Þjóðviljinn - 09.04.1981, Page 3
Fimmtudagur 9. april 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Æfing á Othello ! marsmánuhi. Ljósm. —Ella.
Nýtt frumvarp um Sinfóníuhljómsveitina:
65 stöðugildi
Fjölbrautar
skóladeilan
Engar
viðrœður
Engin lausn er i sjónmáli I deilu
öldungadeildakennara og ráöu-
neytis. I gær gengu tveir fulltrúar
Hins islenska kennarafélags á
fund Ragnars Arnalds fjármála-
ráöherra og kynntu máliö fyrir
honum og lofaöi hann aö taka þaö
til skoöunar, en engar viöræöur
hafa veriö boöaöar.
Fjölmennur fundur nemenda
viö öldungadeildina i Breiöholts-
skólanum samþykkti i fyrrakvöld
áskorun til stjórnvalda aö ganga
til samninga viö kennara þegar i
staö. Jafnframt mótmæltu þeir
þvi, aö kennurum væri mismunaö
i launum eftir kennslugreinum.
Um 80 manns voru á fundinum.
Sagöi i ályktuninni aö ef stjórn-
völd tækju ekki viö sér, væri
misseris nám i öldungadeildinni
ónýtt oröiö. — j
Ernst Mandel
talar um
kreppuna
Prófessor Ernst Mandel, einn
helsti forystumaöur Fjóröa
alþjóöasambandsins, trotskist-
anna, er væntanlegur til isiands
og mun ma. flytja opinberan
fyrirlestur á vegum Félagsvis-
indadeildar Háskóla islands.
Fyrirlestur Mandels, sem er
prófessor viö Frjálsa háskólann i
Brussel, fjallar um efnahags-
kreppuna og viðbrögð verkalýðs-
hreyfingarinnar. Mandel er
viðkunnur fræðimaður, einkum á
sviði marxiskrar hagfræöi, hefur
gefið út fjölda bóka og haldið
fyrirlestra viöa um heim.
Fyrirlestur sinn viö háskólann
hér flytur hann laugardaginn 11.
april kl. 14 i stofu 101 i Lögbergi.
1 nýju frumvarpi aö lögum um
Sinfóniuhljómsveit tsiands er
fjöldi hljóöfæraleikara bundinn
viö minnst 65 stööugildi, en
undanfariö hafa hljóöfæraleik-
arar veriö 59. Þá hefur Sel-
tjarnarneskaupstaöur ákveöiö aö
taka þátt i kostnaöi viö rekstur
hljómsveitarinnar, auk Reykja-
víkurborgar, rikisins og rikisút-
varpsins, en önnur sveitarfelög á
höfuöborgarsvæöinu hafa hafnaö
þátttöku.
Siöastliðiö haust skipaöi
menntamálaráöherra þriggja
manna nefnd til aö endurskoöa
frumvarp til laga um Sinfóniu-
hljómsveitina og eru i henni:
Geröur Steinþórsdóttir, for-
maður, Sverrir Garöarson, for-
maöur Félags isl. hljómlistar-
manna og Ingi R. Helgason,
stjórnarmaöur i hljómsveitinni.
Frumvarpið hafði þá verið lagt
fjórum sinnum fyrir alþingi án
þess að hafa hlotið afgreiðslu, en
þaö geröi ráö fyrir þvi aö sveitar-
felöginá höf uðborgarsvæðinu öllu
sameinuðust um greiðslu 25%
kostnaðar á móti rikinu og út-
varpinu en um árabil hefur
Reykjavikurborg, eitt sveitar-
félaga, greitt um 21% af rekstrar-
kostnaði hljómsveitarinnar.
Nefndin ræddi ýtarlega við full-
trúa sveitarfélaganna sem öll
höfnuöu þátttöku i rekstri hljóm-
sveitarinnar nema Reykjavik og
Seltjarnarnes. Frumvarpið miö-
ast þvi við aö Reykjavik greiði
18%, Seltjarnarnes 1%, rikisút-
varpiö 25% og rikissjóöur 55%.
Albert og Páll á móti.
A borgarstjórnarfundi i siöustu
viku var samþykkt umsögn
borgarráös um frumvarpiö meö
atkvæöum álira borgarstjórnar-
manna nema Alberts Guömunds-
sonarog Páls Gislasonar. Albert
lýsti sig mótfallinn þvi aö borgin
kæmi nálægt rekstri hljóm-
sveitarinnar, — rikið ættiaö kosta
hann. Hann taldi að aðgöngu-
miöar að tónleikum hljóm-
sveitarinnar ættu aö vera mun
hærri en t.d. aðgöngumiðar aö
iþróttaleikjum, enda sæktu þá
menn sem vel hefðu efni á aö
borga. Páll Gislason flutti frávis-
unartillögu á umsögnina vegna
þess að kostnaöarbyröi borgar-
innar væri óljós en hún hlaut
aöeins tvö atkvæði, hans og Al-
berts.
Aðrir borgarfulltrúar lýstu full-
um stuðningi við störf hljóm-
sveitarinnar. Adda Bára Sigfús-
dóttirminnti á aö vaxandi hópur
unga tónlistaraödáenda sækti
tónleika hljómsveitarinnar, —
þaö væri afraksturinn af starfi
tónlistarskólanna i borginni og
þaö væri liðin tið að fáir útvaldir
og efnaöir sætu á áheyrenda-
bekkjum. ólafur B. Thors sagöi
þaö myndi veröa reiöarslag fyrir
hljómsveitina ef borgarstjórn
hafnaöi þessu frumvarpi, en I
umsögn borgarráðs segir m.a.:
„Reykjavikurborg hefur frá
stofnun hljómsveitarinnar tekið
verulegan þátt i kostnaöi viö
rekstur hennar, nú siðustu árin
með tæplega 18% kostnaöarhlut-
deild. Þótt ýmis rök megi aö þvi
færa aö hljómsveitin sé aö öllu
leyti kostuð af rikisvaldinu mun
Reykjavikurborg ekki nú fremur
en áöur skorast undan þátttöku i
rekstri hennar. Hins vegar væri
eðlilegt uö öll sveitarfélögin á
höfuöborgarsvæöinu stæöu
saman aö greiöslu þess kostn-
aöarhluta sem sveitarfélögunum
er gert að greiöa”.
Aö fengnu samþykki Sel-
tjarnarness og Reykjavikur nú
má búast við þvi að menntamála-
ráðherra leggi frumvarpiö fyrir
alþingi á næstu dögum og er von-
ast til aö það veröi samþykkt
fyrir þingslit. Þykir velunnurum
hljómsveitarinnar timi til kominn
aö starfsemi hennar hafi stoö I
lögum eftir 31 árs starf.
— AI
Sigurður Bjömsson, framkvæmdastjóri Sinfómunnar:
Vonumst tíl að
varpið verði að
Það er von okkar aö frumvarp
um Sinfóniuhljómsveit tslands fái
nú loks afgreiöslu og að hljóm-
sveitinni veröi sinnt meira i
framhaldi af þvi, sagði Sigurður
Björnsson, framkvæmdastjóri
Sinfóniuhljómsveitarinnar i sam-
t'ali viö Þjóöviljann.
í marsmánuöi var liöiö 31 ár frá
stofnun hljómsveitarinnar og
allan þann tima hefur lagagrund-
völl fyrir starfseminni skort.
„Þaö hefur veriö þegjandi sam-
komulag þessara þriggja aðila
rikisins, Reykjavikurborgar og
rikisútvarpsins að styrkja hljóm-
sveitina og standa undir kostnaöi
við rekstur hennar,” sagði Sig-
uröur, en frumvarp sem m.a.
gerði ráö fyrir þátttöku allra
sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæöinu hefur nú veriö aö velkj-
ast fyrir þinginu i fjögur ár.
,,í nýja frumvarpinu bætist
Seltjarnarneskaupstaöur i hópinn
og þvi fagna ég en þvi miður voru
hin byggöarlögin á höfuöborgar-
svæöinu ekki tilbúin til aö taka
þátt I rekstrinum,” sagöi
Siguröur. „Viö undrumst þaö, þvi
ibúar þeirra njóta hljómsveit-
arinnar ekkert siður en Reykvik-
ingar. Til dæmis er styttra fyrir
Kópavogsbúa aö sækja tónleika
en ibúa Breiöholts og ég tel þaö
siöferöilega skyldu þessara
bæjarfélaga aö taka þátt i rekstri
hljómsveitarinnar.”
— Hverju breytir það aö fjölga
hljóöfæraleikurum I a.m.k. 65?
frum-
lögum
„Þaö þýöir aö viö getum fiöleaö
strengjahljóöfærunum, en hlut-
fall milli strengja og blásara hef-
ur ekki verið rétt”, sagöi
Siguröur. „Strengirnir hafa veriö
alltof fáir og i raun er það lág-
mark aö hafa 65 hljóöfæraleikara.
Stærri hljómsveit er lika hægt aö
skipta niöur i smærri einingar, til
að gara út á land og i skólaheim-
sóknir en þaö er ógerningur eins
og nú er meðan strengirnir eru of
fáir.”
— Hvernig hafa skóla-
heimsóknirnar heppnast?
„Mjög vel. Viö höfum farið i
skóla I Garöabæ, Hafnarfirði og
Akranesi auk Reykjavikurskól-
anna en s.l. haust fórum viö I eina
Siguröur Björnssoa, óperusöngv-
ari, framkvæmdastjóri Sinfóniu-
hljómsveitarinnar.
tiu skóla. Það var mjög ánægju-
legt, og krakkarnir eru núna að
koma i smáhópum og biöja um aö
fá aö vera á æfingum. Viö stefn-
um aö þvi aö sinna þessum þætti
meira en gert hefur verið”, sagöi
Siguröur Björnsson að lokum.
— A1
Fjárhagsáœtlun
Akureyrar samþykkt
60%
hækkun
frá fyrra ári
Fjárhagsáætlun Akureyrar-
bæjar fyrir næsta fjárhagsár var
samþykkt i bæjarstjórn á þriöju-
dag. Niöurstööutölur voru 102
miljónir króna og 324 þúsund, og
nemur hækkunin um 60% frá
fyrra ári.
Greint var frá fjárhagsáætlun-
inni hér i blaöinu eftir aö fyrri
umræöa haföi fariö fram og uröu
breytingar ekki stórvægilegar aö
sögn Soffiu Guömundsdóttur
bæjarfulltrúa. Þó voru hækkuö
hönnunarframlög til nokkurra
! framkvæmda. Hönnunarframlag
til dagvistarheimilis viö
Byggöaveg hækkaöi i 310 þús úr
50 þús og kvaöst Soffia vona að
þetta gæti orðiö til aö verkið yröi
boöiö út á árinu. Sömuleiöis
hækkaöi hönnunarframlag til
sundlaugar i Glerárhverfi og til
nýrrar slökkvistöövar. Þá er veitt
fé til nýs skrifstofuhúsnæðis og
tækjageymslu i Hliöarfjalli.
Agreiningur varö i bæjarstjórn
varöandi útsvarsálagningu og
sátu Sjálfstæöismenn hjá viö
afgreiöslu þess þáttar málsins.
Aö ööru leyti var fjárhagsáætlun-
in samþykkt meö ellefu
samhljóöa atkvæöum. — j
Sneberger
með Sinfóní-
unni i kvöld
Tékkneski fiöluleikarinn Karel
Sneberger leikur einleik meö
Sinfóniuhljómsveit lslands á
áskriftartónleikunum i Háskóla-
bíói I kvöld. Stjórnandi er Páíl
Pampichler Pálsson.
A efnisskránni eru þrjú verk:
„Greetings from an Old World”,
hljómsveitarverk eftir Ingvar
Lidholm, Fiölukonsert (Fantasia
Pragense) eftir Thorbjörn Lund-
quist, og Sinfónia nr. 1 eftir
Sibelius.
Karel Sneberger er fæddur i
Tékkóslóvakiu og stundaöi nám
viö tónlistarháskólann i Prag,
lauk þaöan burtfararpröfi árið
1943. Hann kenndi um árabil viö
þann skóla, og kenndi þá m.a.
efnilegustu fiðluleikurum Tékkó-
slóvakiu, Josef Suk og Peter
Vanek. Undanfarin ár hefur hann
búið i Sviþjóö.
Án orma
á Borginni
I kvöld veröa tónleikar An
Orma með Amon Ra o.fl. á Hótel
Borg. Fluttir veröa gömlu og
nýjustu dansarnir þ.á m. hljóm-
kviöan Stift eftir P. Hall.
Þar sem senn liöur að sauö-
buröi,nokkrar fyrirmálsær þegar
bornar, kemur Amon Ra nú fram
i siöasta sinn á þessum vetri.
j Halldór Torfason, jarðfræðingur um byggð við Rauðavatn:
I „Ekki meiri hætta en
ef ekki er byggt þvert á sprungur
I
„Ekki er meiri hætta á
■ skemmdum af völdum jarö-
J skjálfta á Austursvæðum en inni
Ii miöbæ Reykjavikur, meöan
ekki er byggt yfir sprungur
■ og/eöa misgengi”, segir Hall-
| dór Torfason, jaröfræöingur, i
■ nýrri greinargerö til Borgar-
| skipulags vegna blaöaskrifa um
J^jarösprungur á Rauðavatns-
|^svæöinu.
1 greinargeröinni, sem lögð
var fram á skipulagsnefndar-
fundi i siðustu viku gerir
Halldór grein fyrir athugunum
sinum á sprungum viö Rauða-
vatn, en hann gerði s.l. sumar
kort yfir misgengi og sprungur
á þessu svæöi sem birt er meö
aöalskipulagstillögu Borgar-
skipulags. Jafnframt samdi
Halldór stutta kafla um jarö-
fræði svæöisins sem einnig fylg-
ir aöalskipulagstillögunni, en
þar segir ma.: „Má segja aö
austan Seláss — Úlfarsfells sé
nær samfellt sprungusvæöi.”
Og: „Minniháttar sprungur og
jafnvel smá misgengi gætu
dulist undir jarövegi á sprungu-
svæöinu og er slikt raunar lik-
legt. Um þaö er þó afar erfitt aö
fullyröa nokkuð án nákvæmra
rannsókna”. Bendir Halldór á
að þær upplýsingar sem fram
hafa komið i útdrætti Jóns
■I
í miðbænum”!
■
Jónssonar, jaröfræöings, og
bréfi frá Skipulagsstofu höfuö-
borgarsvæöisins, séu þvi ekki
nýjar af nálinni, en þær voru
sendar Morgunblaöinu meö
hraöi löngu eftir aö greinar-
geröin sem vitnað er til haföi
birst.
Ennfremur segir Halldór:
„Allt skipulag hlýtur aö vera
háö þvi landslagi sem rikir á
hverjum staö. Stór landmót-
unarþáttur hér á landi er ein-
mitt misgengi og sprungur. Sú
ályktun sem maöur hlýtur aö |
draga af þvi sem hér er sagt aö ■
ofan er þvi þessi: Aöur en til ■
deiliskipulags kemur á Austur- 1
svæöunum veröur aö fara fram ■
mjög nákvæm jaröfræöi- I
rannsókn og -kortlagning á ■
svæöunum, þar sem m.a. mis- |
gengi og sprungur yröu ■
staösettar mjög nákvæmlega. |
Siöan yrði svæðiö skipulagt og J
ákveöin byggö út frá niöurstööu .
sem slik rannsókn gefur.”