Þjóðviljinn - 09.04.1981, Side 5
Fimmtudagur 9. aprn 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Norræna félagid:
Hví ekki til
Grænlands?
1 dag, fimmtudag 9. aprfl n.k.
kl. 20:30 efnir Norræna félagið til
kynningar á ferðum sinum á
þessu ári, i Norræna húsinu.
Auk frétta af hinum föstu ferð-
um til höfuðborga Norðurlanda
verður rætt um leiguflug til
Norðurkollusvæðanna og Fær-
eyjaferðir.
Einar Guðjohnsen ferðafröm-
uður kynnir fýsilegar ferðir til
vesturstrandar Grænlands og
sýnir litskyggnur.
Allir eru velkomnir.
Kosningaslagur í ísrael
Kj ósendamútur
nýlendu ævintýri
Begin; söluskattsbrellur og fleiri þorp á Vesturbakkanum.
Þegar stjóm Men-
achems Begins i ísrael
féll á ágreiningi um
þær leiftursóknarað-
gerðir i peninga-
málum, sem höfðu
leikið efnaminnsta
fólkið i landinu grátt,
var þvi spáð, að hægri-
blökkin, Likud, sem
Begin hefur stýrt,
mundi i væntanlegum
kosningum biða herfi-
legan ósigur fyrir
Verkamannaflokknum,
sem lengst af hefur far-
ið með stjórn rikisins
frá þvi það varð til
1948.
Skoðanakannanir herma, þó
að Likud sé að rétta við hjá kjós
endum, þótt ekki muni sú þróun
duga til aö halda völdum.
Astæöan er fólgin i" þeim
blygðunarlausu kosningatöfrum
sem hinn nýi fjármálaráð-
herra, Joram Aridor, hefur I
frammi. Hann beitir fyrir kjós-
endur með þvi að lækka verð á
bflum og litsjónvarpstækjum
um 10—17%, einnig á húsgögn-
um og fleiri skyldum vörum.
Allir vita að þetta er stutt
gaman og kaupa eins og óðir
menn. Til dæmis um það, hve
ósvifnar kosningabrellurnar eru
má nefna, að söluskattur á sæt-
um vinum hefur verið lækkaður
um helming fram til fyrsta júli
— en kosið er daginn áður!
Enn eitt ruglar dæmið: Mosje
Dajan, sem á sinum tima hljóp
og
úr Verkamannaflokknum til að
gerast utanrikisráðherra
Begins, hefur stofnað um sig
framboðsflokk og gæti
samkvæmt sumum skoðana-
könnunum fengiö allt að 16 þing-
sæti (af 120). Stjarna hans hefur
þó farið hnignandi siðan, eftir
þvi sem á leið kosninga-
baráttuna.
Hernumdu svæðin
Enn sem fyrr eru hernumdu
svæðin lykilmál i israelskri
pólitik. Stjórn Israels hefur að
nokkru leyti staöið betur að vigi
en stundum áður i glimu við
arabiska granna — en einkum
vegna þess að helstu and-
stæöingarnir — Sýrland, Irak og
Libýa, hafa verið önnum kafnir
við innanlandserjur, eöa land-
vinninga i Iran og Chard. A
meöan hefur stjórn Begins flýtt
sem mest stofnun gyðingaþorpa
á hernumdu svæðunum. Fyrir
utan austurhluta Jerúsalem eru
nú um 17 þúsundir israelskir
„landnemar” búsettir i
hervæddum þorpum á vestur-
bakka Jórdan, en það eru
helmingi fleiri en þar voru
þegar Begin tók viö stjórnar-
taumunum fyrir fjórum árum.
Ariel Sharon landbúnaðarráð-
herra, sem er einn þeirra sem
ákafastur er i landráninu telur
Framhald á bls. 13
Sextug í gær:
Rakel Sigurðardóttir
Hinn þekkti belgíski hag-
fræðingur/ Ernest Mandel,
er á leið til íslands. Hann
er einna nafnkenndastur
þeirra manna sem fara
með marxíska hagfræði á
okkar dögum og um árabil
helstur stýrimaður trotsk-
ista f heiminum.
Mandel hlýtur erindi á vegum
félagsvisindadeildar háskólans á
laugardag og kemur fram á opn-
um fundi i Félagsstofnun
stúdentaá sunnudagskvöld. Aðal-
umræðuefni hans er kreppa og
verkalýður i auövaldsheimi sam-
timans.
Mandel er fæddur 1923. Hann
slóst i för með trostskistum
skömmu fyrir strið, tók þátt i
belgi'sku andspyrnuhreyfingunni
og sat i fangabúöum Þjóðverja
fyrir bragðið. Skömmu eftir strið
var hann kosinn i forystu alþjóöa-
sambands trotskista og einnig
vann hann um skeið i vinstra
armi sósialistaflokks Belgiu og
ritstýrði blaði þess arms, La
Gauche.
Mandel hefur marga hildi háð i
ritdeilum um marxisma, sovét-
kerfi og þróun kapitalisma. Hann
er eins og annar þekktur hag-
fræðingur, Hayek, sem hingað
kom að hressa upp á frjálshyggj-
una, óralangt frá miðjumoði. Ef
aö Hayek sér allsstaðar laumu-
sösialisma skriða upp valdahlið-
arnar — meira segja i þeirri
truflun markaðslögmála sem
rekstur þjóðleikhúsa er — þá er
Mandel iðinn við að vara 'við þvi
að verkafólk ánetjist umbóta-
stefnu, stalinisma, evrópu-
kommúnisma, vinstrisósial-
istum, anarkistum draumum um
verkamannasjálfstjórn innan
kapitalisma (framleiðslusam-
vinnufélög) og þar fram eftir göt-
um. Hann mun ekki fallast á neitt
annað en það sem undirbýr að
„borgarastéttin verði gerð eigna-
laus og pólitisku valdi hennar
steypt” — m.ö.o. byltinguna. Og
þá kemur hinn sanni lýðræöislegi
ráðasósialismi, sem enginn hefur
til þessa upp byggt, þvi miður.
Mandel sakar aðra sósialista,
aðra marxista^gjarna um stað-
leysurómantfk, en á þaö vel til að
falla í svipaða gryfju sjálfur (á
einum staö mælir hann meö þvi
að strax eftir byltingu sé vinnu-
vikan stytt um helming til að
verkamenn hafi nógan tima til að
sitja á fundum). En hann er eins
og margir langt til vinstri, einatt
skarpur i gagnrýninni og ber
fram margar ögrandi spurn-
ingar, til dæmis um kreppuráð-
stafanir samtimans, um gildrur
hins blandaöa hagkerfis, um
drauma um „sósialisma i einni
verksmiöju” og þar fram eftir
götum.
— áb.
Þegar ég sá hana fyrst, þá
spurði ég ekki: — Hver er þetta —
heldur sagði ég viið sjálfam mig:
— Þetta er Rakel!
Ég hafði heyrt hennar getið
þessarar makalausu konu af
Laxamýrarætt, sem hafði ótak-
markað yndi af fögrum listum.
Leikhús, hljómleikar, myndlista-
sýningar, það var hennar hljóð-
pipuleikur, hennar lifsnautn. En
til þess að seðja þetta hungur sitt
þurftihún lika að sjóða kæfu. Hún
ferðaöist landshornanna á milli
og smiðaði tennur af meira list-
fengi en annað fólk. Lagði á sig
ómælda vinnu og vökur til að
sjóða þá kæfu, sem hægt var að
skipta fyrir fegurð og reisn. Og
brátt var hún aftur i sýningasöl-
um, konserthöllum og leikhúsum,
stolt og fasmikil, eins og sá lifs-
kúnstner sem veit hvers hann
leitar, hvað hann vill.
Heimili Rakelar á Melabraut
var prýtt hverskonar listaverkum
og fögrum munum sem voru i
órjúfandi samræmi við persónu-
leika hennar og lifsstil, og þeim
sem þar komu munu aldrei
gleymast gleðistundirnar. hvort
sem um var að ræða litið matar-
boð með uppfinningasömum rétt-
um og dýrum vinum, eða fjöl-
mennar kvöldveislur, sem sæmt
hefðu hverri hirð.
Nú er Melabrautin ekki lengur
samkomustaður vinahópsins
hennar Rakelar. Hún hefur
eignast nýjan vin, sem henni er
öllum kærari, gengið i hjónaband
og flutt búferlum. Eiginmaður-
inn, dr. juris Esbjörn Rosenblatt,
hefur einnig slegist i vinahópinn,
og enn hittast menn hjá Rakel og
Esbjörn og eiga saman ógleym-
anlegar stundir.
Það skyldi enginn trúa þvi að
Rakel sé sextug, en samt er það
svo. Og auðvitað gerði hún það,
eins og allt annað, presto grazi -
osúú- Gestur Þorgrimsson.
j//
Mandel, stýrimaður trotskista,
Þekktur marxiskur hagfrœðingur:
Mandel kemur
til Islands
STÓRMARKAÐS VERÐ
Strásykur kr. 15,00
Robinhood hveiti 25 kg. kr. 104,80
Rekord kakó 1/2 kg. kr. 16.95
Ky Blandaðir ávextir 1/1 d. kr. 16,80
KyPerur 1/1 d. kr. 14,95
Ky Ferskjur 1/1 d. kr. 14,45
Aprikósur kr. 11,65
Jarðarber 1/1 d. kr. 18,90
Kjúklingar, 5 i pk
Amerisk handklæði frá kr. 24.85
Amerisk þvottastykki frá kr. 5.50
Drengjanærföt frá kr. 28,75
Herraskyrtur frá kr. 49,90
Nokia stigvél, allar stærðir.
Opið tíl kl. 22 föstudaga og til hádegis
laugardaga
STÓRMARKAÐURINN
Skemmuvegi 4 A, Kópavogi