Þjóðviljinn - 02.07.1981, Blaðsíða 15
Hringiö í sima 81333 kl. 9—5 alla
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
lesendum
V. ' •
Burt með
hunda
og
hjólreiða-
menn
Nú get ég ekki lengur orfta
bundist og er ég þó ekki vanur
að ausa úr skálum reiði minnar
yfir samborgara mina i fjöl-
miðlurn né á heimili minu þótt
ég segi sjálfur frá. En mig
langar að spyrja: Fyrir hverja
eru gangstéttirnar i þessari
borg, gangandi fólk eða hunda
og hjólreiðamenn? Ösvinnan
gengur svo langt að maður er
farinn að mæta hjólreiðamönn-
um með hunda i bandi sér við
hlið. Voru þó hundar bannaðir
hér i Reykjavik siðast þegar ég
vissi eins og sjálfsagt er.
Eiga hjólreiðamenn að fá að
leggja undir sig gangstéttirnar?
spyr bréfritari. ,
—Ljósm. — gei—
Með þessu áframhaldi hrekst
fólk út á göturnar fyrir bilana
eöa verður að fara allra sinna
feröa i strætisvögnum
eða i bilum. Ég skora á yfirvöld
að láta hjólreiöamenn hjóla á
akbrautum eftirleiöis og út-
rýma hundum jafnt af gang-
stéttum sem þessum fáu opnu
svæðum borgarinnar sem eftir
eru okkur til yndis og ánægju.
Gamall kennari.
Hvítt
eða
blanc,
takk!
Má hvitvinsunnandi benda
starfsmönnum veitingahúsa
islenskra á aö frönsk hvitvin er
viðkunnanlegast að kalla
annaðhvort sinu upprunanafni
frönsku, — nú eða þá snara þvi á
islensku. Hvitvin frá héraöinu
kringum Bordeaux væri hægt að
kalla „blanc de Bordeaux”, eðá
þá „hvitt bordóvin”, allavega
ekki „White Bordeaux”, einsog
barþjónar gera amk. niörá
Óðali.
Drykkfelldur málhreinsunar-
maður.
I : 7
Umsjón: Ellý Ingunn Armannsdóttir
og Eik Gisladóttir
HVAÐ ER
HÉR Á
FERÐ?
Byrjaðu á a og teiknaðu
svo línu eftir starfrófinu.
TRÖLLA-
DEIG
2 dl. hveiti
2 dl. salt
1 dl. vatn
Efnunum blandað
saman og búið til deig.
Mótað úr því og hlutirnir
þurrkaðir í bakarofnin-
um við 150 gr. og síðan
málaðir með þekjulitum.
Hús, dýr og fólk
Þú getur gert
þér dettur í
hvað sem samanbrotiinn. pappír
hug með sem þú teiknar á. Best er
Barnah
að nota þykkan teikni-
pappír. Þú brýtur saman
blaðið og teiknar það sem
þér dettur í hug, td.
glugga og dyr, fólk. Á-
rangurinn getur orðið
böndabær, f jölleikahús,
verslunargata eða annað.
Fimmtudagur 2. júlf 1981. Þ3<»ÐVILJINN — glÐ'A15
Leikrit vikunnar:
„Konan með hundinn”
í Byggt á sögu
eftir Tsjekov
Leikritið i kvöld er „Konan
með hundinn” eftir Lazare
Kobrynski, byggt á sam-
nenfdri sögu eftir Anton Tsje-
kov. Þýöinguna gerði Öskar
Ingimarsson og Baldvin
Halldórsson er leikstjdri. I
hlutverkum eru Margrét
Guðmundsdóttir, Sigurður
SkUlason, Guörún Þ. Stephen-
sen og Randver Þorláksson.
Tæknimaöur er Runólfur Þor-
láksson. Flutningur leiksins
tekur tæpa klukkustund.
Um likritiö segir i kynningu
leikl istardeildar hljóðvarps:
„Dimitri Dimitritsj Gurov
er Moskvubúi sem fer árlega
suður til Jalta aö létta sér
upp. I einni slikri ferö hittir
hann önnu, „Konuna með
hundinn”. HUn er gift háttsett-
um embættismanni, en er
langt frá þvl ánægð i hjóna-
bandinu. Kynni hennar og
Gurovs verða nánari en hún
hefur ætlast til. Það veldur
þeim báöum erfiðleikum, þvl
enginn hleypur frá skyldum
slnum, hvort sem þær eru I-
myndaöar eða raunveruleg-
ar.”
Anton Tsjekov fæddist I
Tagaurog i Suöur-Rússlandi
1860. Hann stundaöi nám i
læknisfræöi, og var starfandi
læknir um margra ára skeiö.
Vegna heilsuleysis varð hann
þó að draga sig i hlé. Hann
keypti sér hús á Jalta á Krlm-
skaga og bjó þar að mestu sið-
ustu árin, en lést á heilsuhæli I
Þyskalandi sumariö 1904.
Útvarp
l|p kl. 20.05 .
Tsjekov byrjaöi ungur að
skrifa smásögur og einþátt-
unga, en flest stærri leikrit
hans eru samin um eöa eftir
aldamótin, t.d. „Þrjár systur”
og „Kirsuberjagaröurinn”.
Þau hafa bæði verið sýnd hér á
sviði og flutti Utvarpi, ásamt
„Máfinum”, „Vanja frænda”
|Og allmörgum einþáttungum.
i Höfundur leikritsins,
;franski rithöfundurinn Lazare
Kobrynski, hefur samið nokk-
lur leikrit, þ.á.m. eitt um
i,,Gamla Nóa”,sem flutthefur
|verið viðaá Noröurlöndum, þó
dcki hér. Auk þess má nefna
„La mort du president” og
]„Jours des paques”.
Frá prestastefnu
Útvarpað verður ávarpi bisk-
upsins yfir tslandi, herra Sigur-
björns Einarssonar, viö setningu
prestastefnunnar i Hátiöarsal
Háskðla tslands kl. 14.00. Jafn-
framt flytur biskup yfirlits-
skýrslu um störf og hag þjóð-
kirkjunnar á synodusárinu.
Útvarp
kl. 14.00
Einsöngur í útvarpi
Anna Júlía Sveinsdóttir, mezzosópran
syngur
Lögin sem Anna JUliana
syngur I kvöld eru eftir Sig-
valda Kaldalóns, Karl O.
Runólfsson og Arna Thor-
steinsson.
Lára Rafnsdóttir leikur
undir.
Anna stundaði söngnám i
Þýskalandi, I Mtlnchen, Köln
og Achen, þar sem hún söng
jafnframtviðóperuna og lauk
bæði kennaraprófi og ein-
söngvaraprófi.
Lára Rafnsdóttir stundaði
nám f pi'anóleik hjá Ragnari
H. Ragnar á tsafirði, i Tón-
listarskólanum i Reykjavik og
loks i London. Anna og Lára
hafa i seinni tið mikið unnið
saman og haldiö nokkra tón-
láka.
Anna JUliana er nU bUin að
É Útvarp
ýéra i heimsókn i Achen þar
sem henni var boöið að halda
konsert i tengslum við skólann
sem hUn var I þar, en annað
kvöld mun hUn syngja á tón-
leikum i Kaupmannahöfn þar
sem eingöngu verða flutt verk
eftir slavneska höfunda.
Undirleikari önnu þar er kona
.,sem við kunnum þvi miður
Ihvorki nafn né þjóöerni á, en
hún mun vera sérfræöingur i
slavneskri tónlist. —A
21.00
Lára Rafnsdóttir og Anna Júl-
iana Svcinsdóttir.
Biskup Islands, Sigurbjörn Einarsson.