Þjóðviljinn - 05.05.1981, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 05.05.1981, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 5. mal 1981 ) Leikfélag Vestmannaeyja: Sjötugur 1 dag er Maron Björnsson, Asa- braut 3 í Sandgerði, sjötiu ára. Hann verður að heiman. Uidnrbúningur biskupskjiirs hafínn Forseti islands hefur fallist á tillögu kirkjumálaráðherra um að herra Sigurbirni Einarssyni biskupi tslands verði veitt lausn frá embættifrá 1. október 1981 að telja. Undirbiiningur að biskupskjöri er hafinn. Kjörstjórn við biskups- kosningu hefur komið saman og samið og lagt fram kjörskrá fyrir biskupskjör er fram fer væntan- lega i jUnímánuði nk. Kjörskrá liggur frammi á biskupsstofu og i dóms- og kirkjumálaráðuneytinu til 26.mai nk. Kærur til breytinga á kjör- skránni þurfa að hafa borist for- manni kjörstjórnar i dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fyrir 27. mai nk. Fyrsta A annan páskadag frumsýndi Leikfélag Vestmannaeyja Sjón- leikinn „Fyrsta öngstræti til hægri” eftir örn Bjarnason. Ekki er hægt að segja að hér sé um neinn rómantiskan ævintýraleik að ræða, sem fyllir hugi‘manna rósrauðum, óraunverulegum ljóma, heldur er hér velt upp is- köldum raunveruleika um eitt al- varlegasta vandamál sem steðjar að Islensku þjóðinni og raunar mörgum öðrum þjóðum llka og það svo að maður spyr sjálfan sig I fullri alvöru, hvort þetta sé upp- haf þess hrunadans, sem leiöi þjóðina til glötunar. Þórarinn Magnússon skrifar um & .. *~A Þetta alvarlega vandamál er áfengisvandamálið. Þegar unga stúlkan eða ungi pilturinn smakka það i fyrsta sinn og ruglast svo að dómgreind og sjálfsmati að þeim finnast þau vera ægilega töff.jafnvel þótt þau verði bæði álappaleg og bjálfaleg, þá er það sannarlega ekki ætlunin að verða neinir geðsjúkir áfengis- sjúklingar, sem hvorkihafavald á drykkju sinni, orðum né gjörðum, með lamað þrek bæði likamlegt og andlegt. Þau ætla sko aldrei að veröa neitt svoleiöis, ekki eitt ein- asta ungmenni ætlar sér það, bara að vera skemmtilegur i skemmtilegum hópi, ennþá skemmtilegri en hægt er að vera meö fullu viti. En hver verður svo raunin á? Um það fjallar örn Bjarnason i leikritinu „Fyrsta öngstræti til hægri”. Ég efast um að nokkur leikrita- höfundur, hversu snjall sem hann væri, hefði getað gert þessu efni jafngóð skil og þarna er gert, en þaö tekst Erni vegna þess að auk öngstræti til hægri þess að vera góður rithöfundur þræðir hann þaulkunnuga leið. Og ef þau varnaðarorð, sem örn flytur hér með aðstoð leikaranna okkar i Leikfélagi Vestmanna- eyja, vekja ekki unga menn og konur til umhugsunar og sjálfs- könnunar i sambandi við Bakkus konungog samband sitt við hann þá veit ég ekki hvab fengið getur fólk til að hugsa. En hvaöa gagn væri að semja gott leikrit, ef þvi væri ekki komiö skammlaust til skila? Ég held að flestir séu sammála um að vand- fundið væri fólk, sem betur sæi um þann þátt en þau geröu, félagarnir i Leikfélagi Vest- mannaeyja. Unnur Guðjóns og Sigurgeir Scheving bregðast nú aldrei, þvert á móti koma þau a.m.k. mér alltaf á óvart með þvi að skila hlutverki sinu betur en ég . hélt að hægt væri. Þá er hún Sviðsmynd úr sýningu Leikfélags Vestmannaeyja á öngstræti Arnar Edda. enginn viðvaningur heldur Bjarnasonar. og alltaf býsnagóð. Ekki veit ég heldur hvernig hún heföi getað leikið hina hugrökku, ógæfusömu útigangskonu, önnu, betur en hún gerði. Þá voru stelpurnar, Guðrún og Harpa, ótrúlega eðli- legar og góðar i hlutverkum sinum. Þótt mér fyndist unglings stúlkan Maria full mótþróa og gelgjuskeiðskompleksum hafa breyst furðu mikiö I útlitj á þeim fáu árum, sem liðu, þar til við sáum hana I öngstrætinu, þá verð ég að segja að þær fóru báðar bráðvel með sitt hlutverk. Aðrir leikendur höfðu mun minni hlutverk, sem þó máttu ekki mislukkast, einkum Halldór og Jóhanna, en ég gat heldur ekki annaö fundið en að þau væru öll þokkalega af hendi leyst. Ég er þakklátur höfundi og leikendum fyrir þennan leikþátt, þakklátur fyrir að hafa fengið að sjá hann, ég óska þeim til ham- ingju með velheppnað verk, og ég vona að sem allra flestir sjái ástæðu til að fara og horfa á það, svo þeir geti sjálfir lagt sinn dóm á það.. og lesið lika leikskrána af kostgæfni. Þórarinn Magnússon SVEINAFÉLAG PÍPULAGNINGA MANNA ORÐSENDING til félagsmanna Sveinafélags pipulagn- ingamanna. Tekið verður á móti umsóknum um dvöl i orlofshúsi félagsins, i landi úthliðar, Biskupstungum, miðvikudaginn 6. mai og fimmtudaginn 7. mai 1981 kl. 17—19, á skrifstofu félagsins Skipholti 70. Leiga, kr. 500.00,greiðist við pöntun. Stjórnin. DIÚOVIUINN Umboðsmenn úti á landi Alftanes: Sæbjörg Einarsdóttir, Brekkubæ, s. 52311. Akranes: Jóna K. ólafsdóttir, Garöabraut 4, s. 1894 Akureyri: Haraldur Bogason, Norðurgötu 36, s. 24079. Blönduós: Olga Öla Bjarnadóttir Arbraut 10 s. 4178. Borgarnes: Sigurður B. Guðbrandsson, Borgarbraut 43, s. 7190. Bolungarvík: Jóhanna Jóhannsdóttir, Vitastig 25, s. 7462. Dalvík: Þóra Geirsdóttir, Hjarðarslóð 4E. Egilsstaðir: Páll Pétursson, Arskógum 13, s. 1350. Eskif jörður: Maria Eliasdóttir Strandgötu 25 s. 6162. Eyrarbakki: Pétur Gislason, Gamla Læknishúsinu, s. 3135. Húsavik: Stefania Asgeirsdóttir, Garðarsbraut 45, s. 41828. Garðabær: Helena Jónasdóttir, Holtsbúð 12, S. 44584. Hvammstangi: Eyjólfur R. Eyjólfsson, Strandgötu7,s. 1384. Fáskrúðsf jörður: Hjálmar Heimisson, Hliðargötu 45, s. 5289. Hveragerði: Þórgunnur Björnsdóttir, Þórsmörk9,s. 4235. Gerðar Garði: Maria Guðfinnsdóttir, Melabraut 14, s. 7153. Höfn i Hornafirði: Matthildur Kristens Kirkjubraut 46 s. 8531. Grundarf jörður: Guðlaug Pétursdóttir, Fagurhólstúni 3, s. 8703. isafjörður: Ingibjörg Sveinsdóttir, Hliðarvegi 23, s. 3403. Hafnarf jörður: Hulda Sigurðardóttir, Klettahrauni 4, s. 50981. Kef lavik: Eygló Kristjánsdóttir, Dvergasteini, s. 1458. Hella: Guðmundur Albertsson, Geitasandi 3, s. 5830. Mosfellssveit: Stefán Olafsson, Arnartanga 70, s..66293. Hellissandur: Svanbjörn Stefánsson Munaöarhóli 14 s. 6688. Neskaupstaður: Ingibjörg Finnsdóttir, Hólsgötu 8, s. 7239. Hrísey: Guöjón Björnsson, Sólvallagötu 3, s. 61739. Njarðvík: Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Brekkustig 29, s. 3424, 2807. ólafsfjörður: Agnar Viglundsson, Kirkjuvegi 18, s. 62297, 62168. ólafsvik: Kári Konráðsson, Ólafsbraut 50, s. 6216. Patreksfjörður: Vigdis Helgadóttir, Sigtúni 8, s. 1464. Raufarhöfn: Sigurveig Björnsdóttir, Asgarði5, s. 51194. Reyðarf jörður: Árni Eliasson, Túngötu 5, s. 4265. Sandgerði: Anna S. Öskarsdóttir, Suðurgötu 34, s. 7790. Sauðárkrókur: Halldóra Helgadóttir Freyjugötu 5 s. 5654. Selfoss: Þuriður Ingólfsidóttir, Hjarðarholti 11, s. 1582. Seyðisf jörður: Ragnhildur B. Arnadóttir, Gilsbakka 34, s. 2196. Sigluf jörður: Hlöðver Sigurðsson, Suðurgötu 91, s. 71143. Skagaströnd: Eðvarð Hallgrimsson, Fellsbraut 1, s. 4685. Stokkseyri: Frimann Sigurðsson, Jaðri, s. 3215, 3105. Stykkishólmur: Kristin óskarsdóttir, Sundabakka 14, s. 8205. Suðureyri: Þóra Þórðardóttir, Aðalgötu 51, s. 6167. Vestmannaeyjar: Edda Tegeder, Hrauntúni 45, s. 1864. Vopnaf jörður: Hámundur Björnsson, Vogsholti 8, s. 3253. Þorlákshöfn: Þorsteinn Sigvaldason, Reykjabraut 5, s. 3745. DIOBVIUINN Síðumúla 6 - Sími 8 13 33

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.