Þjóðviljinn - 20.06.1981, Blaðsíða 4
J>JópVlLJINN Helgip 20.-21. j|inf l381 - .
(ré«ir
Þórhallur Sigurðsson segir sig
Þórhallur Sigurðsson, fulltrúi AB
i Þjóðleikhúsráði, hefur nú sagt
sig úr ráðinu, en hann var for-
maður þess I fyrra.
úr Þjóðleikhúsráði
Þórhallur Sigurðsson, leikari
og fulltrúi Alþýðubandalagsins I
Þjóðleikhúsráði sagði sig úr ráð-
inu á fundi þess í fyrradag. Til -
kynnti hann formanni þingflokks
Alþý ðubandalagsin s þessa
ákvörðun sina að loknum fundin-
um. Hér fer á eftir yfirlýsing Þór-
halls vegna þessa máls, en eins og
fram kemur i henni er ástæða úr-
sagnar hans fyrst og fremst al-
menn óánægja með stjórnunar-
fyrirkomulag Þjóðleikhússins.
Leikhúsráð— til hvers?
Þar sem stjórnun og rekstur
ÞjóðleikhUssins hafa nú siðustu
misserin gengið þvert á hug-
myndir minar um hvernig starfa
eigi i leikhUsi, get ég ekki sam-
visku minnar vegna tekið lengur
þátt i stjórnunarstörfum stofnun-
arinnar. Ég hef þvi sagt mig Ur
þjóðleikhUsráði.
Ég tel fullreynt, að ákvæði gild-
andi laga um skipan þjóðleikhús-
ráðs séu Urelt og þeim beri að
breyta hið fyrsta.
Ég minni á, að áður en ný lög
um Þjóðleikhús voru samin árið
1978, sendu Starfsmannafélag
ÞjóðleikhUssins og þjóðleikhUs-
stjóri Sveinn Einarsson öllum
þingmönnum tillögur að nýjum
lögum. 1 báðum tillögunum kom
fram, að þjóðleikhúsráð ætti að
vera 5 manna framkvæmdaráð
Könnun verðlagsstofnunar
Dýrara að kaupa eftir
erlendum verðlistum
Verðlagsstofnun hefur kannað
vcrðmun á vörum sem keyptar
eru gegnum póstverslun erlendis
Vigdís fer
i brúðkaupið
Forseti fslands Vigdis Finn-
bogadóttir hefur þegið boð um að
vera viðstödd brúðkaup Karls
Bretaprins og lafði Diönu, sem
fram fer i St. Paulskirkju i
Lundúnum 29. júli n.k.
frá og vörum út úr búð i Reykja-
vik. Niðurstaðan er að 78% var-
anna voru dýrari ef keypt var
eftir pöntunarlista en út úr búð.
Kannaðar voru 65 vörutegundir
hjá 15 smásöluverslunum og
þremur heildsölufyrirtækjum og
siðan verðlistar Keys, Freemans
og Quelle, sem all mikið hafa
verið auglýstir i fjölmiðlum.
Verðlistaverðin voru reiknuð
samkvæmt leiðbeiningum um-
boðsmanna verðlistanna og mið-
að við gengi 1. júni, en við bætist
svo sendingarkostnaður.
51 vörutegund reyndist vera
dýrari frá verðlistunum eða 78%.
Fatnaðurerá hagkvæmara verði
hér á lándi beint út úr búð og er
verðmunurinn allt að 100-200%.
Rakvélar og sjónauka er hag-
kvæmara að kaupa gegnum verð-
lista og er skýringuna að finna i
mismun aðflutningsgjalda.
Mestur verðmunur er á undir-
fötum og sportfatnaði. Verölist-
arnir ábyrgjast endurgreiðslu
eða skipti á vörum ef efnis- eða
verksmiðjugallar koma fram.
Tilkynning þarf að berast innan
14 daga, en samkvæmt islenskum
lögum hefur kaupandi ársrétt til
að skila gallaðri vöru.
A LEIÐ UM LANDIÐ
Næstu sýningarstaðir:
Vik i Mýrdal
Kirkjubæjarklaustur
Höfn I Hornafirði
Djúpivogur
Breiðdalsvik
Stöðvarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Reyðarfjörður
Eskifjörður
Neskaupstaður
20.6
20.6
20.6
21.6
21.6
21.6
21.6
22.6
22.6
22.6
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
kl.
10.00 til 12.00
14.00 til 15.30
19.00til 21.00
11.00 til 12.00
15.00 til 16.30
17.00 til 19.00
21.00 til 22.00
12.00 til 13;00
14.00 til 15.30
17.00 til 19.00
SUZUKI — SA SPARNEYTNASTI
Sveinn Egilsson h.f.,
Skeifan 17 Sími 85100
sem i sætu 4 starfsmenn hússins
og einn fulltrúi menntamálaráð-
herra. Þjóðleikhússtjóri gerði
auk þess tillögu um „þjóðleikhús-
nefnd” sem skyldi skipuð af Al-
þingi og vera einskonar tengiliður
leikhúss og fjarveitingavalds.
Skyldi hun koma saman tvisvar á
ári. Þvi' miður voru allar þessar
tillögur hunsaðar af hæstvirtu Al-
þingi.
NUverandi ástand er með öllu
óverjandi. Það er gjörsamlega
ofviða einum manni að hafa á
hendi allt framkvæmdavald á svo
margbrotnum vinnustað. Þegar
við bætist svo veruleg fjarvera
leikhússtjórans, sem stundum er
óhjákvæmileg, án þess að nokkur
framkvæmdastjórn komi i stað-
inn, er augljóst hvert stefnir.
Eftir 3 ára setu í þjóðleikhús-
ráði fullyrði ég, að ráðið er ekki
fært um að vera sjálfstæður eftir-
litsaðili „með starfssemi og
rekstri leikhússins” eins og hin
gölluðu lög kveða á um. Þjóðleik-
hússtjóri situr fundi ráðsins og
kynnir þau mál sem honum þurfa
þykirog vegna yfirburðaþekking-
ar hans á málefnunum fram yfir
meirihluta ráðsmanna, þá mótast
umræða ráðsins algerlega af þvi
hvernig leikhússtjórinn fjallar
um þau. Ég sætti mig heldur ekki
við hvernig ýmsar tillögur sem
ráðið hefur samþykkt hafa orðið
að engu vegna lélegrar fram-
kvæmdastjórnar.
Það vill svo til að þessa upp-
sögn mina ber upp á sömu daga
og mikið fjaðrafok er i fjölmiðlum
og viðar út af svokölluðu segul-
bandsmáli. Sorglegast er að slik
gorkúla geti sprottið og dafnað i
leikhúsinu. Það sýnir kannski
best hvernig jarðvegurinn er.
Þegar ég fréttifyrst um þetta mál
var ég i læri hjá tveim finnskum
listamönnum, sem hingað komu
og minntu okkar leikarana á hvað
leikhús væri, eöa gæti orðið. Það
var góð heimsókn, eins og úr öðr-
um leikhúsheimi, þar sem fólk
talar saman á máli leikhússins og
sameinast i þrotlausri vinnu, þar
sem gleðin og sköpunarkraftur
ræður rikjum.
Ég skora á allt leikhúsfólk að
hefja sig upp úr meðalmennsk-
unni og lágkúrunni. Hættum að
karpa um hluti sem eru svo óra-
langt frá sameiginlegu markmiði
okkar allra, betra leikhúsi á Is-
landi.
Omaklega
vegið að
hljóð-
meistara
Ekki er hljóðnemamálinu i
Þjóðleikhúsinu með öllu
lokið, því Sigurður Eggerts-
son hljóðmeistari hússins
hefur sent frá sér bréf um
hijóðnema þann sem nefndur
var i frétt Þjóðleikhúsráðs
og sagður var vera á litla
sviðinu i Þjóðleikhúsinu.
Sigurður vitnar til fréttar i
Þjóðviljanum þar sem sagt
er frá fréttatilkynningu
Þjóðleikhúsráðs og segir
siðan: Undirrituðum sem
gegnir starfi hljóðmeistara
Þjóðleikhússins þykir þarna
ómaklega að sér vegið, þar
sem hljóðnemi á litla sviðinu
hefur ekki komið fram við
rannsókn eins og látið er að
liggja, enda enginn hljóð-
nemi þar til staðar. Hins-
vegar hefur hljóðnemi verið
settur upp til upptöku á litla
og stóra sviðinu á frum-
sýningum til varðveislu leik-
húsverka og það gert sam-
kvæmt ákvörðun Þjóðleik-
húsráðs og með fullri vitund
starfsfólks.
Fæ ég ekki séð hvaða til-
gangi það þjónar að tengja
vinnu mína vegna opinberra
sýninga svonefndu „hljóð-
nemamáli”. Fer ég þess hér
með á leit að hæstvirt Þjóð-
leikhúsráð birtián tafar leið-
réttingu á áðurnefndri
fréttatilkynningu. Að öðrum
kosti hef ég falið lögmanni
minum Jóni Oddssyni, hrl.
að beiðast opinberrar rann-
sóknar á máli þessu i heild.”
Grundfírðingar
fá skuttogara
i. gærkvöldi, kl. 6.30, stóð til að
sjósetja á Akranesi nýjan togara,
sem smiðaður hefur verið i skipa-
smibastöð Þorgeirs og Ellerts á
Akranesi, fyrir Grundfirðinga.
Eigendur hins nýja skips eru þeir
feðgarnir Iljálmar Gunnarsson
og Gunnar Hjálmarsson á
Grundarfirði.
Að þvi er Hallgrimur Magnús-
son, verkstjóri i Skipasmiðastöð
Þorgeirs og Ellerts h.f. sagði
blaðamanni Þjóðviljans i gær þá
er hið nýja skip 450 tonn og 50 m.
langt, búið öllum þeim fiskileitar-
tækjum, sem best eru talin nú.
Hallgrimur Magnússon sagði að
skipið hefði verið rúmt ár i smið-
um en Skipasmiðastöðin afhenti
Tálknfirðingum togara i april-
byrjun i fyrra. Endanlegt verö
skipsins liggur ekki fyrir þvi það
verður næstu f jórar vikur i umsjá
Skipasmiðastöðvarinnar og fara
þá fram ýmsar prófanir á skipi og
veiðarfærum. En það litur hins--
vegar út fyrir að þetta skip verði
ekki það dýrt að verð þess
standist ekki alveg samanburð
við verð sambærilegra skipa, sem
smiðuð eru erlendis, sagði Hall-
grimur Magnússon.
— Hvað liður svo verkefnum
hjá ykkur framvegis?
— Við erum nú að byggja yfir
og setja vél i bát fyrir Harald
Böðvarsson. Svo er búið að semja
um smiði á 36 m. skipi fyrir
Breiðdalsvik og hefst smiði þess
nú á næstunni. Samið hefur og
veriðum smiði á samskonar skipi
fyrir Sildarverksmiðjuna á Akra-
nesi. Loks er búið að semja við
Grundfirðinga um smiði á þriðja
skipinu af þessari gerð, en það er
nú raunar ekki enn komið i gegn-
um kerfið, sagði Hallgrimur
Magnússon.
-mhg.
Starf dagskrárfulltrúa:
Mælt með Atla Magnússyni
A fundi útvarpsráðs i gær var
samþykkt meö 6 atkvæöum aö
mæla meö Atla Magnússyni
blaðamanni á Timanum i stööu
dagskrárfulltrúa við hljóövarpiö
til þriggja ára. Olfur Bragason
hlaut eitt atkvæöi,en alls sóttu 16
um stööuna.
Hjörtur Pálsson dagskrárstjóri
hefur einnig mælt meö Atla i
stööu dagskrárfulltrúa, en settur
útvarpsstjóri Höröur Vilhjálms-
son skipar endanlega i stöðuna
eftir helgina.