Þjóðviljinn - 03.12.1981, Síða 10
1Ö SÍÐ’a — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. desember 1981.
BREFSKAK/2
LANDSKEPPNIR
Yfirburða sigrar á Norðmönnum
og Skotum í uppsiglingu
i þessum þætti er
ætlunin að gera grein
fyrir stöðu mála í lands-
keppnum islenskra
bréfaskákmanna.
Árangurinn hefur verið
með eindæmum góður frá
upphaf i/ en ekki eru mörg
ár á bak við ísienska
bréfskákhefð.
Fyrsta landskeppnin var viö
Svia, en þeir eru á meöal sterk-
ustu bréfskákþjóöa heims, en
þrátt fyrir þaö geröu þeir ekki
meira en aö merja sigur á okk-
ur. Næstir á dagskránni voru
Finnar, sem máttu þola stórtap,
31 vinningur okkar gegn 19 vinn-
ingum þeirra! Þá erum viö
komin aö þeim landskeppnum
sem nú eru i gangi.
Skotar
Landskeppnin viö Norömenn
hófst voriö 1979 og er nú langt
komin. Viö fengum þær upp-
lýsingar hjá Bjarna Magnús-
syni, liösstjóra islensku sveitar-
innar, aö íslenska sveitin hefur
nú hlotiö 19.5 vinninga gegn 9.5
Norömanna. Tiu vinninga for-
skot þegar ellefu skákum er
ólokiö. Þeir sem unniö hafa tvö-
falt eru: Jón Pálsson, Askell
Örn Kárason, Jörundur Þóröar-
son og Jón JóhannessonTeflt er
á 20 borbum, 40 skákir ails.
Norðmenn
I keppninni viö Skota er teflt á
25 boröum, eöa alls 50 skákir.
Jón Pálsson liösstjóri, lét okkur
i té stööuna eins og hún er i dag.
Aöeins tólf skákum er ólokiö og
standa leikar þannig aö Is-
lendingar hafa hlotiö 25 vinn-
inga en Skotar 13 vinninga. Ekki
þarf þvi nema hálfan vinning til
aö innsigla sigurinn.
Þeir sem unnib hafa tvöfalt
gegn Skotum eru: Þóröur Egils-
son, Harvey Georgsson, Gunnar
Finnlaugsson, Jón Jóhannes-
son, Þóröur Þóröarson, Þórir
Sæmundsson, Birgir Karlsson
og Agúst Karlsson.
Keppni lýkur 31. des. n.k. og
veröa þær skákir sem þá er
ólokiö settar i dóm.
Hér er ein fjörug viöureign úr
þessari keppni.
Hvitt: Gunnar Finnlaugsson
Svart: W.G. Brady
Skikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 d6 6. Bc4 e6 7.
Bb3 a6 8. Be3 Bd7 9. De2 Da5 10.
0-0-0(Velimirovic-árásin, kennd
viö samnefndan júgóslavneskan
stórmeistara).
10. - Be7 11. Hhgl b5 12. f3 b4 13.
Rbl Dc7 14. g4 Ra5 15. Rd2 g6 16.
g5 Rh5 17. Df2 Hc8 18. Kbl Rxb3
19. cxb3 e5 20. Hcl Db7 21. Re2
0-0 22. Rc4 f5 23. gxf6 Rxf6 24.
Dh4 Rxe4!? (Athyglisverður
leikur sem leiöir til mikilla
sviptinga). 25. Dxe7 Rc3 (Þenn-
an riddara má auövitaö ekki
taka vegna 26. - Bf5+). 26. Kal
Rxe2 27. Rxd6 Hxcl 28. Hxcl
Dxf3 29. Bh6 Df6 30. Dxd7 Rxcl
31. Bxcl Hd8? (Afleikur i
tapaöri stöðu).
abcdefgh
32. Re8! og svartur gafst upp.
Nýlega er hafin landskeppni
viö Tékka á tiu borðum, og um
áramótin hefst landskeppni við
Dani á 25 boröum. _eik—
Ný úrsllt í Bréfskákþlngum
79’ mótið
I.a ndsiiðsf lokkur:
MagnUs Þorsteinsson og Gisli
Gunnlaugsson unnu báöir þá
Guðna Þóröarson og Frank
Herlufsen.
’80 mótið
Landsliðsflokkur:
Bjarni Magnússon vann
Gunnar Finnsson.
Almennur flokkur B-riöill:
Einar Þorvarðarson vann
Sævar Jónsson og þar með riðil-
inn, hlaut 4.5 vinninga af 5
mögulegum.
’81 mótið
Landsliösflokkur:
Jón Jóhannesson tapaöi fyrir
Bjarna MagnUssyni, Jóni Þ. Þór
og Gisla Gunnlaugssyni. Svavar
G. Svavarsson vann Jón Jó-
hannsson og gerði jafntefli við
JónPálsson. Bjarni MagnUsson
vann Svavar G. Svavarsson.
Mcistaraflokkur:
Sigurður örn Hannesson jafn-
tefli gegn Þórkatli Sigurðssyni.
Arni Jakobsson vann Sigurð öm
Hannesson og Jakob Thoraren-
sen.
Almennur flokkur A-riöHl:
Halldór Bragason tapaði
öllum sinum skákum.
Almennur flokkur B-riöill:
Jón Björnsson vann Leif
Eiriksson. Leifur Eiriksson
vann Benedikt Sigfússon. Leið-
rétting: Þorkell Ólafsson vann
Lárus Guðjónsson.
Minning:
Guðbjöm Sigurjónsson
Fæddur 17.9 18% — Dáinn 20.11. 1981
28, nóvember var Guðbjörn
Sigurjónsson jarösunginn frá Sel-
fosskirkju. Kynni okkar voru ekki
löngaöeins einn áratugur, þaö er
ekki mikib af heilli mannsævi en
þaö var ánægjulegur timi og lær-
dómsríkur, svo heilsteypt og for-
dómalaus voru þau hjón bæöi
gagnvart lifinu. Ég var þá viö
nám i þjóöbúningasaum hjá konu
hans Margréti Gissurardóttur,
einni af færustu saumakonum
okkar Islendinga á þvi sviði.
Guöbjörn var fæddur i Sölva-
holti i Hrunamannahreppi jarö-
skjálftaáriö mikla. Þá höföu
bæjarhús viöa hruniö, fólk og
fénaður oröiö undir og látiö lifiö.
Mannfólkið haföist þvi viö aö
mestu i tjöldum um nætur.
Foreldrar Guöbjörns, Sigurjón
Steinþórsson og Þorbjörg Einars-
dóttir höföu veriö á prestsetrinu
Stóra-Hrauni þar sem að Sigurjón
var ráösmaöur hjá prestinum
Olafi Helgasyni er skipaöur haföi
verið kennari heyrnardaufra og
mállausra 20.8.1891. Jaröskjálft-
arnir urðu m. a. til þess aö
miklum óhug sló á fólk og þaö var
hvergi óhult innan dyra. Þorbjörg
Einarsdóttir flúöi þvi heim til
foreldra sinna aö Sölvaholti og ól
þar fyrsta barn sitt i tjaldi á
þesssum köldu haustdögum. Þaö
var drengur og hlaut hann nafniö
Guöbjörn eftir hjónunum
Guörúnu og Arnbirni sem aö
höföu búiö á bænum Selfossi og
látið bæöi lifið þegar að bæjar-
húsin hrundu yfir þau. Vorið eftir
flutti Guöbjörn með foreldrum
sinum að Lambastöðum og siöar
aö Króki i Hraungerðishreppi þar
sem að hann ólst upp við ástriki
foreldra sinna og systur, er bar
nafnið Sigrún en er nú látin.
Guöbjörn naut aöeins farskóla-
kennslu i æsku. Hann var viljugur
og verkhagur og kom það sér vel
siðar á ævinni. 17.7.1920 gekk
hann að eiga Margréti Ingibjörgu
Gissurardóttur frá Byggöarhorni
i Sandvikurhrepp Gunnarssonar
og Ingibjargar Siguröardóttur frá
Langholti i Hraungeröishreppi
Ingibjörg og Gissur eignuöust 16
börn sem aö öll komust til manns.
Guöbjörn flutti brúöi sina heim aö
Króki, þar sem aö þau bjuggu
fyrstu árin og þar fæddist fyrsta
barn þeirra. Siöar fluttu þau aö
Jórvik I Flóa en eftir 5 ára veru
þar yfirgáfu þau sveitina og
settust aö á Selfossi, þar sem
mikiö lifsstarf liggur eftir Guö-
björn. 1 félagi viö múrara-
meistara lagöi hann fyrir sig þá
iön og má segja aö þó svo aö hann
vantaöi skólagönguna skorti
ekkert á hæfni, verklægni eöa
vandvirkni hans I starfi. Sem
dæmi má nefna aö honum var
falið múrverk viö kirkjuna á Sel-
fossi, sem aö ekki var vandalaust
starf. ötaldar byggingar á Sel-
fossi og úti um nærliggjandi
sveitir bera vitni um handbragð
Guöbjörns. Er þó ótaliö hús þaö
er hann byggöi yfir fjölskyldu
sina og ber nafniö Asheimar og er
nú notaö af Selfossbúum fyrir
dagvistun barna; megi andi glað-
væröar rikja þar um ókomin ár.
Guöbjörn hafði góöa söngrödd
og starfaöi alla tiö i kirkjukórnum
á Selfossi. A heimili þeirra hjóna
var oft glatt á hjalla, þau voru
bæöi gestrisin, en umfram allt
góðar og hjálpsamar manneskj
ur sem máttu ekkert aumst sjá.
Tvær litlar telpur tóku þau i
fóstur og ólu upp sem sin börn til
fullorðins ára, þær eru Ragna
Pálsdóttir og Guörún Guömunds-
dóttir. Sjálf eignuöust þau tvö
börn, Margréti Sigrúnu fædda
28.12.1921. Hún var gift Karli
Þorsteinssyni er andaðist fyrir
tæpum mánuöi og er þvi þungur
harmur hjá fjölskyldunum er
tveir ástvinir falla frá á svo
skömmum tima. Þau áttu fjórar
dætur. Sonur Guðbjörns og
Margrétar heitir Sigurjón fæddur
30.6.1937. Kona hans er Gunnlaug
Jónsdóttir. þau eiga þrjú börn.
A sjöunda áratugnum bauðst
Guðbirni föst vinna sem i augum
aldamótakynslóðarinnar veitti
heimilinu örugga afkomu. Þetta
var hjá Mjólkursamsölunni i
Reykjavik og átti hann aö annast
viöhald og viögeröir. Þau kvöddu
þvi Ásheim og Selfossbúa meö
söknuöi og settust að i Safamýri
93, þar sem eftirlifandi kona hans
býr nú.
Guðbjörn var vel látinn í starfi
og hélt þvi svo lengi sem aldurinn
leyfði. Vinnuþrekiö var þó ekki
búið að hann fékk starf hjá Jóni
.Sveinssyni I Stálvik. Margrét
kona hans var sem hann og hefur
haldiö vinnuþreki fram á þannan
dag. 82 ára varð hann þó að láta
undan siga vegna lasleika, sem
að ágerðist og siöustu mánuðina
hefur hann legið þungt haldinn á
Landakotsspítala. Hann andaðist
20.11.
Viö hjónin vottum Margréti,
börnum þeirra og ástvinum öllum
innilega samúö og biðjum guö aö
blessa þeim minninguna um
mætan mann.
Hulda Pétursdóttir, Útkoti.
® ÚTBOЮ
Tilboð óskast i eftirfarandi fyrir Rafmagnsveitur Reykja-
vikur.
a. Alvir i háspennulinur. Tilboðin veröa opnuö þriöjudag-.
inn 12. jan. 1982 kl. 11.00 f.h.
b. Jaröstrengi. Tilboðin veröa opnuð miövikudaginn 13.
jan. 1982 kl. 14.00 e.h.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri aö Fríkirkjuvegi
3. Tilboöin verða opnuö á sama stað.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Blikkiðjan
Asgaröi 1. Garöabæ
Önnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmiöi.
Gerum föst verötilboö
SIMI53468
Leigjendasamtökin óska eftir starfsmanni i hlutastarf strax. Starfsmaður þarf að geta unnið sjálfstætt öll almenn skrifstofustörf, annast dag- legan rekstur, auk þess að veita upplýs- ingar og ráðgjöf. Æskilegt er að starfsmaður hafi einhvern áhuga fyrir málefnum leigjenda. Laun skv. samningi V.R. Umsækjendur geta snúið sér til Jóns Kjartanssonar, frá Pálmholti, s. 77815, eða sent upplýsingar og nöfn til blaðsins merkt: LEIGJANDI.