Þjóðviljinn - 16.05.1981, Side 3
ÞJÓÐVILJINN — Helgin 16.— 17. mai, 1981
Helgin 16, — 17. mai, 1981 -ÞJÓÐVILJINN
2
um helgina
sýningar
Kjarvalsstaðir
Björn Rúriksson sýnir ljósmyndir I
vestursal, Katrin Ágústsdóttir opnar
sýningu á batik-myndverkum og
Steinunn Marteinsdóttir leirlistarsýn-
ingu á göngunum.
Galleri Suðurgötu 7
Halldór Ásgeirsson myndlistamaður
sýnir. Verkin eru unnin úr margvis-
legum efnum. Sýningin er opin frá kl.
16.00—20.00 alla daga.
Norræna húsið:
Anne-Lise Knoff sýnir I anddyrinu
grafiskar myndskreytingar við Sólar-
ljóð, Lilju og Dronning sagaen. Jónas
Guömundsson opnar I dag (laugar-
dag) sýningu i kjallarasal.
Rauða húsið, Akureyri:
Sýning Guðjóns Ketilssonar.
Myndlista- og handiðaskól-
inn:
Nemendasýning opnuö á laugardag.
Icikhús
Alþýðuleikhúsið:
Stjórnleysingi ferst af slysförum
sunnudag kl. 20.30
Leikfélag Reykjavíkur:
Ofvitinn laugardag kl. 20.30. Fáar
sýningar eftir.
Barn í garðinum sunnudag kl. 20.30
Þjóðleikhúsið:
Sölumaður deyr laugardag kl. 20
Litla sviöiö:
Haustið I Prag sunnudag kl. 20.30
Nemendaleikhúsið:
Marat/Sade sunnudagskvöld i
Lindarbæ
Leikfélag Akureyrar:
Við gerum verkfali um helgina.
bíó
MÍR-salurinn:
Hiýja handa þinna, Grúsia film 1972.
Leikstjórar: Sjota og Nodar
Mamagadeze. Aðgangur ókeypis-
Fjalakötturinn:
Alexander Nefský — hin fræga mynd
Sergei Eisenstein.
Háskólabió
(Mánudagsmynd)
In einem Jahr mit 13 Monden, v-þýsk,
1978. Leikstjóri: Rainer Werner Fass-
binder og annaðist hann kvikmynda-
tökuna lika. Leikendur: Volker Speng-
ler, Ingrid Caven.
Sagt er frá sföustu vii unni I lifi
Erwins sem hefur látiö breyta sér i
konu og kallar sig Elviru. — Siðustu
sýningar.
Katrín Agústsdóttir
sýnir á Kjarvalsstöðum
Katrin Agústsdóttir opnar sýningu sina I vestursal Kjarvalsstaða
þann 16. mai kl. 14. Verk Katrinar eru öll unnin I batik og mun
sýningin standa til 31. mai.
6-tettinn I æfingaplássinu (f.v.): Birgir Haraldsson, söngur, Karl
Tómasson, trommur, Þórhallur Arnason, bassi, Hákon Möller, git-
ar, Heimir Sigurðsson, pianó, Hjalti Arnason, hljómborð.
Ný hljómsveit í Aratungu i kvöld:
6-TETTINN
Hinn mikli fjörkippur á sviði
rokksins i Reykjavik sem er
hvað blómlegast á Hótel Borg,
virðist vera að teygja sig til ná-
grannabyggða. 1 Mosfellssveit
er vaxin upp af rótum Cosinusar
ný hljómsveit — 6-tettinn — og
hyggjast þeir félagar m.a. „rifa
upp” Hlégarð.
6-tettinn fer „vestur um land i
hringferð” i sumar ogbyrjar i
Aratungu I kvöld (laugardaginn
16.), en á þjóðhátiðardaginn
veröa þeir þé á heimaslóðum,
þ.e. I Hlégaröi. 6-tettinn er með
létt, sigilt rokk á dansleikjapró-
gramminu, en með haustinu
koma þeir með frumsamið efni
og töldu liklegt að það yrði i
þyngri kantinum.
A
Dinnerhljómsveit: Árstíðirnar
A morgun, sunnudag, kemur
fram i fyrsta sinn nýstofnuö
Dinnerhljómsveit á Hliðarenda
með fiðlu, selló og lágfiðlu.
Leikin verður Dinnermúsik
svokölluð og er þar um að ræða
djass, blús og klassisk iög úr
kvikmyndum og fl. Hljómsveit-
in kallar sig Arshátiðirnar og
mun leika næstu 3 sunnudaga á
Hliðarenda.
Þeyr heldur tónleika
Hljómsveitin Þeyr heldur tón-
leika í Bæjarbiói Hafnarfirði
laugardaginn kl. 2.30. Tilefnið
er m.a. það, að tveir hljóm-
sveitarmeðlimir bresku hljóm-
sveitarinnar „Killing Joke” eru
staddir hér á landi um helgina
og ætla aö kynna sér hvaö land-
inn er að fást viö I músik.
Hljómsveitin „Killing Joke”
eiga sér sitt eigið hljómplötu-
fyrirtæki og gæti jafnvel komið
til greina að þeir byðu einhverri
íslenskri hljómsveit út eða þá að
þeirkæmuog héldu hljómleika.
Ókeypis rútuferNr verða frá
Hótel Borg og veröi á aögöngu-
miðanum að sjálfsögöu stillt i
hóf.
Textíl-
sýning
í Nes-
kaupstað
I dag, laugardag, kl. 18 opnar
Textilfélagiö samsýningu i
Egilsbúö á Neskaupstaö. Sýn-
ingin stendur til sunnudags 24.
maí. Sýningin er haldin að
tilhlutan Menningarráðs
Neskaupstaðar.
Frá sýningu Textilfélagsins f
Listasafni alþýðu nýlega.
20. maí hald-
inn hátíðleg-
ur á Siglúf.
Eins og undanfarin ár verður
20. mai haldinn hátiðlegur á
Siglufirði. Þvi að þann dag 1918
hlaut bærinn kaupstaðaréttindi.
Hátlðahöld verða með
svipuðu sniði og áöur, Sigurður
Gunnarsson fyrrverandi bæjar-
ritari, borinn og barnfæddur
Siglfirðingur mun halda sýn-
ingu á verkum sinum sem unnin
eru af miklum hagleik og fjöl-
breytni.
Sýningin verður i sýningarsal
hins nýja ráðhús Siglfirðinga og
verður opnuð kl. 17 þann 20. mai
með leik lúðrasveitar Siglu-
fjarðar. Um kvöldið eða kl. 20
verður hátiðarsamkoma i Nýja
bió.
Dagskrá: Ingimundur
Einarsson bæjarstjóri setur
hátiðina. Alfreð Jónsson oddviti
Breiðholts-
leikhúsið:
Siglufjörður
i Grimsey flytur hátiöarræöu.
Lúðrasveit Siglufjarðar leikur
undir stjórn Atla Guölaugs-
sonar. Karlakórinn Visir syngur
undir st jórn Guðjóns Pálssonar,
Jón óskar rithöfundur les úr
verkum sinum. Dixeland hljóm-
sveitin leikur nokkur lög.
Framkvæmdastjóri 20. mai
nefndar er Elias Þcrvaldsson.
20. mai nefndin.
Skýtur á
sjónvarpið
í Fellaskóla
Enn sýnir Breiðholtsleikhúsið
hið nýja Islenska barnaleikrit
„Segðu PANGH” i Fellaskóla
viö Norðurfell. Leikritið hefur
nú verið sýnt nær tiu sinnum við
ágætar undirtektir áhorfenda,
aö sögn Haraldar Haraldssonar,
framkvæmdarstjóra sýningar-
innar. Hann sagði jafnframt, að
það hefði komið þeim hjá Breið-
holtsleikhúsinu ánægjulega á
óvart, hve sýningin hefði hlotið
góða dóma, en hins vegar færi
nú sýningum i Fellaskóla eitt-
hvaö að fækka, þegar liði á sum-
arið, enda væri ætlunin að
bregða sér i leikferðir um ná-
grenni Reykjavikur og jafnvel
viðar innan skamms.
En næstu sýningar verða i
Fellaskóla laugardag og sunnu-
dag klukkan þrjú, og verður
Þdrunn Pálsdóttir og Þröstur
Guðbjartsson i hlutverkum sin-
um ISegöu PANG!!, sem Breiö-
holtsleikhdsið sýnir I Fellaskóla.
miðasala opin sömudaga frá kl.
eitt, en þangað er jafnframt
hægt að hringja i sima 73838.
Að lokum sagði Haraldur, að
þetta væri tvimælalaust sýning
fyrir alla fjölskylduna, enda
væri miðaverðið hið sama fyrir
börn og fullorðna. Æskilegt væri
einnig, að foreldrar sæju þessa
sýningu með börnum sinum — i
henni væri ýmislegt umhugsun-
ar- og umræðuvert fyrir báðar
kynslóðir.
íslandsmót í hárgreiðslu
A morgun, sunnudag, verður
haldið tslandsmót i hárgreiðslu
og hárskurði i tþróttahúsinu á
Seltjarnarnesi. Keppt verður I
hárgreiðslu og hárskurði með
þátttöku um 30 meistara, sveina
og nema. Keppnisgreinar I
hárgreiðslu eru hátiðargreiðsla,
daggreiösla, klipping og blást-
ur. t hárskurði verður keppt i
hátiðarklippingu (skúlptúr),
tískuklippingu og greiðslu
ásamt klippingu og blæstri.
Keppnin verður haldin með
alþjóðlegu sniði og veröa tveir
dómarar frá Danmörku, Jytte
Gunnersen og Jens Erik Be-
hrendz og tveir frá Noregi
Gunnar Aaseröd og Steinar
Forsberg. 3—5 efstu sætin i
hvoru fagi veita rétt til þátttöku
i Norðurlandamótinu i
hárgreiðslu og hárskurði, sem
haldið verður i Helsinki I haust.
Mótið hefst kl. 11.30 árdegis
meö undirbúningi, þe rúllu-
isetningu og þh., en veröur
formlega sett kl. 13. Siðar hefst
hin eiginlega keppni með
hátfðargreiðslun og frjálsri
klippingu og greiðslu herra og
tekur svo hver liður viö af
öðrum til loka með stigagjöf og
verðlaunaafhendingu kl. 18.
Keppnin er opin almennum
áhorfendum, sem undanfarin ár
hafa sýnt mikinn áhuga.
Kvik
mynd frá
Kvikmyndasýning verður I
MIR-salnum, Lindargötu 48,
2. hæð, I dag, laugardag, kl.
15 og er það slöasta reglu-
lega laugardagssýning MIR
á þessu vori. Sýnd verður
sovéska kvikmyndin „Hlýja
handa þinna” — frá
Grúsia-film 1972, leikstjórar
Sjota Mamagadze og Nodar
Mamagadze.
1 þessari mynd er sagt frá
konunni Sidonju og hvernig
æviferill hennar fléttast inn i
sögulega þróun mála i
Grúsiu. I upphafi er eigin-
maður Sidonju kvaddur til
herþjónustu og verður hún
þá að annast börn þeirra ein,
en siðar strýkur maðurinn úr
hernum og snýr aftur heim.
Lýst er afdrifarikum
pólitískum atburðum,
hatrammri baráttu
bolsévika og mensevika,
erfiðleikum i endurreisnar-
starfinu eftir borgarastrlðið
og siðan innrás þýsku
nasistanherjanna I Sovétrik-
in. Skýringatextar með
myndinni eru á ensku.
Aðgangur er ókeypis.
Samkoma fyrir
norsk-islensk
börn 17. maí
1 tilefni þjóðhátiðardags
Norðmanna sem er á
morgun, 17. mai, hefur
stjórn Nordmannslaget tekið
saman dagskrá, er hefst með
þvi að kl. 9.30 verður lagöur
biómsveigur á leiði fallinna
Norðmanna, er hvila i Foss-
vogskirk jugaröinum.
Skólahljómsveit Kópavogs
leikur.
Kl. 10.30 er haldin sam-
koma fyrir norsk-Islensk
börn, þar sem boöið veröur
uppá veitingar og fleira. Um
kvöldið verða hátiðahöld i
Þjóðleíkhúskjallaranum kl.
19.30.
frétiir
1
ljóðskáld i
heimsókn
í dag, laugardag, flytur
breski rithöfundurinn og
Ijóðskáldið Kevin Cross-
Íey-Holland fyrirlestur um
bresk nútimaljóð I boði
hcimspekideildar Háskólans.
Fyrirlesturinn verður I
kennsluhúsnæði enskudeild-
ar að Aragötu 14 kl. 14 og að
honum loknum mun skáldiö
lesa úr ljóðum sinum. Ollum
er heimill aðgangur.
Kevin Crossley-Holland er
fæddur 1941, hefur unnið hjá
B.B.C. og bókaútgáfunum
Collancz og Macmillan i
Lundúnum. Hann hlaut
menntun sina i Oxford og er
sérgrein hans fornenskar
bókmenntir. Hann hefur þýtt
fornensku kvæöin The Battie
of Maldon og Beowulfog auk
þess Storm og fleiri
fornenskar gátur en um þær
flutti hann fyrirlestur hér
fyrr I vikunni. Sem barna
bókahöfundur er hann m.a.
þekktur fyrir bókina The
Green Children, sem fékk
Arts Council verölaunin sem
besta barnabókin 1966—1968.
Einnig hafa komið út eftir
hann tvær ljóöabækur The
Dream og The Rain Giver,
hann var og ritstjóri tveggja
bóka sem Faber gaf út
nýlega um norræna goða-
fræði og þjóðsögur.
RAÐSTEFNA UM BARNAVERND:
Vinnuþrælkun foreldra
kemur niður á bömum
Auka þarf
foreldrafræðslu
og raðgjof
Fjölskyldan i dag þjónar
aðeins þeim tilgangi að vera
neyslueining. Hún hefur engan
tima til þess vegna að vera
saman nema til þess að borða og
framleiða vinnuafl. Börnin
dveljast á dagvistarstofnunum
daglangt og foreldrarnir vinna
að meðaltali 60 tima vinnuviku.
Rannsóknir sem gerðar hafa
verið I Danmörku sýna að
meðalsamverutimi barna með
báðum foreidrum er um 7
minútur á dag. — Eitthvað á
þe ssa leið fórust Guðrúnu
Kristinsdóttur, framkvæmda-
stjóra fjölskyldudeiidar Félags-
málastofnunar Reykjavikur-
borgar orð á ráðstefnu um
barnavernd sem haldin var i
gær á Hótel Esju á vegum Sam-
bands islenskra sveitarfélaga.
Ef þetta á að breytast þarf að
taka meira tillit til fjölskyld-
unnar og gera fólki sem á börn
yngri en 16 ára kleyft að vinna
hálfan vinnudag, bæta um-
hverfið og fjölga leiguibúðum,
sagði Guörún ennfremur. A
meðan fólk þarf aö slita sér út
fyrir aldur fram til þess að
eignast þak yfir höfuðið veröur
engin breyting á lifsskilyröum
þess. I máli Guðrúnar kom
einnig fram að aöstaðan sem við
byðum börnum okkar væri
nánast engin. Dagvistarstofn-
anir þjónuðu engan veginn þeim
tilgangi sem þeim væri ætluð,
þær væru geymslustaðir þar
sem börnin fengju frumþörfum
sinum varla sinnt. Um væri að
kenna skorti á menntuöu starfs-
fólki og þvi hversu fáliðaðar
þessar stofnanir eru.
Foreldraráðgjöf
Guðfinna Eydai, barnasál-
fræðingur, sagði aö þaö væri
sérstaklega brýnt aö veita for-
eldrum meiri stuðning I hlut-
verki þeirra við að ala upp börn.
tslenskar fjölskyldur byggju við
einstaklega mikið vinnuálag og
hefðu litinn tima til að sinna
börnum sinum Litill timi væri til
Læknadeilan:
Fyrstu uppsagnirnar
taka gildi á mánudag
A mánudaginn taka gildi
fyrstu uppsagnir sér-
fræðinganna fjá rikisspitölun-
um og láta þá tveir iæknar af
störfum. Aö sögn Daviös
Gunnarssonar framkvæmda-
stjóra rikisspitalanna verða
flestir sérfræðinganna hættir
störfum um mánaðamót ef ekki
næst samkomulag i deilunni.
Þröstur Ólafsson aðstoðar-
ráðherra fjármálaráöuneytis
sagði i gær að óformlegar við-
ræðufundir hefðu verið haldnir
með fulltrúum lækna, þar sem
leitað hefði verið eftir leiöum til
samkomulags án breytinga á
launastigum, en litið hefði kom-
ið Ut Ur þvi sem hönd á festi.
Formlegur samningafundur
hefur ekki veriö boðaöur um
málið. —j
Borgarspítalinn:
Aöeins yfirlæknarnir
verða eftir 1. júni
Þetta er ákafiega hörð að-
gerð, sem ég sem formaður
stjórnar s júkrastofnana
Reykjavikur hlýt aö harma,
sagði Adda Bára Sigfúsdóttir
borgarfulltrúi I gær, en allir aö-
stoðarlæknarog sérfræðingar á
Borgarspitalanum hafa sagt
stöðum sinum lausum. Fyrstu
læknarnir ganga út á mánudag-
inn og eftir mánaðamótin verða
einungis yfirlæknarnir eftir.
Við munum reyna að draga
saman seglin eftir þvi sem ger-
legt er og ákveða frá degi til
dags hvernig brugðist verður
við I hverjum vanda, sagöi
Adda. öll bráðatilfelli verða
auðvitað aö fá sina afgreiðslu og
sérstaklega vil ég nefna slysa-
varðstofuna i þvi sambandi, en i
raun verður spitalinn óstarfhæf-
ur ef svo heldur fram sem horf-
ir.
— Hafið þiö rætt við lækn-
ana?
Stjórn sjúkrastofnana er ekki
samningsaöili heldur eru samn-
ingar i höndum fjármálaráðu-
neytisins og Læknafélagsins.
Hins vegar er hér um afbrigði-
legt mál að ræða að þvi leyti að
engum samningum hefur verið
sagt upp og ekki er gripið til
verkfalls heldur tilkynna
Hörð aðgerð, sem ég hiýt að
harma, segir Adda Bára Sigfús-
dóttir, formaður stjórnar
sjúkrastofnana.
læknarnir hver fyrir sig aö þeir
vilji hætta vegna óánægju meö
kjör sin og segja stöðum sinum
lausum. Stjórn sjúkrastofnana
getur auövitaö ekki brugðist
þannig við að borga bara það
sem upp er sett og þvi munum
við reyna aö draga saman frá
degi til dags eftir þvi sem hægt
er og full samráð verða milli
allra sjúkrahúsanna i Reykja-
vik, sagði Adda að lokum.
—AI
að leysa þau vandamál sem upp
koma I mannlegum sam-
skiptum og væri fólk þvi oft illa
statt þegar þaö leitaöi eftir fjöl-
skylduráögjöf. Guðfinna sagði
aö það væri undarlegt að meöan
flest störf I þjóðfélaginu
krefðust sérþekkingar og
menntunar væri litið á það sem
náttúrulögmál að ala upp börn
og á þvi bæru foreldrar einir
ábyrgð. Þeir fengju litinn stuðn-
ing frá utanaökomandi aðilum
og væri kennt um ef illa færi.
Guöfinna benti á að börn fara
oft illa út úr skilnaðarmálum,
oft vegna þess að fólk skilur
ekki fyrr en öll tilfinningatengsl
eru brostin og biturleikinn einn
eftir. Þá veröa börnin oft þrætu-
epli foreldra og þau fengju ekki
aöstoö til þess að skilja hvað um
væri að vera. Þá veldur fæðing
barns oft sambúöarerfiðleikum
og nýbökuð foreldri eiga oft
erfitt með að aölaga sig
breyttum heimilisháttum viö
tilkomu nýs einstaklings.
Nauðsynlegt er aö leggja
mikla áherslu á fyrirbyggjandi
starf i sambandi við fjölskyldu-
ráðgjöf sagði Guðfinna, þvi
mörgum f jölskylduharm-
leikjum er hægt aö afstýra ef
aðeins væri gripið fyrr I taum-
ana. Það tekst þó aðeins ef fjöl-
skyldan fær meiri tima til að
vera saman og þjóðfélagsleg
aðstaða fólks verði bætt.
—eg
M.MAGNUSS:
1
Noregskvœði
í tilefni af þjóðhátiðardegi
Norðmanna
Heimsstyrjöldin siöari hófst i september 1939 og Iauk i mal
1945. Hinn 9. aprfl 1940 hertóku Þjóðverjar Danmörku og gerðu
árás á Noreg. En Norðmenn gripu til vopna og vörðust, kon-
ungur þeirra flýði úr landi, en barist var við Þjóðverja viða um
landið, þar til Þjóðverjar höfðu kúgað Noreg undir sig og mynd-
að leppstjórn. Mánuði siðar, hinn 10. mai 1940,hernámu Bretar
island.
Þegar Þjóöverjar réðust inn i Noreg orti Gunnar M. Magnúss
eftirfarandi kvæði og birti i Þjóðviljanum á þjóðhátiðardegi
Norðmanna 17. mai 1940.
Þii svafst i náðum, þreklundaöa þjóö.
— t þinum æðum rennur friðarblóð. —
A svæflum hvildu vangar værðarrjóðir
og vindar aprilnætur sváfu hljóðir,
— og gyðja vorsins kvað sin Ijóðaljóð.
Og sérhvert barn, er svefnsins þáði gjöf,
nú sigldi björtum voðum draumsins höf.
Og þeyrinn lék viðmjúka mold idölum,
en myrkri svipti geisli f vorlofts sölum,
þvi válegum skal vetri búin gröf.
Og allt var kyrrt og enn var draumanótt,
— en undarlega dulmagnað og hljótt, —
þvi svartur floti fór með leynd að landi.
— En lymskulegir fjendur riðu gandi
um himin Noregs hreinan, — leifturskjótt.
En fyrr en varði dundi dómsins gnýr.
— Og draumsins voru horfin ævintýr. —
Þrumar nú skruggan Þórs á reið i loftum?
Nei! Þúsundfaldað hvæs úr vélahvoptum,
þvi komnir voru vargar, — villidýr.
Og dýr hvert fór meðógnir elds og stáls
og eitri spjó i krafti sprengibáls.
— Glumdi i hlekkjum gegnum drunu þunga
— Gráar loppur kreistu slofninn unga. —
Þú skyldir aldrei framar verða frjáls.
Þá reistu, norska þjóð, og hófst þig hátt,
i hjarta þinu fannstu dulinn mátt.
Og frelsið sveif of fjaila háum hliðum,
og fáni þinn varð tákn á himni viðum
um ósigrandi norskan manndóms mátt.
Og synir Noregs gripu vopn I vörn.
— Vösk erifog tigin f jallalandsins börn. —
En dýr er fórn og dagsins þraut er löng,
nú dynur þungt af annarlegum söng,
— en hátt I lofti sveimar svartur örn.
Hvers geldur þú, sem elskar frelsi og frið
og færir mannkyn hærra og fram á við?
Ibsens þjóð með bjarma á brúna skör!
Björnsons þjóð með hvassan andans hjör!
Og Nansens frægu friðar sjónarmið.
I_________
Þú sigra skalt! Þinn andi er ennþá frjáls.
Og aldrei læsist fjötur þér um háls.
Þitt strið er strið um hæstu hugsjón manns
þin hetjuvörn er kraftur sannleikans.
Og sigur þinn er sigur heilags máls.
/