Þjóðviljinn - 29.09.1982, Page 16
Miðvikudagur 29. september 1982
At»a’ tmi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Aðalsími Helgarsíml afgreiðslu 81663
Uta.i pess tima er hægt aö ná i blaðamenn og aöra starfsmenn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot Kvöldsími
8X283, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er hægt 3Ö ná 1 af- greiöslu blaösins i slma 81663. Blaöaprent hefur sfma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Loftrœstibúnaður
settur upp
í Alþingishúsinu
„Til aö
kæla
þing-
mennina”
Miklar framkvæmdir hafa stað-
ið yfir innandyra í Alþingishúsinu í
sumar, og þessa dagana keppast
iðnaðarmenn við að gera allt klárt
áður en þinghald hefst í næsta
mánuði.
Afkastamikill loftræsti- og raka-
únaður hefur verið settur upp í hús-
inu, símakerfið endurbætt og dytt-
að að ýmsu öðru.
„t>að á víst að kæla þingmennina
niður með þessum búnaði ef þeim
hitnar um of í hamsi“ sögðu iðnað-
armennirnir sem unnu við að
tengja loftræstibúnaðinn uppi á
hanabjálka í þinghúsinu í gær.
Mikil vinna hefur verið við að
koma þessum stórvirka loftræsti-
búnaði fyrir, því ekkert mátti
en mestu skiptir þó að þingmenn ekki að kvíða loftleysi á komandi
og annað starfsfólk Alþingis þarf þingi. - lg/mynd - eik.
hrófla við innviðum hússins. Vel
héfur tekist til við framkvæmdina
„Viljum halda áfram
að ryðja brautina”
segir Guðjón Magnússon formaður
Starfsmannafélags Kópavogs
„Það var tekið sæmilega í
okkar kröfur, sem við lögðum
fram fyrir viku. I kvöld er svo
annar fundur okkar með full-
trúum bæjarráðs Kópavogs og
ég reikna með að hann standi
fram eftir nóttu“, sagði Guðjón
Magnússon formaður Starfs-
mannafélags Kópavogskaup-
staðar í samtali við Þjóðviljann
í gær.
„Við hér í Kópavogi höfum verið
þeirrar gæfu aðnjótandi í mörg ár
að hafa inni þessa 4 orlofsdaga sem
opinberir starfsmenn voru að
semja um til viðbótar fyrr í sumar
og einnig hafa vaktaálagsgreiðslur
verið okkur hagstæðari en annars
staðar. Þetta gerir það að verkum
að við erum með nokkuð öðru vísi
kröfugerð en gerist og gengur en
við viljum halda áfram að ryðja
brautina", sagði Guðjón Magnús-
son ennfremur.
Guðjón kvað of snemmt að spá
um úrslit þeirrar lotu sem nú væri
að hefjast hjá starfsmönnum í
Kópavogi er við spurðum hann í
lokin hverju hann vildi spá um ár-
angur viðræðnanna sem framund-
an eru. „Hins vegar er því ekki að
leyna að við hér í Kópavogi og
raunar víðar, erum afar óánægð
með þróun samningsréttar bæjar-
starfsmanna. Aðalkjarasamningar
hafa víðast færst til Launanefndar
sveitarfélaga, sem leiðir til þess að
starfsmenn þurfa að ræða við
samningsaðila utan héraðs. Raun-
ar er það svo í mörgum sveitarfé-
lögum eins og á Suðurnesjum, að
bæði aðal- og sérkjarasamningar
bæjarstarfsmanna eru ræddir utan
Guðjón Magnússon: höfum í mörg
ár haft ákvæði um þessa 4 orlofs-
daga í okkar samningum.
héraðs við ókunnuga menn sem lít-
ið þekkja til staðhátta. Þetta telj-
um við vera spor aftur á bak og
viljum að samningaviðræðurnar i
fari fram heima í héraði", sagði for-
maður Starfsmannafélags Kópa-
vogskaupstaðar, Guðjón Magnús-
son að lokum.
- v.
„Við höfum lagt fram
og kynnt okkar kröfur”
„Þetta er óðum að fara af stað
hér í Hafnarfirði en við höfum
haldið einn fund þar sem kröfur
okkar voru lagðar fram og þær
kynntar. í dag er svo haldinn
næsti fundur og þá má segja að
viðræður hetjist formlega“,
sagði Albert Einarsson formað-
ur Starfsmannafélags Hafnar-
fjarðar í samtali við Þjóðvilj-
ann.
í Starfsmannafélagi Hafnarfjar-
ðar eru 190 félagar og kvað Albert
þar vera um ákaflega sundurleitan
hóð að ræða. En hverjar eru helstu
kröfur félagsins:
„Ég vil nú ekki fara út í einstök
efnisatriði á þessu stigi en við höf-
um alllengi haft inni tvo af þeim
fjórum orlofsdögum sem samið var
um við ríkisstarfsmenn nýlega
þannig að okkar staða er nokkuð
önnur en víða annars staðar."
Og þið ráðist í gerð sérkjara-
samnings á undan aðalkjarasamn-
ingi?
„já, sá háttur er hafður á hér eins
og var með alla hópa ríkisstarfs-
manna nema lögreglumenn. Við
semjum við bæjarfélagið sjálft um
sérkjör, en fyrir hönd bæjarráðs fer
Launanefnd sveitarfélaga með um-
boð bæjarfélagsins við gerð aðal-
kjarasamnings. Því þurfum við að
ræða við tvo aðila um okkar kaup
Albert Kristinsson: viljum fyrst
ganga frá sérkjarasamningi áður
en aðalkjarasamningur kemur til
umræðu.
og kjör”, sagði Albert Kristinsson
formaður Starfsmannafélags Hafn-
arfjarðar að síðustu.
777 kynningaráskrifenda
Um þessi mánaðamót rennur út ókeypis kynningaráskrift á blaðinu. Kærir þú
þig ekki um fasta áskrift, ber þér að tilkynna það fyrir 1. október. - Við bjóðum
alla þá velkomna í áskrifendahópinn, sem ekki tilkynna uppsögn.
Stjórnarskrár-
nefndin
í Borgarnesi:
/
Ytarieg
mann-
réttinda-
ákvæði
Jafnrétti og
þjóðareign á landi
Meðal efnisbreytinga í til-
lögum stjórnarskrárnefndar
munu verða ýtarleg mannrétt-
indaákvæði. Þar er kveðið á
um jafnrétti kynjanna,
menntunarmál, félagslega
samábyrgð og samhjálp. Þá
mun vera í tillögum nefndar-
innar ákvæði um verndun
náttúruauðlinda, um þjóðar-
eign á landi og ýmisleg önnur
samfélagsleg nýmæli.
Stjórnarskrárnefnd hefur
setið á fundum undanfarna
daga í Borgarnesi og sam-
kvæmt upplýsingum blaðsins
mun nú vera búið að ganga frá
orðalagi og fullgera velflestar
greinar í tillögum nefndarinn-
ar. Þó er kjördæmamálið enn-
þá óafgreitt af nefndinni. í
stjórnarskrárnefnd sitja full-
trúar þingflokkanna og starfar
nefndin undir forsæti Gunn-
arsThoroddsen. Ragnar Arn-
alds og Ólafur Ragnar Gríms-
son eru í nefndinni fyrir Al-
þýðubandalagið.
-óg
Alþingi í
einni deild
Afnám dcildarskiptingar á
Alþingi mun vera á meðal þess
sem stjórnarskrárncfnd hefur
orðið ásátt um á fundum
sínum.
Þá eru í tillögum stjórnar-
skrárnefndar ákvæði um að
þingrofsréttur verði færður til
alþingis en hann er nú á valdi
ríkisstjórnar. Þá munu vera
þau nýmæli í tillögum stjórn-
arskrárnefndar að þing-
nefndum verði falið meira
hlutverk í framtíðinni en nú
er. Eiga þær að starfa allt árið
ög hafa einhvers konar eftir-
litsrétt um framkvæmd laga.
Þá eru í tillögunum ákvæði um
að réttur til að gefa út bráða-
birgðalög verði þrengdur.
_________________-óg
Miðstjórnar-
fundur um
helglna
Stjóraarskráin
og kosningaslagurinn
Á laugardag hefst miðstjórnar-
fundur Alþýðubandalagsins í Þing-
hóli í Kópavogi og verður fram-
haldið þar á sunnudag. Þar mun
Ragnar Arnalds hafa framsögu um
stjórnarskármálið, Baldur Óskars-
son um húsnæðismál Alþýðu-
bandalagsins og Svavar Gestsson
mun fjalla um stjórn-
málasviptingar sem framundan eru
og undirbúning kosninga.
Fundurinn hefst kl. 14.
-v.