Þjóðviljinn - 05.05.1981, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 5. mal 1981
Stjórnarfrumvarp um sjóefnavinnslu á Reykjanesi
Framkvæmdir hefjast
Afkastageta 40 þús. tonn. — Veitir 50 manns atvinnu
Lagt hefur verið fram á
Alþingi frumvarp um
heimild fyrir ríkisstjórn-
ina til að beita sér fyrir
stofnun Sjóefnavinnslunn-
ar h.f., er reisi og reki 40
þús. tonna saltverksmiðju
á Reykjanesi og vinni önn-
ur saltefni, er til falla við
þá vinnslu. Einnig yrði
hlutafélaginu heimilt að
hefja undirbúning að
framleiðslu á natríum-
kldríði til útflutnings.
1 gær var Utbýtt á Alþingi
stjörnarfrumvarpi frá Hjörleifi
Guttormssyni iðnaðarráðherra
um stofnun sióefnavinnslu á
Reykjanesi. í frumvarpinu leitar
Þingsjá
rikisstjórnin eftir heimild
Alþingis til að stofnsetja þessa
verksmiðju, en þessi verksmiðja
mun taka við rekstri undirbúriin
ingsféiags saltverksmiðju á
Reykjanesi h.f. sem stofnsett var
i tilraunaskyni á árinu 1978. I
fyrsta áfanga, sem hefja á á
þessu ári, er reiknað með að
byggð verði verksmiðja er afkasti
8000 tonnum áári, en ef markaðs-
horfur reynast jákvæðar þá er
fyrirhuguð stækkun þannig að
verksmiðjan framleiði 40 þúsund
tonn á ári og veröi svo eigi siðar
en á á árinu 1985.
ÁæUaður stofnkostnaður við
verksmiðjuna fullgerða er 157.7
milljónir króna. Arlegar tekjur
eru áætlaðar 34,7 m.kr. og
rekstrarkostnaður án vaxta og
afskrifta 17,1 m.kr. A þessu ári
Tíminn i dag
Nýtt útlit — Nýtt efni
Nýr Timi
Tíminn er örugglega i takt við þig.
Hefurðu séð hann eftir breytinguna
Er Tímaskortur vandamál hjá þér.
t>að leysirðu með þvi að gerast
áskrifandi að Tímanum.
siminn er 86300
Ertu orðinn áskrifandi
Náðu þér i eintak
Nýr og betri Timi
á næsta blaðsölustað
Tíminn í nýjum búningi
Áskrif tar síminn
86300
<$>
í ár
væri æskilegt að verja til
framkvæmda 18 m.kr., 20 m .kr. á
árinu 1982, 70 m.kr. á árinu 1983
og 50 m.kr. á árinu 1984.
Við saltverksmiðjuna er gert
ráð fyrirað starfi 50 manns þegar
verksmiðjan er fullbUin.
— Þig
Hjörleifur Guttormsson
Stjómarfrumvarp um þátttöku
í stálverksmiðju
I gagnið 1983
Riki sstjórnin hyggst gerast
eignaraðili að Stálfclaginu h.f. og
leggja i þvi skyni fram allt að 40%
af hlutafc félagsins. Afgangurinn
00% vcrður hins vcgar i eigu
ei nst aklinga, fyrirtækja og
sveitarfélaga.
Rikisstjómin lagði i gær fram
frumvarp á Alþingi þar sem leit-
að er eftir heimild til að gerast
eignaraðili að Stálfélaginu h.f.
sem stofnað er til að reisa og reka
stálbræðslu til framleiðslu á
steypustyrktarjárni hérlendis.
Frumvarp þetta hefur Hjörleifur
Guttormsson iðnaðarráðherra
látið semja i iðnaðarráðuneytinu.
Aðdragandinn að stofnun stál-
bræðslu hér á landi er nU orðinn
rUmlegaáratugs gamall. 1970 var
Stálféiagið h.f. stofnaö og hefur
það allar götur siðan reynt að fá
fyrirgreiðslu stjórnvalda til
stofnunar stálbræðslu, en talað
fyrir daufum eyrum. Það var
siðan i' ráðherratið Hjörleifs
Guttormssonar, sem iðnaðarráð-
herra 1978—1979 að alvarleg
athugun hófst á málinu, en töf
komst á það við þingrof og kosn-
ingar. Siðast liðið sumar setti
ráðherra á fót sérstakan
vinnuhóp til að hafa umsjón með
gerð framkvæmnisathugunar um
byggingu og rekstur slikrar verk-
smiðju.
1 greinargerð með þessu
frumvarpi er gert ráö fyrir að
verksmiðjan taki til starfa 1983 og
yrði framleiðslumagnið um 12700
tonn á ári eingöngu fyrir
innlendan markað.
Rikisstjórnin hyggst leggja
fram 12 milljónir króna sem
hlutafé, veita rikisábyrgð fyrir
lánum að upphæð 17,5 milljónum
kr. og fella niður aðflutningsgjöld
af vélum og tækjum til verk-
smiðjunnar.
— Þig
Stjómarfrumvarp um steinullarverksmiðju
Ríkið eigi 40%
Ríkisstjórnin hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp
sem felur í sér heimild til
handa hennitil að taka þátt
i stofnun hlutafélags er
reisi og reki steinullar-
verksmiðju og leggja f ram
í því skyni allt að 40% af
hlutafé þess.
I gær var Utbýtt á Alþingi
stjórnarfrumvarpi, sem iðnaðar-
ráðherra hefur látið UtbUa er
heimilar rikisst jórninni þátttöku I
stofnun steinullarverksmiðju á
Islandi. Til greina koma tvær
verksmiöjustæröir, annars vegar
verksmiðja með um 15000 tonna
afkastagetu á ári og er þá miðað
við verulegan Utflutning. Hins
vegar kemur til greina bygging
verksmiðju með um 5000 tonna
afkastagetu og er hUn fyrst og
fremst hugsuð fyrir innanlands-
markað. Ekki er tekið fram i
frumvarpinu hvorn valkostinn
æskilegast væri að taka og ekki er
tekin afstaða til þess hvar stein-
ullarverksmiöjuna beri að reisa.
Hins vegar hafa þrir staðir verið
skoðaðir, Sauðárkrókur, en þar
yrði fyrst og fremst reist minni
verksmiðjan, Þorlákshöfn, sem
hýsti þá stærri verksmiðjuna og
loks Reykjavik. 1 greinargerð er
gerður samanburður á flutnings-
kostnaði milli þessara þriggja
valkosta og er þá miðað við 12200
tonna ársframleiðslu. Kemur i
ljós að flutningskostnaður er
lægstur fyrir Reykjavik, en sá
fyrirvari hafður á að kostnaður
við strandlóð i Reykjavik er mun
hærri en t.d. i Þorlákshöfn.
1 frumvarpinu er rikisstjórn
jafnframt heimilað að leggja
fram 14 milljónir kr. af fé rikis-
sjóðs sem hlutafé, að veita rikis-
ábyrgð fyrir lánum að upphæð 21
milljón kr. og fella niður aðflutn-
ings- og sölugjöld af tækjum og
vélum til verksmiðjunnar.
— Þig
Faðir okkar
Guðgeir Jónasson
Smáragötu 5
andaðist á Landspitalanum aðfaranótt sunnudagsins 3.
mal.
Jarðarförin verður auglýst siðar.
Geir Guðgeirsson
Hreggviður Guðgeirsson
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð við
andlát og útför móöur minnar, systur, tengdamóöur og
ömmu,
Svanhildar Steinþórsdóttur,
Hjaröarhaga 26, Reykjavik.
Hrefna Kristmannsdóttir Helgi Björnsson
Asdis Steinþórsdóttir Svanhildur Helgadóttir
Haraidur Steinþórsson Biörn Helgason