Þjóðviljinn - 15.10.1982, Síða 3
Föstudagur 15. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Sigurður Rúnar kemur með fríðu föruneyti á vísnakvöldið og flytur iög úr
Gosa. Hér er hann ásamt nokkrum aðstandendum Gosa iitla.
Y ísnakvöld
Vísnakvöld verður í Þjóðleik-
húskjallaranum n.k. mánudags-
kvöld kl. 20.15 og kennir þar
margra grasa. Sigurður Rúnar
Jónsson kemur ásamt fríðu föru-
neyti og flytur tónlist úr Gosa,
Friðrik Karlson og Kristján Einars-
son flytja renaissance-dúetta fyrir
gítara og ljóðskáld les ljóð. Það eru
Vísnavinir sem standa að vísna-
kvöldinu og er fólki bent á að koma
tímanlega, þar sem uppselt var á
síðasta vísnakvöld.
Ungur tenór-
söngvari
með
tónleika
Páll Jóhannesson, tenórsöngvari
heldur þrenna tónleika á næstunni,
en þeir fyrstu verða á rnorgun,
laugardag, kl. 17.00 í Borgarbíó.
Þá verða tónleikar í Miðgarði
Varmahiíð á sunnudaginn kl. 21.00
og viku síðar í Hamrahlíðarskóla
kl. 17.00.
Þetta eru fyrstu opinberu tón-
leikar Páls Jóhannessonar, en hann
stundar nú nám við tónlistarskól-
ann í Fiorenzuola D’Arda á ftalíu.
Efnisskráin er mjög fjölbreytt, en
undirleikari er Jónas Ingimundar-
son.
Djass í
Hamrahlíð
Hljómsveitin Apocalypse heldur
í kvöld tónleika á vegum Nordjass í
Menntaskólanum við Hamrahiíð
og hefjast þeir kl. 20.00.
Þessi hljómsveit er tveggja ára
gömul og hefur á undanförnum ár-
um leikið víða um Evrópu. Hana
skipa þeir Allan Botchinsky, Bo
Stief, Jesper van Hof og Lennart
Gruvstedt.
Musica
Antiqua
Fyrstu tónleikar Musica Antiqua
á þessu starfsári verða haldnir í sal
Menntaskólans í Reykjavík á
morgun kl. 16.00. Leikin verður
19. aldar tónlist fyrir þverflautu og
gítar. Leikið er á traversflautu og
eftirlíkingu af gítar frá 19. öld.
Flytjendur eru kanadíski flautu-
leikarinn Alison Melville og Snorri
Snorrason. Að tónleikunum lokn-
um er hlustendum velkomið að
rabba við flytjendur og skoða
hljóðfærin.
Alison Melville og Snorri Snorrason, sem leika á fyrstu tónleikum Musica
Antiqua.
Bamaóperan hugardag og sunnudag
Úr „Litla sótaranum“, eða „Búum til óperu!“
Barnaóperan „Litli sótarinn" lensku óperunni í Gamla bíói. Benjamin Britten. Leikstjóri er
verður sýnd á laugardag kl. 17.00 Þetta er söngleikur fyrir alla fjöl- Þórhildur Þorleifsdóttir.
og á sama tíma á sunnudag hjá ís- skylduna, en höfundur er Bretinn
Frá Amsterdam
Áskrifendagetraunin
Spurningaseðill
1 og 2 endurbirtir
Hér eru endurbirtir 2 fyrstu hlutar áskrifendagetraun-
arinnar, sem hófst í fyrsta sunnudagsblaði október-
mánaðar. Þeir sem hyggjast taka þátt, eiga að safna
saman getraunaseðlum mánaðarins (þeir verða 5 í okt-
óber) og senda síðan svörin í mánaðarlok.
Eingöngu er spurt úr fréttum Þjóðviljans vikuna fyrir
hvern sunnudag.
Fyrir októbermánuð eru glæsileg verðlaun í boði, eða
ferð til Amsterdam með Arnarflugi.
Getraunin er fyrir alla áskrifendur Þjóðviljans, bæði gamla
og nýja, og einnig þá sem verða komnir í áskrifendahópinn
1. nóvember. - Áskrifendasími Þjóðviljans er 8-13-33
Og hér koma svo fyrstu tveir spurningaseðlarnir:
1. hluti - Helgin 2. - 3. október
1. Nýlega var iokið millisvæðamótinu í Moskvu. Hver
varð efstur á mótinu?
a) Beljavskí - b) Kasparov - c) Tal.
2. Menntamálaráðherra skipaði í vikunni nýjan
fræðslustjóra í Reykjavík. Hver er hann?
a) Áslaug Brynjólfsdóttir - b) Bessí Jóhannsdóttir. - c) Sigurjón
Fjeldsted.
3. Löngu verkfalli lauk í vikunni. Hverjir háðu það?
a) fóstrur sem vinna hjá Fteykjavíkurborg. - b) starfsmenn virkjun-
arframkvæmda í Tungnaársvæðinu. - c) yfirmenn á kaupskip-
um.
4. Ársfundur breska Verkamannaflokksins var haldinn
fyrir skömmu. Þar urðu sviptingar?
a) Samþykkt var vantrauststillaga á Michael Foot. - b) Hægri menn
innan flokksins gengu út í fússi og sögðu skilið við hann. - c)
Trotskíistar voru reknir úr flokknum.
5. Meirihluti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hefur tekið
eftirfarandi ákvörðun:
a) að selja hlut sinn í fiskmjölsverksmiðjunni Lýsi og mjöl. - b) að
sekta hvern þann sem segir Hafnarfjarðarbrandara innan lög-
sagnarumdæmisins. - c) að kaupa verksmiöjutogara fyrir Bæj-
arútgerð Hafnarfjarðar.
2. hluti - helgin 9.-10. október
1. í vikunni skaut upp Músavinafélaginu sem mótmælti
-ályktun Kattavinafélagsins gegn Tomma og Jenna.
Hver er formaður Músavinafélagsins?
a) Eyjólfur Konráð Jónsson. — b) Haukur Már Haraldsson. - c)
Sighvatur Björgvinsson.
2. Bók með barnaleikriti og plata með söngvum úr því
kom út í vikunni. Hvað heitir leikritið?
a) Garðveisla. - b) Gosi. - c) Öskubuska.
3. „Gróf íhlutun í innanríkismál okkar“ sagði Svavar
Gestsson um:
a) tillögur útvarpslaganefndar um að gefa útvarpsrekstur frjálsan
hér á landi. - b) ákvörðun Bandaríkjaþings um að framlag til
flugstöðvar á Bandaríkjaflugvelli verði framlengt. - c) ferðir
óþekkts kafbáts við Austurströndina.
4. Á mánudaginn var þess minnst að
a) 10 ár voru liðin f rá því að eldgosið í Heimaey hófst. - b) 15 ár voru
liðin frá því að útsendingar íslenska sjónvarpsins hófust. - c) 25
ár voru liðin frá því að Spútnik, fyrsta gervitunglinu, var skotið á
loft.
5. Verslunin Hagkaup hyggst færa út kvíarnar
a) Hefur sótt um 28 þúsund fermetra lóð í nýja miðbænum við
Kringlumýrarbraut í Reykjavík. - b) Ætlar að kaupa Kaupfélag
ísfirðinga og leggja þar með undir sig nær alla verslun á ísafirði.
- c) Hefur sótt um að fá að reisa vínveitingahús ofan á hitaveitu-
geymunum í Öskjuhlíð og reka það undir nafninu Hot Springs.