Þjóðviljinn - 09.04.1981, Side 1
UOmiUINN
Fimmtudagur 9. april 1981,83. tbl. 46. árg.
Tillaga stjómarandstöðu um lántökuheimild vegna
flugstöðvarbyggingarinnar á Keflavíkurflugvelli:
Felld á jöfnu
Þrátt fyrir stuðning Olafs Jóhannessonar
Sementshækkanimar:
Tómas: 10%
hækkun eðlileg
Sjá 7. siöu
Upp og niöur. Starfsmenn sementafgreiðslunnar f Artiinshöfða héldu
sinu verki dfram I gær og skiptu sér ekki af hvort verðiö hækkaði eða
iækkaði. — Ljósm. —gel—
„Þegar Sementsverk-
smiðjan vill fá fram breyt-
ingar á verðlagsmálum
sínum þá sækir hún um það
til verðlagsstjóra, sem
leggur málið fyrir verð-
lagsráð"/ sagði Tómas
Árnason viðskiptaráðherra
í gær þegar Þjóðviljinn
hafði samband við hann
vegna þeirrar fréttar að
r íkisstjórnin hefði
heimilað hækkun á sementi
en verðlagsstjóri síðan
krafist þess að hækkunin
yrði afturkölluð og neitað
að fallast á meira en
6—8%. Verðlagsráð leggur
svo málið fyrir ríkisstjórn-
ina.
„Ég sem verölagsmálaráð-
herra er þeirrar skoðunar að það
sé eðlilegt, að Sementsverk-
smiðjan fái að hækka sina vöru
um 10% I samræmi við þá 10%
hækkun sem önnur rfkisfyrirtæki
fengu fyrir áramót”, sagði
Tómas. Hann sagöi einnig að eng-
inn ágreiningur væri milli sin og
verðlagsráös; einhver mistök
kynnu að hafa átt sér stað, en það
væri ekki meiningin að brjóta
neinar reglur um þá boðleið, sem
málið skyldi fara. „Rikisstjórnin
tekur engar ákvarðanir fyrr en
verðlagsráö hefur fjallað um
máliö”, sagöi viöskiptaráöherra.
— í
Frystihús Kaldbaks á Grenivík:
— Ég leyfi mér aö kalla
þetta farsa, segir Jónas
Arnason rithöfundur um hið
nýja leikrit sitt, Haieliija”,
sem frumsýnt var á Húsavik
um siöustu helgi, i viötali við
Þjóðviljann sem birt er á 7.
slðu blaðsins i dag.
Ólafi Jóhannessyni utan-
ríkisráðherra er studdi til-
lögu stjórnarandstöðunn-
ar.
Ólafur Jóhannesson utanrikis-
ráðherra sagði er hann gerði
grein fyrir atkvæði sinu að hann
hefði I rikisstjórn látiö bóka að
hann áskildi sér rétt til að fylgja
slikri tillögu,enda væri hér aðeins
um heimild að ræöa. Þrátt fyrir
aö tillagan yrði samþykkt þá
myndi ákvæði stjórnarsáttmála
gilda áfram og framkvæmdir
gætu ekkihafist fyrr en samþykki
allrar rikisstjórnarinnar lægi
fyrir. Ragnar Arnalds fjármála-
ráðherra sagði að þegar Ólafur
hefði gert bókun sina i rikisstjórn
þá hefði hann lýst þvi yfir I rikis-
stjórninni að vegna ákvæða
stjórnarsáttmálans um þetta mál
þá liti hann svo á, að það væri
skýlaust brot á sáttmálanum ef
einn ráðherra gengi i liö með
stjórnarandstöðunni til að knýja
fram miljarða útgjöld sem rikis-
stjórnin hefði ekki samþykkt.
Utanrikisráðherra sagði að
með þvi að samþykkja lántökutil-
löguna væri þingið að sýna áhuga
og vilja sinn i málinu. Þetta væri
sérlega mikilvægt vegna þess að
fjárveiting Bandarlkjaþings til
byggingarinnar myndi falla niður
ef ekki væri farið að hefja ein-
hverjar framkvæmdir fyrir okt.
1982. Sagðist Ólafur vilja sjá
framan i þá þingmenn er greiddu
atkvæöi gegn tillögunni og með
þvi var hann að brýna samflokks-
moin slna I deildinni til að styðja
sig. Framsóknarmennirnir
studdu þó ekki Ólaij en þeir voru
Davið Aðalsteinsson, Guðmundur
Bjarnason, Jón Helgason, Stefán
Guðmundsson og Jón Kristjáns-
son varamaður Tómasar Arna-
sonar. Sögðu þeir aö undirbúningi
framkvæmda væri ekki það langt
komið að framkvæmdir gætu haf-
ist i ár og þvi eigi ástæöa til að
bæta við lánsfjárlögin.
1 umræðu um tillöguna gerði
Ragnar Arnalds grein fyrir af-
stöðu Alþýðubandalagsins til
flugstöövarbyggingarinnar. Hann
lagði áherslu á að hér ætti
að vera um að ræöa islenska
framkvæmd er væri i eigu lslend-
inga sjálfra og þvi væri ekki rétt
að fjármögnun byggingarinnar
væri tengd hernaðarframkvæmd-
um Bandarikjamanna, né að að-
staða okkar I byggingunni væri
skert þegar Bandarikjamenn
teldu sér henta. Þá sagöi hann að
ekki væri rétt að taka ákvörðun
um jafn stórn byggingu og þessa
meðan framtið Atlantshafsflugs-
ins væri i ovissu.
Ragnar Amalds ræddi einnig
þá fullyröingu að þessi flugstöð
myndi samkvæmt núverandi
hugmyndum um stærö skila til
baka þvi fjármagni sem I hana
væri lagt og vera þannig arðbær
fjárfesting. Ragnar sagði þessa
fullyrðingu ranga þvi samkvæmt
þeim útreikningum er hann hefði
þá yrði beinn rekstrarhalli flug-
stöðvarinnar nær 2 miljarðar
gamalla krðna á ári.
Auk þeirra er hér hafa verið
nefndir gerðu þeir Eiður Guðna-
son, Geir Gunnarsson og Stefán
Jónssongrein fyrir atkvæði sínu.
Effiur minnti Framsóknarmenn á
samþykkt miðstjórnar flokks
þeirra um flugstöðvarbygging-
una og sagöist geta gert þá sam-
þykkt að sinni. Geir Gunnarsson
sagði aö tillaga stjórnarandstöð-
unnar gengi gegn samþykkt rikis-
stjórnarinnar um afgreiðslu láns-
fjárlaga og undir þaö tók Stefán
Jónsson, en Stefán benti jafn-
framt á að með þeirri lántöku er
tillagan fæli i sér mætti bæta all-
nokkuö öryggi flugvalla viða um
land og með þeirri heildarfjárhæð
er flugstöðvarbyggingin kostaði
mætti gera flugvelli landsins
prýðilega úr garði.
Leyfi mér aö
kalla þetta farsa
horfíð á vertið til Grindavikur og
þar að auki hafa tveir verið seldir
burtu af staðnum nú á sl. tveimur
árum. Þrjá fyrstu mánuði þessa
árs hefur frystihúsinu borist mun
minni afli en á sama tima i fyrra
svo að þar skakkar hvorki meira
né minna en 260 tonnum. En nú
tekur steininn úr við brottför
bátanna.
Jón Helgason, form.
Verkalýðsfélagsins Einingar á
Akureyri, sagði aö unniö yrði aö
þvi að Utvega frystihúsinu hrá-
efni. Súlan væri að skipta yfir á
troll og hyggöist leggja upp i
Grenivik og Otgerðarfélag Akur-
eyrar mundi e.t.v. leggja þar eitt-
hvað upp ef þvi bærist meiri afli
en unnt yrði að vinna i venjuleg-
um vinnutima. Vonandi rætist þvi
betur Ur en á horfist i augnablik-
inu.
— mhg
í opnu Þjóöviljans
í dag er viðtal við
Richard Þórólfsson
verksmiðjustjóra
skó verksmiðjunnar
Iðunnar á Akureyri
um vandamál það
sem þessi eina skó-
verksmiðja landsins
á við að glima
Tillaga stjórnarandstöð-
unnar um að setja í láns-
fjárlög heimild til lántöku
til að greiða byrjunar-
kostnað við byggingu
nýrrar flugstöðvar á
Keflavíkurf lugvelli var
felld á jöfnum atkvæðum í
efri deild Alþingis í gær.
Þingmenn stjórnarinnar
greiddu atkvæði gegn til-
lögunni að undanskildum
|------.........
| Púlað og
j pælt á
| Þjókkanum
I" Þessi friði flokkur hcfur verið í
starfskynningu hjá okkur á Þjóð-
J viljanum undanfarna daga og að
I sjálfsögðu veriö látinn púla rétt
■ einsog hinir blaðamennirnir. öll
I nema ein eru þau úr Mennta-
J skólanum á Akureyri, og heita,
Italiö frá vinstri: Sif Kjartansdótt-
ir, Agústa FriöriksdótUr, sem
* kemur úr grunnskólanum á Akra-
| nesi, Kristján Kristjánsson, Sig-
■ mundur Ernir Rúnarsson, Guö-
| mundur Sigurösson og Eysteinn
■ Arason. — Ljósm.: Ella.
I__________________
Atv innuásta ndið á
Grenivík er alvarlegt um
þessar mundir og hefur
starfsfólki frystihússins
Kaldbaks hf., um 60
talsins, verið sagt upp
störfum frá næstu helgi.
Astæðan fyrir uppsögnunum er
hráefnisleysi. Þrir bátar, sem
lagt hafa upp á Grenivik, hafa nú
J
60 manns
sagt upp