Þjóðviljinn - 05.05.1981, Síða 2

Þjóðviljinn - 05.05.1981, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 5. mal 1981 KÆRLEIKSHEIMILIÐ vidtalid Helgi f gegn \ lesendum Þó ég verði átta ára mun ég aldrei skilja fullorðna fólkið. Rætt við Ólöfu Eldjárn, verslunar stjóra Bóksölu stúdenta Uni mér vel hjá skruddum Eitt þeirra fyrirtækja, eða eigum við kannski að segja stofnana, sem Félagsstofnun stúdenta rekur, er Bóksala stúdenta. Verslunarstjóri henn- ar er Ólöf Eldjárn. Við höfðum samband við hana og spurðum fyrst hvenær Bóksalan hefði tekið til starfa. — Það er nú kannski dálitið erfitt að segja nákvæmlega til um það, en Félagsstofnun stúdenta tók við rekstri Bóksöl- unnar 1969 og hún flutti hingað i Félagsheimilið þegar það var tekið i notkun 1971. En áratug- um saman hafði Bóksalan verið ieinu herbergi i Háskólakjallar- anum. Svo þegar Félagsstofn- unin tók til starfa þá runnu eign- ir Bóksölunnar til hennar. — Og megin tilgangurinn er náttúrulega sá að útvega stúdentum nauðsynlegar bæk- ur? — Já.hún kostar kapps um að útvega stúdentum þær bækur, sem þeim eru nauðsynlegar við námið. Bókatitlum, sem við erum með, fjölgar stöðugt bæði vegna þess að námsgreinum fjölgar og svo eykst valfrelsi stúdenta um námskeið og bækur þvi hægt er að velja á milli bóka i ýmsum námsgreinum. — Eru það eingöngu stúdent- ar, sem skipta við Bóksöluna? — Nei, það gera ýmsir utan raða þeirra, við visum engum á braut, sem hingað kemur. Og það er þónokkuð um að fólk ,,ut- an úr bæ” komi hingað til að versla. Einkum eru það þó kannski þeir, sem hafa verið i Háskólanum og vita þvi af okk- ur. Og svo kiemur það enn til, að viö erum með mikið af bókum, sem ekki fást annarsstaðar hér- lendis, einkum allskonar fræði- rit. Þá má og nefna, að við höf- um á boðstólnum allskonar „aukabækur”, ef svo má segja, — af ýmsum tegundum og svo bókmenntaverk. — Hvernig er það með þetta húsnæði, sem þið eruð i núna, nægir það ykkur til langframa? — Nei, þvi fer fjarri. Bóksal- an hefur vaxið m jög mikið og er alltaf að aukast og við erum i raun og veru að sprengja utan af okkur þetta húsnæði. Okkar stóri draumur er að komast i stærra húsnæði. — Áttu von á að sá draumur rætist á næstunni? — Ekki i nánustu framtið, er ég hrædd um. Og á meðan get- um við ekki fært út kviarnar umfram það, sem orðið er. Við getum t.d. ekki bætt við okkur islenskum bókum, sem við vild- um þó gjarna gera, þvi af þeim höfum við litið. Hér eru fáan- leg öll algengustu ritföng en þó vildum við hafa meira úrval af þeim. En húsnæðið setur okkur^ stól fyrir dyr. Íshokkí á Arabíuskaga Arabiskir ollufurstar finna peningum sinum undarlegustu brúkun. Til dæmis hefur Mana, sjeik I Dubai, einsett sér að komariki sinu á íþróttakortið. 1 þvi skvni hefur hann komið sér upp skautahöll og Isknattleiks- liðum tveim, sem Kanadamenn þjáifa. Af sjálfu ieiðir, að það er dýrt spaug að reka skautahöll i Dubai, þar sem lofthiti er einatt um 50stig. Enda þarf heilt orku- ver til að kæla leikvöll ishokki- liðanna tveggia. Þau heita mjög „köldum nöfnum”. Annaö heitir Vikingur og er skipað Kanada- mönnum. Hitt heitir Mörgæsir, og er fyrsta isknattleiksliðið i heimi sem Arabar einir spila i. Höfðingi Dubai vill einnig láta að sér kveða i knattspyrnu. Hann hefur leigt sér þýskan þjálfara og ætlast til að hann þjálfi landslið sem gjaldgengt sé i heimi atvinnuknattspyrnu. Vatn er torfengið I Dubai og þvi var ekki gripið til þess ráðs að rækta þar upp grasvöll. Þess i stað var búið til griðarmikið teppi þykkt og grænt, i réttum knattspyrnustærðum, og breitt á eyðimerkursandinn. Myndin synir Mörgæsirnar i Dubai. Síðustu forvöð eru nú á fimmtudaginn aö sjá leikþættina tvo eftir tckknesku andófsrithöfundana Václav Havel og Pavel Kohout, sem sýndir eru á Litla sviði Þjóðleikhússins og fengið hafa samheitið Ilaustið í Prag. Báðir þættirnir, Mótmæli eftir Havel og Vottorð eftir Kohout, fjalla um sömu persónu, andófsmanninn Vanek, og báðar lýsingar eru gerðar af alþekktri tékkneskri kimni. Leikstjóri er Helgi Skúlason, Vanek er leikinn af Rúrik Haralds- syni og ErlingurGislason sem sést meö honum á myndinni fer með stórt hlutverk i Mótmælum.. Það er eins og hann Karl Marx sagöi: fyst er sagan harm- leikur, svo er hún grin. Fyrst rak Stalin Trotski úr flokknum. Svo kom Matthias Bjarnason og vildi reka Gunnar Thor... Leikur ykkar frá i gær var 15.7—Rgfiog þvi svarar Helgi með 16. Bc3 og þá er staðan þannig: Ólöf Eldjárn — Hvernig er fjárhagsaf- koman? — Jú, ætli megi ekki segja að við séum bjargálna, svona þeg- ar litið er yfir árið i heild. En á vissum árstimum, þegar sala er hvað minnst, gætir nokkurs skorts á rekstrarfé. Bóksalan hefur séð um og fjármagnað útgáfu fjölritaðra kennslubóka fyrir Háskólann, svona 2ja—3ja ára birgðir I senn, og það bindur okkur nokkurn fjárhagsbagga. En það er til þess ætlast að Bók- salan standi undir sér og hún gerir það raunar. Jú, ætli við getum ekki sagt að fjárhagsaf- koman sé svona þokkaleg. — Er Bóksalan opin alla virka daga? — Já, hún er opin frá kl. 9—6 alla virka daga, eins og aðrar verslanir, en lokað er á laugar- dögum. Að sumrinu lokum við kl. 5 — Hvað vinna margir við verslunina? — Við vinnum þar 7 en i raun og veru eru þetta 5 1/2—6 stöðugildi þvi sumir eru ekki i fullri vinnu. — Hvað hefur þú unnið þarna lengi? — Siðan 1973. — Og kannt vel við þig? — Já, ég uni mér vel innan um skruddurnar. — Eitthvað fleira Ólöf? — Er þetta ekki orðið alltof mikið, er ekki svo þröngt hjá ykkur þarna i horninu? — Jú, drepandi þrengsli. En þó er nú ekki hægt að rigbinda sig við linufjöldann. — Nei, ætli þaðsé nú fleira, — og þó, — maður hefur orðið var við það, að fólk veit ekki að þessi búð er til eða halda þá að hún sé ennþá i Háskólakjallar- anum. A það má lika minna, að við gerum mikið af þvi, eins og aðrar bókabúðir, að sérpanta bækur, ef óskað er. Þetta er nú að smá fest- ast betur i sessi og svo vona ég bara að það rýmist um okkur áður en við drukknum hér alveg i bókum. — mhg Þið eigiö leikinn. Hringiö i dag á milli kl. 9 og 18, i sima 81333. —eik— © Bvll's ðákveðið... Og nú er ég búinn að gleyma tilefninu!

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.