Þjóðviljinn - 22.10.1981, Page 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. október 1981
KÆRLEIKSHEIMILIÐ VÍðtalÍð
Nú vantar mig aftur nýjan fótbolta. Hvort ætti ég að
biðja guð/ skrifa jólasveininum eða hringja í ömmu?
Þjófar ógna
almennings-
Nýlega afhenti Norman Acton abalframkvæmdastjóri Alþjóölegu
endurhæfingarsamtakanna (Rehabilatation International) Forseta
tslands, Vigdlsi Finnbogadóttur. stefnuyfirlýsingu samtakanna fyr-
ir 9. áratuginn í málefnum fatlaöra. Þessi mynd var tekin viö þaö
tækifæri en viöstaddir athöfnina voru forystumenn ýmissa samtaka
fatlaöra hér á landi, starfsmenn ráöuneyta og féiagsmálaráöberra.
Mynd þessi var tekin viö þetta tækifæri.
37 ökumenn
voru 14 ára
og yngri
Þaö sem af er þessu ári hafa
orðið 16 dauöaslys I umferöinni,
en á sama tima i fyrra, mánuö-
ina jan.—sept., uröu alls 21
dauöaslys. Alls hafa 508 manns
slasast i umferöinni fram til 1.
október (529 á sama tlma i
fyrra).
1 skýrslu Umferðarráðs um
bráðabirgðaskráningu umferð-
arslysa meö meiöslum segir
ennfremur, að slysin flokkist
þannig (tölur frá 1980 innan
sviga): árekstrar 169 (179), ekiö
á gangandi 96 (104), ekiö á
dýr/hluti8 (1), ekið út af vegi 92
(116).
Börn á aldrinum 0—14 ára,
sem fyrir slysi urðu voru 119
talsins (105), þar af 38 á aldr-
inum 0—16 ára (37). Fólksbif-
reiðar áttu aðild að 334 slysanna
(368) en reiðhjól 49 (37)
Athygli vekur, aö 37 öku-
manna, sem aöild áttu aö um-
ferðarslysum voru aöeins 14 ára
og þaöan af yngri, og þeir voru
30 á sama tlma i fyrra. 31 öku-
menn voru 15—16 ára (53 I
fyrra).
Betri er bænasöngur en blek-
svart kók aö morgni!
,Fannst ég alltaf
I vera hestur sjálf"
stgir Kollmm
Arisf jáusiloffir
Það er ekki aö spyrja af þess-
um norðlendingum...
Úrklippa úr Degi
þeirra Noröanmanna.
bókasöfnum
1 Bandarikjunum færast nú
stuldir á sjaldgæfum bókum á
bókasöfnum mjög i vöxt, og
vekur þaö aö vonum ugg i
brjósii bókasafnsmanna þar i
landi. Þaö er aö visu engin ný
bóla, aö menn stingi á sig sjald-
gæfum eintökum bóka, en nú á
timum niöurskuröar I Banda-
rikjunum er erfiöara aö
stemma stigu viö þessu en áöur,
þvi fé vantar til öryggisvörslu.
1 mörgum bókasöfnum hefur
verið komið upp rafeindabúnaði
sem kemur upp um menn sem
ætla að lauma bókum framhjá
safnvörðunum. Inn í allar bæk-
ur er stungiö litlum renningi,
sem setur búnaðinn af stað um
leið og gengið er út úr safninu.
Renninginn eiga bókaverðinir
að f jarlægja um leið og bækurn-
ar eru stimplaöar. Þetta þykir
þó ekki alls kostar fullnægjandi
aöferö, og þvi hafa sum söfn
veitt miklu fé af naumum tekju-
stofnum sinum i enn frekari
búnað. Almenningsbókasafnið i
Chicago hefur t.d. komið sér
upp búnaði fyrir 1.7 milljónir
dollara, en á árunum 1979 til
1981 hirtu þjófar bækur fyrir 2
milljónir dala. Háskólabóka-
safnið i Pennsylvaniu segir, að
öryggisbúnaður þess hafi lækk-
aö þjófnaði um 39% og borgað
sig þannig upp á 38 mánuðum.
Þessi mikli öryggisbúnaður
veldur notendum safnanna aö
sjálfsögðu nokkrum óþægindum,
og þá vaknar sú spurning hvort
tilgangi almenningssafna sé
ekki hreinlega stefnt i voða.
Princeton háskólinn hefur geng-
iö svo langt að tilkynna að
vegna þjófnaðaröldu sjái for-
ráöamenn safnsins sér ekki
annað fært en að loka safninu
næsta ár, öllum nema stúdent-
um og starfsliöi háskólans.
\ \
< \
■Q-
O
© Bulls
Hæ! Ertu nú einsog vant er, aö vinna
þér inn peninga meö öllum fimm
skynfærunum?
Hversvegna fimm þegar
lyktarskyniö nægir?
Rætt við Unni
Kristjánsdóttur
formann
Æskulýðsnefndar
Alþýðubandalagsins
,,Auka
þarf
þátttöku
unga
fólksins”
„Við erum núna einmitt aö
undirhúa ráöstefnu ungra AI-
þýöubandalagsmanna. Þaö er
verið aö senda út bréf til for-
manna féiaganna um allt land
og kynna þessa ráðstefnu”,
sagði Unnur Kristjánsdóttir for-
maöur Æskulýðsnefndar Al-
þýðubandalagsins f viötali viö
blaðið.
„Þessi ráðstefna verður hald-
in dagana 7. og 8. nðivember næst-
komandi. Hún verður haldin i
Sóknarsalnum hér við Freyju-
götu og verður byrjað kl. 13.00 á
laugardag. Þar verður gerð
grein fyrir störfum Æskulýðs-
nefndarinnar siðastliðið ár og
siðan verða hópumræður þar
sem tillögur verða samdar og
ræddar. Flokkstarfið kemur þar
til umræðu, ekki sist með tilliti
til ungs fólks i flokknum. Þá
verður fjallað um stefnu flokks-
ins í æskulýösmálum. A laugar-
dagskvöldiö verður svo kvöld-
vaka og veröa ýmis skemmtiat-
riði á boðstólum. Meöal annars
mun fiðlusveit undir stjórn
Wilmu Young leika þar og
syngja þjóðlög frá Hjaltlands-
eyjum og Skotlandi og ýmis
baráttulög.”
NU ber þessa ráðstefnu upp á
rússneska byltingardaginn. A
ekki að minnast hans?
„Við munum minnast rUss-
nesku byltingarinnar i þessari
dagskrá. Þaö er ekki enn ljóst
hver gerir það, en það kemur i
ljós.”
Verður ekki dansur aftani'?
,,Það verða bæði veitingar og
svo að sjálfsögðu stiginn dans,
allt eftir smekk og löngun.”
Hvað ætlið þið að gera á
sunnudaginn?
„Dagskráin á sunnudaginn
hefst kl. 9,30. Þá munu gestir
ráðstefnunnar flytja ræður sin-
ar. Viö höfum boöið tveimur á-
gætum fulltrúum erlendis frá.
Það eru fulltrúi frá Unga Þjóð-
veldisflokknum i Færeyjum og
fulltrúi frá Siumut ftokknum á
Grænlandi. Eftir hádegið er
meiningin að hópar geri grein
fyrir sinum tillögum og svo
verða þærræddar og afgreiddar
i framhaldi af þvi. 1 lokin verður
svo gengið til kosninga.”
„Megintilgangurinn með
þessari ráðstefnu er að reyna að
efla starf æskufólks i flokknum,
en það hefur verið alltof litið
hingað til. Er þvi mikilvægt að
fólk fjölmenni á ráðstefnuna til
þess að taka þátt i þeirri um-
ræðu og stefnumótun.”
Viltu koma einhverjum prakt-
iskum upplýsingum á framfæri
varðandi ráðstefnuna?
,,Já,ég vil benda fólki á að við
munum hér á flokksskrifstof-
unni aðstoða við útvegun hús-
næðis ef þörf krefur. Þá vil ég
minna fólk á að tilkynna þátt-
töku sina i sima skrifstofunnar,
sem er 17500. Dagskráin verður
svo auglýsti Þjóðviljanum núna
næstu daga,” sagði Unnur
Kristjánsdóttir að siðustu.
— Svkr.