Þjóðviljinn - 09.04.1981, Qupperneq 13
Fimmtudagur 9. april 1981. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
Sá stutti sigraði
í keppni BBC
BBC breska sjónvarps og út-
varpsstöðin gengst fyrir á ári
hverju keppni 8 skákmeistara frá
hinum ýmsu löndum. Þessi
keppni hefur veriö haldin frá
árinu 1977, en þá sigraði heims-
meistarinn Anatoly Karpov eftir
mikinn og harðan úrslitaslag við
Tony Miles. Fyrirkomulag
keppninnar hefur ávallt verið það
sama. Mönnum er skipt í tvo 4-
manna riðla og sigurvegararnir
tefla siðan til úrslita og nægir ein
vinningsskák til sigurs i keppn-
inni. Bent Larsen hefur verið
meðal þátttakenda i öllum keppn-
unum og einu sinni náð að sigra.
Að þessu sinni varö hann að horfa
á eftir sigrinum til Tony Miles en
fyrir honum tapaði hann eftir
að Larsen, aö eigin sögn hafði
haldið til streitu kóngssókn i
stað þess að huga aö þarfari
málefnum á drottningarvæng.
Miles hlaut 2 1/2 vinning
en Larsen 2 vinninga. Aðrir
þátttakendur voru Lothar
Schmid og Jan Donner. 1 hin-
um riðlinum urðu úrslitin held-
ur betur óvænt. Hinn 15 ára
gamli Nigel Short bar sigur úr
býtum eftir keppni við þrjá fyrr-
um kandidata, Hort, Cligoric og
Byrne. Short vann sannfærandi
sigur yfir Gligoric og gerði jafn-
tefli við Hort og Byrne. Hann
tefldi þvi til úrslita við Miles og
viti menn: Miles sem undanfarin
ár hefur veriö ókrýndur konungur
enskra skákmeistara varð að láta
i minni pokann og sjónvarps-
áhorfendur urðu vitni að sann-
kallaðri sensasjón. Sýnishorn af
taflmennsku Shorts er hér að
finna:
Hvitt: Gligoric (Júgóslavía)
Svart: Short (Engiand)
Nimzoindversk vörn
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
á Vesturlandi — Ráðstefna um forval og
lýðræðislegt flokksstarf.
Laugardaginn 11. april næstkomandi verður haldin i Rein á Akranesi
ráðstefna um forval oglýðræðislegt flokksstarf. Ráðstefnan hefst kl. 13
og stendur til kl. 17.30.
Fluttar verða stuttar framsöguræður, en siðan verður skipt i umræðu-
hópa, sem skila niðurstöðum i lokin. Fjallað verður um eftirtalin efni:
1. Forvalsreglur AB i kjördæminu.
Framsaga: Jónina Arnadóttir.
Umræðustjóri: Hallgrimur Hróðmarsson.
2. Samstarf sveitarstjórnarmanna á Vesturlandi.
Framsaga: Jóhann Ársælsson.
Umræðustjóri: Halldór Brynjúlfsson.
3. Landsmálastarf AB á Vesturlandi.
Framsaga: Engilbert Guðmundsson.
Umræðustjóri: Þórunn Eiriksdóttir.
Fundarstjóri verður Gunnlaugur Haraldsson. Athuguð breyttan
fundartima. — Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vesturlandi.
Alþýðubandalagið Akranesi — Arshátið
Alþýðubandalagsfélagið á Akranesi heldur árshátið sina laugardaginn
11. april i Rein og hefst hún með borðhaldi kl. 19.30.
Jenni R. Ólason og Halldór Backmann flytja ávörp. Meöal skemmti-
atriða: Sveitin bak við hólinn, leikþáttur og fiðluleikur. Diskótekið Disa
örvar til dansa.
Glæsilegt háborðmeð heitumréttum og köldum. — Húsið verður opnað
klukkan 19. — Miöasala og borðapantanir I Rein fimmtudaginn 10. april
kl. 20—21. —Skemmtinefndin.
Almennur félagsfundur i
Alþýðubandalaginu i Reykjavik.
mánudaginn 13. april kl. 20.30 að Hótel Esju.
Fundarefni: Utanrikis- og herstöðvamál.
1. Stutt framsaga, Clafur Ragnar Grimsson.
2. Svavar Gestsson, Guðrún Helgadóttir,
Ólafur Ragnar Grimsson, Bragi
Guðbrandsson og Erling ólafsson sitja
fyrir vörum.
Mætið vel og stundvislega. — Stjórn ABR.
Svavar
Guðrún
Ólafur
Bragi
Herstöóvaandstæöingar
Fundaröð
um
þróunarlönd
Ingibjörg
Ólafur
Fimmtudaginn 9. apríl segja Ingibjörg Haralds-
dóttir og ölaf ur Gíslasonfrá Kúbu.
Húsiðopnaðkl.20.00, fundurinn hefst kl. 20.30
Samtök herstöðvaandstæðinga
Skólavörðustíg ÍA.
1. d4-Rf6
2. c4-e6
3. Rc3-Bb4
4. e3-c5
5. Re2-
(Eftir 5. Bd3-Rc6 6. Rf3-Bxc3
kemur upp afbrigði sem Gligo
hefur slæma reynslu af.)
g-. ..-cxd4 8. d5-exd5
6. exd4-0-0 9. cxd5-Bc5
7. a3-Be7
(Karpov lék hér 9. -He8 á
Bugonjoskákmótinu i fyrra.
Gligoric tapaði skákinni og
virðist þvi eiga i miklum vand-
ræöum með Nimzoindversku-
vörnina um þessar mundir. En
kannski er hann oröinn of gamall
til að slást við unglömb á borð við
Short.)
10. Rd4-d6d
11. Be2-a6
12. 0-0-Rbd7
13. Bg5-h6
14. Bh4-He8
15. Hcl-Rf8
16. b4-Ba7
17. Rb3-Rg6
18. Bg3-Re7
19. h3-Rf5
20. Bh2-Bd7
21. Ra5-Hc8!
(Skemmtileg peösfórn. Hvitur
getur tæpast nælt sér i b7-peðið,
þvi eftir 22. Rxb7-Ðb6 23. Ra5-
Re3!! er hvitur illa beygður.)
22. Khl-Bd4 24. Rxcl-Re4!
23. Ra2-Hxcl
(Og nú stendur Gligoric frammi
fyrir hartnær óleysanlegum
vandamálum. Hann reynir aö
klóra i bakkann með:)
25. g4-Rxf2+ 28. Rd3-Dh4
26. Hxf2-Bxf2 29. Bf3-Bxd3
27. gxf5-Bxf5 30. Dxd3-Dxh3
(Þetta dugir til vinnings en
hvernig getur „undrabarn” látið
einfalda vinningsleið framhjá sér
fara. 30. -Hel+ 31. Kg2 Hgl+ 32.
Bxgl-Dg3+ 33. Kfl-Dxgl+ 34.
Ke2-Del mát?)
31. Be3-Dg4 33. Rfl-Hdl
32. Bg2-Hel +
— Hvitur gafst upp.
/
Israel
Framhald af bls. 5
að hinar israelsku byggðir á
hernumdu svæðunum séu besta
tryggingin gegn þvi að til verði
sérstakt riki Palestinuaraba.
Svo má vera; en um leiö eru þær
trygging gegn varanlegum friði.
Meðan þessari stefnu er haldið
áfram mun enginn semja við
Israel nema Sadat. Og þegar til
lengdar lætur er þessi stefna
stórháskaleg fyrir sjálfa tilveru
Israels. Hún þýðir að innan
tiðar mundi Israelsstjórn rikja
yfir svæöi þar sem meirihluti
ibúanna eru Palestinumenn, og
það þarf ekki mikið hugmynda-
flug til að skilja að i sliku riki
veröur bæði gyðingum og aröb-
um ólift.
Verkamannaflokkurinn telur
sig hafa aðra stefnu i þessum
málum og einkum hefur Abba
Eban, fyrrum utanrikisráð-
herra, gagnrýnt „byggða-
stefnu” Begins. En það er langt
frá þvi ljóst hvað flokkurinn
muni i raun gera. Flokksforing-
inn, Shimon Peres, vill helst
halda lifi i nýlendum Begins.
Hann talar um „jórdanska”
lausn — sem felst i þvi að
Hússein Jórdaniukonungi yröi
afhentur Vesturbakkinn, ekki
allur, en mestallur. Vandinn er
hinsvegar sá, að Palestinuarab-
ar Vesturbakkans vilja ekki
Hússein — og hann mundi ekki
einu sinni þora að taka viö þeim,
með þeim skilmálum sem Peres
býður upp á.
Auglýsing um aðalskoðun
bifreiða i lögsagnarumdæmi
Keflavíkur, Njarðvíkur,
Grindavíkur og
Gulibringusýslu fyrir árið 1981
Aðalskoðun bifreiða I Grindavikfer fram dagana 13., 14.
og 15. apriln.k. kl. 9—12 og 13—16 við lögreglustöðina að
Vikurbraut 42, Grindavik.
Aðalskoðun i Keflavik hefst siðan 21. alril n.k. sem hér
segir:
þriðjudaginn 21. apríl ö- 1 — ö- 75
miðvikudaginn 22. april Ö- 76 — ö- 150
föstudaginn 24. apríl 0-151 — ö- 225
mánudaginn 27. apríl Ö-226 — ö- 300
þriöjudaginn 28. april Ö-301 — ö- 375
miðvikudaginn 29. april Ö-376 — ö- 450
fimmtudaginn 30. april Ö-451 — ö- 525
mánudaginn 4. mai Ö-526 — ö- 600
þriðjudaginn 5. mai Ö-601 — ö- 675
miðvikudaginn 6. mai Ö-676 — ö- 750
fimmtudaginn 7. mai Ö-751 — ö- 825
föst udaginn 8. mai Ö-826 — ö- 900
mánudaginn 11. mai Ö-901 — ö- 975
þriðjudaginn 12. mai Ö-976 ö- 1050
• Skoðun ferfram aö Iöavöllum 4 Keflavik ; milli kl . 8- -12 og
13—16.
A sama stað og tima fer fram aðalskoöun annarra skrán-
ingarskyldra ökutækja s.s. bifhjóla og á eftirfarandi einn-
ig við um umráðamenn þeirra.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiöanna leggja fram full-
gild ökuskirteini. Framvisa skal og kvittun fyrir greiöslu
bifreiöagjalda og gildriábyrgðartryggingu.
Vanræki einhver að færa bifreið sfna til skoðunar á aug-
lýstum tima, verður hann látinn sæta ábyrgð að lögum og
bifreiðin tekin úr umf erö, hvar sem til hennar næst.
26. mars 1981.
Lögreglustjórinn i Keflavik,
Njarðvik, Grindavik og
Gullbringusýslu.
Tónlistarhátíð
ungra einleikara á Norðurlöndum verður
haldin i Stokkhólmi 25. sept. - 2. október
1982. Hátiðin er haldin á vegum Tónlistar-
háskólaráðs Norðurlanda og styrkt af
Norræna menningarsjóðnum.
íslenskum einleikurum, einsöngvurum ogi
samleiksflokkum gefst kostur á að taka
þátt i hátiðinni og gætu þar boðist tækifæri
til þess að fara i tónleikaferðir um Norður
lönd árið 1983 á vegum Norræna ein-
leikarasambandsins.
Samnorræn nefnd velur endanlega úr um-
sóknum, en forval fer áður fram i hverju
landi fyrir sig.
Þátttakendur mega ekki vera yfir þritugt.
Umsóknarfrestur til 15. mai 1981.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upp-
lýsingar eru gefnar i Tónlistarskólanum i
Reykjavik.
Smíði á strandferðaskipi
Tilboð óskast i smiði 499 tonna strand-
ferðaskips fyrir Skipaútgerð rikisins.
Afhending skipsins er áætluð 1. september
1982.
Útboðsgögn á islensku eða ensku eru af-
hent á skrifstofu vorri að Borgartúni 7 frá
og með 13. april n.k., gegn kr. 2.000.-
skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á
sama stað fimmtudaginn 4. júni 1981, kl.
11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
— áb.