Þjóðviljinn - 16.05.1981, Page 1
fréttir
í dag?
Frumvarp rlkisstjórnarinnar
um tekjuskatt og eignarskatt
var afgreitt til 3ju umræöu i
noíwi deild i gær aö lokinni
f-H! !?|a kiukkustunda iangri
atkvæöagreiöslu um þaö, en
margar breytingartillögur
komu fram við frumvarpiö. 17.
gr. frumvarpsins var felld niður
og sátu þingmenn Alþýöu-
bandalagsins fiest allir hjá viö
þá atkvæöagreiðslu eöa greiddu
atkvæöi á móti. t»á var
samþykkt að taka á nýjan leik
59. gr. frumvarpsins inn en
verstu agnúarnir höföu veriö
sniönir af. Tveir ráðherrar, þeir
Pálmi Jónsson og Friöjón
Þórðarson greiddu atkvæöi á
móti.
Skattafrumvarp rikis-
stjórnarinnar var afgreitt til 3ju
umræöu i neöri deild i gær.
Stefnt er að þvi aö afgreiða
frumvarpið sem lög frá alþingi i
dag. Helstu breytingarnar sem
gerðar hafa verið á frumvarp-
inu eru að I fyrsta lagi þá var
samþykkt með hjásetu Alþýðu-
bandalagsins að fella niður 17.
gr. frumvarpsins, en hún fjallar
um takmörkun fyrninga.
Tigangur greinarinnar var að
reyna að ná til allra þeirra
fjölmörgu fyrirtækja i landinu
sem sleppa við að greiða tekju-
skatt. GuðrUn Helgadóttir
greiddi einn þingmanna
Alþýðubandalágsins atkvæði
gegn þvi að fella niður greinina,
en hinir sátu hjá.
Þá var ákveðið að halda ínni
59. gr. laganna, sem i
frum varpinu var lagt til að fella
niður. Greinin fjallar um reikn-
uð laun atvinnurekenda. Með
beitingu þessarar lagagreinar
var unnt að reikna skatt á tekj-
ur sem aldrei höfðu orðið til.
Bændur höfðu kvartað mikið
yfir þessari grein. Gerð var
nokkur lagfæring á greininni I
meðförum fjárhags- og
viðskiptanefndar, en nefndin
lagðist gegn þvi að greinin félli
niður.
— Þig
Frétt sem birtist hér I blaðinu
s.l. fimmtudag um vinnuslys i
Hampiöjunni, þar sem tvær
stiílkur slösuöust á sömu vakt-
inni hefur dregiö nokkurn slóöa
á eftirsér. Fyrirþaö fyrsta voru
slysin ekki tiikynnt Vinnu-
eftirliti rikisins svo sem skylt er
samkvæmt iögum um aöbúnaö
og holiustuhætti á vinnustööum.
Sama giiti um slys sem varö í
Hampiðjunni 25. april s.l. er
maöur missti framan af fingri
viö nagirætur. Hefur Vinnu-
eftirlitiö kært Hampiöjuna til
lögreglunnar vegna þessa. 1
annan staö hafa öryggistrún-
aðarmenn ekki verið skipaðir á
staönum svo sem skylt er
samkvæmt sömu lögum, sem
verið hafa i gildi siöan um ára-
mót. Er þvi ljóst að fyrirtækiö
er margbrotlegt viö þau lög.
Starfsmaður Hampiðjunnar,
sem blaðið hefur rætt við segir
að slysin eigi sér yfirleitt stað i
einni sérstakri deild, eða þeirri
sömu og stúlkurnar sem slös-
uðust á dögunum vinna á. Slysin
komi gjarna í bylgjum i sam-
bandi við mannaskipti/ óvant
Lektorsstaða
í bókmenntum:
Helga Kress
var hæst
Skatta-
lögin
afgreidd
1 gær voru atkvæöi greidd i
Heimspekideild Háskóla
tslands um umsækjendur um
stöðu lektors i almennum
bókmenntafræðum. Atkvæðis-
rétt höfðu 44, þar af hafa
stúdentar 7 atkvæði. 37 kusu.
Umsækjendur voru sjö og sex
taldir hæfir. 1 fyrri umferð fékk
Arni Bergmann 9 atkvæði,
Astráður Eysteinsson 2, Helga
Kress 11, Kristján Árnason 7 og
Ólafur Jónsson 8.
1 siðari umferð fékk Helga
Kress 15 atkvæði, Arni
Bergmann 11, Ólafur Jónsson 7
og Kristján Arnason 4.
Stildentar höfðu þá yfirlýstu
stefnu i þessum kosningum að
rannsóknir i kvennabókmennt-
um væru svo mikilvægar að
lektoratið skyldi tengt þeim og
munu fulltrUar þeirra hafa kos-
iðHelgu Kress i samræmi við þá
stefnu.
— Al
Heimsókn B.A. Robertsson
Tíð vínnuslys ekki tfl-
kynnt tfl Vinnueftirlits
Söngvarinn og lagasmiöurinn B.A. Robertson, sem
hingað var boöiö I 15 ára afmæli Karnabæjar, átti
annrikt í gær. Eftir útsýnisflug og heimsókn til
Akureyrar áritaöi hann nokkrar hljómplötur og
hvers kyns dót I Karnabæ, og komust færri aö en
vildu. Þvi næst var hann drifinn á blaðamannafund
I Naustinu og söng þar og lék á pianó glænýtt lag
fyrir f jölmiölafólk: Baby I’m a Bat. B.A.R. er þræl-
góður poppari og virðist þar aö auki einkar „góöur
gæi” með kimnigáfuna i besta lagi. Og það er
kannski rétt aö geta þess sérstaklega á þessum
siðustu og verstu timum, aö Robertson er reglu-
maöur hinn mesti. ' A
Látiðundirhöfuð leggjast að
skipa öryggistrúnaðarmann
fólk verði helst fyrir slysum,
enda væri hart rekið á eftir og
mikið taugaálag fylgdi vinnunni
þar. Stjórnendur rækju eftir
fólkinu og minntu það á að mikl--
ir peningar væru i húfi og verkin
yrðu að ganga hratt fyrir sig.
Oft kæmi fyrir að nýtt fólk byrj-
aði, ynni tvo þrjá daga og yrði
þá fyrir skurðum eða stungum
og slasaðist og hætti. Þessi
starfsmaður sagði aö fram til
þessa hefði á þessari deild verið
unnið við vélar sem væru orðnar
nokkuð gamlar eða frá 1964, en
nú hefðu verið teknar i notkun
nýjar vélar sem hann taldi
hættumeiri, ekki væri jafn
nærhendis að stöðva þær ef
óhapp henti.
Starfsmaöur á slysadeild
Borgarspitalans,sem blaðið
hafði samband við.sagði að þar
væru ekki skráð niöur vinnu-
slys á hverjum vinnustað fyrir
sig, en það dyldist ekki að furðu
oft kæmi fyrir að starfsfólk
Hampiðjunnar kæmi þangað
vegna vinnuslysa. Starfsmaður
fyrirtækisins gat þess raunar að
eitt sinn hefði þannig viljað til
að tveir vinnufélagar i fyrirtæk-
inu hittustá slysadeildinni, ann-
ar til að láta táka úr sér
saumana eftir slys, en hinn til
aí> láta gera að skurði sem hann
hafði fengið á sama hátt.
Viökomandi starfsmaður slysa-
deildarinnar sagði að auðvelt
ætti að vera aö koma á nánari
skráningu á tildrögum vinnu-
slysa og aðstæðum og aö Vinnu-
Úr vinnus ai i H am piöjunni
eftirlitið og slysadeildin hafi
ekki samvinnu þar um.
Þeim sem til þekkja i fvrir-
tækinu ber saman um að gifur-
legur hávaði sé ætið á vinnu-
staðnum svo að til stórra
óþæginda sé fyrir starfsfólk.
Vinnueftirlitið hefur hávaða-
mælingar á sinni könnu en þær
hafa ekki farið fram i
Hampiðjunni.
— j
af versta tagi
„Við vonumst til að sjá sem
flest ykkar” augiýsti Karnabær
stórum stöfum i gær og bauð
kaupendum plötu B.A. Robert-
son upp á eiginhandaráritun
stjörnunnar. Aö verslun Karna-
bæjar þyrptist fjöldi barna og
unglinga meö sitt eintak af plöt-
unni og hóf langa bið eftir hinu
langþráða augnabliki.
Það voru þó ekki allir svo
heppnir að hljóta hnossið heldur
var hætt eftir um það bil tvo
tima. Bálreið móðir hafði sam-
band við blaðið og vildi benda á
hve svivirðilega væri farið með
krakkana. Dóttir hennar keypti
plötuna og fór svo til að fá
áritun, hún beið og beið, en varð
siðan frá að hverfa. Heim kom
hún hágrátandi, það hafði verið
troðið á henni, henni hrint og 11
ára gömul stúlkan var niður-
brotin og vonsvikin eftir með-
ferðina. Móðirin hringdi til
Karnabæjar og kvartaði, en
fékk þessi svör: Góða frú, þér
haldið þó ekki að B.A. Robert-
son geti setið allan daginn við að
skrifa á plötur:
„Þetta er sölumennska af
versta tagi, þarna er verið að
kúga börn og draga þau á asna-
eyrunum og notfæra sér
stjörnuaðdáun þeirra til að
græða á” sagði móðirin.
Dóttirin sagði að við Karnabæ
hefðu verið enn minni krakkar
en hUn og eins og nærri má geta
var þeim rutt frá I hama-
gangnum. Þannig hélt Karna-
bæruppá 15ára afmælisittmeð
stórstjörnunni-^B.A. —ká
Gffurlegur fjólni barna beiö fyrir utan Karnabæ I gær og uröu sum
frá aöhverfa án þess að fá áritun B.A. Robertson.
Hampiðjan
kærð vegna
brota á
vinnuverndar-
lögum