamingjurikri gleði.
Nú hringir siminn.
Páll heyrir að mamma svarar
glaðlega : Halló —siðan löng þögn
ogloks hár skellureins og simtól-
inu hafi verið skellt á i reiði.
Mamma kemur aftur inn i eldhús.
Hún slekkur á útvarpinu, tekur
plötu úr bakarofninum og skellir
ofnhuröinni aftur með miklum lát-
um. Páll fer meö hálfum huga til
hennar og spyr: „Mamma, fer
ekki pabbi bráöum að koma?”
Mamma horfir á hann hálf
æöisgengnu augnaráði og segir
kaldri, nistandi röddu: „Viltu
ekki fara að koma þér inn i
herbergið þitt og taka þar svolitiö
til. Þúveistkannskiekki að jólin
eru á morgun.” Þetta siðasta
segir hún brostinni röddu. Páll
svarar engu, hann starir á
mömmu sina, sem æðir fram og
aftur i eldhúsinu. Hún skeUir
saman kökukössum og lokar
eldhússkápunum meö svo mikl-
um látum aö aUt leikur á reiöi-
skjálfi. Hvaö allt hefur breyst.
Rétt áöan var mamma glöö og
ánægö og hlý og góö viö drenginn
sinn, en núna er hún reiö og örg og
nistandi köld við hann. Páli finnst
ekki lengur hlýtt og notalegt inni.
Honum verður flökurt af köku-
lyktinni oghannslekkur á kertinu
sinu. Hann gengur hægt og
þyngslalega inn i herbergið sitt.
Gönguiagið minnir á gamlan,
lifsþreyttan mann. Hann er djúpt
særður. Hann litur áhugalaust i
kringum sig I herberginu sinu.
Þar er allt fint og fágað. Mamma
og hann höfðu hjálpast aö við að
taka tiliþviogskreyta fyrirjólin.
Þá voru bæði glöð og ánægð. En
nú er mamma svo voðalega reiö.
Hann veit ekki hversvegna og
áræðir ekki að spyrja hana. Hann
er bara svo öryggislaus og
óumræöUega hryggur.
Eitthvað mjUkt .strýkst við
fætur hans. Það er Mjása. Hún
Mjása virðist alltaf skynja þegar
illa liggur á Páli og nú er hún
komin til að hugga hann eins og
svo oft áður. Páll er alltaf góður
viðMjásu sina ogelskar hana, en
núna kemureinhver vonska upp i
honum og hann gerir nokkuö, sem
hann hefur ekki gert áður.
Hann stígur ofan á skottið á
Mjásu, sem mjálmar af
sársauka. Hún horfir særð og
hissa á Pál, en hann þrífur hana
upp og hendir henni fram fyrir og
skellirsiöan hurðinni aftur. Siðan
byrjar hann að rifa jólaskrautiö
niður, en þá byrjar eitthvað að
losna um innra með honum.
Sársaukinn brýst út með ofsa-
legum gráti. Hann fleygir sér á
rúmið og grætur eins og hann ætli
að springa.
Hann heyrir ekki þegar
mamma kemur inn. „Elsku Páll
minn, fyrirgefðu mér, elsku
Smásaga eftir
Sigríöi
Eyþórsdóttur
barnið mitt”. „Farðu út, ég tala
aldrei framar viö þig”. Mamma
leggst útaf hjá Páli og tekur utan
um hann. Hann ætlar að ýta henni
frá sér, þótt hann langi mest af
öllu 1 faöminn hennar og að gráta
við brjóst hennar. En þá sér hann
að mamma er grátandi og and-
litiö er afmyndaö af sársauka.
Þegar þau hafa grátið út segir
mamma: „Mér þykir þetta svo
leiöinlegt, Páll minn að ég veit
ekki hvað ég get sagt til aö
útskýra þetta fyrir þér. Þaö er
svo undarlegt aö þegar maöur er
særður, þá skuli maður særa aðra
og oft þá sem sist skyldi.” Þetta
siðasta viröist mamma segja viö
sjálfa sig. Páll vill ekki gripa
fram i, en hugsar til Mjásu. Hann
kinkar bara kolli til samþykkis.
Hann skilur þetta. Mamma þegir
smástund og segir siöan: „Pabbi
þinn hringdi áðan.” Páll sem var
orðinn rólegur fær hjartslátt.
„Mamma, er hann?”- Páll þagn-
ar. „Já, hann er dottinn i það,
sagðist hafa oröið aö fá sér glas
með vinnufélögunum”.
Mamma og Páll eru sest upp.
Þau þegja og stara vonleysislega
út i bláinn. Páll veit meö sjálfúm
sér aö jólin koma ekki til þeirra I
ár. Þegar pabbi byrjar að drekka
getur hann ekki hætt og drekkur
þá oft dögum og jafnvel vikum
saman. Páli finnst hann þá ekki
vera pabbi, heldur einhver annar
maður. Hann verður einhvern-
veginn allt ööru visi en hann á að
sér aö vera. Fyrst er hann
raupsamur og montinn. Grobbar
af mörgu sem hann hefur gert og
ööru sem hann á eftir aö gera.
Siöan verður hann reiður, talar
illa um aðra. Það sé þeim aö
kennahve illa honum hafi gengiö,
svo verður hann vondur viö
mömmu, alltsé henni að kenna og
stundum slær hann hana og
hendir ýmsu lauslegu I hana.
Og loks kemur gráturinn,
svefnleysið og eftirsjáin. Þá
hjúkrar mamma honum og
stundum kallar hún i lækni.
Læknirinn gefur honum sprautu
eöa pillur og loks verður pabbi
aftur friskur og þá er hann besti
pabbi i heimi.
Páll þorir einhvernveginn
aldrei að tala um þetta við pabba
og mömmu. En hann er oft
hræddur. Hann þorir aldrei að
koma heim með vini sina, nema
athuga fyrst hvort allt sé í lagi.
Hann skammast sin fyrir þetta og