Þjóðviljinn - 03.12.1981, Blaðsíða 16
DJÚÐVIUINN
Fimmtudagur 3. desember 1981.
AbaUImi Þjóöviljans er 81333 ki. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tlma er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Áðalsími Kvöldsími Helgarsími
81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt aö ná 1 af- greiöslu blaösins 1 slma 81663. Blaöaprent hefur sima 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öli kvöld. 81333 81348 afgreiðslu 81663
Samtalsbók við Gunnar Thoroddsen:
Ætlar að skrífa
æviminningamar
Bann við loðnuveiðum
Ólafur Ragnarsson sagði bók-
ina tUlka skoðanir og viðhorf
Gunnars betur engert hefði verið
áður; gjarnan hefðu aðrir menn
Framhald á 14. siðu
— þegar að tími vinnst til
Hin umtalaöa bók ólafs Ragn-
arssonar um Gunnar Thoroddsen
er komin út. Ólafur sem er útgef-
andi bókarinnar boðaöi blaöa-
mannafund i gær þar sem forsæt-
isráöherra var viöstaddur.
I bókinni rifjar Gunnar Thor-
oddsen upp minningar sinar frá
nærri hálfrar aldar ferli i islensk-
um stjórnmálum og skýrir frá
málavöxtum, vitnar til einka-
samtala sinna við ýmsa þjóð-
kunna menn. Lýsir hann þar
skoðunum sinum á mönnum og
málefnum og varpar ljósi á það,
sem gerst hefur á bak við tjöldin i
islenskum stjónmálum siðustu
áratugina.
Höfundurinn Ólafur Ragnars-
son byggir frásögnina á fjölmörg-
um samtölum þeirra Gunnars
sumarið og haustið 1981 og fléttar
inn i hana ýmsum samtimaheim-
ildum um þá atburði sem til um-
ræðu eru. i bókinni er fjallað um
sambandsslitin við Dani og bar-
áttu Gunnars i hópi ungra Sjálf-
stæðismanna fyrir lýðveldisstofn-
un og kosningu Sveins Björnsson-
ar fyrsta forseta lýðveldisins.
Þá er kafli um forsetakjörið
1952 er Gunnar studdi Ásgeir Ás-
geirsson gegn vilja sjálfstæðis-
forystunnar, sagt frá fjármála-
ráöherratið hans i rikisstjórn ól-
afs Thors og þvi er hann ákvað að
hætta stjórnmálaafskiptum 1965.
Rætt er um forsetakosningarn-
ar 1968 er Gunnar bauð sig fram
gegn Kristjáni Eldjárn og um
endurkomu hans inn i stjórnmálin
1970. Einn lengsti kaflinn fjallar
um stjórnarmyndun Gunnars i
febrúar 1980, aðdraganda hennar
og samskiptin við þingflokk
Sjálfstæðismanna þá og þróun
mála siöan.
Þá er kafli um landsfund Sjálf-
stæðisflokksins i haust og þar
metur Gunnar llkurnar á sáttum
innan flokksins milli þeirra, sem
hann nefnir harðlinumenn og
hinna frjálslyndu.
A blaðamannafundinum i gær
sagði Gunnar Thoroddsen að
hann hefði haft i hyggju að skrifa
æviminningar sinar, þegar hann
settist i helgan stein, en sagði það
hafa dregist vegna þess að hann
lyti ekki þeim almennu aldurs-
reglum um sem giltu um það hve-
nær menn hættu afskiptum af
stjórnmálum. Hann hefði þetta þó
enn i huga, hvenær sem sá timi
kæmi. Hann sagði að bókin
Valdatafl I Valhöll væri ekki
kveikjan að þessari bók og sagði
þessa bók vera miklu vandaðri og
traustari en hana.
S j ávarút vegsráðuneytið:
Gunnar Thoroddsen og Ólafur Ragnarsson fagna samtalsbókinni á blaöamannafundi i gær. Ljósm. eik.
Sjávarútvegsráðu-
neytið hefur ákveðið
bann á loðnuveiðum frá
hádegi sunnudags 6.
desember nk. Er það
gert vegna skýrslna
Hafrannsóknarstofn-
unarinnar um ástand
loðnustofnsins.
Þeirbátarsem veitt hafa helm-
ing kvóta sins mega þó halda
áfram veiðum uns þeir hafa
fengið helminginn af kvótanum,
en þó ekki lengur en til 20. desem-
ber nk. Jafnframt hafa loðnu-
veiðar verið bannaðar austan 14.
gráðu vestlægrar lengdar milli 66.
gráðu og 67. gráðu norðlægrar
breiddar, vegna smáloðnu sem
heldur sig á þessu svæði út af
Langanesi.
1 janúar mun svo ákveðið
frekar um hvert verði áframhald
loönuveiðanna. — Svkr.
Afleikur
Geirs
Loðnuveiðarnar:
15 bátar komnir
með sinn kvóta
,,Nú sem stendur eru 15 bátar
búnir aö veiöa upp i sinn loönu-
kvóta og 7 - 8 bátar eiga eftir einn
túrtil aöná sinum,” sagöi Andrés
Finnbogason hjá Loönunefnd i
gær.
„Hinir eruréttað byrja, einner
t.d. búinn að fá 170 tonn og annar
bátur er i sinum fyrsta róðri
núna. Það eiga allir bátarnir að
hætta á sunnudaginn kemur, nán-
ar til tekið á hádegi þann dag,
nema þeir bátar, sem ekki eru
búnir að ná helmingi sins kvóta.
Mér sýnist að það gætu verið
svona 10 -12 bátar, sem þá muni
vanta á að hafa náð helmingnum,
mismunandi mikið. Allir eiga
hins vegar að hætta þann 20. des-
ember hvernig sem á stendur
með afla þeirra.
Eins og undanfarin ár verður
farið i leiðangur i janúar og það
verður ekki fyrr en seinni partinn
i þeim mánuði, sem fyrir liggur
með niðurstöður úr athugunum,
sem þá verða gerðar.
Það verður beðið með frekari
ákvarðanir i þessu fram yfir
helgi, þá vita menn betur hversu
veiðst hefur. Þessar ákvarðanir
um loðnuveiðarnar geta þýtt það
að búið verði að veiða um 20. des-
ember 490 - 570 þúsund tonn af
þessum 617 þúsund tonnum, sem
heimilað var að veiða,” sagði
Andrés.
— Svkr.
íslenskri flugvél hlekkist á í Líbíu:
Engin slys á mönnum
A þriöjudagskvöld hlekktist is
lenskri flugvél i innanlandsflugi i
Libiu á i lendingu úti i eyöimörk-
inni. Engin slys uröu á mönnum
en einn tslendingur var í dhöfn
vélarinnar, flugstjórinn. Far-
þegar og aörir I ahöfn voru
Libanir.
Að sögn Sveins Sæmundssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða lenti nef-
hjól flugvélarinnar á einhverri
fyrirstöðu á flugvellinum með
þeim afleiðingum að það brotn-
aöi. Ekki var honum kunnugt um
hversu miklar skemmdir urðu á
vélinni, en islenskir flugvirkjar
frá Trípóli voru komnir á staðinn
i gær.
Flugleiðir hafa nú i eitt ár verið
með tvær Fokker-vélar i innan-
landsfhigi i Liblu. Eru flugstjórar
og flugvirkjar islenskir en að-
stoðarflugmenn og flugfreyjur
Libanir. — AI
i Happdrætti Þjóðviljans:
íSkilum í dag!
Enn á ný hefur drætti i happdrætti Þ jóðviljans verið
■ frestað vegna tæknilegra örðugleika hjá borgarfó-
f getaembættinu — ekki reyndist unnt að fá miðana
■ prentaða í tæka tíð. En nú segir embættið að dregið
■verði á morgun. Miðarnir verða innsiglaðir þar sem
luppgjör hefur ekki borist frá öilum aðilum.
í Við beinum þeim eindregnu tilmælum til allra innheimtumanna I
|að þeir taki nú til hendinni hver á sinum stað, þannig að unnt sé að I
■birta vinningsmiðana og handhafar þeirra fái verölaunagripina. ■
j Opið verður á skrifstofu flokksins að Grettisgötu 3 alla virka daga §
■ frá kl.9.00 til kl. 19.00. Simarnir eru 17500 frá kl.9.00-17.00 en 17504 til ■
Ikl.19.00. Uppgjörinu má einnig koma til Þjóðviljans aö Siðumúla 6,
simi 81333.
IVið bendum öllu innheimtufólki I Reykjavik á að hafa samband ■
við skrifstofuna áður en haldið er i rukkunarleiöangur og fá uppgef- I
?iö hverjir hafa gert skil á skrifstofunni. Það sparar ykkur sporin. !
LianaiiaaMiHiaBiianBiiBiiBiaBiaMial
„Ég geröi engar tilraunir til,
þess aö spilla fyrir stjórnarmynd-
un Geirs Hallgrimssonar, eöa til
þess aö reyna sjálfur aö mynda
stjórn á meöan hann haföi umboö
til þess”, sagöi Gunnar Thorodd-
sen forsætisráöherra m.a. I við-
taisbók Ólafs Ragnarssonar viö
hann, sem út kom i gær. ,,Sá
möguleiki, sem ég kannaöi og
kynnti þingflokki sjálfstæöis-
manna (Alþýöubandalag, Fram-
sóknarflokkur, Sjáifstæöisflokkur
— aths. Þjv.) kom ekki tii sögunn-
ar fyrr en meö samtölum fram-
sóknarmanna viö mig þriöjudag-
inn 29. janúar (1980 aths. Þjv.).
Og ég itreka, aö þá haföi Geir
hafnaö honum.”
Dr. Gunnar telur að það hafi
verið afdrifarik mistök og afleik-
ur hjá Geir Hallgrimssyni og
Ólafi G. Einarssyni er þeir gengu
fram hjá þeim möguleika er
varaformaðurinn átti á stjórnar-
myndunarviðræðum. Fram kem-
ur einnig að Geir Hallgrimsson
hafi hafnað áþreifingu Tómasar
Arnasonar um hugsanlegan
möguleika á samstjórn Alþýðu-
bandalags, Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks. Gunnar itrekar
að það sé rangt sem haldið sé
fram i Valdatafli i Valhöll, að
hann hafi látið berast til Alþýðu-
flokksmanna og Framsóknar-
manna i kringum 20. janúar, aö
hann væri tilbúinn að taka að sér
forsætið með öðrum flokkum.
Hann segist einungis hafa látið i
ljós þá skoðun að ef Alþýðuflokk-
ur og Framsóknarflokkur mynd-
uðu minnihlutastjórn uppúr
stjórnarkreppunni væri ekki rétt
að fella slika stjórn strax með
vantrausti, það er að segja ef aðr-
ir væru ekki tilbúnir tii þess að
axla stjórnarábyrgö þegar I stað.
Þessi afstaða sin kunni aö hafa
verið krydduð i söguburöi, og þvi
haldið fram að hann hafi viljað
ganga i stjórnina sjálfur og veita
henni forystu.