Þjóðviljinn - 09.04.1981, Qupperneq 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. april 1981
HAFNFIRSK
MENNINGARVAKA
fjórða • tíl • ellefta • april • 1981
ídgg____________
Fimmtudagur 9. apríl:
Kl. 20.30
Dagskrá um skáldið Öm Amarson: að Hrafnistu
Erindi: Stefán Júlíusson
Upplestur: Ámi Ibsen og
Sigurveig Hanna Eiríksdóttir
Kveðið úr Oddsrímum:
Kjartan Hjálmarsson og
Margrét Hjálmarsdóttir
Kórsöngur: Karlakórinn Þrestir
Stjóm.: Herbert H. Ágústsson
Kl. 19.00 og 21.00
Kvikmyndasýning í Bæjarbíói:
Punktur punktur komma strik
q morciun
Föstudagur 10. apríl:
Kl. 21.00
Dansleikur í samkomusal Flensborgarskóla:
Lúðrasveit Hafnarfjarðar leikur fyrir dansi
Skemmtiatriði
"í,„3r
'jprr,7-11 ir..........................ifi:!:i!■;'ii!i!"niii tniiu
%
| 11 Itk
é\w
' a a
IVirTrrr„-rTTrr.TTr,
n
n
....’..:....Ll..L„1iÍ1U1L|1
ii ii
Aðalfundur
Aðalfundur Félags landeigenda i Selási
verður haldinn að Hótel Esju, laugardag-
inn 11. april 1981 kl. 14.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Slit á félaginu.
3. önnur mál. Stjórnin.
Fóstru vantar
i heilsdagsstail við leikskólann Höfn,
Hornafirði, frá 1. júni n.k.
Einnig vantar fólk til afleysinga i sumar
frá 1. mai n.k.
Nánari upplýsingar veitir forstöðukona i
simum 97—8315 og 97—8506.
Frá Tónlistarskóla A
Kópavogs y\
Seinni vortónleikar verða haldnir l's\
laugardaginn 11. april kl. 2
eftir hádegi i sal skólans.
Skólastjóri
Minning:
Haraldur Jensson
fyirum varðstjóri
Fœddur 12/12 1919 - Dáinn 2/4 1981
Ég lyfti þér blikandi lífsins veig,
Ijósblómin gríp ég af himneskum sveig
og legg mér um heita hvarma.
bað er farið að þynnast ( röðum
minna góðu vina og starfsfélaga
frá því að ég byrjaði sem fanga-
vörður hjá lögreglustjóraembætt-
inu i Reykjavik, árið 1946.
Með Haraldi er hniginn einn i
hópi traustustu og bestu vina
minna. Vist er um það, aö 35 ára
straumkast hefur tekið mikið
með sér og auövitað gefur það
nokkuð í staðinn, og vissulega
kemur maður i manns stað. En
sama rósin sprettur aldrei aftur.
RUm Haraldar Jenssonar verður
vandfyllt bæði heima og að
heiman. Haraldur var einstakt
prUðmenni, sem aldrei haggaðist,
hvað sem á gekk. Ég veit að þeir,
sem best þekktu manninn og
fylgdust með innstu hugarhrær-
ingum hans i önn dagsins, votta
með mér, að öryggið, sem hann
bjó yfir bæði i huga og starfi hafi
fært okkur sanninn um, að hvar,
sem hann fór, var hraust sál i
sterkum likama. Frábær starfs-
ferill Haraldar bæði sem land-
verkamanns, sjómanns, lög-
reglumanns, varðstjóra og siðast
en ekki sist læknabilstjóra er að
sjálfsögðu manngildi hans að
þakka og hæfileikum að laga sig
að mönnum og staðháttum hverju
sinni, hvar sem var.
Skaphöfn Haraldar var einstök.
öll þau ár, sem viö unnum saman
og hann þá oft sem varðstjóri varð
að taka vandasamar ákvarðanir
og ekki voru aö geði þeirra, sem
hann deildi viö, og urðu þeir oft
vondir. Þá brosti Haraldur sinu
venjulega brosi og sagöi með
sinni alkunnu ró: ,,ÞU sefur hjá
okkur i nótt vinur og svo, þegar
þú váknar til lifsins, þá skilur þú
mig betur.” Haraldur vissi, að sá,
sem hrasar á göngu sinni,
afmyndar spor sin. Ég tileinka
þessum látna vini minum þessi
kunnu og fleygu orð:
„Hafðu hljótt um þig. Drag skó
þina af fótum þér, þvi að sá
staður, er þú stendur á, er heilög
jörö.” Vissulega áttu þessar setn-
ingar vel við sálarlif Haraldar og
ekki hvað sist við siðustu störf
hans i mörg ár, þar sem hann
vann og vakti um nætur þegar
aðrirhvildustog sváfu. Það mátti
ekki þeyta bilflautuna, ekki
þramma harkalega upp stiga eöa
skella hurðum. Hans atvinna var
að keyra læknana milli hUsa um
nætur þeirra erinda að lina kvalir
hinna sjúku, sem áttu bágt og
þoldu ekki strákslega umgengni.
Haraldur fæddist 12. desember
1910 að Reykjanesi i Grimsnesi.
Voru foreldrar hans Jens Jónsson
trésmiður og Oddbjörg
Stefánsdóttir. Þau giftust ekki og
bjuggu ekki saman, svo að það
kom i hlut móðurinnar að sjá
drengnum fyrir daglegum þörf-
um þar i sveit. Arið 1926, nánar
tiltekið 16 ára gamall, flyst hann
til Reykjavikur og stundar þar
alla þá vinnu, sem föl var og hægt
var að fá og áður er getið.
Árið 1937 kvænist Haraldur
fyrri konu sinni Björgu Jónsdótt-
ur Barðasonar skipstjóra frá
Siglufirði og átti með henni f jögur
börn, tvær dætur og tvo drengi.
Elsta barn þeirra, Helga, sem á
sinum tima var sunddrottning
Islands, synti Ur Harðarhólma til
lands eins og alnafna hennar
gerði forðum daga.
Hólmfríður er búsett norður i
Ölafsfirði, gift Barða Þór-
hallssyni bæjarfógeta. Henni
kynntist ég fyrir tæpum tveimur
árum á St. Jósefsspitala i Hafnar-
firði, þar sem við vorum sjúk-
lingar. Hvern dag kom pabbi
hennar i heimsókn og gerði okkur
málkunnug. Aldrei var þessi
vinljúfi sæmdarmaður svo mikið
að fiyta sér, að hann ekki miðlaði
mér nokkrum minútum af þeim
tima, sem dótturinni bar.
E.B.
Arið 1954 missir Haraldur konu
sina frá börnunum innan viö og
um fermingaraldur. Þær systur,
þó ungar væru, sáu um heimiliö
og bræður sina barnunga I full tvö
ár. Þá verða aftur hamingjusam-
leg þáttaskil I lifi Haraldar, er
hann kvæntist ungri og glæsilegri
konu, Þórunni Stefánsdóttur frá
Skipholti i Arnessýslu, og átti
með henni þrjár dætur, sem allar
eru heima ógiftar, sú yngsta
fjórtán ára.
Ég þekkti ekki konur Haraldar:
og börn þeirra nema Helgu mest
af afspurn, þar til ég kynntist frú
Hólmfriði eins og áður segir. Hún
talaöi ekki mikið um sjálfa sig en
meira um stjúpu sina, sem hún
taldi i fyrstu röð kvenna bæði að
sjá og reyna;og aldri geröi hún
mun á sínum eigin börnum og
okkur, sem vorum henni ekki
skyld. Hálfsystur minar eru allar
bæði fallegar og góðar, sagði
Hólmfriður.
Haraldur var búinn aö vera frá
vinnu í full tvö ár og nokkrar
vikur á spitala, oftast sárþjáður
þar til yfir lauk. Hann verður
jarðsunginn I dag frá Fossvogs-
kapellu klukkan þrjú.
Ég votta eiginkonu, börnum og
öllum vinum Haraldar mina
dýpstu samúð.
Góða ferð inn i friðinn og
sæluna.
Bjarni M. Jónsson.
Auglýsinga- og áskriftarsími
81333
Ejjginmaður minn og faðir okkar
Guðbjörn Jakobsson, bóndi
Llndarhvoli I Þverárhlið
aqdaðist i sjúkrahúsinu á Akranesi 6. april.
Otför hans fer fram frá Norðtungukirkju laugardaginn
lll aDrfl kl. 14.00
Jarðsett verður i Hjarðarholtskirkjugarði.
F^rð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 11 þann dag.
I
Cecilia Helgason
Jón G. Guðbjörnsson
Sigurbjörg G. Jóhannesdóttir
fkar Guðbjörnsson
)la Guðbjörnsdóttir
lda Guðbjörnsdóttir
Hjartans þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug vegna andláts
Odds Jónssonar,
Fagurhólsmýri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Borgarspitalans i Reykja-
vik fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Nanna Sigurðardóttir
Halldóra Oddsdóttir Helga Oddsdóttir
Sigriður Oddsdóttir Hróbjartur Agústsson
Guðmunda Jónsdóttir og fjölskylda
Sigurjón Jónsson og fjölskylda
Faöir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Kristján Eyfjörð Guðmundsson
Merkurgötu 13
Hafnarfirði
andaðist á Landspitalanum 3. april.
Otför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
10. aprfl kl. l4.00.Blóm og kransar vinsamlega afþakkaöir,
en þeim, sem vilja minnast hins látna,er bent á liknar-
stofnanir.
Páil Þorkelsson
Aslaug Magnúsdóttir
Klara Kristjánsdóttir
Guðmundur Skúli Kristjánsson
Rakel Kristjánsdóttir
Steinþór Diljar Kristjánsson Guöfinna Þorvaldsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.