Þjóðviljinn - 04.06.1982, Qupperneq 3
Föstudagur 4. júnl 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA II
um helgina
Cr Hassinu hennar mömmu eftir Dario Fo. Allt á ferð og flugi. Afi
(Gisli Halldórsson), presturinn (Guðmundur Pálsson), fikniefna-
lögreglan (Kjartan Ragnarsson) og Rosetta (Margrét ólafsdóttir).
Hassið og Jói hætta
Nú dregur að lokum leikárs-
ins hjá Leikfélagi Reykjavikur.
Um helgina er næst siðasta sýn-
ingarhelgin i vor. 1 kvöid (föstu-
dagskvöld) er siðasta sýningin i
vor á Sölku Völku eftir Halldór
Laxness en verkið verður tekið
upp aftur á næsta Ieikári. i lok
mánaðarins verða sýningar á
þvi á svonefndu Leikhúsi þjóð-
anna i Búlgariu.
A laugardagskvöldið er italski
gamanleikurinn Hassið hennar
mömmueftir Dario Fo á fjölun-
um, en i þessu verki er fjallað
um fikniefnamál i gamni og al-
vöru. Nú eru aðeins eftir tvær
sýningar á þessu verki i vor.
Asunnudagskvöldiðer svo Jói
Kjartans Ragnarssonar sýndur
og eru einnig aðeins eftir tvær
sýningar á þvi verki. Þetta leik-
rit Kjartans hefur eins og
reyndar öll hans fyrri verk hjá
Leikfélaginu, vakið mikla at-
hygli og verið sýnt i allan vetur
við fádæma góðar undirtektir.
Þjóðleikhúsið
Amadeus kveður
Um helgina verða siðustu
sýningar Þjóðleikhússins á
Amadeusi á þessu starfsári.
Næst siðasta sýningin verður I
kvöld, og sú siðasta á sunnu-
dagskv öld.
Amadeus var frumsýndur I
janúar s.l. og hefur notið mikill-
ar hylli áhorfenda.
Stórviðburður leikársins hjá
Þjóðleikhúsinu veröur hins veg-
ar nú á laugardagskvöldið þeg-
ar frumsýnd verður ný ópera,
„Silkitromman”. Tónlistin er
eftir Atla Heimi Sveinsson og
textinn eftir örnólf Arnason.
Gilbert Levine er hljómsveit-
arstjóri og stjórnar Sinfóniu-
hljómsveit íslands. Aðeins þrjár
sýningar eru fyrirhugaðar á
Silkitrommunni á Listahátið...
Alþýðuleikhúsið
Aukasýning á
Don Kíkóta
Mánudaginn 7. júni verður
aukasýning á Don Kikóta i Al-
þýðuleikhúsinu, vegna mikillar
eftirspurnar og eins i tilefni
leiklistarþings sem stendur yfir
i Reykjavik þessa dagana.
Aðsókn að Don Kikóta hefur
verið góð og sýningin hlotið ein-
róma lof gagnrýnenda.
myndlist
Halldór
Ásgeirsson
litar veggi
og gólf
í Rauða húsinu
á Akureyri
A morgun, 5. júni, kl. 16 opnar
Halldór Ásgeirsson myndlistar-
sýningu I Rauða húsinu á Akur-
eyri.
A sýningu Halldórs ber að lita
verk máluð á striga og pappir
vitt og breitt um veggi og gólf
salarins, gluggatjöld, borð og
stól, svo eitthvaö sé nefnt. A
sýningunni vinna málverkin
saman þannig að skapast ein-
hverskonar heild, þó að hvert
verk um sig eigi sitt sjálfstæöa
líf. A vissan hátt er Halldór að
tengja eldri og yngri mýtólógiu
inn i sinn eigin myndveruleika.
Sýningin stendur til 13. júni og
eropin daglega milli kl. 16 og 20.
Frá sýningu Halldórs i Rauöa húsinu.
Langbrækur
á Listahátíð:
Smælki í
galleríinu
A Listahátlð ’82 opnar Galleri
Langbrók smámyndasýningu,
laugardaginn 5. júni. Aöstand-
endur Langbrókar, sem eru 14
konur, taka allar þátt i sýning-
unni. Verkin sem sýnd verða
eru unnin i ýmis efni, svo sem
textíl, keramik, skúlptúr og
grafik og er hámarksstærð
verkanna 15 x 15 sentimetrar.
Sýningin veröur opin fram til
27. júni virka daga kl. 12 — 18 og
um helgar frá kl. 14 — 18, i húsa-
kynnum Langbrókar, Land-
læknishúsinu við Amtmanns-
stig.
gallerí
LaNGBROK
AnUmannJMÍgur I, 101 Rfyijjivik
Nemendur Bað-
stofunnar með sýn-
ingu í Keflavík
Nemendur Baðstofunnar i Keflavik halda málverkasýningu dag-
ana 5. — 13. júni I Fjöibrautaskólanum I Kcflavik.
Sýningin verður opnuð á laugardag kl. 14, og verður hún opin um
helgar frá kl. 14.00 — 22.00en virka daga frá kl. 17.00 til 22.00.
13 myndlistarmenn
sýna verk sín
í veggkössum
í Austurstræti
Gluggað
í myndir
Aiinýstárleg myndlistarsýn-
ing mun standa yfir i Austur-
strætinu næstu dagana i tilefni
en ekki á vegum Listahátiðar.
13 myndlistarmenn islenskir
munu sýna verk sin i tveimur
sýningarkössum utan á húsinu
Austurstræti 8. Skipt verður um
verk annan hvern dag I kössun-
um, þannig að það ætti alltaf að
vera forvitnilegt að ganga fram
hjá og glugga i kassana.
Þeir myndlistarmenn sem
sýna I kössunum tveimur eru:
Arni Ingólfsson, Arni Páil Jó-
hannsson, Asta Rikharðsdóttir,
Dalli, Eggert Pétursson, Elin
Magnusdóttir, Harpa Björns-
dóttir, Helgi Þorgils Friðjóns-
son, Kristbergur Pétursson,
Kristinn Harðarson, Magnús
Kjartansson, Pétur Stefánsson
og Tumi Magnússon
Kynnisferð
í Heiðmörk
Á laugardaginn efnir Skóg-
ræktarféiag Reykjavikur til
kynnis- og gróðursetningarferð-
ar undir leiösögn kunnugra i
Heiðmörk. Lagt verður upp frá
Eiliðavatnsbænum kl. 14.00 sið-
degis.
Umhverfismálanefnd Banda-
lags kvenna i Reykjavik vill
sérstaklega hvetja konur i að-
ildarfélögum Bandalagsins til
þátttöku og vekur jafnframt at-
hygli félagskvenna á daglegri
kennslu þessa viku kl. 17-19, i
gróðrarstöð Skógræktarfélags-
ins I Fossvogi.
Þá vill nefndin benda á að
skógræktarferö I Heiðmörk, úti-
vistarsvæði Reykvikinga, er til-
valin fyrir alla fjölskylduna.
Ur Heiðmörk.
Skógardagurinn
I tiiefni af skógardeginum iaugardaginn 5. jún! n.k. efnir Skóg-
ræktarfélag Hafnarfjarðar og Garðabæjar til kynningar á starfsemi
sinni. Farið verður frá tþróttahúsinu I Hafnarfirði kl. 13.30 og ekið
að Gráheiluhraunsgirðingu og trjágróður skoðaður þar, iitiö verður
á græðireit féiagsins I Hvaleyrarvatnsgirðingu. Ef veöur leyfir
veröur litið á trjágróður og hugað að örnefnum I grenndinni. — Allir
velkomnir. — Stjórnin.
Útimarkaður 1 Njarðvík
Systraféiag Ytri-Njarövikurkirkju heldur útimarkað á laugardag
kl. 2 e.h. á túninu við kirkjuna.
Þar verða til sölu sumarblóm, fjölær blóm, pottablóm, kökur og
kaffi.
1 fyrra um svipaö leyti hélt félagið svona markaö og gafst hann
mjög vel; aðsókn var gifurleg og mikið fjör.
Systrafélagið hvetur Suðurnesjabúa alla, að koma á kirkjutúniö
til að fá sér kök«r og blóm.
il —
- ffNp&ri