Þjóðviljinn - 24.04.1982, Blaðsíða 3
Helgin 24.-25. april 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
um helgina
synmgar
Stórgóð sýning
áhugaljósmyndara
Ljósmyndaklúbburinn HUG-
MYND 81 opnaöi Ijósmyndasýn-
inguaö Kjarvalsstööum hinn 21.
april s.l. Þar eru sýndar 60
myndir jafnmargra félags-
manna. Sýningin er öörum
þræöi keppni milli þátttakenda
um sex bestu myndir, þrjár
svarthvitar og þrjár i lit. Gestir
mega greiöa atkvæöi og fá þeir
sérstakan seöil til að taka þátt i
atkvæðagreiðslunni. Myndirnar
a sýningunni eru flestar til sölu.
Ljósmyndaklúbburinn HUG-
MYND 81 var stofnaður hinn 15.
febrúar 1981 og hefur starfað
blómlega æ siðan. Sýning þessi
er fyrsta sýning klúbbsins, en
hann telur nú u.þ.b. 50 félaga á
aldrinum 15-55 ára og eru þeir
allir áhugaljósmyndarar.
Að sögn gels, sem er innan-
hússljósmyndari hér, er full
ástæöa til að hæla þessari sýn-
ingu. Ljósmyndirnar eiga allir
mjög góöar myndir og vinna vel
úr efninu. Það er þvi fyllsta
ástæða til að bregða sér á Kjar-
valsstaði á næstunni, en sýning
HUGMYNDAH 81 stendur til 2.
mai.
samkomur
80 ára afmæli Halldórs Laxness:
Afmœlishátíð að Varmá
1 tilefni af áttræðisafmæli Halldórs Laxness halda sveitungar
hans i Mosfellshreppi upp á afmælið meö hátið á sunnudaginn i
iþróttahúsinu að Varmá. Hefst hún kl. 14.00 og eru þar ýmsir dag-
skrárliðir, söngur, upplestur, hljóðfæraleikur og fleira. Héraös-
bókasafn Kjósarsýslu stendur fyrir sýningu á verkum Laxness á
meðan hátiðin varir. Þá verður barnaskemmtun i Hlégaröi á sama
tima.
Fundur um neytendamál nyrðra
Neytendasamtökin á Akureyri halda ráöstefnu um málefni neyt-
enda og neytendasamtök laugardaginn 24. april n.k. aö Hótel Varð-
borg, Akureyri. Framsögu hafa fulltrúar frá Alþýðusambandi
norðurlands, Kaupmannasamtökum Akureyrar, KEA, Kvenna-
sambandi Akureyrar og Neytendasamtökum Akureyrar. Rætt
verður um eftirfarandi: 1. Eru neytendasamtök nauðsynleg? 2.
Hvernig eiga þau að starfa? 3. Hvert er hlutverk félagasamtaka i
málefnum neytenda.
Fundað í Vogaskólanum
Foreldra- og kennarafélag Vogaskóla boöar til almenns fundár
laugardaginn 24. april n.k. I Vogaskóla um málefni grunnskóla.
Fundurinn hefst klukkan tvöog er ráögert aö honum Ijúki kl. fimm.
1 fréttatilkynningu frá foreldra- og kennarafélaginu segir, að i
umræðum um grunnskólamál hafi einkum verið rætt um kostnað
viðrekstur skólanna.Tilþessa fundar sé boðað til þess að ræða mál-
in frá þeirri hlið, sem að börnunum snýr. Til fundarins er boöiö m.a.
skólastjórum grunnskóla, stjórnendum foreldra-og kennarafélaga,
fræðsluráði, borgarfulltrúum, fjölmiðlum og áhugasömum kennur-
um og foreldrum.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
Avarp: Margrét Þorvaldsdóttir, formaður foreldra- og kennara-
félags Vogaskóla.
Stefna i grunnskólamálum: Kristján Gunnarsson, fræöslustjóri.
Fyrirspurnir.
Innra starf grunnskóla: Hrólfur Kjartansson, námsstjóri. Fyrir-
spurnir.
Áhrif skólans á þroskaferil barna :próf . Sigurjón Björnsson. Fyr-
irspurnir.
Næringarástand og heilsa skólabarna: dr. Laufey Steingrims-
dóttir. Fyrirspurnir.
Kaffihlé verður klukkan 15.45 - 16 en að þvi loknu almennar um-
ræður til klukkan fimm.
Hvernig skal rannsaka hugann?
Félag sálfræöinema viö Háskóla islands efnir til málþings Iaug-
ardaginn 24. aprfl kl. 13.30 i Félagsstofnun stúdenta.
Umræðuefnið verður: Hvernig veröur mannshugurinn rannsak-
aöur? Fyrirlesarar verða: Anna Valdemarsdóttir sálfræðingur,
Jörgen Pind sálfræðingur, Páll Skúlason prófessor i heimspeki. —
Áhugafólk er eindregið hvatt til að mæta.
r '
Arbœjarunglingar í Maraþondansi
Nú um helgina munu unglingar i Arbænum freista þess aö slá ls-
landsmetiö i Maraþondansi meö þvi aö dansa samfleytt i yfir 30
klukkustundir. Dansinn mun hefjast kl. 10 á laugardagsmorguninn
og fari allt að óskum Arselinga mun metiö veröa slegiö um fimm
leytið á sunnudag.
Maraþondansinn fer fram i félagsmiðstöðinni Arseli i Arbænum
og verður húsið opiö fyrir forvitna áhorfendur bæði á laugardag og
sunnudag. Aðgangseyrir verður kr. 10 og mun upphæö sú sem safn-
ast renna til iþróttasambands fatlaðra.
Réttur til réttinda!
„Réttur til réttinda! Hvaða réttindi höfum viö og hvaöa réttindi
höfum viö ekki? Hvaöa umbætur viljum viö?”
Svo nefnist umræðudagskrá á fundi Samtakanna ’78, félags lesbia
og homma á íslandi, en hann verður haidinn á Hótel Loftleiöum i
dag, laugardag, kl. 17.00.
Rætt verður um misrétti, sem lesbiur og hommar verða fyrir, og
kynnt stefna erlendra samstarfsfélaga gagnvart slíku, sem og aö-
gerðir og árangur.
Fundurinn er opinn öllum lesbium og hommum, félagsmönnum
og öðrum.
Bœkur um geimvísindi
Bækur um geimvisindi og geimferöir Bandarikjamanna veröa
sýndar á næstunni i Ameriska bókasafninu, en sýningin opnar
mánudaginn 26. april. Þar veröa sýndar á milli 100 og 150 bækur og
bæklingar um geimtæknimál, geimferöir og gervihnetti. Sýning-
unni lýkur 7. mal.
Halldór
Laxness
r
og Islands-
klukkan
i anddyri Landsbókasafnsins
hcfur veriö komiö upp sýningu,
sem ber heitiö Halldór Laxness
og tslandsklukkan. Á sýning-
unni eru handrit skáldsins,
minnisbækur og ýmsar þær
heimiidir, sem hugsanlegt er aö
Halldór hafi haft til hliðsjónar
erhann samdi islandsklukkuna.
Er þar stuöst viö rannsóknir
þær sem Eirikur Jónsson hefur
gert á aðföngum skáldsins til
sögugeröarinnar, m.a. í göml-
um myndum.
Sýningin verður opin næstu
vik.urnar á opnunartima safns-
ins, mánudaga-föstudaga kl. 9-
19 og laugardaga kl. 9-12.
n
Aðalfundur Verkalýðsmálaráös Alþýðubandalagsinsl
K jara-, vísitölu-
og efnahagsmál
Haldinn að Hótel Loftleiðum á morgun
Benedikt Daviösson.
Guömundur Árnason.
Aöalfundur Verkalýösmálaráös Alþýöubanda-
lagsins veröur haldinn á Hótel Loftleiðum, á
morgun, sunnudaginn 25. april, og hefst kl. 10
árdegis.
Dagskrá:
1. Kjaramál — Framsögumenn: Benedikt
Daviösson og Guömundur Árnason.
2. Visitölumál — Framsögumaöur: Þröstur
Ólafsson.
Þröstur ólafsson.
3. Efnahagsmá! —
Gestsson.
4. önnur mál.
5. Kosning stjórnar.
Svavar Gestsson.
■
Framsögumaöur : Svavar ■
Aðalfundurin fer fram i Kristalssal Loftleiða.
Sameiginlegur málsveröur veröur á Hótel Loft-
leiðum kl. 12.15 á sunnudaginn.
Aðalfundur Verkalýðsmálaráðs er opinn öllum
stuöningsmönnum Alþýðubandalagsins.
Stjórn Verkalýðsmálaráðs
Alþýöubandalagsins.