Þjóðviljinn - 05.05.1981, Qupperneq 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 5. mal 1981
Viimuskóli
Reykjavíkur
Vinnuskóli Reykjavikur tekur til starfa
um mánaðamótin mai—júni n.k..
í skólann verða teknir unglingar fæddir
1966 og 1967 og/eða voru nemendur i 7. og
8. bekk grunnskóla Reykjavikur skólaár-
ið 1980—1981.
Umsóknareyðublöð fást i Ráðningarstofu
Reykjavikurborgar Borgartúni 1, simi:
18000, og skal umsóknum skilað þangað
eigi siðar en 21. mai n.k..
Nemendum, sem siðar sækja unqt, er ekki
hægt að tryggja skólavist.
Vinnuskóli Reykjavikur.
KAMMERTÓNLEIKAR
þriðjudaginn 5. maí kl. 20:30
Okko Kamu fiðluleikari
og Eero Heinonen pianóleikari
Á efnisskrá eru verk eftir Mozart, Einar
Englund og Beethoven (Kreutzersónat-
an).
Aðgöngumiðar við innganginn og á skrif-
stofu NH.
Verið velkomin
NORRÆNA
HUSIO
ORÐSENDING
TIL FORELDRA
í þessari viku fá nemendur grunnskóla
í hendur bæklinginn
„Sumarstarf fyrir börn
og unglinga 1981“,
með upplýsingum um framboö á
sumarstarfi neöangreindra stofnana.
Foreldrar eru hvattir til þess aö skoöa
bæklinginn vandlega meö börnum sínum.
íþróttaráð Reykjavíkur Tjarnargötu 20 s. 28544
Leikvallanefnd Reykjavíkur Skúlatúni 2 s. 18000
Skólagarðar Reykjavíkur Skúlatúni 2 s. 18000
Vinnuskóli Reykjavíkur Borgartúni 1 s. 18000
Æskulýðsráð Reykjavíkur Fríkirkjuvegi 11 s. 15937
Nýr umboðsmaður
ísafirði
Ráðinn hefur verið nýr umboðsmaður
Þjóðviljans á ísafirði. Hann heitir Ingi-
björg Sveinsdóttir, Hliðarvegi 23, simi
3403.
þlOÐVIUINN
Siðumúla 6
s. 81333.
K rístinn og Guðmundur fremstir í hópi söngvara við framkall á frumsýningu ,,La Boheme”
Hátiðasýning til heiðurs Kristni og Guðmundi
30 ára óperuafmæli
Annað kvöld verður sýning til
heiðurs ópcrusöngvurunum
Guðmundi Jónssyni og Kristni
HalLssyni á La Boheme I Þjóð-
leikhdsinu, en þeir eiga báðir 30
ára afmæli sem óperusöngvarar
á þessu voru. Er þetta lengsti
ferill islenskra óperusöngvara
hér heima, en báðir voru þeir með
i fyrstu óperusýningu leikhússins,
Rigolctto, fyrir réttum 30 árum.
Þetta er i fyrsta skipti að haldið
er upp á starfsafmæli söngvara I
ÞjóöleikhUsinu, en það hefur hins
vegar oft verið gert þegar
leikarar eiga i hlut, svo sem
kunnugt er.
Eftir að Guðmundur ,,sló i
gegn” i Rigoletto, hefur hann
farið með fleiri hlutverk i Þjóð-
leikhdsinu en nokkur annar
söngvari, fyrst og fremst i óper-
um, en einnig i óperettum söng-
leikjum og öðrum sjónleikjum.
Hann hefur verið fremsti bariton-
söngvari okkar i mannsaldur og
farið með ýmis veigamestu
óperuhlutverk sem til eru, þar á
meðal föðurinn i La Traviata,
Luna greifa i II Trovatore, dr.
Falke i Leðurblökunni (i báðum
uppfærslunum), Tonio i I
Pagliacci, Scarpia i Tosca,
Marcel i La Boheme, Sharpless i
Madame Butterfly, Lindorf/dr.
Copperlius/dr. Mirakel/Daper-
tutto i' Ævintýrum Hofmanns,
Zeta i' Kátu ekkjunni, Ollendorf I
BetlistUdentinum, Malatesta i
Don Pasquale, Szupan i Sigauna-
baróninum, Plumkett i Mörtu,
greifann i BrUðkaupi Figaros, að
ógleymdum Figaro i Rakaranum
frá Sevilla og Þór i Þrymskviðu
Jóns Asgeirssonar.
Kristinn Ha'lsson söng hlutverk
Sparafuciles i Rigolettosýning-
unni vorið 1951, en fór síðan utan
tilnáms. Eftirheimkomuna hefur
hann verið i fararbroddi islenskra
bassasöngvara, farið með fjölda
hlutverka i Þjóðleikhúsinu, t.d.
Papageno i Töfraflautunni,
djáknann i Tosca, Bartolo i
Rakaranum frá Sevilla, Wangen-
heim i' Betlistúdentinum,
Monterone i Rigolettó, Tristan i
Mörtu, Figaro i BrUðkaupi
Figaros, Frank i Leðurblökunni,
Dancaire i Carmen, Ajax i Helenu
fögru, og siðast en ekki sist Don
Pasquale i samnenfndri óperu.
Þá lék hann einnig annan
stUdentanna, Grim, i Skugga-
Sveini.
I La Boheme fara þeir Kristinn
og Guðmundur með hlutverk
Alcindoros, fylgdarmanns
Musettu, og húseigandans
Benoits.
Besta skákin
Á skákþingi tslands á dögunum
tók Skáksamband tslands upp þá
nýbreytni að veita fcguröarverð-
laun fyrir f ailegustu skák hverrar
umferðar. t sumum tilvikum var
Ur vöndu að ráöa fyrir dóm-
nefndina, bæði vegna þess að
glanspartiin iágu ekki á lausu,
margar skákir voru ansi langar
og í sumum umferðunum var
mikið um fremur tiðindalltil jafn-
tefli. Þá voru umferðir þar sem
margar góðar skákir voru tefldar
og dómnefndarmenn jafnvel ekki
á eitt sáttir um bestu skákina.
Þannig var málum háttað I 7.
umferð. Tvær skákir skáru sig
nokkuð úr hvað gæði snertu,
annarsvegar sigurskák greinar-
höfundar yfir Braga Kirstjáns-
syni og hinsvegar vinningsskák
Jóns L. Arnasonar yfir Jóhanni
Hjartarsyni. Greinarhöfundur
fékk verðlaunin, en ekki voru
menn þó á eitt sáttir með þá ráð-
stöfun þvi vissuiega var skák
Jóns L. og Jóhanns eitthvað fyrir
augað.
HUn fylgir hér:
Hvítt: Jón L. Arnason.
Svart: Jóhann Hjartarson.
Kóngsbragð.
1. e4-e5
2. f4 (!)
(Jón heldur tryggð viö kóngs-
bragðið jafnvel þó menn geti
gengið að þvi nokkuð visu. Með
hæfilegu millibili leikur hann þó
2. Rf3 þannig að undirbúningur
kóngspeðsmanna verður I flókn-
ara lagi. Hér hafði Jóhann búist
við 2. Rf3 ... ).
2. .. -exf4
3. Rf3
(Fischer mælir með 3. Bc4. Það
er einnig mjög athyglisverður
leikur.)
3. ..-de
4. Bc4-Be6
(Larsen stakk einhverju sinni
uppá þessum leik. Framvinda
máia sýnir þó að hann er vart
Hmabær.)
Jón L. Arnason.
skák
Umsjón: Helgi Ólafeeon
5. Bxe6-fxe6
6. d4-D f6
7. Rc3
(Hvitur má alls ekki leyfa 7. -e5.
Sá leikur strandar nú á 8. Rd5
o.s.frv.)
7. ..-Rc7
8. De2!
(Hótar 9. Db5+.)
8. . .“36
(Hvað annað? 8. -Rc6 má svara
með 9. d5, 8. -Rd7 má svara með
9. Rb5, í báðum tilvikum á
svartur Ur mjög svo vöndu aö
ráða.)
9. e5!
(Hvitur þarf að tefla hvasst. Að
öðrum kosti kemur svartur reglu
á lið sitt.)
9. ,.-dxe5
10. dxe5-Df5
11. Rh4!
(Jón teflir mjög nákvæmt. Eftir
11. Rd4-Dg6 nær svartur að rétta
úr kútnum með -Rbc6.)
11. ..-Dg5
(Ekki er staðan beysin eftir 11. -
Df7 12. Re4.)
12. g3
(Hótar 12. Bxf4 og drottningin
fellur. Jóhann fær ekki andartaks
frið.)
12. ..-Rg6 14- Rxg6-hxg6
13. Re4-Dxe5 15. Bxf4-Dxb2
(E.t.v. var betra að leika 15. -Dd5
enUrsliHn hefðu orðið þau sömu.)
16. 0-0-Db6+
17. Be3-Bc6
abcdefgh
18. Dg4!
(Þaö er ömurlegt að horfa uppá
svörtu stöðuna. Drottningin er
eini maðurinn sem hefur náð að
hreyfa sig.) 21. Hxf8+!-Hxf8
18. ..-Kd8 22. Hdl-Hf6
19. Rg5-Kc8 23. Hxd7-Rxd7
20. Rxe6-Dd7 24. Bd4
— önnur leið var 24. Rc5-Hd6, 25.
Dh3 o.s.frv.. En þetta er lika
aíveg nóg þvi Jóhann sá ekki
ástæðu til aðhalda áfram og gafst
upp.
A morgun er svo meiningin að
leyfa mönnum að dæma um hvort
þessi skák hafi á réttmætan hátt
verið lögð til hliöar.
hól.