Þjóðviljinn - 24.03.1981, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓDVIL.JINN Þriftjudagur 24. mars 1981
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
vidtalið
Efri parturinn af þessum spegli er ekki mikið not-
aður — nema þegar pabbi og mamma horf a í hann.
Viðsjált nöðrukyn
Kannski kemur þab ýrasum á
óvart en samt er það svo, að vél-
knúnar sagir, sem til þess eru
notaðar aö fella skógartré
„anda” frá sér þrisvar sinnum
meiri koltvisýringi en bill á
götunni. Að þessari niðurstöðu
telja Sviar sig hafa komist.
í framhaldi af þessu er svo
öryggiseftirlitiö i Umea i
Sviþjóð að rannsaka hve mikið
blý, koltvisýringur og önnur
skaðleg efni séu i útblæstri
vélsaga.
Þá er og staðfest, að skelli-
nöðrur, utanborðshreyflar og
aðrir tvigengismótorar blási frá
sér skaðsamlega miklu kol-
vetni. Og út hefur verið reiknað,
að allar skellinöðrur i Sviþjóð
blási frá sér 16 þús. tonnum af
koltvisýringi á ári. Til þess að
jafnast á við skellinöðrurnar að
þessu leyti þarf öll mótorhjól,
disilknúna fólksbila, rútubila,
strætisvagna og vörubila i
Sviariki.
Vei yður, þér nöðrukyn.
— mhg
Rætt við Guðmund
Hafsteinsson
veðurfræðing:
Utlit
fyrir
áfram-
haldandi
norðanátt
Enn er ekkert lát á norðanátt-
inni sem i dag hefur staðið heila
viku, með samfelldri snjókomu
um allt norðanvert landið og
stormi og isingu á miðum.
Guömundur Hafsteinsson
veðurfræöingur var i gær tekinn
tali um veöriö og sagöi hann aö
enn sæi ekki fyrir endann á
norðanáttinni.
— Karpov og Kortsnoj?
— Þeir voru náttúrulega svo
hræddir um að verða sendir til
íslands, aö þeir samþykktu
möglunarlaust að láta draga um
hina staðina.
Ég er hér með fjögurra daga
spá, sem gildir fyrir fimmtudag
i þessari viku, sagði Guðmund-
ur, og samkvæmt henni verður
þá ennþá norðanátt. Hins vegar
verður trúlega ekki alveg eins
kalt þvi vindur verður meira
austanstæður og þvi heldur
mildara.
— Er þetta ekki óvenjulega
langvarandi kafli i okkar
óstöðuga veðurfari?
Ég held nú ekki. — ekki svo
langvarandi að við getum farið
að tala um að það sé óvenjulegt.
Hins vegar er það oftar sem
noröanáttin stendur ekki nema i
einn til tvo daga eins og menn
vita.
— Hvað er það sem veldur
þessu stöðuga veðurfari?
Það er ekki sama hvaða leiö
lægðirnar fara. Þennan tima
hefur verið kröftug hæð fyrir
vestan landið yfir Grænlandi og
nærri kyrrstæö lægð milli
íslands og Noregs. Þetta veldur
þvi aö lægðirnar fara langt fyrir
sunnan landið yfir Bretlands-
eyjar og sameinast lægðinni
fyrir austan okkur og styrkja
hana. Nú er enn lægð vestur af
Bretlandi sem stefnir i austur
og engan bilbug að finna á
hæðinni yfir Grænlandi þó
frekar sé nú að draga úr henni
en hitt.
— Hefur fannfergi ekki verið
óvenju mikið yfir norðan?
Crkoma mælist mjög illa i
hvassviðri og snjókomu eins og
nú hefur verið, — og þvi er litið
að marka úrkomumælingar. Af
fréttum að dæma hefur hins
vegar snjóað nokkuð mikið um
allt norðanvert landið, frá
norðanverðum Vestfjörðum
austur á Austfiröi og reyndar
hefur verið nær samfelld snjó-
koma á öllu þessu svæði, þó
sums staðar hafi rofað til á
milli.
Ég hef ekki við höndina neinn
samanburö milli ára en ég
ræddi við mann á Kópaskeri i
morgun sem gat nefnt að
minnsta kosti þrjá vetur siöan
1965 sem hefðu verið
snjóþyngri. Þetta er þvi
áreiöanlega ekki einstakt þótt
það sé auðvitað mismunandi
milli staða.
— Fer þessu ekki að slota?
Ekki vil ég lofa þér þvi. Það er
nú vetur ennþá og útlit er fyrir
áframhaldandi norðaustanátt
með éljagangi fyrir norðan og
vaxandi likur a éljagangi
suðvestan lands lika!
— Al.
Hver togar sinn
skækil ...
/
i
Hross-
hár
strengjum
Einu sinni var hrosshárið
verðmæt vara. Þá fléttuðu
menn úr þvl marglit reipi og
hnappheldur, stoppuðu meö þvi
aktýgjaklafa og hnakkdinur.
Kraftalegir hrosshársrokkar
suöuðu á kvöldin og hala-
snældur snérust i loftinu.
Nú er þessi timi liðinn en
hárið heldur áfram að vaxa á
hrossunum okkar eins og ekkert
hafi i skorist Eigum við þá bara
aö henda þvi eöa er hægt að
vinna úr þvi verðmæti?
Búvörudeild SÍS hefur nú i
nokkur ár flutt út dáliti af hross-
hári til Þýskalands. Nota
Þjóðverjarnir þaö einkum við
penslagerð. Nýlegar fréttir
herma að eftirspurn sé nú aö
aukast og að óskir hafi borist er-
lendis frá um að fá meira af
hrosshári en undanfarið.
— mhg
í kulda og orkukreppu —
<
Q
O
Fyrir langa löngu
uppgötvaöi
Kólumbus aö
’jörðin var
y—^hnöttótt.
Þvi miður kom siöar i ljós
aö jörðin var hnöttótt.