Þjóðviljinn - 24.04.1982, Blaðsíða 2
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 24.-25. aprfl 1982
unt helaína
myndlist
„Þetta er allt
stilisérað ”
Rabbað við Mattheu Jónsdóttur
um sjöundu einkasýningu hennar
„Ég er óskaplegur klaufi við
aö flokka mína myndiist. Ég get
aðeins sagt, að ég mála þau
áhrif sem ég verð fyrir frá um-
hverfinu — þaö sem ég hef séö á
ferðalögum og ekki sfst kannski
áhrif árstiðanna eða jafnvei
breytileik veðurs.
Sú sem þessi orð mælir heitir
Matthea Jónsdóttir, en hún
opnar málverkasýningu í dag,
laugardaginn 24. aprfl, í As-
mundarsal við Freyjugötu kl.
tvö. Matthea sýnir þar 23 oliu-
málverk i aðalsal og 28 vatns-
litamyndir i baksal. Þetta er
„Ég hef ferðast mikið um
ævina, allt frá þvi ég var tvi-
tug”, segir Matthea. „Ég hef þó
eingöngu ferðast um Evrópu,
aldrei utan hennar. Og þaö eru
kannski ferðalögin sem hafa
mest áhrif á mig. Ég mála hús,
landslag og dýramyndir. Þetta
er stíliserað hjá mér, e.t.v. f
kúbönskum anda”.
Matthea segist vera heima-
vinnandi húsmóðir með fjögur
börn á sinni könnu. Umönnun
fjölskyldunnar tekur mikinn
tfma— meiri en
málverkið — og þvi verða af-
Matthea Jónsdttir með hluta verka sinna i Asmundarsal. Hún va
þá að vinna við að koma sýningunni upp. (Ljósm. gel)
sjöunda einkasýning Mattheu,
en hún hefur tekið þátt i fjölda
samsýninga hér heima og er-
lendis. Hún hefur hlotið ýmsar
viðurkenningar fyrir verk sin á
alþjóðasýningum m.a. i Frakk-
landi og i Belgiu.
köstin á listasviðinu minni en
efni standa kannski til.
Við þökkum Mattheu fyrir
spjallið. Sýningu hennar verður
opin uni helgar frá kl. 14—22 og
virka daga kl. 17—22 frá 24 april
til 2. mai.
Olle Tallinger
útfærir í Nýlistasafni
Olle Tallinger er meo einka-
sýningu i Nýlistasafninu viö
Vatnsstig. Hann er sænskur aö
uppruna, en hefur búið i Dan-
mörku um 6 ára skeið.
Opnunardaginn, sem var i
gær (föstudag), setti hann upp
15 hvitmálaða striga og 15 skiiti
þar sem á hvert um sig verður
skrifað eitt orö. Lengd oröanna
vex frá einum til 15 bókstöfum,
sem ákvaröa stærð myndflatar-
ins. Myndirnar verða siðan út-
færðar i málverk, sem hann
reynir að ljúka á sýningartim-
anum, sem er 10 dagar. Annars
verður þeim lokið eftir sýningu.
Endanleg gerð þeirra verður á
sýningu i Danmörku á næsta
ári.
Sýning Tallingers við Vatns-
stig veröur opin frá 16-22 alla
daga.
(Jrsýningarsal Listasafns alþýðu — verk Arnar Þorsteinssonar eru af ýmsu tagi: málverk, teikningar
lágmyndir og skúlptúrvedrk. '
Örn sýnir í Listasafni alþýðu
Síðasta laugardag opnaði örn Þorsteinsson sýningu á málverkum, teikningum, lágmyndum og skúlp-
túrverkum í Listasafni alþýðu. Sýning Arnar stendur yfir til 9. mai og er opin alla daga frá klukkan tvö
til klukkan tiu.
tónlist
Djassað í
Gamla bíói
Vortónleikar tón-
listarskóla F.f.H.
Tónlistarskóli Félags is-
lenskra hljómlistarmanna held-
ur vortónleika sina nú um helg-
ina. A laugardag heldur djass-
deildin sina tónleika i Gamla
bióiog hefjast þeir kl. 13.30. Þar
koma fram 8 djasshljómsveitir
úr skólanum, kynnir verður
djasssögukennari skólans, Jón
Múli Arnason. Sunnudaginn 25.
april verða tónleikar almennu
deildarinnar haldnir i sal skól-
ans að Brautarholti 4. Hefjast
þeir kl. 14.00.
Um 160 nemendur stunda nú
Auk fastra liða kennslunnar i Tónlistarskóla F.t.H. i vetur voru
haldin nokkur námskeið fyrir nemendur djassdeildarinnar. Leiö-
beinendur á þeim voru Pétur östlund, trommuleikari, Joe New-
mann, trompetleikari, Jon Pal Inderberg, saxófónleikari, Paul
Weeden, gitarleikari og Jón Páll Bjarnason, gitarleikari, sem sést
hér á myndinni með einum nemendanna. (Ljósm. Stúdió Guðmund-
ar).
nám i báðum deildum Tón- 23 talsins og skólastjóri er Sig-
listarskóla F.Í.H., kennarar eru urður Ingvi Snorrason.
Trómet-blásarasveitin með hljómleika
Frá æfingu hjá Trómct-blásarasveitinni, en hún veröur með tónleika I Norræna húsinu á sunnudags-
kvöldið klukkan hálfniu.
Trómet-blásarasveitin, 16
manna kammerblásarasveit
framhaldsskólanema á Iteykja-
vikursvæöinu, heldur aðra opin-
bera hljómleika sina á starfsár-
inu á sunnudagskvöldiö kl. 20.30
i Norræna húsinu.
A efnisskrá eru aðallega tón-
verk frá þessari öld, verkefni
eftir erlenda höfunda eru Petit
Symphonie eftir Charles
Gounod, úr blásaraoktett eftir
Stravinsky og auk þess smærri
verk eftir Ernst Krenek og Ro-
bert Sanders. Höfuöviðfangs-
efni tónleikanna er þó frum-
flutningur á nýju verki eftir
Jónas Tómasson. Verkið nefnir
Jónas, Tómeta-sinfóni, enda er
þaö sérstaklega samið fyrir
Trómet-blásarasveitina.
Stjórnandi sveitarinnar er
Þórir Þórisson.