Þjóðviljinn - 04.06.1982, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.06.1982, Blaðsíða 2
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. júni 1982 um helgrina Franskir flugmenn karlrembast i Gamla biói Listahátíð um helgina Sitthvað verður á döfinni á vegum Listahátfðar um helgina. Þar ber auðvitað hæst frum- flutning islensku óperunnar Silkitrommunnar eftir þá Atla Heimi Sveinsson og örnólf Arnason I leikstjórn Sveins Ein- arssonar og hljómsveitarstjórn Gilberts Levine. Frumsýningin verður á laugardagskvöld, en önnur sýning verður á mánu- dagskvöld. Trúöleikur og visnasöng- ur Triiðurinn Ruben verður með sýningu i Norræna húsinu kl. 16.00 sunnudag, en um hann hefur verið sagt, að honum tak- ist meistaralega að láta áhorf- endur upplifa spennu, undrun — og ekki sist gleði, eins og trúöa er vandi. Um kvöldið, eða kl.20.30 mun svo Olle Adolphson, vfsnasöngv- arinn snjalli frá Sviþjóö, stilla strengi sina og syngja litil ljóö, og eru það fyrri tónleikar hans á Listahátið. Ýkt karlremba t Gamla biói verða þeir á ferð og flugi, Frakkarnir Farid Chopel og Ged Marion, með sýningu sina: „Flugmennirn- ir”. „Flugmennirnir” segir frá tveimur ameriskum flugmönn- um i heimsstyrjöldinni siöari, en i sýningu sinni, sem er sögð sprenghlægileg, tekst þeim fé- lögum að svipta dýrðarljóman- um af hinni amerisku striðs- hetju — og með ýktri karlrembu sýna þeir hvernig venjulegt fólk leitast við að dylja óöryggi sitt. Um sýningu Frakkanna hefur verið sagt, að erfitt sé að skil- greina hana — hún ku vera „einhvers staðar mitt á milli látbragðslistar og dans, á milli Marx bræðranna og Buster Keaton.” Það verða áhorfendur auðvit- að að sjá og upplifa sjálfir, hvað sem öðru liður — en sýning þeirra Chopels og Marions hefst kl.20.00 og verður sem fyrr segir I Gamla biói. Víöa leitað fanga í mynd- list Ekki ættu myndlistarunnend- ur aö þurfa að kvarta yfir Lista- hátið nú, þvi alls veröa ellefu myndlistarsýningar I tengslum við Listahátið, auk þess sem önnur galleri bjóða I sölum sin- um. Sýninganna þriggja á Kjar- valsstöðum er getið annars staðar I blaðinu, en hér verða nefndar aðrar myndlistasýning- ar, sem heyra Listahátiö og opna almenningi um þessa helgi. I Listasafni tslands opnar á morgun, laugardag, sýning á verkum New York málarans Walasse Ting, en á sýningu safnsins eru um 60 málverk, sem listamaðurinn hefur gert 1981-82. Walasse Ting er þekkt- ur figúrativmálari, og málverk hans eru einstætt sambland af skærum litum og 19. aldar mun- úö, þar sem tvinnast saman austræn og vestræn áhrif. Ting hlaut Guggenheim-verðlaunin fyrir teiknun árið 1970. Visnasöngvarinn Olte Adolph- son syngur i Norræna húsinu á sunnudagskvöld. Smælki, nýlist og leirlist Smælki ’82 nefnist smá- myndasýning I Gallerý Lang- brók. Myndirnar eru eftir 14 listamenn, og gerðar úr mis- munandi efnum. A sýningunni er m.a. að finna tauþrykkverk, sauma, vefnað, graflk, skúlptúr og keramik, en hún er opin dag- lega milli kl.12-18, en milli kl. 14-16 um helgar. Nýlistasafniö sýnir á Listahá- tið verk eftir átta samtlmalísta- menn frá fimm þjóðlöndum, en sýning þessi er sett saman og skipulögð af sikileyska listfræð- ingnum Demetrio Paparoni og Nýlistasafninu. Sýning sam- tlmalistamannanna er opin daglega milli kl. 16-22, en milli kl. 14-22 um helgar. Fyrsta sýning hins nýstofnaða Leirlistarfélags verður opnuð á morgun, 5. júnl, I Listmunahús- inu viö Lækjargötu. Þar sýna ellefu félagsmenn verk, sem gefa góða mynd af fjölbreytni og grósku I Islenskri leirlist, en gestur sýningarinnar er danski listamaðurinn Peter Tybjerg. Sýning Leirlistaféiagsins verð- ur opin alla daga nema mánu- daga frá kl.lÓ-18, en kl.14-18 um helgar. — jsj. Og svo er það fyrsta sýning Leirlistarfélagsins meðal þess fjöl- marga, sem boðið er upp á I myndlistinni. Listahátíð ’82: Kammertónlist að Kjarvalsstöðum Meðal þess, sem boðið er upp á á Listahátið nú, er röð kamm- ertónleika að Kjarvalsstöðum, sem ungt tónlistarfólk hefur að- allega haft veg og vanda af und- ir leiðsögn Þorgeröar Ingólfs- dóttur kórstjóra. Tónleikarnir eru 6 talsins og verða eftirtalda daga: laugardaginn 5. júni, sunnudaginn 6., fimmtudaginn 10., þriðjudaginn 15., iaugar- daginn 19. og sunnudaginn 20 júni. Helgartónleikarnir hefjast allir kl. 17.00, en virka daga kl. 21.00. 1 efnisskrá að tónleikunum, sem Kjarvalsstaðir hafa gefið út, segir Þorgeröur Ingólfsdótt- ir m.a. I formála: „Hugmyndin að þessum tón- leikum kom fram hjá stjórn Kjarvalsstaða á liðnum vetri. Var talið æskilegt að beita sér fyrir flutningi Islenskrar tónlist- ar á Listahátið og væri það i samræmi við sýningar staðar- ins. Sú ákvörðun var tekin að halda 6 stutta kammertónleika I þessu skyni.” 1 formála tónleikaskrárinnar kemur jafnframt fram, að mikil fjölbreytni sé á efnisskrá tón- leikanna. Þar er m.a. að finna einleiksverk fyrir pianó eftir Snorra Sigfús Birgisson, sem höfundurinn leikur sjálfur á morgun, laugardaginn 5. júni, og verk fyrir 10 manna hóp Kammersveitar Reykjavikur eftir Pál Pampichler Páisson, sem hún mun flytja sunnudag- inn 6. júni undir stjórn höfundar sjálfs, en á þeim tónleikum munu jafnframt Kristján Þ. Stephensen, Monika Abendroth og Reynir Sigurðsson flytja annað verk eftir Pál. A efnisskrá kammertónleik- anna er ennfremur að finna nýtt verk eftir Guðmund Hafsteins- son, sem nefnist „Brunnu beggja kinna björt ljós”, og er það samið við linur úr gömlu ástarljóði frá 10. öld, sem samiö var af Kormáki ögmundarsyni. Ennfremur eru á efnisskránni verk eftir Þorkel Sigurbjörns- son, John Speight, Hjálmar H. Ragnarsson og Hafliöa Hall- grlmsson. Ekki er að efa, að tónlistar- unnendur taki þessum tónleik- Snorri Sigfús Birgisson. Páll Pampichler Pálsson. um fegins eyrum, en þeir fyrstu veröa sem sagt nú á laugardag og sunnudag, og hefjast kl. 17.00 báða dagana. —-jsj. tónlist E = MC2 Tímalaus tónlist fyrir ótímabært fólk!!!!!!!!!!!!!!!!! 1 dag föstudaginn 4. júni, veröur haldið inni timaleysið á tónleikum sem Þeyr/Purrkur Pilnikk/Vonbrigöi haldr;. I Hafn- arbiói. Sumir álita þetta fyrstu stór- tónleika ársins og kannski þeir einu, en nóg um það. Aðstand- endur tónleikanna lofa að mark- visst ástand skapist og engin verði svikinn. Stendur til að hafa tvenna tón- leika þetta kvöld; þeir fyrri Landsmót harmonikkuspilara Spila á Lækjar- torgi kl. 16.00 í dag Fyrsta mót Landssambands harmonikuunnenda verður haldið I Reykjavik dagana 4.-6. júní og hefst ef veður leyfir á föstudag kl.4 á Lækjartorgi með uppákomu harmonikuleikara viðsvegs.1- frá af landinu. I kvöld verður siöan stórdans- leikur i Sigtúni, þar sem fjöldi harmonikuleikara koma fram. A laugardagskvöld verður landsmótinu haldiö áfram I Festi i Grindavik með kvöld- skemmtun og tónleikum. Aætl- unarferð verður frá Umferðar- miðstöðinni kl.8 um kvöldið og gestunum frá Reykjavik skilað aftur á sama stað eftir skemmt- unina. A sunnudag veröur skemmti- fundur f Glæsibæ, þar sem margir harmonikuleikarar koma fram, bæði einleikarar, dúettar og stærri hópar. Allir harmonikuunnendur og aðrir harmonikuaödáendur eru velkomnir á þessar skemmtanir landsmótsins. byrja klukkan 21.00 og þeir slð- að gera en að mæta. ari eitthvað um 23.00, þ.e. ef (Fréttatilkynning timaleysið stenst. Ekkert annað frá allonsanfan). Tónleikar í Hlégarði Annað kvöld, föstudaginn 4. júní efnir Aiafosskórinn til tón- leika með léttu ivafi I Hlégarði og hefjast þeir kl.21. Flutt verður fjölbreytt tónlist, m.a. eftir Schubert, Pál Isólfs- son, Sigfús Halldórsson, Jóhann Sigurjónsson, Oddgeir Krist- jánsson, Magnús Eiriksson. Einnig mun kórinn frumflytja tvö lög eftir stjórnanda kórsins, Pál Helgason. Alafosskórinn var stofnaður 1980 af starfsmannafélagi Ála- foss og er hann aöili að Tónlist- arsambandi Alþýðu, TÓNAL, og tekur þátt I kóramóti I Pori i Finnlandi i júll i sumar. Kórfé- lagar eru 32 aö tölu og Páll Helgason, innkaupastjóri hjá Alafossi hf er stjórnandi hans. Blandaðurkór úrNjarðvík syngur fyrir Ámesinga Blandaður kór sem starfað hefur af miklum krafti við Tón- iistarskólann I Njarðvik ætlar i ferðalag um helgina og syngja fyrir Arnesinga og aðra ferða- menn. Á laugardag ki.14.00 syngur kórinn I Hveragerðiskirkju fyrir vistmenn á Asi svo og alla þá sem vilja á hlýða. Siðdegis syngur kórinn i Skál- holti eöa kl. 18.00 Aðgangur að söngtónleikunum er ókeypis. Starfsári kórsins lýkur sföan með tónleikum I Ytri-Njarðvlk- urkirkju á mánudagskvöldið kl.12.30. Stjórnandi blandaða kórsins er Gróa Hreinsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.