Þjóðviljinn - 09.04.1981, Side 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. aprll 1981'
Sex meginbreytingar í skattafrumvarpinu
Tryggð 1,5-1,8%
kaupmáttaraukning
Ragnar Arnalds
fjármálaráöherra mælti á
þriðjudag fyrir frumvarpi
til breytinga á tekju- og
eignarskattslögum. I máli
hans kom fram að frum-
varpið felur í sér sex
meginbreytingar.
I fyrsta lagi verður lágmark
fasts frádráttar 75% hærra hjá
einstæðum foreldrum en öðrum
einhleypingum. Lágmarkið var
550 þiis. gkr. en verður sam-
kvæmt frumvarpinu 1395 þús.
gkr. og tekur breytingum árlega
eftir skattvisitölu. Eftir álagn-
ingu skatta i fyrra kom i ljós aö
skattar einstæðra foreldra höföu
hækkað óeðlilega mikið og var
það afleiðing skattkerfisbreyt-
ingarinnar er þá tók gildi. Ofan-
greind ráöstöfun á að tryggja úr-
bætur I þessum efnum fyrir
einstæö foreldri.
í öðru Iagi felur frumvarpið i
sér að nýta megi persónuafslátt
til greiðslu á eignarskatti. Þetta
er ætlað til aö bæta hag þess lág-
tekjufólks sem býr i skuldlitlu
eigin húsnæði. Flestir þeir sem
munu njóta þessa ákvæðis eru
elli- og örorkulifeyrisþegar. Þá er
samkvæmt frumvarpinu einnig
heimild tilhanda skattstjórum aö
lækka eignarskattsstofn þeirra
sem hafa skert gjaldþol, m.a.
sækir ellihrörleika, veikinda og
slysa. Hér er um að ræða
hliðstæðu við ivilnunarákvæði
varðandi tekjuskattsstofn i 66. gr.
skattalaga.
1 þriðja lagi ier tekin upp
heimild til frádráttar á helmingi
greiddrar húsaleigu vegna leigu á
ibúðarhúsnæði til eigin nota.
Þetta ákvæði kemur til fram-
kvæmda við álagningu skatta á
árinu 1982 vegna tekna ársins 1981
og er ástæðan framkvæmda-
örðugleikar þar eð framtalsfrest-
ur einstaklinga er ekki stunda
rekstur, er löngu liðinn.
1 fjórða lagi er i frumvarpinu
lagt til að fellt veröi niður að van-
greiðsla á hluta af sköttum valdi
þvi að þeir falli allir i eindaga.
Gildandi ákvæði getur hæglega
leitt til þess að óverulegur dráttur
á einni mánaðargreiðslu á siðari
hluta ársins leiöi til þess að allar
eftirstöðvar álagðra gjalda f alli i
eindaga og fari þvi aö bera
dráttarvexti.
t fimmta lagi er i frumvarpinu
lagt til að felld verði niður 59. gr,
skattalaganna um reiknuð laun I
þingsjá
atvinnurekstri eða sjálfstæðri
starfsemi. Astæða niðurfellingar-
innar er fyrstog fremst sú að ekki
þykirstætt að skattur sé lagður á
tekjur sem aldrei hafa orðið til.
Samkvæmt skattaiaga-
frumvarpi fjármálaráðherra er
gert ráð fyrir að iágmark á föst-
um skattafrádrætti verði 75%
hærra fyrir einstæða foreldra en
hjá einhleypingum. Þetta þýðir
1395600 g.króna frádrátt hjá
einstæðum foreldrum og 797500
g. króna frádrátt einhleypinga.
Aður var þessi frádráttur fyrir
báða 550000 g.kr. Þá er gert ráð
fyrir að þessi frádráttur breyt-
ist árlega i samræmi við skatt-
vísitölu.
Frumvarpið gerir ráð fyrir
hækkun persónuafsláttar i
761000 g.krónur og jafnframt
má nýta persónuafslátt til
greiðslu sjúkratryggingar-
gjalds, Utsvars og eingarskatts.
Eignir eru skattfrjálsar
samkvæmt frumvarpinu upp að
21750000 g. króna, en skatthlut-
Afram verður hins vegar i 97. gr.
laganna heimild til skattstjóra að
áætla tekjur ef ástæöa er til að
ætla að tekjurnar séu vantaldar.
Nánar er fjallað um þetta atriði i
annarri frétt.
t sjötta lagifelur frumvarpið i
sér 1,5—1,8% kaupmáttaraukn-
ingu hjá þeim sem hafa meðal-
tekjur eða minna og er þaö i sam-
ræmi viö efnahagsáætlun rikis-
stjórnarinnar frá þvi um áramót.
Þessi kaupmáttaraukning er
fengin með lækkun skatta. Um er
að ræða niðurfellingu sjúkra-
tryggingargjalds á tekjur undir
6.750.000 gkr. og auk þess er
Fastur frádráttur
einstϚra foreldra
veröur 1395600
g.kr. og er bund~
inn skattvísitölu
fallið á eignir umfram það er
1,2%.
Skattstigi tekjuskatts verður
eftirfarandi samkvæmt
frumvarpinu: Af fyrstu 4,7
miljónum gkr. greiðist 25%, af
næstu 4,3 miljónum gkr. greiðist
35% og af þvi sem umfram er 9
miljónir gkr. greiðist 50%.
Barnabætur verða við næstu
álagningu sem hér segir: Hjá
hjónum vegna 1. barns 217500
Ragnar Arnalds fjármála-
ráðherra.
persónuafsláttur hækkaður i
761.000 gkr. og breytingar gerðar
á skattstiganum. Þessi skatta-
lækkun kemur þeim til góöa er i
fyrra höfðu tekjur á bilinu 4—10
miljónir g.kr.
gkr., hjá hjónum vegna annarra |
barna 311750 gkr. Barnabætur ■
hjá einstæöum foreldrum vegna l
hvers barns 406000 gkr. Viðbót I
vegna barna undir 7 ára aldri er |
94250 gkr. .
Rikisstjórnin gerir jafnframt I
ráð fyrir að sjúkratryggingar- I
gjaid falli niður af tekjum undir |
6750000 gkr. en nemi áfram 2% ■
af þeim tekjustofni sem er |
umfram þessa fjárhæð. Þessi I
niðurfelling sjúkratrygginga- |
gjaldsins sem og hækkun ■
persönuafsláttar og breyting á |
skattstiga felur i sér 1,5% I
skattalækkun hjá framteljend- j
um með almennar launatekjur i ■
samræmi við fyrirheit rikis- I
stjórnarinnar frá áramótum. I
Þessi skattalækkun kemur til |
góða launafólki með tekjur á ■
siðasta ári upp að 10 miljón gkr. I
li
Tölulegar upplýsingar varöandi skattaaðgeröirnar:
Persónuafsláttur
hœkkar í 761 þús.
Lagt til að 59. gr. skattalaga um reiknuð laun verði afnumin vegna vankanta:
Ekki tekjuskatt
af engum tekjum
Eitt þeirra atriða sem felast I
skattafrum varpi fjármálaráð-
herra er niðurfelling 59. gr.
laganna um reiknuð laun I at-
vinnurekstri. Þó að greinin sé
afnumin samkvæmt frum varpinu
þá eru enn rúmar heimildir I 97.
gr. skattalaga fyrir skattstjóra til
að áætla tekjur i atvinnurekstri ef
ástæöa þykir til aö ætla aö tekj-
urnar sé vantaldar. Hér á eftir fer
sá hluti greinargerðar fjármála-
ráöherra er fjallar um 59. gr. I
skattafrumvarpinu:
„Megintilgangur ákvæðanna i
7.gr. og 59. gr. skattalaganna var
aö samræma rekstursuppgjör
fyrirtækja óháö rekstrarformi
þeirra. Eiganda rekstursins er
(Mieimilt aö reikna sér lægra
endurgjald fyrir starf sitt en hefði
hann innt það af hendi fyrir
óskyldan aöila. Annaö aðalmark-
mið 59. gr. er aö koma i veg fyrir
að þeir sem hafa tekjur sinar af
rekstri sleppi með að greiða litla
sem enga beina skatta.
Fyrir setningu laganna var það
mjög gagnrýnt að sjálfstæöir
rekstraraöilar, t.d. tannlæknar,
lögmenn, verkfræöingar,
arkitektar, kaupmenn, útgerðar-
menn, eigendur flutningabila og
vinnuvéla og bændur, kæmust
undan eðlilegum skattgreiðslum
með óeðliiegum útgjöldum og
afskriftum ásamt lágt áætluðum
tekjum. Reiknuðu launin tryggja
lágmarksskattgreiðslur allra at-
vinnurekenda sem taldir eru hafa
stundað fullt starf. Þótt kostir
reiknuðu launanna hafa verið
ótviræðir þá er ljóst aö ýmsir
annmarkar þessa kerfis hafa
komiö i ljós.
Viömiöunarlaunin hafa ýmist
þótt of lág, t.d. hjá ýmsum stétt-
um háskólamenntaöra manna,
eða þau hafa hins vegar þótt of
há, t.d. hjá kvæntum bændum, en
ilögunum eru þau beinlinis miðuö
viö launaþátt i verðlagsgrund-
velli landbúnaðarvara. -Sem
dæmi má taka einhleypan bónda
á visitölubúi sek kvænist. Hann
fékk vegna ársins 1979 5.657.000
gkr. I reiknuð laun á reksturinn
fyrir bæöi hjón I stað '3.344.000
gkr. áður en eiginkonan kom til
sögunnar, þótt reksturinn vaari
nákvæmlega sá sami.
Akvæði 59. gr. hafa ekki verið
framkvæmd eins i öllum skatt-
umdæmum og auk þess virðist
ekki sem nægilegt tillit hafi verið
tekið til einstakra aðstæðna
framteljenda i öllum tilvikum.
Þótt reynsla álagningarársins
1980 sé tæplega marktæk vegna
þess hve timi til álagningarinnar
var naumur svo og vegna óvenju-
legra erfiðleika i bændastétt, þá
leiddi sú reynsla samt til þess að
ákveðiö var aö afnema reiknuðu
launin i skattalögunum. Þvi þykir
rétt að gera nokkra grein fyrir
niðurstööum athugunar sem gerö
var vegna álagningar árið 1980.
Þá var endurgjald vegna vinnu
við eigin rekstur reiknaö á 2.490
einstaklinga en á 10.941 aðila sem
var i hjónabandi. Samtals var þvl
reiknað á 13.431 einstakling sem
talinn var atvinnurekandi að
aöalstarfi. Upphæð reiknaös
endurgjalds var að sjálfsögöu
ærið mishá. Af fyrrnefndum 2.400
einstaklingum höfðu 1.716 þeirra
3.4 m.kr. eða minna i reiknaö
endurgjald en 2.174hjón.
Af þeim einstaklingum sem
höfbu reiknað endurgjaid voru
1.325 bændur. Höföu þessir
Enn heimildir trl
að áætla tekjur
á menn
einstaklingar i bændastétt 40.65%
af heildarfjárhæð reiknaðs
endurgjalds á einstaklinga. Af
þeim hjónum sem höfðu reiknaö
endurgjald voru 2.548 i bænda-
stétt og báru þau 28.41% af
heildarfjárhæð reiknaðs endur-
gjalds á hjón. Hins vegar voru
það ekki nema 1.352 hjón i bænda-
stétt og 526 einstaklingar sem
mynduðu tap vegna reiknaðs
endurgjalds.
Þessi niðurstaða bendir
eindregið til þess að með ákvæð-
um 59. gr. hafi verið gengið of
langt i þá átt að ákveða laun á
aðila þótt þeir hafiekki haft nein-
ar hreinar tekjur og þeim þar
með gert að greiða skatt af tekj-
um sem aldrei urðu til. Þvi er lagt
tilað leggjaþessiákvæði niður.
Niöurfelling ákvæðanna um
reiknuð laun hefur i för með sér
að nauösynlegt hefur þótt að gera
tillögur um nokkrar aörar breyt-
ingar i lögunum. Má m.a. nefna
reglur um takmörkun á nýtingu
persónuafsláttar til greiðslu
eingarskatts, útsvars og sjúkra-
tryggingargjalds og breyttar
reglur um tekjustofn hjóna.
Ætla má að þessi breyting kosti
rikissjóð 14 m.kr. og sveitarfélög
um 18 m .kr. Stafar um helmingur
þessa tekjutaps af yfirfæröu tapi
vegna reiknaðra launa við álagn-
ingu 1980.”
Tekjur ríkissjóðs-
af eigna- og tekju
skatti 1980:
3,5 miljörð-
um gkr. lægri
en áætlað var
Innheimtir tekju- og eigna-
skattar fyrir siðasta ár voru 3,5
miljörðum lægri en fjárlög ársins
1980 gerðu ráð fyrir. Samkvæmt
fjárlögum hafði verið gert ráð
fyrir að tekjur af tekju- og eigna-
sköttum yrðu 63,8 miljarðar gkr.
en tekjurnar urðu i reynd 60,3
miljarðar gkr.
Þessar upplýsingar komu fram
i ræðu fjármálaráðherra er hann
mælti fyrir frumvarpi um breyt-
ingar á skattalögum. Fjármála-
ráðherra minnti á að þegar
skattalögunum var breytt I fyrra
þá hefði stjórnarandstaðan full-
yrt að breytingarnar á skattalög-
unum myndu skila meiri tdtjum
en áætlað var i fjárlögum. Nú
væri ljóst aö fullyrðingar
stjórnarandstöðunnar hefðu
reynst rangar.
Fjármálaráðherra sagöi að nú
virtist stjórnarandstaðan ætla aö
hefja sama leikinn aftur með þvi
að fullyröa að áformaðar skatta-
lækkanirséu tómar blekkingar og
tekjur rikisins hækki frekar en
hitt. Ráðherra sagði að reynslan
myndi siýna aö þetta upphlaup
stjórnarandstööunnar væri byggt
á sömu röngu forsendunum og
málflutningur þeirra á siðasta
ári.
— Þ
Þorbjörg Arnórsdóttir
Þingsályktanir
samþykktar:
Sett verði
lög um
félagsbú
Siðustu daga hafa nokkrar
þingsályktanir verið samþykktar
á Alþingi og verður hér gerð grein
fyrir efni 3ja þeirra:
1) „Alþingi ályktar að fela
rikisstjórninni að hlutast til um
að sett verði i löggjöf ákvæði um
stofnun og rekstur félagsbúa”.
Flutningsmaður þessarar tillögu
var Þorbjörg Amórsdóttir vara-
þingmaður Alþýðubandalagsins.
I greinargerð með tillögunni segir
Þorbjörg að með stefnumarkandi
ákvæðum af hálfu rikisvaldsins
um eflingu félagsbúskapar og
fjölgun félagsbúa væri ótvirætt
stigið stórt skref til aukinnar hag-
ræöingar og hagkvæmni og
bættrar starfsaöstöðu i islenskum
landbúnaði á komandi árum.
2) „Alþingi ályktar að félá
rikisstjórninni að hlutast til um
gerð áætlunar um iðnþróun á
Vesturlandi”. FÍutningsmenn
voru þingmenn Vestur-
landskjördæmis.
3) „Alþingi ályktar aðkjósa sjö
manna milliþinganefnd til að
kannaá hvern hátt nauðsynlegt sé
að efla landhelgisgæsluna svo að
hún geti haft sem best eftirlit með
200 milna lögsögusvæöinu og
gegnt öðrum hlutverkum sinum á
fullnægjandi hátt. Nefndin skal
ljúka störfum áöur en þing kemur
saman aö hausti”. Tillagan var
upphaflega flutt af Benedikt
Gröndal og Arna Gunnarssyni en
tók nokkrum breytingum i með-
förum þingnefndar.