Þjóðviljinn - 05.05.1981, Side 7
Þri&judagur 5. mai 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
„Leiftursókn er rökrétt afleiö-
ing af þeirri upplausn og öng-
þveiti sem hér rikir i þjóöfélag-
inu” sagöi Jón Magnússon for-
maöur Sambands ungra sjálf-
stæöismanna i svari viö fyrir-
spurn frá ungum Alþýöubanda-
lagsmönnum um afstööu stutt-
buxnadeildar Sjálfstæöisflokks-
ins til ieiftursóknarinnar marg-
frægu, á kappræöufundi þessara
aöiia i Sigtúni sl. miövikudags-
kvöid. Hannes Hólmsteinn Giss-
urarson frjálshyggjufrömuöur
sagöi um sama efni aö ieiftur-
sóknin væri sú árangursrikasta
leiö sem viö heföum I boöi gegn
veröbólgunni. Þaö þyrfti aö leysa
þau mál meö „snöggu átaki”. |
Þaö liggur þvi ljóst fyrir aö
ungir Sjálfstæöismenn haida enn
á lofti merkjum leiftursóknarinn-
ar.
Ræðumenn Æskulýösnefndar
Alþýöubandalagsins á kappræöu-
fundinum sem bar yfirskriftina
Hvert stefnir á islandi? Hverju
þarf aö breyta? voru þeir Sigurð-
ur Tómasson, Arthur Morthens
og Bragi Guðbrandsson, en aö
hálfu Sambands ungra sjálf-
stæöismanna töluöu þeir Jón
Magnússon, Gústaf Nielsson og
Hannes Hólmsteinn .
Siguröur Tómasson fjallaöi i
fyrstu ræöu sinni um þróun stór-
Yfir 200 manns á öllum aldri sóttu kappræöufundinn, sem er nokkuö minni fundarsókn en undanfarin ár, enda skólafólk flest komiö á kaf I
próflestur á þessum tima. — Mynd — eik.
Frá kappræðufundi ÆNAB og SUS í Reykjavik
Leiftursókn í fullu gfldi hjá
ungum Sjálfstæðismönnum
Ræðumenn ÆNAB hlýöa á frjálshyggjumenn meö bros á vör. Frá v.:
Arthur Morthens, Bragi Guöbrandsson og Sigurður G. Tómasson. —
Mynd — eik.
Niðurdregnir á svip hlýöa fulltrúar SUS á boöskapinn um sósialism-
ann. Frá vinstri: Gústaf Nielsson, Jón Magnússon og Hannes Hóim-
steinn Gissurarson. — Mynd — eik
iöjumála á lslandi og þann lær-
dóm sem menn gætu dregiö af
þeim draug sem magnaöur heföi
verið upp og komiö fyrir I
Straumsvik. Timi væri kominn
fyrir stóriöjupostula sem heimtaö
heföu 20 álverksmiöjur á sfnum
tima viösvegar um landiö aö
hætta aö berja höföinu viö stein-
inn, og hreinlega aö viöurkenna
aö álsamningurinn væri ein stór
mistök, i staö þess aö taka sifellt
afstööu meö álauövaldinu gegn
hagsmunum Islendinga.
„Framtfö Islands liggur i haf-
inu umhverfis landiö og þaö er
okkar stærsta verkefni á komandi
timum aö nýta þær auölindir af
forsjá og raunsæi,” sagöi Sigurö-
ur m.a..
Misskipting auðs
á ábyrgð auðvaldsins
Bragi Guöbrandsson sagöi aö
menn yröu aö gera sér grein fyrir
þvi aö stjórnmálabarátta væri
fyrst og fremst hagsmuna-
barátta. Hugsjón væri tjáningar-
máti hagsmuna.
Sósialismi væri afsprengi
kapitalismans og tjáöi hug þeirra
sem heföu oröiö undir i þeim
ómennska samfélagsmáta auö-
valdsins. „Misskipting auös er á
ábyrgö auövaldsins og meöan
Hannes Hólmsteinn talar hér á
eftir deyja 5—6 börn úr hungri I
heiminum. Varla lofa þau
ómennsku frjálshyggjunnar.
Skyldu kannski Bandarikjamenn,
sem eru 5% ibúa jaröarinnar en
eyöa 30% af allri heims-
framleiöslunni og búa yfir allri
þeirri fullkomnustu tækni sem völ
er á, ekki kunna nein ráö til aö
rétta nágrönnum sinum i
S-Ameriku hjálparhönd viö aö
brauðfæöa fólkiö þar sem er um
og yfir 50% barnadauði, eöa er
þaö kannski hagur Bandarikj-
anna og frjálshyggjunnar aö viö-
halda óbreyttu ástandi? Svari
hver fyrir sig.
Frelsiö til aö lifa á vinnu ann-
arra er bæöi upphaf og endir á
öllu frelsistali ihaldsins. Hvert er
frelsi þeirra 3ja miljóna atvinnu-
leysingja sem búa undir stjórn
bresku járnfrúarinnar? Frelsi
mannsins til að vinna?” 1 Bret-
landi væri nú berlegasta dæmiö
um hvernig auövaldiö varpaði
efnahagskreppu sjálfs sins yfir á
hinn vinnandi mann, en einmitt
þetta heföi veriö inntakiö i leiftur-
sóknartillögum ihaldsins fyrir
siðustu kosningar. Þaö væri þvi
von aö menn auglýstu eftir stefnu
ungra sjálfstæöismanna i þessum
efnum.
Hví þegir
Morgunblaðið?
1 framsögu ræöu sinni fjallaöi
Arthur Morthens um utanrikis-
mál og dvöl varnarliðsins á
Islandi. Hann lýsti breyttu eöli
herstöövarinnar á Miðnesheiöi
sem væri oröin meiriháttar
stjórnstöö fyrir kjarnorkustrið og
um leiö segull fyrir árás á landiö.
Þaö væri þvi „sjaldan brýnna en
nú aö vekja upp almennar um-
ræöur meöal allra landsmanna
um þessi mál út frá þeim staö-
reyndum sem viö búum viö og
Alþýöubandalagiö og Samtök
herstöövaandstæöinga heföu einir
islenskra stjórnmálaafla komiö á
framfæri við þjóöina.
Hvi þegir Morgunblaöiö um
þessar staöreyndir? Jú, þvi aö
þögnin er stærsti blekkingarvef
ur afturhaldsins. Raunverulegur
tilgangur og eöli herstöövarinnar
er faliö undir pilsfaldi Rússagrýl
unnar. Sjálfstæöisflokkurinn væri
klofinn I annars vegar litinn
minnihluta.sem vildi hafa banda-
riskt herliö hér af hugsjónaraö-
stæöum einum, og sistækkandi
hóp flokksmanna sem vildi ar-
onskuna I framkvæmd, þar sem
Flugstöðvarbyggingin á Kefla-
vlkurflugvelli væri nærtækasta
dæmiö.
Ekki meirihlutaeign
Islendinga
Jón Magnússon talaöi fyrstur
Sjálfstæöismanna og sagöi m.a.
aö fullskipt væri oröið gæöum
lands og fiskistofna. Batnandi
lifskjör kæmu þvi eingöngu i
gegnum iönaö, og það væru ekki
skilyröi fyrir hendi nú til aö tefja
framgang stóriöjustefnunnar
meö þvi aö vilja meirihlutaeign
Islendinga. Frjáls atvinnustefna
frjálsra manna væri stefna fram-
tiöarinnar en ekki drottnun rikis-
valdsins.
Gústaf Nielsson fjallaöi um
utanrikismál i sinu erindi og
sagöi m.a. aö Alþýðubandalagiö
væri andstætt þvi aö þjóöin sinnti
frumskyldu sinni um sjálfstjórn.
Þaö væri ómerkilegasti lygaáróö-
ur aö hér væru geymd kjarnorku-
vopn og I raun væri þaö hættuleg-
ur áróöur þvi Sovétmenn virtust
taka mark á honum..
Hannes Hóimsteinn sagöi
sósialismann dauðan en vitnaöi
siöan strax um framkvæmd
hans i verki i Sovétrlkjunum. Það
stafaöi hætta af alræöisvaldinu
þvi einokun framleiöslunnar
þýddi um leiö einokun hugsunar
sem þýddi stöönun. Frelsi væri
hins vegar til aö hugsa ööruvisi,
frelsi stjórnarandstæöingsins. i
siöari ræöum sinum varö Hannesi
tiörætt um töframátt hagvaxtar-
ins og sagöi aö leiö aukins hag-
vaxtar væri sú vænlegasta til aö
leysa vandann varöandi skiptingu
þjóöarkökunnar. Viö þyrftum aö
virkja fallvötnin og einstakling-
inn og efla hug hans og þrótt fyrir
bættum lifskjörum. Varöandi
utanrikismál sagöi Hannes aö þaö
væri óæskilegt aö hér væri erlent
herliö. „Hvenær getur þá herinn
fariö? Jú þegar leyft veröur aö
stofna samtök herstöövaandstæö-
inga I Sovétrikjunum.”
Harold Brown
bullar bara
Arthur Morthensvitnaöi i slöari
ræöu sinni til ummæla Harolds
Brown fyrrum varnarmálaráö-
herra Bandarlkjanna þar sem
hann lýsti yfirburöastööu banda
risks njósna- og eftirlitskerfis
gagnvart sovéskum vigatólum á
N-Atlantshafi.
Þessum rökum Arthurs svaraöi
hernaöarsérfræöingur SUS
Gústaf Nielsson á þann veg aö
Harold Brown væri einmitt ekki
varnarmálaráöherra Bandarikj-
anna lengur vegna þess . aö
hann heföi alltaf verið aö gefa út
yfirlýsingar um hernaöarmál
sem væru tómt bull. Þá sagöi
Gústaf að enga aronsku væri aö
finna varöandi byggingu flug-
stöövarbyggingarinnar. Hún væri
byggö i tvennum tii gangi ef til
styrjaldar kæmi, vegna þess aö
þá myndi allt millilandaflug
leggjast niöur??? Fundarmenn
áttu erfitt meöa átta sig á þessum
röksemdarfærslum Gustafs eins
og reyndar mörgu ööru sem stutt-
buxnadeildin lét sér um munn
fara.
Bragi Guöbrandsson sagöi aö i
frumvarpi Sjálfstæöismanna frá 1
vetur um virkjanamál væri lagt
til aö byggja 3 virkjanir á næstu
10 árum og tvöfalda orkufram-
leiösluna en hvergi væri getiö
hvaö ætti aö gera viö umframork-
una. Stefna Abl. væri aö byggja
upp smærri iöjuver sem féllu vel
að þeim félagslegu skilyröum
sem landsmenn búa viö. Þá benti
Bragi á að ungir Sjálfstæöismenn
væru sifellt aö klifa á þvi aö
Alþýöubandalagið heföi selt sig
fyrir ráöherrastóla, en hins vegar
tyggöu Morgunblaöiö daglega i
lesendur sina aö Gunnar
Thoroddsen heföi leitt
kommúnista til æöstu metorða.
Lifi sósíalsiminn
Siguröur Tómasson var síöasti
ræöumaður á fundinum. Hann
sagöi m.a. að gengt sér sætu 3'
fulltrúar fyrir jafnmörg flokks-
brot i Sjálfstæðisflokknum. Þaö
væri þvi ekki furöa aö Samband
ungra sjálfstæöismanna heföi
hafnaö ósk ÆNAB um kappræöur
um starf og stefnu rlkisstjórnar-
innar.
Flokkur sem kallaöi sig flokk
allra stétta væri nú greinilega
oröinn flokkur allra stefna. Tal
Hannesar um leiftursóknina
minnti mest á manninn meö ljá-
inn, enda heföi hann ekki minnst
einu einasta oröi á árangur leift-
ursóknarinnar I Bretlandi.
„Alþýöubandalagiö vill lýö-
ræðislegan sósialisma. Samfélag
þar sem lýöræöiö er sivirkt ekki
aöeins á fjögurra ára fresti i
kosningum heldur samfélag þar
sem almenningur hefur úrslita-
áhrif á efnahagsstefnu þessa
lands og meö þvi móti mun lifa
draumurinn um sóslalismann.
Lifi sóslalisminn.” Þetta voru
lokaorð kappræöumanna og fengu
góöar undirtektir áheyrenda en
riflega 200 borgarbúar á öllum
aldri sátu fundinn.
-»g-